Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 B 3 KNATTSPYRNA OB 4| Tæpar þrjár mfnútur ■ I voru liðnar er Mi- h^jlo Bibercic skoraði. Ólafur Þórðarson sendi af hægri kanti yfír á fjærhelming vítateigsins, Haraldur Ingólfsson sendi við- stöðulaust með vinstra fæti til baka inn á markteig þar sem Bibercic var óvaldaður og skor- aði auðveldlega af stuttu færi. Im 4| Auðun Helgason ■ I vann boltann af Har- aldi Ingólfsson skammt aftan miðlínu á 12. mín., lék fram fyrir miðjuna og sendi mjög lip- urlega upp hægri kantinn þar sem Rastislav Lazirok stakk Sigurstein Gíslason af, lék inn teiginn og þrumaði úr víta- teigshominu neðst í fjærhomið, utanfótar með hægri. 2a 4[ Alexander Högnason ■ I braut af sér 25 metra frá marki og dæmd var auka- spyrna. Akurnesingar stilltu upp varnarvegg, Gunnar Oddsson stóð hægra megin við hann en fór frá er Lazorik þrumaði að marki með hægri fæti - í eyð- una sem Gunnar skildi eftir - og knötturinn sveif efst í vinstra homið. Draumamark, á 43. mín. 21 ^Jjóhannes Harðarson ■ mmtók aukaspyrnu á hægri kanti, sendi yfir í vítateig- inn vinstra megin, þar sem Har- aldur Ingólfsson, var ekkert að tvínóna við hlutina heldur sendi knöttinn í fjærhorn marks- ins, utanfótar með vinstri á 62. mín. Einnig glæsilegt mark; skotið var ekki mjög fast, en hnitmiðað. 3mOl m§Sm\ Eftir fyrirgjöf frá hægri skallaði Gunn- ar Oddsson knöttinn til baka inn á markteig á 74. mín. þar sem Þórður markvörður ÍA og Sverrir Sverrisson börðust um knöttinn og - ótrúlegt, en satt - hafði Sverrir betur og skaliaði í netið. 3* ^jHaraldur Ingólfsson ■ <Crtók homspyrnu frá hægri. Spymti knettinum með miklum snúningi inn á mark- teiginn, þar sem Þorvaldur Jónsson markvörður, aðþrengd- ur af mótherjum jafnt sem sam- heijum, reyndi að slá boitann frá en ekki vildi betur til en svo að Þorvaldur sló hann rakleiðis í eigið mark. Hann vildi fá dæmt brot og mótmælti við Gylfa dóm- ara, en uppskar aðeins gult spjaid. 4B*3IEr aðeins fímm mín. ■ ipvoru til leiksloka kór- ónaði Rastislav Lazorik frá- bæran leik sinn með sigurmark- inu. Fékk knöttinn skammt utan vítateigs, plataði þijá vamar- menn IA illa og þmmaði með hægra fæti neðst í vinstra horn- ið frá vítateig. Sannkallað glæsi- mark frá þessum stórhættulega framheija. Glæsilegt sigurmark Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson RASTISLAV Lazorik gerði þrennu gegn íslandsmelsturunum, þar á meðal slgurmarklð rétt fyrlr lelkslok og hér er það f uppsígl- ingu. Lazorik lék á þrjé varnarmenn ÍA utan vítateigs, síðast Zoran Mlljkovic og þrumaðl síðan í bláhornið skammt fnnan vítatelgs. Lazorik og samhevjar verða erfidir við að eiga Leiftur sigraði íslandsmeistara ÍA 4:3 í Ólafsfirði í stórleik helgarinnar í 1. deild karla í knatt- spyrnu. Skapti Hallgrímsson var í hópi áhorf- enda, sá heimamenn vinna sanngjaman sigur í spennandi og á köflum mjög skemmtilegum leik, og finnst þeir hafa burði til að blanda sér af alvöru í baráttuna um íslandsmeistaratitilinn. MARGIR góðir leikmenn eru í liði Leifturs í Ólafsfirði í sumar. Vöm liðsins er sterk, miðjumennimir dug- legir og hugmyndaríkir og í fremstu röð fylkingarinnar er leikmaður sem sannarlega er í fremstu röð: Tékkinn Rastislav Lazorik, sem kom frá Breiðabliki fyrir leiktímabilið, fór á kostum gegn ÍA og sýndi svo ekki verður um villst að hann er einn hættulegasti framherji í deildinni. Ólafsfirðingarnir eru nú með sex stig eftir þijá erfíða leiki; byijuðu á að sigra IBV í Eyjum, töpuðu síðan fyr- ir KR í Reykjavík og sigmðu nú meistara ÍA á heimavelli. Mikið býr sem sagt í liðinu, það er ljóst, en leikmenn mega ekki halda að hlutim- ir komi af sjálfu sér, eins og virtist raunin stóran hluta seinni hálfleiks- ins gegn IA. Meistaralið Akumesinga hafði sigrað í tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni en vitað var að þessi yrði fyrsta alvöru próf þeirra í deildinni. Og eftir að hafa séð viðureignina um helgina virðist liðið ekki eins sterkt um þessar mundir og síðustu ár, þótt auðvitað geti það verið tíma- bundið ástand því góður mannskapur er til staðar. Þórður markvörður er reyndar mjög góður, vörnin hefur burði til að vera sterk þótt hún hafi ekki verið sérlega sannfærandi á iaugardag, en miðjumennirnir voru ekki uppbyggjandi ef Jóhannes Harð- arson er undanskilinn. Jóhannes er efni í mjög góðan leikmann en „gömlu mennirnir" á miðjunni eru ekki eins góðir og síðustu ár. Ólafur Þórðarson, Alexander Högnason og Haraldur íngólfsson geta aliir betur og lið ÍA munar um minna. Reyndar verður að geta þess að þeir vom duglegir, gáfu ekki þumlung eftir og Haraldur skoraði eitt og hálft mark - ef svo má að orði komast. Þá var framlína Skagaliðsins ekki beitt. Mihajlo Bibercic og Bjarni Guðjónsson sköpuðu ekki mikla hættu. Hafa verður í huga að Steinar Adolfsson var rekinn út af eftir hálf- tíma leik og að því leytinu til ekki sanngjarnt að dæma Skagaliðið út frá leiknum í heild vegna þess. Þó verður að segjast alveg eins og er að þann hálftíma sem liðinn var er rauða spjaldið fór á loft sýndi liðið ekki mikið. Skagamenn vom heppnir að fá ekki á sig fleiri mörk en barátta þeirra var reyndar aðdáunarverð; þeir vom einum færri tvo þriðju hluta leiksins og hefðu engu að síður getað náð einu stigi, hefði heppni verið með þeim. Þar hefði reyndar þurft talsverða heppni en heilladísimar fylgdu meistumnum ekki að málum að þessu sinni og sigur heimamanna var sanngjarn, það verður að segjast alveg eins og er. Tæpar þijár mínútur vom liðnar af leiknum þegar Bibercic kom Skagamönnum yfir og Lazorik jafn- aði nokkmm mín. síðar. Strax var ljóst að stefndi í hörkuleik og sú varð raunin. Ekki er hægt að segja að liðin hafi boðið upp á hágæða knattspymu, þó mjög góðir kaflar hafí sést, einkum af hálfu heima- manna, en leikgleðin var mikil og spennan einnig. Bæði lið ætluðu sér að sækja og sérstaklega vom heima- menn skeinuhættir í fyrri hálfleik, er þeir léku undan nökkmm vindi. Leiftursliðið lék þá mjög vel, vörnin var góð, Gunnar og Sverrir fima- sterkir á miðjunni og Lazorik síógn- andi. Fyrir utan mörkin vom þeir tvívegis nálægt því að skora; Pétur Bjöm skaut í stöng eftir sendingu Dervic og Gunnar Már skallaði svo rétt framhjá eftir góða fyrirgjöf Lazoriks. Áhorfendur vom varla búnir að koma sér fyrir eftir leikhléið þegar Lazorik þromaði í stöng Skaga- marksins af stuttu færi og skömmu síðar bjó hann til gott færi fyrir Pétur Björn, með aðstoð Páls Guð- mundssonar, en Pétur skaut föstu skoti yfir markið af stuttu færi. Heimamenn virtust sem sagt ætla að kafsigla gestina f byijun hálfleiks- ins, en hlutimir breyttust snöggt. Leiftursmenn hættu að taka á, hættu nánast að hreyfa sig á vellinum og það var eins og við manninn mælt; Sverrir vankaðist er hann gerði þriðja markið SVERRIR Sverrisson vankaðist er hann gerði þriðja markið gegn í A og varð að fara af velli. Eftir að Gunnar Oddsson skallaði knöttimi til hans börðust þeir um boltann, Sverrir og Þórður markvörður, og sá fyrrnefndi hafði betur. Þórður reyndi að slá knöttinn frá en hitti ekki, heldur sló Sverri í gagnaugað með fyrrgreindum afleiðingum. En höggið var „algjöriega óvart,“ eins og Sverrir sagði við blaðamann eftir leikiim. Skagamenn gengu á lagið, voru fljót- ir að notfæra sér möguleika og skyndilega vom það þeir sem réðu ferðinni. Og jöfnunarmarkið kom fljótlega, er Haraldur Ingólfsson gerði laglegt mark. Skagamenn vom mun sókndjarf- ari næstu mínúturnar og ekki að sjá að þeir væru einum færri, og það var gegn gangi leiksins á þessum kafla er Sverrir Sverrisson kom heimamönnum aftur yfir. Fögnuður áhorfenda var mikill en aðeins liðu fjórar mínútur þar til aftur var orðið jafnt. Síðasta stundarfjórðunginn vöknuðu Leiftursmenn svo aftur til lífsins og hrelltu varnarmenn gest- anna hvað eftir annað. Skot Lazoriks var varið á marklínu og augabragði síðar varði Þórður mjög vel frá þeim sama Lazorik. Gunnar Oddsson komst síðan í gott færi en skaut yfir ÍA-markið en síðan má segja að rétt- lætinu hafi verið fullnægt er títt- nefndur Lazorik - sem greinilega er sannkallaður happafengur fyrir Ól- afsfirðinga - gerði glæsilegt sigur- mark er skammt lifði hefðbundins leiktíma. Viðstaddir héldu að lokasek- úndumar tifuðu er þama var komið sögu, en vegna tafa lét Gylfi Orrason leikinn reyndar halda áfram hátt í tíu mínútur. Á þeim tíma fékk Leiftur enn eitt dauðafærið; Baldur Bragason komst einn í gegn eftir sendingu Gunnars Oddssonar, Þórður kom út á móti en knötturinn skoppaði fram- hjá fjærstönginni. Aðeins munaði þar fáeinum millimetmm. Leikurinn var góð skemmtun og ljóst að Óskar Ingimundarson þjálf- ari Leifturs er að púsla saman góðu liði. Mannskapurinn kemur víða að en heildin er góð og á að geta orðið enn betri. Skagamenn virkuðu ekki sannfærandi sem fyrr segir en Guð- jón Þórðarson á að baki langan og glæsilegan þjálfaraferil og ekki þyrfti að koma á óvart þó Skaga-vél- in, sem svo hefur oft verið nefnd síðustu árin, hrökkvi í gang innan tíðar. Hann á örugglega einhver spil uppi í erminni og meistararnir láta íslandsbikarinn ekki baráttulaust af hendi, svo mikið er víst. Hinir leikirnir / B5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.