Morgunblaðið - 22.09.1995, Page 16
16 D FÖSTUDAGUR 22.. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Hótel Borgarnes stækkað um 32 herbergi
maí var steypt platan, 1. júní var
steypt gólf yfir fyrstu hæð og
þannig haldið áfram upp á fjórar
hæðir og allri steypuvinnu lokið
30. júní. Um leið og efri hæðirnar
risu hver af annarri var hægt að
hefja vinnu við frágang og innrétt-
ingar á neðri hæðunum þannig að
þtjár neðstu hæðimar voru allar
komnar í notkun um miðjan júlí.
„Ég ætlaði nú ekki að taka nema
tvær hæðir í notkun í sumar en
þegar ég sá hversu hratt fram-
kvæmdirnar gengu sló ég til með
þriðju hæðina og það rak líka á
eftir mér að ég gat strax selt í
hana svo það var ekki eftir neinu
að bíða.“
Byggt úr tilbúnum
einingum
Pétur segir að þessi stutti bygg-
ingartími hafi einungis verið mögu-
legur vegna þeirra aðferða sem
Loftorka getur boðið: „Húsið er
byggt á forsteyptum einingum,
útveggir sem milliveggir. Útveg-
girnir eru einangraðir að utan og
koma tilbúnir með gluggum og
gleijaðir. Veggeiningarnar eru síð-
an boltaðar og steyptar saman og
húsið er byggt þannig að fyrst eru
veggir einnar hæðar reistir og þá
fyrst er gólf hæðarinnar steypt og
svo koll af kolli.“
Meirihluti byggingarefnisins er
fengið í héraðinu, sementið frá
Akranesi, mölin frá nálægum eyr-
um, einingarnar steyptar hjá Loft-
orku, gluggar smíðaðir í bænum
og einangrunarplastið frá Borgar-
plasti svo nokkuð sé nefnt. Konráð
Andrésson framkvæmdastjóri
Loftorku segir að aðeins járnið sé
aðfengið. „Einingamar okkar get-
um við steypt í þeirri stærð og lög-
un sem menn óska og okkur reikn-
ast til að kostnaður við veggi sé
kringum 15% lægri en eftir hefð-
bundnum aðferðum sem þýðir að
í húsum þar sem mikið er um milli-
veggi auk útveggja er þessi leið
hikstalaust hagkvæmari. Þá gefur
okkar aðferð mun meiri byggingar-
hraða sem þýðir lægri fjármagns-
kostnað enda eru fyrstu reikning-
arnir greiddir okkur þegar hótelið
er farið að fá tekjur af seldri gist-
ingu.“
Pétur segir að þrátt fyrir að hluti
hússins hafí verið tekinn í notkun
sé ýmislegt eftir: „Ég á eftir að
búa herbergin betur, flísaleggja
baðherbergin í hólf og gólf, setja
sjónvarp og síma á herbergin og
síðan ný teppi á gangana og þar
fram eftir götunum. Síðan á alveg
eftir að innrétta fjórðu hæðina og
stefni ég að því að geta verið með
allt fullbúið næsta vor þegar aðal
ferðatíminn byijar á ný. Þá verður
aðal inngangurinn færður til og
verður framvegis á miðri bygging-
unni þar sem gengið hefur verið
beint inní veitingasalina eða fé-
lagsheimilið og þar verður sem
sagt gestamóttakan framvegis. Þá
verður einnig lyfta í nýja hlutanum
og hún getur þjónað allri bygging-
unni enda er ég að verða æ meira
var við að gestir gera ráð fyrir að
hótel bjóði uppá lyftu og hún verð-
ur trúlega tekin í gagnið í janúar.“
Hvalfjarðargöngin auka
möguleikana
Hótel Borgames hefur þijá veit-
ingasali og segir Pétur að hægt
sé að hafa 360 manna veislur ef
opið sé milli þeirra allra. „Við þjón-
um svo til allri félagsstarfsemi hér
í bænum með fundaðstöðu og veit-
ingar og þar er talsvert að gera í
því yfir vetrartímann og síðan eru
veislur og árshátíðir og annað sem
krefst umfangsmikilla veitinga
enda teljum við okkur hafa ágæta
aðstöðu til þess. Hluti af hótelvið-
skiptunum tengist líka ráðstefnu-
haldi og erum við að vonast eftir
meiri bókunum vor og haust.“
Pétur sér einnig fram á að fá
fleiri ráðstefnur og aukna gistingu
í kringum ráðstefnur sem haldnar
eru í Reykjavík og tengir það vænt-
anlegum Hvalfjarðargöngum:
„Þegar göngin koma verður ekki
nema 45 mínútna akstur frá
Reykjavík og ég sé því bæði fyrir
Morgunblaðið/jt
HÓTEL Borgarnes stendur á gömlum merg og hefur nú verið stækkað. Þegar öll viðbyggingin hefur verið tekin í notkun næsta vor
eykst herbergjafjöldinn úr 43 í 75.
Um 15% lægri kostn-
adur við veggi með
forsteyptum einingum
Með notkun forsteyptra
eininga er byggingatím-
inn stuttur og fjár-
magnskostnaður þar
með lægri en þessi leið
var farin þegar Hótel
Borgames var stækkað.
Jóhannes Tómasson
kynnti sér hótelbygg-
inguna en kostnaður á
hvert herbergi er rúmar
tvær milljónir króna.
HÓTEL Borgarnes stendur á göml-
um merg og hefur verið rekið allt
frá árinu 1891 eða í yfír heila öld.
í sumar var hótelið stækkað og
hluti viðbyggingarinnar tekinn þá
í notkun og þegar húsið fullbúin á
næsta vori hefur herbergjum íjölg-
að úr 43 í 75. Kostnaður á hvert
nýtt hótelherbergi er rúmar tvær
milljónir króna og heildarfjárfesting
verksins því um 70 milljónir. Hótel
'Borgames er rekið í nafni hlutafé-
lags og er aðaleigandi þess Pétur
Geirsson sem stundað hefur veit-
ingarekstur í yfír 30 en rúm fjögur
ár eru síðan hann keypti meirihlut-
ann í hótelinu í Borgarnesi.
Hótel Borgarnes hefur átt við
fjárhagsvanda að etja all-
mörg síðustu árin og þegar
ég kom að rekstrinum komst ég
að raun um að vandinn var síst
minni en tölumar sögðu mér. Fyrstu
þijú árin fóru því aðallega í að skera
niður kostnað og spara allt sem
hægt var,“ segir Pétur Geirsson í
samtali við Morgunblaðið. „Þegar
þessum aðgerðum var lokið sá ég
að þessi rekstrareining var hrein-
lega of lítil og stóð þá frammi fyrir
þeirri spumingu hvort unnt væri
að stækka hótelið með einhveiju
móti. Við könnuðum ýmsar leiðir,
meðal annars hvort hentugt væri
að taka eitthvað af veitingasölunum
og breyta þeim í herbergi en sáum
að það myndi ekki ganga. Viðbygg-
ing var því eina vitið og ákvað ég
að ráðast í hana um leið og minnsta
vísbending kæmi frá markaðnum
um að viðskiptin gætu aukist.“
Teiknaðinnan frá
„Um síðustu áramót var ég far-
inn að hugsa hvernig sú stækkun
gæti orðið, setti fram hugmyndir
um herbergjastærð og fjölda,
gangarými og annað sem máli
skipti og teiknaði eiginlega hótelið
innan frá ef svo mætti segja og
aflaði mér upplýsinga um alla
kostnaðarliði. Ég hafði samband
við Konráð Andrésson í Loftorku
sem er með aðalaðsetur sitt hér í
bænum, steypustöð og framleiðslu
á steinsteyptum einingum og
spurði hvort hann gæti byggt þetta
fyrir mig fyrir tiltekið fermetram-
verð. Hann treysti sér til þess og
þá var undirbúningi haldið áfram
og Bjarni Vésteinsson bygginga-
tæknifræðingur á Akranesi ráðinn
til að teikna viðbygginguna og hóf
undirbúninginn af fullum krafti.
Ákveðið var að byggja fjögurra
hæða hús og að herbergin yrðu
32.“
Pétur taldi sig síðan hafa fengið
vísbendingu frá markaðnum um
að þörf væri stækkunar og í lok
mars hófust framkvæmdir við
grunninn. í lok apríl voru steyptir
,veggir fyrir kjallarann, um miðjan
HÉR eru þeir Pétur Geirsson hótelsljóri (t.v.) og Jón sonur hans
í anddyrinu sem flutt verður til þegar nýi hlutinn verður endan-
lega tekinn í notkun næsta vor.
ÞRÍR veitingasalir eru í Hótel Borgamesi og taka þeir alls 360
manns í sæti.