Morgunblaðið - 24.08.1995, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
PIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995 B 5
Umfjöllun Samkeppnisstofnunar um óréttmæta viðskiptahætti
Auglýsendur
verða að sanna
kostí vöru sinnar
SAMKEPPNISSTOFNUN fékk á
árinu 1994 82 mál til umfjöllunar
þar sem reyndi á ákvæði samkeppn-
islaga nr. 8/1993 um óréttmæta
viðskiptahætti. Hér á eftir verða
nefnd nokkur dæmi um auglýsingar
sem samkeppnisyfirvöld fundu að
en þau koma fram í ársskýrslu
stofnunarinnar sem er nýkomin út.
I auglýsingum og við markaðs-
setningu á vörum og þjónustu er
það almenn regla að hallmæla ekki
fyrirtæki eða samkeppnisvöru,
hvorki beint né með því að gefa
ókosti í skyn. Kvörtun barst frá
Félagi íslenskra stórkaupmanna
vegna auglýsingar frá heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu um
lyfjakostnað. Auglýsingin birtist í
Læknablaðinu og bar yfirskriftina
„Svona auglýsa erlendir lyfjafram-
leiðendur". Var fjallað um auglýs-
ingar erlendra lyfjaframleiðenda
með neikvæðum hætti og gefið í
skyn að eitthvað kynni að vera at-
hugavert við þær. Var þeim tilmæl-
um beint til heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytis og Trygginga-
stofnunar að hætta birtingu auglýs-
ingarinnar.
Villandi upplýsingar
Óheimilt er að veita rangar, ófull-
nægjandi eða villandi upplýsingar
í auglýsingum. I auglýsingu frá
Islensk-ameríska verslunarfélaginu
hf. sagði að Ariel Ultra þvottaefni
leysti upp fitu við 40 gráðu hita.
Eftir að kvartað hafði verið yfir
þessu var fyrirtækinu gefinn kostur
á að sanna staðhæfingu sína. Tókst
það ekki. Hins vegar lá fyrir rann-
sókn úr dönsku neytendablaði sem
sýndi að fitublettir hyrfu ekki nema
að hálfu leyti með Ariel Ultra
þvottaefni við 60 gráðu hita. Sam-
keppnisráð bannaði fyrirtækinu að
auglýsa framvegis með þessum
hætti.
Sama niðurstaða varð uppi á ten-
ingnum er kvartað var yfir því að
Íslensk-ameríska verslunarfélagið
segði í auglýsingu að uppþvottalög-
urinn Yes Ultra Plus entist sex sinn-
um lengur en venjulegur uppþvotta-
lögur. Tókst fyrirtækinu ekki að
sanna réttmæti þessarar staðhæf-
ingar.
Kvartað var yfir því að Vaka-
Helgafell auglýsti innbundnar bæk-
ur í bókaklúbbnum Nýjum metsölu-
bókum. Það væri villandi þar sem
í raun væri um að ræða bækur sem
væru límdar á sama hátt og papp-
írskiljur, en ekki saumaðar. Sam-
keppnisráð taldi að forðast bæri að
nota orðalagið innbundnar bækur
nema um væri að ræða bækur
bundnar inn í hefðbundið bókband.
Vátryggingafélag íslands hf.
auglýsti bamabílstóla til leigu. í
auglýsingunum kom ekki fram að
til að fá stólinn leigðan þyrfti við-
komandi að hafa ábyrgðartrygg-
ingu hjá því sama tryggingafélagi.
Var þeim tilmælum beint til trygg-
ingafélagsins að framvegis yrði
getið um þessa skilmála í auglýsing-
um þess eða skilmálarnir felldir úr
gildi.
Fyrirtækið Brimborg hf. fullyrti
í auglýsingu að tiltekin tegund
bátavélar væri mest selda bátavélin
á íslandi og var þess getið hver
hlutdeildin væri. Við athugun kom
í ljós að sölutölur byggðust ekki á
nýjustu upplýsingum. Samkeppnis-
yfirvöld beindu þeim tilmælum til
Brimborgar að fyrirtækið breytti
auglýsingunni enda yrðu auglýsing-
ar að byggjast á þeim upplýsingum
sem nýjastar væru hverju sinni
væri annars ekki getið.
í auglýsingu um útsölu frá Rad-
íóbúðinni var „almennt grunnverð"
vara fyrir útsölu borið saman við
staðgreiðsluverð á útsölu. Gerð var
athugasemd á þeim forsendum að
bera yrði saman sambærilegt verð
þegar afsláttur eða útsala væri
auglýst. í annarri auglýsingu Rad-
íóbúðarinnar var gefið upp verð á
sjónvarpstæki og getið um afborg-
unarverð á mánuði í 36 mánuði.
Vextir og annar kostnaður voru
ekki innifaldir. Var fundið að þessu.
í sjónvarpsauglýsingu frá Ó.
Johnson og Kaaber hf. fyrir tau-
mýki kom fram að einn lítri af
Dunlett taumýki samsaraði fjórum
lítrum af venjulegu mýkingarefni.
Samkeppnisyfirvöld töldu að upp-
lýsingar þessar væru ófullnægj-
andi. Ekki kæmi fram hvað átt
væri við með „venjulegu mýkingar-
efni“ né að hvaða leyti ofangreindur
taumýkir væri frábrugðinn öðrum
mýkingarefnum. Að minnsta kosti
hefði þurft að koma fram að um
þykkni væri að ræða.
Hvenær er vara ókeypis?
I auglýsingu frá Ingvari Helga-
syni hf. var fullyrt að þeir sem
keyptu bíl hjá fyrirtækinu fengju
„fría“ ábyrgðartryggingu. Sam-
keppnisyfirvöld fundu að því þar
sem ekki mætti tala um að vara
Um 60 stofnendur
skráðir að Þýsk-ís-
lenska verslunarráðinu
32 þýsk fyrirtæki og 29 íslensk
hafa skráð sig stofnendur að Þýsk-
íslenska verslunarráðinu. í fréttatil-
kynningu frá Verslunarráði íslands
segir að þar með liggi ljóst fyrir að
ráðið verði sett á laggirnar í októ-
ber nk. og muni fljótlega eftir það
opná þjónustuskrifstofu hjá Versl-
unarráði með sérstöku starfsliði.
Skrifstofa Þýsk-íslenska verslun-
arráðsins mun einbeita sér að því
að auka upplýsingaskipti um við-
skiptakosti á íslandi og í Þýska-
landi, standa fyrir verkefnum sem
stuðla að auknum viðskiptum og
samstarfi fyrirtækja, þ.m.t. á sviði
fjárfestinga, og veita félagsmönnum
sínum ýmsa fyrirgreiðslu. Að stofn-
un ráðsins standa Verslunarráð Is-
lands, sendiráð Þýskalands í Reykja-
vík og sendiráð Islands i Bonn, svo
og áhugasamir einstaklingar frá
báðum þjóðum.
í fréttatilkynningu Verslunarráðs
segir að hér sé um að ræða fyrsta
gagnkvæma verslunarráðið sem Is-
lendingar standi að með annarri þjóð
og sem reka muiff sjálfstæða skrif-
stofu. Skrifstofan verði hér á landi
í samræmi við venju Þjóðveija í slíku
samstarfi en þeir standi að slíkum
rekstri í fjölmörgum viðskiptalönd-
um sínum.
Gert er ráð fyrir því að Þýsk-
íslenska verslunarráðið kjósi sér
fimm manna stjórn, en eins og áður
hefur verið kynnt mun ráðið jafn-
framt eiga sér heiðursforseta til
halds og trausts. Að beiðni hefur
Dr. Max Adenauer, konsúll íslands
í Þýskalandi, þegið boð um að skipa
þá stöðu fyrstur manna.
sturii trie.
Multi Vit
í frumskógi vítamína og bæticfna getur
vcrið crfitt að vdja rétta glasið. Giösin með
gula miöanum tryggja að þú íair vönduð,
náttúruleg bætiefni.sem sett eru saman með tíliiti
til íslenskra aðstæðna og samþykkt af lyfjanefnd.
Þegar þú tekur MUm vi T læröú 22 valin
bætiefni í kroppinn, 12 vítamín og 11 steinefhi.
Með því að taka MIILTIVIT daglega, byggir þú
líkamann upp og stuðlar að heilsu og hreysti.
Guli miðlnn tryggir gæðin.
Fœst ( apótekum og beilsubiUum
motvöruversUmo.
neilsuhúsi
689266 Skólavörðustíi
iaiiii§iMimvír
^t^Frí bifreiðatrygging í 6 mánuð^^
!í»rstýring á samlæf
ekk
og prins
w Visa Euro
* Jafnvel engín útborcr
i'ðustfg <tím
viQ hættunra
væri ókeypis þegar í raun væri um
kaupbæti að ræða sem fengist ekki
nema greitt væri endurgjald fyrir
aðra hluti. Sama niðurstaða varð
uppi á teningnum þegar Vaka-
Helgafell auglýsti „ókeypis“ fríð-
indakort og glæsilegan blekpenna
„að gjöf“ handa þeim sem gengju
í nýjan bókaklúbb.
Heilsuhúsið auglýsti að svokallað
Muldi Vit fjölvítamín væri „sam-
þykkt af lyfjanefnd". Talið var að
þannig væri verið að gefa í skyn
að varan hefði hlotið sérstakt sam-
þykki lyfjanefndar þegar í raun
væri einungis um það að ræða að
heimilt væri að flytja vöruna til
landsins og selja hana.
Börn og auglýsingar
Auglýsingar skulu miðast við að
börn sjái þær og heyri og mega
þær ekki misbjóða þeim. Komi börn
fram í auglýsingum skal þess gætt
að sýna hvorki né lýsa hættulegu
atferli.
Með vísan til þessara reglna
beindu samkeppnisyfirvöld þeim
tilmælum til Globuss hf. að hætta
án tafar að auglýsa rakvörur á
veggspjaldi með mynd af ungbarni
með rakvél í hendi og raksápu á
vanga.
Scandic
Hótel Loftleiðir
31. ágúst og 1. september
í þingsölum 1, 2, 3 og 4.
fimmtudag frá kl. 08:30 til 16:30
og föstudag frá kl. 08:30 til 16:00
Hands On AutoCAD
Þingsalur 3
Komið og prófið !
Tilvalið tækifæri fyrir alla þá sem vilja prófa
nýjustu útgál'u af ÁutoCAD.
Boðið verður uppá 50 mfn. langar kynningar
undir luuidleiðslu kennara þar sem gestir fá
tölvu til egin afnota.
Tölvur og annar búnaður frá Tœknival hf.
Sýning
Þingsalur 4
Vélbúnaður og hugbúnaður
Viðurkenndir AutoCAD söluaðilar
AutoShow
Fyrirlestrar / kynningar Þingsalir 1 & 2
Kl. Fimmtudag Föstudag
© IDOK Hönnun iðnfvrirtækja Point Veghonnunarkerfí
© Cadett Rufmugnshönnun GTX Meðhöndlun rasta gagua
© Tölvuvseðing ViöaWskeiTi orkustotnana IDOK Hönnun iönfyrirtækja
© Genius Véla og vélhlutatiönnun Cadett Kafmagnshönnun
© Hádegishlé Hádegishlé
© Autodesk AB Hönnunarkcrfi Genius Véla og véllilutahönnun
© Point Hönnun bygginga Samsýn 1 .andupplýsingur I AutoCAI)
© GTX MiOhöndlun rasta Kugna Autodesk AB Framtlðarstcfna
Finnur P.
Fróðason
iNNANHOSSHÖNNUÐUn PHl
tNTEHIOR DESIONER FMI
SNEKTILL
VERKFRÆÐISTOFA
= ÖRTÖLVUTÆKNI =
búnaður