Morgunblaðið - 11.06.1996, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR11. JÚNÍ 1996 B 5
KR-ingar
á toppinn
KR-INGAR náðu efsta sæti 1.
deildar karla með því að sigra
Valsmenn örugglega 3:0 á
Laugardalsvelli í 3. umferð ís-
landsmótsins á laugardaginn.
Sigur KR-inga var síst of stór
því yfirburðir þeirra voru miklir.
Guðmundur Benediktsson
skoraði tvö marka KR-inga og
Ásmundur Haraldsson það
þriðja.
Guðmundur Benediktsson fór á
kostum í leiknum. Auk þess
að skora tvö glæsileg mörk lagði
hann upp það þriðja
ValurB. og mataði samheija
Jónatansson sína hvað eftir annað
skrifar með sniildarsending-
um eins og honum
einum er lagið.
„Við spiluðum ekki nægilega vel
í fyrri hálfleik þó svo við stjórnuðum
leiknum. Náðum ekki að skapa okk-
ur nægilega mörg færi. I síðari hálf-
leik gekk þetta betur og sigurinn
var aldrei í hættu og við hefðum átt
að bæta við fleiri mörkum. Það er
þægilegt að vera í efsta sæti, en það
01 4[ Ásmundur Haralds-
■ I son átti sendingu á
Heimi Guðjónsson, sem var við
vítateig Vals á 34. mín. Heimir
óð inn í vítateiginn hægra meg-
in og upp að endamörkum og
sendi þá knöttinn fyrir markið
og þar var Guðmundur Bene-
diktsson réttur maður á réttum
stað og skallaði hann í vinstra
markhornið.
Oi f% KR-ingar sóttu að
umm vítateig Vais á 51.
mín. Stefán Ómarsson varnar-
maður Vals náði ekki að hreinsa
frá því Ásmundur Haraldsson
sótti að honum og truflaði. Lár-
us Sigurðsson markvörður kom
hlaupandi út úr markinu — að
vítateignum og náði að slá bolt-
ann frá. Boitinn barst út til
Guðmundar Benediktssonar
sem tók boltann viðstöðulaust
af 25 metra færi og lyfti honum
yfir vörn og markvörð Vals og
í markið. Glæsilega gert og vel
hugsað.
Om*% Hröð sók KR-inga
■ á 53. mínútu. Einar
Þór Daníelsson sendi á Guð-
mundur Benediktsson sem var
við vítaeignum miðjum og hann
renndi boltanum til hliðar á
Ásmund Haraldsson sem stakk
sér í gegnum vörnina - inn í
vítateiginn og skoraði í hægra
hornið framhjá Lárusi sem kom
út á móti.
Leiknir vann
kærumálið
LEIKNIR frá Fáskrúðsfirði
vann kærumálið gegn KVA og
leikur því við Sindra í bikar-
keppni KSI. Leiknir kærði
leikinn gegn KVA í 1. umferð
bikarkeppninnar, sem KVA
vann, vegna þess að einn leik-
maður KVA, sem lék umrædd-
an leik, átti að vera í leik-
banni. Leikur Leiknis og
Sindra fer fram í kvöld. Það
lið sem sigrar mætir 1. deild-
arliði Stjörnunnar í 32-liða
úrslitum.
Reyni í Sandgerði var
dæmdur 3:0 sigur gegn Þrótti
frá Neskaupstað þar sem síð-
arnefnda liðið notaði ólögleg-
an leikmann og er Þrótti einn-
ig gert að greiða 78.500 króna
sekt.
er enn langt í land,“ sagði Guðmund-
ur.
Leikurinn fór að mestu fram á
vallarhelmingi Vals og KR-ingar
léku eins og þeir sem valdið hafa.
Boltinn gekk vel á milli manna og
uppskeran þtjú mörk sem var of lít-
ið miðað við gang leiksins. Valsmenn
áttu eina og eina skyndisókn þar sem
Arnljótur náði stundum að stríða
KR-vörninni. Leikur Vals hresstist
aðeins eftir að Sigurbjörn Hreiðars-
son kom inn á sem varamaður í síð-
ari hálfleik.
Eins og áður segir átti Guðmund-
ur stjörnuleik. Heimir Guðjónsson
var eins og kóngur í ríki sínu á miðj-
unni og stjómaði leik KR vel. Einar
Þór var frískur á vinstri kantinum,
sérstaklega í fyrri hálfleik og fóru
flestar sóknir KR-inga í gegnum
hann. Vörn KR var sterk með Brynj-
ar Gunnarsson sem besta mann.
Valsmenn eru með ungt og efni-
legt lið og þeir reyna að spila boltan-
um. Þeir töpuðu þó of mörgum nág-
vígum á miðjunni og vantaði meira
sjálfstraust í leik sinn. Þeir eiga erf-
itt tímabil framundan.
„Sigur KR-inga var sanngjarn
enda eru þeir með mjög vel spilandi
lið. Við áttum dapran dag og hleypt-
um KR-ingum allt of mikið inn í
leikinn. Ég held að það séu þijú til
f|ögur lið sem eru í sérflokki, KR,
IA, ÍBV og Leiftur. Hin liðin eru öll
á svipuðu róli. Við erum búnir með
erfiða leiki og eigum Skagamenn í
næstu umferð, en það er mikið eftir
enn af mótinu og ég er ekki farinn
að örvænta enn,“ sagði Sigurður
Grétarsson, þjálfari Vals.
Marki Ásmundar fagnad
Morgunblaðið/Golli
KR-INGAR fögnu&u þrívegls á mótl Val á Laugardalsvelll. Guðmundur Benediktsson, Helmir
Guðjónsson og Þormóður Egilsson fagnar hér Asmundl, sem skoraði þri&ja markiö í leiknum.
Eyjamenn héldu sjó
EYJAMENN geta talist góðir að
hafa fengið öll þrjú stigin út úr
viðeign sinni gegn Breiðabliki á
Kópavogsvelli á laugardaginn,
lokatölur 3:2. Eyjamenn halda
því sínu striki i' efri hluta 1.
deildar karla á sama tíma og
Blikar verma botnsætið ásamt
Keflavík með eitt stig að loknum
þremur umferðum. „Við erum f
leiðinlegri stöðu en verðum að
vinna okkur út úr henni. Ég er
viss um að hlutirnir eiga eftir
að smella saman hjá okkur fljót-
lega,“ sagði Arnar Grétarsson,
fyrirliði Breiðabliks.
Sigurður Halldórsson, þjálfari
Breiðabliks, hefur verið í vand-
ræðum með lið sitt hingað til sökum
meiðsla margra leik-
ivar manna. Nú færði
Benediktsson hann Kjartan Ein-
skrifar arsson inn á vinstri
kantinn og lét ívar
Siguijónsson fram á völlinn með
Anthony Karli Gregory. Sævar Pét-
ursson lék í stöðu miðvarðar, en
hver miðvörðurinn á fætur öðrum
hefur hrokkið úr skaptinu hjá Kópa-
vogsliðinu fram til þessa. Nýliðinn
Guðmundur Þ. Guðmundsson stóð
vaktina með Sævar og komust þeir
félagar allþokkalega frá sínu.
Bæði lið fóru varlega af stað í
blíðunni á Kópavogsvelli og fátt
gerðist fyrsta stundarfjórðunginn,
en þá fór að losna um menn. Sumar-
liði Árnason fékk upplagt tækifæri
en skaut yfir frá vítateig eftir langt
útspark Friðriks Friðrikssonar
markvarðar ÍBV. Biikar færðu sig
upp á skaptið. Arnar fyrirliði átti
þrumuskot sem Friðrik gerði vel í
að veija. Eyjamenn sóttu í sig veðr-
ið og voru sterkari það sem eftir lifði
fyrri hálfleiks og náðu nokkrum
sinnum að gera usla með hraða sín-
um í sókninni. Blikar náðu einni og
einni skyndisókn, meðal annars er
Arnar sendi fallega sendingu frá
hægri kanti inn á vítateig vinstra
megin þar sem Athony var of seinn
að skjóta svo hætta yrði að.
Áður en Eyjamenn skoruðu fyrsta
mark sitt og eina mark fyrri leik-
hluta höfðu þeir átt í tvígang góð
færi. Nokkrum andartökum eftir að
Leifur Geir Hafsteinsson hafði kom-
ið ÍBV yfir, 1:0, bjargaði Friðrik vel
hinum megin vallarins skoti frá ívari
sem hafði komist í gott færi eftir
stungusendingu frá Athony Karli.
Blikar voru meira með knöttinn í
síðari hálfleik og lögðu aukinn þunga
í að sækja en áður hafði verið. Kri-
stófer Sigurgeirsson kom inn á 56.
mínútu fyrir Anthony Karl og varð
sú skipting til að hressa upp á sókn-
arleik Blika. En Eyjamenn eru fljót-
ir og með skyndisóknum sínum
veittu þeir gestgjöfum sínum nokkr-
ar skráveifur sem þegar öllu var á
botnin hvolft nægði þeim til sigurs.
Eftir að nokkur færi höfðu farið
forgörðum hjá Blikum tókst þeim
að jafna sanngjarnt á 64. mínútu,
en Eyjamenn komust yfir tveimur
mínútum síðar beint úr aukspyrnu
er Theódór Hervarsson sem var ný-
kominn inn á sem varamður hafði
brotið klaufalega af sér. „Þetta
mark var klaufaskapur og rothögg
eftir að hafa verið mun meira með
boltann," sagði Arnar Bliki.
Síðustu tíu mínútur leiksins sóttu
Blikar af miklum móð og fengu
a.m.k. fjögur upplögð færi sem ekki
hefði verið ósanngjarnt að þeir hefðu
fengið eitt mark úr en Friðrik og
hans menn i vörn ÍBV voru á verði.
í stað þess að Blikar jöfnuðu voru
það Eyjamenn sem gerðu þriðja
markið í snotri skyndisókn og menn
höfðu vart jafnað sig á henni er
Kristófer skoraði langþráð mark fyr-
ir Blika en það kom of seint og
Eyjmenn fóru heim með öll þijú stig-
in en leikmenn Breiðabliks sátu eftir
með sárt ennið.
FOLK
■ SIGURÐUR Grétarsson, þjálfari
Vals, lék ekki með liði sínu gegn KR.
Hann er meiddut' og sagðist vera klár
í slaginn gegn_ ÍA annað kvöld.
■ SIGURBJÖRN Hreiðarsson, sem
hefur verið meiddur, lék fyrsta ieik
sinn á tímabilinu er hann kom inn á
sem varamaður hjá Val gegn KR.
■ VALSMENN fóru um Vest-
urbæinn á bíl með hátalara fyrir
leikinn gegn KR á laugardaginn. Þar
hljómaði „áfram Valur, áfram Valur"
við miður góðar undirtektir Vest-
urbæinga.
■ THEÓDÓR Hervarsson hefur
verið meiddur síðustu tvær vikur og
lítið æft. Hann kom þó inn á 65.
mínútu gegn IBV og lék tii enda.
Hann er enn einn varnarmaður
Breiðabliks sem meiðist og sagði
Sigurður Halldórsson þjálfari eftir
leikinn að þar væri eins og við mann-
inn mælt, um leið og hann notaði
leikmann sem miðvörð þá meiddust
þeir.
■ KRISTÓFER Sigurgeirsson lék
sinn fyrsta leik með Blikum í sumar
gegn IBV á laugardaginn, kom inn
á sem varamaður á 56. mínútu og
skoraði annað mark liðsins í leiknum.
■ KRISTÓFER skipti yfir í KR síð-
asliðið haust og æfði með liðinu
þangað til í vor að hann hætti skyndi-
lega. Eftir talsvert stapp varð það
að samkomulagi að Breiðablik
keypti hann til baka frá KR á sama
verði og KR greiddi fyrir hann sl.
haust að viðbættum þeim kostnaði
sem KR-ingar höfðu af veru hans.
Leikheimild var síðan veitt á föstu-
daginn.
1«^%Tryggvi Guðmunds-
■ wson tók homspyrnu
fyrir ÍBV frá hægri á 38. mín-
útu og sendi háa sendingu inn
á markteiginn þar sem Leifur
Geir Hafsteinsson stökk hæst
og skallaði í hægra markhornið.
II 4 Á 64. mfnútu tók
■ I Pálmi Haraldsson
homspymu frá vinstri og sendi
stutt til Hákons Sverrissonar
sem stattur var rétt við víta-
teigshomið. Hákon sendi fyrir
markið en knötturinn skaust í
hendina á Hlyni Stefánssyni og
var umsvifalaust dæmd víta-
spyma. Úr henni skoraði Arnar
Grétarsson af öryggi í vinstra
hornið en Friðrik markvörður
fór í hitt.
1i ^% Leikmenn ÍBV
■ mm fengu aukaspymu
tveimur metmm fyrir framan
miðjan vítateiginn. Spymuna tók
Bjamólfui* Lámsson og hann
skaut rakleitt í hægra markhom-
ið. Þetta gerðist á 66. mínútu.
1a Kristinn Hafliðason
■ var með knöttinn
rétt fyrir framan miðjan vítateig
Breiðabliks á 88. mínútu og
sendi hnitmiðaða sendingu til
vinstri á Tryggva Guðmunds-
son sem tók við boltanum á
fyrsta og lyfti knettinum yfir
Cardaklija sem reyndi að bjarga
með úthlaupi en knötturinn fór
markið.
21 Leikmenn Breiða-
■ W bliks tóku miðju
strax á miðju og sendu knöttinn
á Kristófer Sigurgeirsson sem
staddur var rétt fyrir framan
miðjuhringinn Eyjamegin. Kri-
stófer lék ákveðinn beint fram
völlinn og er hann var kominn
upp að vítateig skaut hann ra-
kleitt i áttina að markinu og
viti menn skotið rataði í hægra
markhornið án þess að Friðrik
fengi við nokkuð ráðið.