Morgunblaðið - 23.02.1996, Síða 20
:0 D FÖSTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
GamaH leður
Smiðjan
Blautt leður þarf að þurrka hægt á löngrim
tíma, segír Bjami Qlafsson, sem hér ijallar
m.a. um gömul reiðtygi.
GÖMUL beisli, aktygi, hnakkar
o.fl. gamlir nytjamunir úr leðri
hafa í sambandi við notkun liðinna
áratuga hlotið heldur óblíða með-
ferð. Geymslustaður hefur mikið
að segja í sambandi við endingu
leðursins.
essi búnaður sem ég nefndi
hér að framan er mjög dýr í
framleiðslu og kostar því mikið
ef endumýjunar er þörf. Til sveita
voru reiðtygi venjulega hengd upp
í einhverju útihúsi. Það fer illa
með leður ef það er varðveitt þar
sem mikill raki er og það nær
ekki að þoma, t.d. á milli þess að
vera í notkun. Þá sækir á leðrið
mygla og skordýr leita einnig í
það. Þá hefur brennisteinsloft
slæm áhrif á leðrið, bæði lit þess
og það verður stökkt og springur.
Til þess að hreinsa leður er
ágætt að þvo það úr volgu sápu-
vatni, en nota ber milda sápu. Fitu
og óhreinindi má þvo burt með
terpentínu, spritti eða acetoni.
Blautt leður þarf að þurrka
hægt á löngum tíma, t.d. eftir að
það hefur verið þvegið eða notað
úti í votviðri, það harðnar og
springur frekar, sé það þurrkað
við of mikinn hita. Gott er að
stijúka fyrst yfir það með tusku
eða svampi til að ná af því mesta
vatninu.
Málað leður
Leður hefur verið notað í svo
fjölbreytt verkefni og það hefur
fylgt mönnum sem ómissandi
nytjaefni alveg frá því að menn
fóm að veiða dýr til matar. Þeir
notuðu allt af dýrunum. En marg-
ir eiga skrautmuni stóra og smáa
sem annaðhvort eru alveg úr leðri
eða að hluta til. Nefna má í því
sambandi skrautkassa sem eru
klæddir með leðri, kistur og koff-
ort. Stundum er leðrið skrautmál-
að og lagt gullþynnum í skrautið.
Vilji svo til að einhver lesandi þess-
arar smiðjugreinar eigi slíkan kjör-
grip sem þarfnast viðgerðar, ræð
ég eigandanum eindregið frá að
reyna sjálfur að gera við leðrið. í
slíku tilviki þarf að leita til sér-
fræðings í slíkum viðgerðum.
Þá þarf að umgangast leður á
bókum með gætni. Það er yfirleitt
óþarfí að bera fitu eða olíu á leður
sem notað hefur verið til bókbands
og hætt er við að gyllingin á kjöln-
um fari forgörðum við að bera fitu
á kjölinn.
Olía á ólar
Ólar á reiðtygjum og beislum
eru stundum býsna óhreinar, ekki
síst ef þær hafa hangið lengi inni
í óþéttri geymslu. Þá er þörf á að
þvo leðrið og er gott að nota volgt
vatn blandað grænsápu eða sól-
skinssápu og að nota mjúkan, þétt-
an bursta við þvottinn. Á eftir
þarf að þurrka mestu bleytuna af
leðrinu, annaðhvort með svampi
eða hreinni tusku. Síðan þarf leðr-
ið að fá að þorna hægt við stofu-
F a ste ig n a sa la n
KJÖRBÝLI
NYBYLAVEGUR 14
- 200 KÓPAVOGUR
FAX 554 3307
'S'5641400
Opið virka daga 9.30-12 og 13-18
og laugardaga kl. 12-14
2ja herb.
SÓLHEIMAR - 2JA. Skemmtil. 45
fm íb. í kj. (lítið niðurgr.). Fráb. staðsetn.
Stutt í alla þjónustu. V. 3,9 m.
GULLSMÁRI 11 - ELDRI
BORGARAR. Glœsil. ný fullb. I
43 fm einstaklingsíb. á 6. haeð i
húsi tengdu þjónustumiðstöð.
Vandaðar innr. Ákv. sala. V. 4,6 m.
JÖKLAFOLD - 2JA + BÍLSKÚR.
Sérl. falleg 60 fm íb. á efstu hæð í litlu
fjölb. ásamt ca 20 fm bílsk. Áhv. ca 2,7
millj. V. 6,6 m.
FURUGRUND - 2JA. Sérl.fal-
leg 58 fm ib. á 3. hæð í litlu fjölb.
Parket. Otsýní. Laus fljótl. V. 5,5 m.
3ja herb.
GULLSMÁRI 9 - FYRIR
ELDRI BORGARA. Glæsilegar
3ja herb. íbúðlr 72-76 fm á 10.-12.
hæð í hú8i tengdu þjónustumið-
stöð. Afh. fullb. án gólfefna í júll
nk. Verð frá 7,1 m.
ÁSBRAUT - 3JA
Falleg ca 65 fm ib. á 2. hæð á frá-
bæru verði, aðeins 5,3 millj. Áhv.
byggsj. 2,0 millj.
HJÁLMHOLT 7 - 3JA. Sérl. falleg
71 fm íb. á jarðhæð í þríb. Góð staðsetn.
Allt sér. Áhv. 3,8 millj. V. 6,1 m.
ÁSBRAUT - 3JA. Sérl. falleg 82 fm
íb. á 3. hæð. Útsýni. V. 6,3 m.
ÁLFHÓLSVEGUR. Falleg ca 70 fm
íb. á 2. hæð í Steni-klæddu fjórb. ásamt
20 fm bílsk. með kj. V. 6,8 m.
4ra herb. og stærra
ESKIHLÍÐ - 4RA. Falleg mikið end-
urn. ca 100 fm íb. á efstu hæð (4.) í
góðu húsi. Frábær staðs. V. 7,2 m.
AUÐBREKKA. Falleg 100 fm íb. á
efri hæð í tvíbýli. Mikið endurn. Áhv.
byggsj. 3 m. V. 7,5 m.
ÁLFHEIMAR - 4RA. Sérl. falleg ca
100 fm íb. á 4. hæð. Ákv. sala. V. 7,3 m.
ENGIHJALLI 9 - 4RA. Sérl
falleg ca 100 fm /b. á 6. hæð. Park-
et. Góðar innr. Ákv. sala. V. 6,9 m.
FURUGRUND - 4RA ÁSAMT
BÍLAG. Falleg 85 fm íb. á 4. hæð í
lyftuh. Suðursv. Gott útsýni. Áhv. 3 m.
V. aðeins 6,9 m.
BREKKUHJALLI - KÓP. - 4RA.
Skemmtil. ca 113 fm neðri sérhæð í vina-
legu eldra timburhúsi. V. 6,3 m.
ÁSBRAUT - KÓP. - 4RA ÁSAMT
BÍLSKÚR. Glæsileg 86 fm endaíb. i
vestur á efstu hæð í nýklæddu fjölb. Frá-
bært útsýni. Áhv. 2,9 m. V. 7,6 m.
KÁRSNESBRAUT - KÓP. 4RA
ÁSAMT BÍLSKÚR. Sérl. falleg ca 90
fm íb. á 1. hæð í fjórb. ásamt bílsk. Park-
et. Áhv. byggsj. 2,3 millj. V. 7,7 m.
HJARÐARHAGI 30 - RVÍK - 4RA.
Góð 83 fm íb. á 3. hæð í góðu fjölbýli.
Áhv. 2,3 m. V. 7,1 m. Laus fljótl.
FURUGRUND - 4RA. Falleg 86 fm
íb. á 3. hæð. Áhv. 2 m. V. 7 m.
HÆÐARGARÐUR - 4RA.
Sérl. góð 76 fm efri sérh. ásamt
rislofti á þessumfráb. stað. V. 7,7 m.
KJARRHÓLMI - 4RA. Sérl. falleg
90 fm íb. á 3. hæð. V. 7,4 m.
LAUFVANGUR - HF. Falleg 4ra-5
herb. 110 fm íb. á 2. hæð. Áhv. byggsj.
3,5 millj. V. 7,9 m.
Sérhæðir
ÁLFHÓLSVEGUR - SÉRH.
Sérl. góð neðri sérh. í tvíbýli ásamt
bilsk. og nýl. sólskála alls ca 195
fm. Arinnístofu.Útsýni. V. 10,8m.
FROSTAFOLD — 4RA. Stórglæsíl.
119 fm íb. á 1. hæð í litlu fjölb. Sérsmíð-
uð innr. 25 fm bílsk. V. 10,5 m.
Raðhús - parhús
SELBREKKA - RAÐH. Fal
legt og vel við haldið 250 fm enda-
raðh. m. innb. bílsk. V. 13,2 m.
ÁLFHÓLSVEGUR. Sérl. skemmtil.
120 fm tvíl. endaraðhús ásamt 32 fm
bílsk. Ákv. sala. V. aðeins 9,8 m.
ÁLFHÓLSVEGUR - PARH.
Glæsil. og vandað 160 fm parh.
með innb. bílsk. Skipti á mlnni eígn
mögul. V. 11,9 m.
ÁLFHÓLSVEGUR - KÓP. -
RAÐH. Fallegt nýl. 190 fm raðh. á
tveimur hæðum ásamt kj. V. 10,9 millj.
Einbýli
ÞINGHÓLSBRAUT - EINB.
Sérl. skemmtil. mikið endurn. 165
fm eínb. Parket. Stór garður, Frób.
útsýni. V. 11,9 m.
HLÉGERÐI - KÓP. Sérl. fallegt óg
vel hannað 203 fm einb. með innb. bílsk.
Nýtt þak o.fl. Skipti mögul. V. 15,9 m.
ÁLFAHEIÐI - EINB. Glæsil. nýl. 180
fm tvíl. einb. ásamt bilsk. Frábær staðs.
nálægt skóla. Skipti mögul. V. 13,9 m.
KÓPAVOGSBRAUT. Gamalt og
vinalegt 142 fm einb., hæð og ris, á
stórri hornlóð. Bílskréttur. V. 9,7 m.
BÁSENDI - RVÍK - EINB. Fallegt
og vel um gengið 156 fm tvíl. einb. á
þessum fráb. stað. Mögul. á einstaklíb.
í kj. V. 10,9 m.
HVANNHÓLMI - KÓP. Fal-
legt 262 fm tvíl. einb. m. innb. bil-
skúr. Skipti mögul. V. 13,9 m.
FAGRIHJALLI - EINB./TVÍB.
Glæsil., fullb. 234 fm hús á tveimur
hæðum m. innb. bílsk. V. 16,9 m.
I smíðum
BLIKAHJALLI 2 OG 4
Glæsil: hönnuð raðhús á tveimur hæðum
með innb. bílskúr, alls ca 200 fm. Frábær
staðs. neðst í Digraneshlíðum við opið
svæði. Húsin seljast fullb. að utan, mál-
uð, frág. lóð og hiti í steyptu bllaplani.
Að innan fokh. Verð frá 9,9 millj. Einnig
hægt að fá húsin lengra komin.
DIGRANESHEIÐI - EINB, Glæsil.
ca 240 fm einb. á fráb. útsýnisstað. Afh.
fullb. að utan, fokh. að innan eða lengra
komið. V. frá 12,9 m.
EKRUSMÁRI - RAÐH. Glæsil.
hönnuð 165-172 fm raðh. á einni hæð
með koníaksstofu í útsýniskvisti. Afh.
fullb. að utan, fokh. að innan. V. 8,4 m.
og 9,1 m. (vesturendi).
BAKKAHJALLI - RAÐH. Vel hann-
að 236 fm hús á tveimur hæðum með
innb. bílsk. Selst fullb. að utan og u.þ.b.
tilb. til innr. að innan. V. 12,2 m.
GRÓFARSMÁRI - PARH. I85fm
hús á tveimur hæðum með innb. bílsk.
Selst fullb. að utan, fokh. að innan. V.
8,9 m.
EYRARHOLT 14 - HF. 160 fm íb.
á tveimur hæðum í litlu fjölb. Afh. tilb.
til innr. Fráb. útsýni. Góð grkjör. V. 8,9 m.
Atvinnuhúsnæði
AUÐBREKKA 2 - KÓP. Vel sta<F
sett 460 fm húsnæði sem skiptist í stóran
sal, sérskrifstofur o.fl. Hentar t.d. félaga-
samtökum o.fl. Verð: Tilboð.
NÝBÝLAVEGUR - KÓP. Vandað
fullb. skrifstofuhúsn. á þremur hæðum
í hjarta Kópavogs. Lyfta. Stærðir frá 120
fm. Leiga/sala.
HAFNARBRAUT - KÓP. 983 fm
skrifstofuhúsn. á tveimur hæðum. Selst
rúml. fokh. að innan, fullb. að utan.
HLÍÐASMÁRI - KÓP. Höfum til
sölu skrifstofuhæðir I ýmsum stærðum
í glæsil. nýbyggðum húsum, fráb. vel
staðsettum á miðju höfuðborgarsvæð-
inu. Eignirnar seljast tilb. til innr., fullfrág.
að utan og sameign.
Höfum á skrá fjölda góðra
eigna. Nánari uppl. á skrifst.
Guðlaug Þorsteinsdóttir, ritari.
Kristjana Jónsdóttir, sölustjóri.
Rafn H. Skúlason, lögfr., lögg.
fast.sali.
MARGT gamalla muna getur verið gleymt og grafið en samt
þess virði að geymt sé. Beislisstangir, skeifa og skaröxi.
3 t>.
hita áður en borið er á það.
Það getur verið heillaráð, eftir
að álar reiðtygja hafa verið þvegn-
ar og þurrkaðar, að bera á þær
mjúka litjausa fitu. Best er að
bera á fitu sem er að mestu leyti
vax, ekki blandað siliconi saman
við. Litlaus skóáburður getur verið
ágætur, hann má þó ekki vera
blandaður siliconi. Best er að bera
mjög þunnt lag yfir leðrið. Við
slíkan áburð verða ólarnar mýkri
og sveigjanlegri. Þó ekki of mikla
fitu á leðrið, það er óþarft.
Beislisjárn
Það er óskemmtilegt þegar
gömlu beislin eru skoðuð ef mélin
og stengurnar hafa ryðgað. Jafn-
vel þótt ekki sé ætlunin að taka
þau í notkun, heldur e.t.v. að eiga
þau hangandi inni.
Til þess að hreinsa ryðið af er
einna heppilegast að nota vír-
bursta og fína þjöl. Það fást t.d.
litlar vírburstaskífur sem hægt er
að setja í handhæga vél, borvél
eða í smergel. Gamlar beislis-
stengur voru oft úr járni en húðað-
ar með tini í því skyni að verja
þær ryði. Nú kann að vera, ef um
slíkar stengur er að ræða, að tinið
hafi eyðst af þeim á köflum en
hafi haldist á öðrum blettum. Af
þessum sökum er nauðsynlegt að
skafa ryðið og pússa en ekki að
nota bað eða efnaupplausnir til
þess að fjarlægja ryðið af járninu.
Ryðgaðir smáhlutir
Hafir þú fundið forna skeifu eða
annan hlut úr jámi sem þig langar
til að hreinsa ryðið af þá getur
verið möguleiki á að nota aðra
aðferð. En til þess að geta notað
efnaupplausn við að fjarlægja ryð
af hlutum er nauðsynlegt að
þekkja önnur áhrif sem fýlgja
þeirri aðferð. Slík upplausnarefni
geta t.d. haft í sér fosfórsýru.
Járnið getur orðið of hreint og
orðið á þann hátt enn viðkvæmara
fyrir ryði á eftir. Einnig getur
verið að þunnir fletir eða skreyttir
séu tærðir eftir ryðið svo að þeir
þoli illa efnameðhöndlun. Þá kann
að vera betra að bursta eða skafa
ryðið af þeim hluta.
Stundum eru báðar aðferðir
nauðsynlegar, t.d. ef jám hefur
legið lengi á jörðu. Þá er það að-
eins á færi sérmenntaðra fag-
manna, sem starfa fyrir minjasöfn,
að hreinsa og stöðva ryðmyndun
í gömlu jámi. Sé notuð blanda
með vatni þarf að þurrka vatnið
strax á eftir í heitum ofni eða blás-
ara.
Skeifa
Það eru margir sem hengt hafa
skeifur yfir dyrum hjá sér og
segja að það sé gæfumerki að
finna skeifu. Skeifa sem hengd
er upp til skrauts þarf helst að
vera hrein og ekki ryðguð. Ef þú
átt einhvern smáhlut úr járni sem
þig langar til að nota til prýði eða
minninga inni hjá þér, þá gef ég
hér upp aðferð til hreinsunar á
ryði. Vegna uppgufunar á sýru
skaltu vinna að þessu úti. Fáðu
þér fötu eða lítinn bala úr plasti.
Hafðu gúmmíhanska á höndunum
og gættu þess að vatn með sóda
slettist ekki á hörund þitt eða í
augun!! Svo blandar þú: 12 1
vatn og 1 dl sódi. Vitanlega má
þetta vera helmingi minna magn:
6 1 vatn og 0,5 dl sódi. Þú pakkar
síðan hlutnum, sem þú ætlar að
hreinsa, inn í álþynnu og leggur
þetta ofan í sódaupplausnina.
Þegar álþynnan er uppleyst tekur
þú hlutinn gætilega upp úr vatn-
inu með töng og skolar hann síð-
an vandlega og burstar og skefur
undir rennandi vatni. Vera má
að þú þurfir að endurtaka baðið,
til að hreinsa betur. Síðan hrað-
þurrkar þú hlutinn í heitum ofni
eða við hitablásara og berð að
lokum saumavélarolíu á hinn
hreina hlut.
ERTU AÐ STÆKKA VIÐ ÞIG
HÚSBRÉF BRÚA BILIÐ
£
Félag Fasteignasala