Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
Mörk skoruð beint úr hornspyrnu 1977-96*
Haraldur Ingólfsson, leikmaður ÍA, var nálægt því að
skora beint úr hornspyrnu gegn Leiftri á laugardag en
markið skrifast á Þorvald Jónsson markvörð norðan-
manna. Haraldur tók hornspyrnu frá hægri en Þorvaldur
sló knöttinn er hann sveif inn á markteiginn og þaðan
skaust hann í markið. En ekki er úr vegi að rifja upp þau
mörk sem gerð hafa verið beint úr hornspyrnum í 1.
deild karla síðan liðum varfjölgað í tíu lið 1977.
Ár Dagsetn. Leikur Markaskorari, lið Mín. Markvörður, lið
1977 8. júní UBK - KR Hálfdán Örlygsson, KR 90. Ólafur Hákonarson, UBK
1981 15. maí UBK - Fram Pétur Ormslev, Fram 22. Guðmundur Ásgeirsson, UBK
1982 26. júní KA-ÍBV Ómar Jóhannsson, ÍBV 82. Aðalsteinn Jóhannsson, KA
15. júlí Víkingur - ÍBK Stefán Halldórsson, Víkingi 3. Þorsteinn Bjarnason, ÍBK
17. júlí ÍBV - ÍBÍ Gunnar Pétursson, ÍBÍ 3. Páll Pálmason, ÍBV
21. ágúst ÍBV-KA Eyjólfur Ágústsson, KA 65. Páll Pálmason, ÍBV
1983 24. ágúst ÍBÍ - KR Sverrir Herbertsson, KR 56. Hreiðar Sigtryggsson, ÍBÍ
1986 13. sept. Víðir-ÍBV Ómar Jóhannsson, ÍBV 38. Gísli Hreiðarsson, Víði
1988 18. sept. Valur-KR Sæbjörn Guðmundsson, KR 22. Guðmundur Baldursson, Val
'Liðum í fyrstu deild í knattspyrnu var fjölgað í 10 árið 1977 Samantekt: Óskar Ó. Jónsson
■ KVA sem leikur í Austurlandsr-
iðli 4. deildar í knattspyrnu, hefur
fengið Júgóslava til liðs við sig.
Hann heitir Drakoslav Stojanvic.
■ PATRICK Roy markvörður
Colorado í NHL-deildinni lék sinn
133. leik í úrslitum um Stanleybik-
arinnn er Colorado og Florida
mættust í fyrsta úrslitaleiknum
fyrir helgi (og er nú reyndar kom-
inn í 135 leiki). Þar með hafði hann
leikið fleiri leiki í úrslitakeppni
NHL en nokkur annar markvörð-
ur. Sá sem átti fyrra metið er Billy
Smith fyrrum markvörður New
York Islanders og núverandi þjálf-
ari Panthers.
■ ÚLFAR Jónsson, fyrrum ís-
landsmeistari í golfi, keppti sem
gestur á Opna Islandsbankamót-
inu, sem fram fór á Keilisvelli í
Hafnarfirði á laugardaginn. Hann
lék á 64 höggum, sem er fjórum
höggum undir pari vallarins.
■ SÆNSKU landsliðsmennirnir í
handknattleik, Pierre Thorsson
hjá Linköping og Anders Bácke-
gren, sem leikið hefur með Re-
bersglid, hafa báðir gert tveggja
ára samning við þýska 1. deildar
UfómR
FOLK
félagið Bad Schwartau.
■ SMITH á þó enn eitt met eftir.
Hann lék í markinu í 88 sigurleikj-
um en Roy hefur verið í sömu stöðu
í 86 skipti og því ljóst að hann
getur ekki slegið metið á þessu
keppnistímabili þar sem hann Col-
orado hefur þegar unnið þtjá leiki
og þarf aðeins einn sigurleik til
viðbótar til að hampa Stanleybik-
arnurn.
■ YVONNE Murray samveldis-
meistarinn í 10.000 metra hlaupi
lýsti því yfir um helgina að hún
verði ekki meðal þátttakenda á
Ólympíuleikunum í Atlanta í sum-
ar. Ástæðan er sú að hún segist
ekki verða í nógu góðri æfingu og
hún hafi ekki áhuga á að vera
meðal þátttakenda nema geta verið
í fremstu röð. „Mér finnst ekki
rétt gagnvart þjóð minni að mæta
á leikana og vera ekki í topp-
formi,“ sagði Murray.
■ ÍÞRÓTTAFORKÓLFAR í
Eþíópíu eru nú að fá dagskrá
frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikana
í sumar breytt þannig að Derartu
Tulu geti keppt bæði í 5.000 og
10.000 metra hlaupi kvenna. Ein
af röksemdum þeirra er að úr því
hægt var að breyta dagskránni
fyrir Michael Johnson þannig að
hann geti keppt bæði 200 og 400
metra hlaupi þá sé alveg eins hægt
að hliðra til fyrir Tulu. Verði ekki
komið til móts við Tulu og óskir
hennar ætlar hún einungis að
keppa í 10.000 metra hlaupi.
■ PETE Sampras tennismaður
heldur enn fyrsta sætinu þrátt fyr-
ir að hafa tapað í undanúrslitum á
Opna franska mótinu og Thomas
Muster heldur öðru sætinu þrátt
fyrir hrakfarir. Sigurvegarinn í
mótinu Rússinn Yevgeny Kafeln-
ikov hefur hins vegar færst upp
um eitt sæti á lista Alþjóða tennis-
sambandsins sem birtur var í gær.
USTAHATHNR
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík var
sett á dögunum og hver
stórviðburðurinn rekur nú annan
í borginni; sannkölluð veisla fyrir
unnendur góðrar listar af ýmsu
tagi.
Ónnur hátíð, sann-
kölluð listahátíð á veg-
um UEFA, Knatt-
spymusambands Evr-
ópu, var sett á laugar-
dag suður í Lundúnum
og nú sitja menn
spenntir víða um heim, límdir við
sjónvarpsskjái; úrslitakeppni
Evrópumóts landsliða í knatt-
spyrnu var beðið með mikilli eft-
irvæntingu og ekki er hægt að
segja annað en hún hafi farið
vel af stað. Leikimir sem boðið
hefur verið upp á til þessa hafa
flestir verið skemmtilegir.
Flestir bestu knattspyrnu-
menn álfunnar em mættir til
leiks í Englandi og unnendur
íþróttarinnar njóta góðs af. Eins
og á Listahátíð í Reykjavik og
öðrum ámóta er smekkur fólks
misjafn, sem betur fer, og menn
hrífast því af mismunandi leik-
mönnum og liðum og leikstíl.
Hamagangur og baráttugleði
Skotanna í leiknum gegn Hol-
lendingum hefur eflaust giatt
marga en liklega hafa fleiri hrif-
ist af listrænum tilburðum leik-
manna Portúgals gegn Dönum.
Sjónvarpið er magnaður miðill
og bestur þegar fylgst er með
eftirsóttum atburðum í beinni
útsendingu. Hvort sem um er að
ræða góðan knattspyrnuleik eða
þegar aðrir og alvarlegri kaflar
mannkynssögunnar eru skrifaðir
í þessum litla kassa, heima í stofu
hjá fólki. Margir amast við því
þegar íþróttakeppni eins og EM
eða Ólympíuleikar tröllríða sjón-
varpsdagskrá RÚV en þeir glöðu
láta yfirleitt ekki í sér heyra.
Sjónvarpsmenn fengu þó stað-
festingu á vinsældum keppninnar
á laugardag er leikur Englands
og Sviss stóð yfir. Bilun varð í
sendi á Norðurlandi og útsending
Allir ættu að finna eitt-
hvað við sitt hæfi á
listahátíð UEFA
rofnaði í leikhléi. Símalínur voru
þá rauðglóandi á stofnuninni og
menn hreinlega óðir, sumir hveij-
ir, að missa af seinni hálfleikn-
um. Sjálfvirk skoðanakönnun á
vinsældum keppninnar hérlendis.
Könnun sem virðist hafa komið
vel út fyrir fylgismenn þessara
útsendinga.
Sjónvarpið er magnaður miðill
og bestur þegar fylgst er með
eftirsóttum atburðum í beinni
útsendingu. En ekki bara þá.
Hann getur afhjúpað ýmislegt
sem miður fer og eitt slíkt atvik
var sýnt í gær, atvik sem dóm-
ari og aðstoðarmenn hans misstu
af í viðureign Leifturs og ÍA á
Ólafsfirði á laugardag. Undirrit-
aður var á staðnum og missti
einnig af atvikinu. Leiftursmað-
urinn Slobodan Milisic gaf Jþá
Mihajlo Bibercic, ieikmanni ÍA,
ljótt olnbogaskot í hnakkann, að
því er best fæst séð eftir vand-
lega umhugsun meðan hann
hljóp í átt að Bibercic, því hann
gjóaði augunum nokkrum sinn-
um í átt að dómaranum, væntan-
lega til að athuga hvort hann
væri að fylgjast með. Milisic er
mjög góður leikmaður en fram-
koma sem þessi er óafsakanleg.
Fyrir svona lagað verður að
refsa.
Skapti
Hallgrímsson
Bjóst_ þrístcjáyarinn SIGRÍÐUR AIMIMA GUÐJÓIMSPÓTTIR við íslandsmeti?
Átti að vera
áættarmóti
SIGRÍÐUR Anna Guðjónsdóttir þrístökkvari úr HSK stökk 13,07
metra á sunnudaginn og bætti þar með eigið íslandsmet í
greininni um fjörtíu sentimetra. Þetta gerði hún á móti sem
haldið var í Laugardal til heiðurs Jóhanni Jóhannssyni, fyrrum
formanni frjálsíþróttadeildar Ármanns, m'ræðum. Ekki eru
nema þrjú ár síðan farið var að keppa í þrístökki kvenna hér
á landi og hefur Sigríður átt íslandsmetið bæði innanhúss
og utan allan tímann. Það er ákveðinn áfangi í höfn í þessari
greina hjá henni að hafa náð yfir 13 metra þvi þar með styttist
í ýmis lágmörk fyri stór alþjóðleg mót.
Eftir
ívar
Benediktsson
Sigríður Anna er 29 ára gömul
og er íþróttakennari við
Ljósavatnsskóla, en auk þess þjálf-
ar hún æskufólk á
Selfossi, i Gnúp-
veijahreppi og hjá
Vöku. Mikill fijáls-
íþróttaáhugi er á
heimili hennar því sambýlismaður
Sigríðar er Helgi S. Haraldsson,
formaður fijálsiþróttasambands-
ins. Þau eiga eina dóttur, Jóhönnu
Bríeti, ljögurra ára. En kom það
Sigríði á óvart að setja met svona
snemma á tímabilinu?
„Það gerði það að vissu Ieyti.
Ég hef ekkert æft þrístökk að
ráði síðastliðna tvo mánuði vegna
þess að ég hef verið að búa mig
undir keppni í sjöþraut í Riga í
Eistlandi um næstu helgi. Af þeim
ástæðum kom þetta góða stökk
mér á óvart auk þess sem ég hitti
ekki nógu vel á plankann í af-
stökkinu. Upphaflega átti ég að
vera á ættarmóti um helgina en
ákvað að taka þátt í mótinu því
keppnistímabilið er svo nýhafið.
Reyndar hef ég æft mjög vel í
vetur undir leiðsögn Kára Jóns-
sonar. Meðal annars hef ég verið
að vinna í að auka hjá mér hrað-
ann í atrennunni og það er greini-
lega að skila sér. Markmiðið fyrir
sumarið var að stökkva þrettán
metra.“
Hvaða eiginleikum þarf góður
þrístökkvari að vera búinn og
hvernig er æft?
„Þrístökkvari þarf að vera
sterkur í fótunum og búa yfír tals-
verðum hraða. Æfingar byggjast
upp á lyftingum, allskyns hoppum
og spretthlaupum."
Morgunblaðið/Golli
SIGRÍÐUR Anna Guðjónsdóttir glaðbeitt eftir að hafa slegið
ísiandsmetið í þrístökki í sjöunda sinn á sunnudaglnn.
Telur þú þig eiga mikið inni í
greinni?
„Það held ég og það verður
spennandi að sjá hvað gerist þegar
ég fer að einbeita mér betur að
því. En mig vantar meiri keppni
hér heima og þess vegna væri
gaman að geta farið meira utan
og fá alvöru keppni. Annars hafði
ég ákveðið að leggja skóna á hill-
una í haust, en þessi árangur ger-
ir það sennilega að verkum að ég
held áfram eitt ár í viðbót. Evrópu-
meistaramótið er á næsta ári og
það væri mjög gaman að geta
komist á það.“
Til þess að komast á EM þarft
þú að bæta þig enn frekar.
„Ég þarf þess, en sem dæmi
má nefna að lágmarkið fyrir EM
innanhúss í vetur var þrettán
metrar og ólympíulágmarkið er
13,60, svo ég tel möguleika vera
fyrir hendi.“
Hvenær byrjaðir þú að æfa þrí-
stökk?
„Þegar ég var nemandi í
íþróttakennaraskólanum á Laug-
arvatni árið 1991 var Þráinn Haf-
steinsson þar á meðal kennara og
hann kynnti þrístökkið fyrir mér,
en það var þá nýleg keppnisgrein
í kvennaflokki. Mér gekk strax
vel og á fyrsta mótinu stökk ég
11,73 metra og fann fljótlega rétta
taktinn. í fyrra tók ég þátt í sjö-
þraut í fyrsta skipti og þótti gam-
an.“
Ætlar þú kannski að snúa þér
frekar að sjöþraut?
„Nei, ég held ekki. En mér
finnst gaman að vera í sem flest-
um greinum, hvort sem það er
sleggjukast eða stökk.“
-L