Morgunblaðið - 22.08.1995, Qupperneq 1
BLAÐ ALLRA LAMDSMANNA
1995
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST
BLAD
B
REYKJAVIKURMARAÞON
Rúnar frábær
gegn Djurgarden
RÚNAR Kristinsson fékk mikið hrós hjá sjón-
varpsþulum í sænska sjónvarpinu í gærkvöldi
þegar lið hans, Örgryte, vann Djurgarden 3:1 á
útivelli í 16. umferð í sænsku deildinni. Rúnar
gerði annað mark Örgryte í stöðunni 1:1 með
glæsilegu skoti frá vítateigshorni í ofanvert fjær-
hornið. Hann var sagður maður vallarins og
dáðist fréttamaðurinn mjög að knatttækni Rún-
ars og hugmyndaauðgi í leik hans. Með sigrinum
lyfti Örgryte sér af mesta hættusvæðinu og er í
8. til 11. sæti deildarinnar. Annar leikur var í
gærkvöldi, Frölunda og AIK skildu jöfn 1:1.
Enskir fara
ekki til Króatíu
VINÁTTULANDSLEIK Englands og Króatíu,
sem fara átti fram í næsta mánuði, hefur verið
frestað vegna átakanna í fyrrum Júgóslavíu.
Enska knattspyrnusambandið hefur verið i stöð-
ugu samb'andi við evrópska knattspymusam-
bandið og utanríkisráðuneytið en ákvað eftir '
vandlega íhugun að fresta leiknum. „Tímasetn-
ing leiksins var ekki við hæfi,“ sagði Gordon
Taylor, framkvæmdastjóri enska knattspymu-
sambandsins.
Maradona ætlar
að vera með
DIEGO Maradona ætlar að spila sinn fyrsta
knattspymuleik eftir 15 niánaða bann vegna
ólöglegrar lyfjanotkunar á HM í Bandaríkjunum,
með argentínska liðinu Boca Juniors gegn Suður-
kóreanska landsliðinu í knattspyrnu. Bannið
rennur út 29. september.
Erfiðasta
Taktfastur hlaupari
Morguriblaðið/Gunnlaugui' Rögnvaldsson
SIGURVEGARINN í maraþonhlaupi karla, Bretinn Hugh Jones hleypur hér framhjá gamalli eim-
reið á hafnarsvæði Reykjavíkur. Hann kvað mikilvægt að halda ákveðnum takti í maraþoni,
taka á jafnt og þétt, svipað og eimreið sem kominn er á fulla ferð. Honum munaði ekki um
að brosa þó hann hlypl þarna erfiðasta kafiann í seinni hring maraþonsins.
Þetta er erfiðasta hlaup sem ég
hef hlaupið á ævinni. Það var
ekki hægt að útfæra hlaupið á neinn
hátt, stundum var yindurinn í fangið,
stundum bakið. Eg varð bara að
lilaupa og reyna að halda takti, þrátt
fyrir rok og vosbúð", sagði Bretinn
Hugh Jones í samtali við Morgunblað-
ið. Hann vann maraþonhlaup karia
með sjö mínútna mun, en landi hans
Ian Bloomfield varð annar og Svíinn
Lars Röhne þriðji. Jones hafði áður
unnið hálfmaraþon hérlendis í tví-
gang.
„Það var gífurlega erfitt að hlaupa
merðfram höfninni, þar stóð vindurinn
úr öllum áttum. Vindurinn jókst tals-
vert í seinni hringnum og það var
enginn iiiöguleiki á bæta metið í þessu
hlaupi. Ég ákvað að keppa í maraþon-
inu frekar en hálfmaraþoninu, þar sem
aldurinn færist yfír. Sprengikrafturinn
er ekki sá sami“, sagði Jones, sem
verður fertugur á þessu ári „Ég hef
hlaupið heilt maraþon víða, mcðal
annars í Nepal, Vietnam, Trinidad og
Los Angeles. Síðan hleyp ég alltaf í
keppninni i London, sem er sú stærsta
ásamt keppninni í New York. Um
25.000 manns mæta í hvora keppni,
en á veturna starfa ég fyrir mótshald-
aranna í London". Jones á ágætan
tíma í maraþoninu, 2.09,24 klukku-
stundir, sem lengi vel var ekki nerna
rúmri mínútu frá heimsmeti Polo de
Castella, sem sett var 1981. En í dag
á Belanyed Dinsano heimsmetið, sem
er 2.06,50. Tími Jones í rokhlaupinu
hérlendis, 2.29,26 er langur vegur frá
því meti.
„Fyrstu tólf km reyndi ég að halda
mig fyrir aftan fremstu hlauparanna,
til að fá skjól fyrir vjndinum, en
skaust síðan frammúr. Ég reyndi að
láta ekki veðrið trufla mig. Heilinn
var náttúrulega á fullu, en ég reyndi
að láta ekki óþarfa hugsanir ná tök-
um á mér. Rýndi i umhverfið og
reyndi að halda jöfnum hraða. Það
tókst. Mér finnst mjög gaman að
keppa héliendis og kem örugglega
aftur. Svo þarf ég líka að koma liing-
að sem ferðamaður og skoða landið,
án hlaupaskóna".
ENGLAND: STJORNURNAR STÓDU VEL FYRIR SINU / B5
4-