Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 20
20 E SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
NEYTENDAMÁL
Betri upplýsingamiðlun
forsenda f ramfara
RUNDVALLARFORSENDA
fyrir framförum á sviði neyt-
endamála er að neytendur séu vel
upplýstir og þá á ég við að þeir
eigi auðvelt með að velja það sem
er hagkvæmast hveiju sinni því
það verður sífeilt mikilvægara að
neytandinn hafi getu og þekkingu
til að velja úr mismunandi valkost-
um þar sem fjölbreytileiki vöru og
þjónustu er alltaf að verða meiri,“
segir Sigríður Arnardóttir lögfræð-
ingur Neytendasamtakanna.
„Að auki er mikilvægt að neyt-
endur séu vel upplýstir um réttindi
sín og veiti þannig viðskiptalífmu
það aðhald sem það sannarlega
þarfnast."
Það er mjög nauðsynlegt að
__koma upplýsingum til neytenda á
framfæri á aðgengilegan hátt þann-
ig að þeir geti tileinkað sér þær og
með reglubundnum hætti. Við vit-
um að neytandinn fer ekki í stjóm-
artíðindi til að kynna sér löggjöf
og reglur," segir Sigríður, og bætir
við að íslendingar þurfi að auka
upplýsingastreymi til neytenda til
mikilla muna. Islendingar geti mik-
ið lært af Norðurlöndunum um það
hvernig hagmýtum upplýsingum sé
komið á framfæri við neytendur
þannig að fólk standi betur að vígi
þegar það tekur ákvarðanir.
' Hún sagði vátryggingasviðið
dæmigert fyrir málaflokk þar sem
þörf væri á aukinni upplýsingagjöf
enda væru tryggingar oft dýrar
og mikilvægt að velja rétt til að
tryggja sér nauðsynlega trygg-
ingavernd. Til að fólk hafi mögu-
leika á að framkvæma slíkt val
þurfi góðar upplýsingar að vera
fyrirliggjandi. Því væri til dæmis
æskilegt að bjóða neytendum
ákveðna grunntryggingu þannig
að tryggt sé að ákveðnir lágmarks-
þættir séu inni í tryggingunni
þannig að neytendur eigi betra
með að gera raunhæfan sam-
anburð milli tryggingafélaga bæði
hvað varðar verð og það hvaða tjón
er bætt og hvað er ekki bætt.
„Það er ekki einfalt mál fyrir
fólk út í bæ og tímafrekt að gera
slíkan samanburð,“ sagði Sigríður.
Öryggi í fjármálum er mikilvægt
til þess að fjölskyldan geti
áhyggjulaus notið lífsins.
Greiðsluþjónusta Sparisjóðanna
léttir þér fjármálavafstrið,
gluggabréf heyra sögunni til
og þú hefur mun betra yfirlit
yfirfjármálin.
Þú getur valið milli þriggja leiða
í Greiðsiuþjónustu Sparisjóðanna:
Greiðsludreifing
Við gerum greiðsluáætlun fyrir
árið og þú borgarjafnar
mánaðarlegar greiðslur.
i Stakar
Sparisjóðurinn greiðir fasta
reikninga, s.s. hitaveitu-,
fjölmiðla- og rafmagnsreikninga.
| Greiðslujöfnun [
komi til þess að greiðslur
einstakra mánaða séu hærri en
inneign þín lánar Sparisjóðurinn
mismuninn.
| Greiðsluþjónusta Sparisjóðanna |
er þægileg og örugg leið til að ná
jafnvægi í fjármáium þínum og
heimilisins.
GREIÐSLUpJONUSTA
SPARISJOÐAN NA
MORGUNBLAÐIÐ
„Ef við berum okkur saman við
Norðurlöndin eru þar til sérstakar
óháðar skrifstofur, sem eru kostað-
ar af tryggingafélögunum en eru
óháðar og reknar í samráði við
neytendasamtök og hið opinbera.
Þangað getur fólk hringt inn og
spurt um þessa hluti og einnig um
rétt sinn og stöðu. Þetta væri mjög
þarft verkefni hér.“
Annar þáttur neytendafræðslu
snýr að almenna skólakerfmu. Hér-
lendis er fræðsla um neytendamál
ekki þáttur í almennu námi. „Á
Norðurlöndunum er neytenda-
fræðsla hluti af námi í grunnskólum
og framhaldsskólum oft þannig að
ýmsum námsgreinum er blandað
saman. Þannig er fólk gert meðvit-
aðra um sína stöðu,“ sagði Sigríður.
Neyslan
kostar sitt
• Hjón, sem bæði reykja einn
pakka af sígarettum á dag, greiða
fyrir það um 195 þúsund krónur
á ári miðað við að hver pakki
kosti 267 kr.
• Ef þau kaupa eina kippu af
bjór á viku kostar það um það bil
50 þúsund á ári.
• Það kostar 84 þúsund krónur á
ári fyrir hjón að fara vikulega í
bíó og kaupa þar gos og poppkom.
• Miðað er við að bíómiðinn kosti
550 krónur og gos og poppkorn
250 krónur. Fyrir einstakling eru
þessi útgjöld 42 þúsund krónur á
ári eða 84 þúsund fyrir hjón.
• Til að hafa 84 þúsund krónur
til ráðstöfunar þurfa hjón að auka
tekjur sínar um samtals 144.600
krónur, miðað við 41,94% tekju-
skatt.
• Gera má ráð fyrir að ein pizza
á viku kosti um 80 þúsund kr. á ári.
• Ein léttvínsflaska á viku af al-
gengri ódýrri tegund gæti kostað
um 47 þúsund krónur á ári.
• Skyndibiti og sælgæti fyrir 400
krónur á dag kostar 146 þúsund
krónur á ári ef keypt er á hveijum
degi.
• Ef við bætast tveir lítrar af
gosi og snakk einu sinni í viku
gæti kostnaðurinn aukist um 20
þúsund krónur á ári.
• Það kostar 21 þúsund krónur
á ári að leigja eina myndbands-
spólu á viku fyrir 400 krónur í
hvert skipti.
• Samtals nema þessi útgjöld
637 þúsund krónum. Til að mæta
þeim þarf að auka tekjur sínar
um að minnsta kosti 1.074 þúsund
krónur.
Sex heillaráð
til að ná betri
tökum á
fjármálunum
Fjármálahandbók VÍB, 1992
GREIÐSLUERFIÐLEIKAR fólks
eru ekki alltaf tilkomnir vegna
tekjumissis eða atvinnuleysis,
heldur er oft um að kenna slakri
fjármálastjóm. Ekki þýðir að
treysta á stóra vinninginn í lottó-
inu þegar í óefni er komið heldur
verður fólk að beita þolinmæði
og skynsemi, skipuleggja fjármál-
in vel og taka eitt skref í einu.
Omggasta leiðin til að ná góð-
um tökum á fjármálunum er að
skipuleggja sig vel. í góðri skipu-
lagningu felst:
• Að hafa góða yfirsýn yfir fjár-
málin.
• Að setja sér markmið í Qár-
málum, bæði til skemmri og
Iengri tima.
• Að búa sér til stefnu í fjármál-
um til langs tima til að ná þessum
markmiðum.
• Að ávaxta peninga sína á skyn-
samlegan hátt.
• Að fylgjast vandlega með þvi
hvort ávöxtunin sé í samræmi við
sett markmið.
• Að bregðast við ef áætlanir
ganga ekki eftir.