Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 B 7
KNATTSPYRNA
eftir,“ sagði Terry Venables, þjálfari
Englendinga. Margir undruðust inná-
skiptingar Venables. Sérstaklega að
taka Steve McManaman, sem hafði
verið besti leikmaður liðsins út af um
miðjan síðari hálfleik. Venables svaraði
því aðeins til að hann hefði viljað setja
óþreyttan mann inn á.
Artur Jorge, hinn portúgalski þjálf-
ari Svisslendinga, sagði að hans lið
hefði verið nær sigri. „Við áttum að
vinna. Enska iiðið lék ágætlega í fyrri
hálfleik en við stjórnuðum leiknum í
síðari hálfleik og áttum þá að skora
tvö mörk. Við áttum skilið að sigra.
Jafntefli er ekki mjög góð úrslit, en
þau duga.“
Svisslendingar, sem aldrei hafa sigr-
að Englendinga, voru nálægt því að
jafna fjórum mínútum fyrir leikhlé er
Grassi skaut í þverslá af þriggja metra
færi eftir frábæran undirbúning Turk-
yilmaz. Svisslendingar voru síðan mun
betri í síðari hálfleik enda bakkaði
enska liðið of fljótt til að freista þess
halda fengnum hlut. Það er ekki góðs
Óskabyriun Þjóðvevja
ÞJÓÐVERJAR byrjuðu Evrópu-
keppnina með glæsibrag. Þeir
sigruðu Tékka sannfærandi
2:0 með mörkum frá Christian
Ziege og Andy Möller með sex
mínútna millibili í fyrri hálfleik.
Eini skugginn á gleði Þjóðverja
yfir sigrinum var að varnar-
maðurinn sterki, Júrgen Kohl-
er, meiddist illa á hægri ökkla
í upphafi leiks og getur ekki
leikið meira með í keppninni.
Leikurinn þótti harður, enda gaf
dómarinn tíu áminningar í
leiknum. Sigur Þjóðverja var sann-
gjarn og lið þeirra sýndi nokkra
yfirvegun í leik sínum mest allan
leikinn. Tékkar sóttu þó mjög í sig
veðrið síðustu mínúturnar án þess
að skapa sér verulega hættuleg
færi. Þýsku leikmennirnir geta nú
mætt Rússum og ítölum fullir sjálf-
strausts með þrjú stig í farteskinu
og Júrgen Klinsmann lausan úr
leikbanninu.
Varnarmaðurinn Christian
Ziege, sem missti af úrslitum
heimsmeistarakeppninnar í Banda-
ríkjunum fyrir tveimur árum vegna
meiðsla, gaf þýska liðinu tóninn á
26. mínútu. Hann skoraði fallegt
marki er hann fékk sendingu frá
Fredi Bocic vinstra megin í víta-
teignum, lék á tvo varnarmenn og
skoraði í markhornið nær. Þetta
var aðeins þriðja landsliðsmark
Zieges.
Aðeins sex mínútum síðar bætti
Andy Möller öðru marki við og var
það einnig mjög glæsilegt. Hann
einlék með knöttinn frá miðju að
vítateig Tékka, plataði varnarmenn
með því að leika til hægri og þrum-
aði boltanum af 20 metra færi
neðst í vinstra hornið.
Berti Vogts þjálfari var að von-
um ánægður með sigurinn en sagði
að meiðsli Kohlers kæmu sér afar
illa fyrir liðið. „Þetta er mjög slæmt
fyrir okkur því líklega er hann einn
allra besti varnarmaður keppninn-
ar.“ Um leikinn sagði hann: „Við
lékum vel í 60 mínútur en síðustu
30 mínúturnar lékum við ekki
nægilega vel. Ég mun ræða sér-
staklega um þessar síðustu mínútur
við leikmenn mína fyrir næsta
leik,“ sagði þjálfarinn.
Kohler ekki meira með
JURGEN Kohler, varnarmaður Þjóðveija, meiddist illa á hægri
ökkla í upphafi leiksins gegn Tékkum á sunnudaginn og leikur
ekki meira með í Evrópukeppninni. Kohler lýsti þvi yfir fyrir
keppnina að þetta myndi verða hans síðasta stórmót og má því
segja að endirinn hafi verið frekar snubbóttur hjá honum.
Berti Vogts landsliðsþjálfari sagði: „Ég vona að þetta hafi
ekki verið síðasti landsleikur hans. Ég vona að hann nái sér sem
fyrst og ég hlakka til að sjá hann aftur í landsliðinu."
Kohler, sem hefur leikið 84 landsleiki, sagði að góðu fréttiraar
væru þær að hann þyrfti ekki að fara í aðgerð, heldur væri það
aðeins hvíld sem læknaði hans mein.
Mark Shearers dugði skammt
Reuter
ALAN Shearer, sem gerði fyrsta mark Evrópukeppninnar — fyrir England, er hér í baráttu
við Yvan Quentin, leikmann Sviss, í opnunarleiknum á Wembley á laugardaginn. Á myndlnni
til hliðar fagnar Kubilay Turkyilmaz jöfnunarmarkinu sem hann gerði úr vítaspyrnu átta
mínútum fyrir leikslok.
Svisslendingar skyggðu
á gleði Englendinga
SVISSLENDINGAR skyggðu á gleði Englendinga með því að jafna,
1:1, undir lokin í opnunarleik Evrópukeppninnar á Wembley-leikvang-
inum á laugardaginn. Kubilay Turkyilmaz jafnaði úr vítaspyrnu fyrir
Sviss þegar sjö mínútur voru til leiksloka eftir að Alan Shearer hafði
komið heimamönnum yfir á 23. mínútu. Enska liðið olli vonbrigðum
i'leiknum.
viti hjá liði sem leikur á heimavelli
og ætlar sér stóra hluti í keppn-
inni. Það fékk að blæða fyrir það
í lokin.
Jafntefli þýðir að Englendingar
hafa ekki unnið leik í úrslitakeppni
Evrópumóts síðan 1980 er þeir unnu
Spánveija 2:1. Sviss leikur næst við
Holland á Villa Park á fimmtudag
og England mætir Skotlandi á
Wembley á laugardag.
í vinstra hornið og skoraðj í það hægra
alveg út við stöng. „Ég var ekki
taugaóstyrkur þegar ég tók vítið.
Markið virtist stærra en ég hélt. Það
var þrekvirki að jafna en það var ekki
nóg, við áttum að sigra,“ sagði Turk-
yilmaz.
Um vítaspyrnudóminn sagði Pearce
eftir leikinn: „Ég er nógu heiðarlegur
til að viðurkenna að skotið var í hönd-
ina á mér, en ég setti ekki höndina í
boltann. Boltinn fór aðeins i höndina,"
sagði hann.
„Ég held að það hafi ekki verið rétt
hjá dómaranum að dæma víti á Pearce.
En við lékum alls ekki vel í síðari hálf-
leik. Við virkuðum mjög þreyttir. Úr-
slitin eru mikil vonbrigði fyrir okkur
og vöru ekki þau sem við sóttumst
Reuter
ANDY Möller átti góðan leik með Þjóðverjum og skoraði síð-
ara mark þelrra á móti Tékkum eftir efnleik upp hálfan völlinn.
Leikurinn byijaði vel fýrir Englend-
inga er Alan Shearer skoraði.
Þetta var fyrsta mark hans fyrir enska
landsliðið í 13 leikjum eða síðan í sept-
ember 1994 og gaf það heimamönnum
von um enn meira. Markið kom eftir
sendingu Pauls Inces í gegnum sviss-
nesku vörnina á Shearer sem hamraði
boltann í hægra hornið.
Enskir voru farnir að gæla við sigur
í fyrsta leiknum er rothöggið kom á
lokamínútum leiksins er spænski dóm-
arinn Manuel Diez Vega dæmdi víta-
spyrnu. Stuart Pearce varði þá skot
Marcos Grassis með hönd innan víta-
teigs. Turkyilmaz, sem hafði oft gert
vörn Engiendinga lífið leitt með hraða
sínum og leikni, skoraði af öryggi úr
vítinu — sendi David Seaman markvörð
Englend-
ingar gengu
niðurlútir
af velli
ENGLENDINGAR voru mjög
óánægðir með leik sinn á móti
Sviss í opnunarleik keppninnar
fyrir framan 76 þúsund áhorf-
endur á Wembley-leikvanginum
á sunnudaginn. Þeir höfðu gert
sér miklar vonir fyrir keppnina
en byijunin lofar ekki góðu —
jafntefli við Sviss og máttu þakka
fyrir það. Á myndinni hér til hlið-
ar ganga leikmenn enska liðsins
niðurlútir af velli; fremst er
Darren Anterton, þá Terry Ven-
ables landsliðsþjálfari og síðan
Paul Gascoigne.
Reuter
Pele gagnrýndi Vena-
bles fyrir varnarleik
BRASILÍSKI knattspyrnusnilling-
urinn Pele gagnrýndi Terry Ven-
ables landsliðsþjálfara Englend-
inga fyrir of mikla varkárni í leik
liðsins. Hann sagði í viðtali við dag-
blaðið Liverpool Echo á laugardag-
inn, fyrir opnunarleikinn, að
heimamenn gætu ekki orðið Evr-
ópumeistarar nema leika meiri
sóknarknattspyrnu en áður.
„Enska liðið hugsar meira um að
tapa ekki en að vinna. Ef þú vilt
sigra verður þú að leika til sigurs,“
sagði Pele í viðtalinu.
„Ég kem úr öðruvísi skóia þar
sem fyrst og fremst var hugsað um
sigur. Ef leikin er sóknarknatt-
spyrna er meiri von á sigri. Ég sá
enska liðið leika gegn Portúgal og
þar þorðu vamarmennirnir ekki
fram á völlinu. Shearer, sem skorar
mörg mörk fyrir félagið sitt, fær
ekki nægilega aðstoð í enska lands-
liðinu. Svo er fólk að álasa honum
fyrir að skora ekki.“
Pele spáir Hollandi og Þýska-
landi bestu gengi í keppninni og
sagði að England gæti líka gert
góða hluti, en til þess yrði hugar-
farið að breytast. „Ef enska liðið
vaknar til lífsins, gæti það leikið til
úrslita.“
^UMBRO
ÍÞRÓTTAFATNAÐUR
® ÁSTUHD ®
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68
Austurver
^r-^r—iírrv-mmrrr-
hafi síðari hálfleiks. „Undirbúning-
ur okkar fyrir leikinn var réttur.
Við gátum ekki meira, við lékum
okkar sóknarbolta og uppskárum
fjögur eða fimm góð marktæki-
færi. Ég held að Spánveijar geti
verið ánægðir með jafntefiið."
Javier Clemente, þjálfari Spán-
veija, sagði; „Ég er ánægður með
hvernig við náðum að snúa leiknum
og jafna eftir að hafa lent undir.
Eftir að Pizzi var rekinn útaf gátum
við ekki sótt eins mikið.“
Alfonso sagði að líklega hefði
enginn skorað eins fljótt og hann
eftir að hafa komið inná sem vara-
maður í Evrópukeppni. „Ég yrði
mjög undrandi ef einhver annar
hefur skorað svo fljótt með fyrstu
snertingu sinni,“ sagði Alfonso sem
leikur með Real Betis.
Léttleikandi Portúgalir
í erfiðleikum með Dani
Varamaðurinn Alfonso Perez
bjargaði stigi fyrir Spánveija
með því að jafna með fyrstu snert-
ingu sinni í leiknum gegn Búlgörum
í B-riðli á Elland Road á sunnudag-
inn. Jöfnunarmarkið kom á 74.
mínútu eftir að Hristo Stoichkov
hafði komið Búlgörum yfir með
marki úr vítaspyrnu níu mínútum
áður.
Alfonso, sem hafði verið inn á
vellinum í aðeins nokkrar sekúndur,
þegar hann jafnaði. Sergi Baijuan
átti þá skot að marki frá vinstri og
boltinn fór í Alfonso og breytti um
stefnu og skaust í markið framhjá
Boris Mihailov markverði.
Sergi Baijuan átti einnig þátt í
markinu sem Spánveijar fengu á
sig á 65. mínútu er hann braut á
Emil Kostadinov og vítaspyrna
dæmd. Stoichkov skoraði úr vítinu
af öryggi. Búlarar voru
einum leikmanni færri
er Spánveijar jöfnuðu
því Peter Hubchev var
vikið af leikvelli tveim-
ur mínútum áður fyrir
að bijóta á Jose Luis
Caminero rétt utan
vítateigs. Spænski
framheijinn Juan Pizzi
var einnig rekinn af
velli tveimur mínútum
eftir jöfnunarmarkið
fyrir að bijóta á varnar-
manninum Radostin
Kishishev.
Stoichkov fyrirliði
Búlgara var mjög
ósáttur við frammi-
stöðu dómarans. „Sá
maður á vellinum sem
gerði flest mistök var
dómarinn," sagði fram-
heijinn sem leikur með
Parma. „Það er ekki
hægt að senda tvo lykil-
menn liðanna út af sé
svona.“ Hann gagn-
rýndi einnig dómarann
fyrir að dæma rang-
stöðu er hann skoraði
„löglegt" mark í upp-
Reuter
HRISTO Stoichkov kom Búlgörum yfir með
marki úr vítaspymu en Spánverjar jöfnuðu.
■ OPNUNARLEIK Evrópu-
mótsins í knattspyrnu var sjón-
varpað beint til 220 landa víðsveg- {
ar í heiminum og talið er að um |
400 milljónir manna muni fylgjast
með dýrðinni. í keppninni allri
verða hins vegar fjögur þúsund
sjónvarps- og útvarpsþulir til taks
og munu þeir flytja þjóðum sínum
nýjustu fréttir af gangi mála á
Englandi.
■ Á WEiMBLEF-leikvanginum, j
þar sem margir af stærstu íþrótta-
viðburðum sögunnar hafa farið
fram, hefur sætum nú verið fækk-
að í 76.000. Kostnaður við fram-
kvæmdirnar er talinn um 3,9 miilj-
arðar króna og er áætlað að reisa
nýjan þjóðarleikvang á staðnum.
■ SJUKRA GÆSLA verður öflug
á Wembley en 80 sjúkraliðar
verða til taks auk þriggja lækna
og sérfræðinga í skyndihjálp ef
eitthvað skyldi fara úrskeiðis. Þá j
verða á staðnum sex sjúkrabílar
tilbúnir að flytja fólk á nærstödd ,
sjúkrahús ef með þarf.
■ EINNIGve rður á staðnum fjöl-
mennt Iið lögreglumanna en áætl-
að er að fjöldi laganna varða verði
vel á þriðja hundrað.
■ DOMARI opnunarleiksins var
hinn litríki Manuel Diaz Vega frá
Spáni, sá hinn sami og dæmdi
úrslitaleik Evrópukeppni meist-
araliða milli Juventus og Ajax á
dögunum. Á átta ári ferli sem
dómari hefur Diaz Vega gefið 600
gul spjöld og sent 39 leikmenn af
velli.
■ CHRISTOPHE Ohrel, einn
leikreyndasti leikmaður sviss-
neska landsliðsins í knattspyrnu,
með 47 landsleiki, heltist úr lest-
inni á lokaspretti á undirbúningi
liðsins. Ástæðan er sú að hann
tábrotnaði á æfingu. í hans stað
hefur komið Patrick Sylvester,
leikmaður Sion.
■ SKOSKUM áhorfendum hefur
af öryggisástæðum verið bannað
að taka með sér sekkjapípur á leiki
í keppninni. Þetta er gert til að
koma í veg fyrir að þeir geti falið
óæskilega hluti, svo sem hnífa eða
önnur álíka hættuleg vopn, í
pípunum.
■ ANDONI Zubizarreta, mark-
vörður Spánverja, lék 107. lands-
leik sinn gegn Búlgörum á Elland
Road á sunnudaginn. Hann er 34
ára gamall og hefur leikið í þrem-
ur heimsmeistarakeppnum.
■ ENGLENDINGAR gera sér
vonir um að góð framkvæmd Evr-
ópukeppninnar verði til þess að
þeir eigi meiri möguleika á að fá
heimsmeistarakeppnina árið 2006
og Olympíuleikana tveimur árum ‘
síðar.
PORTÚGALIR sýndu mjög góð-
an leik er þeir gerðu jafntef li,
1:1, við Evrópumeistara Dani í
opnunarleik D-riðils á Hills-
borough í Sheffield á sunnu-
daginn. Það var aðeins fyrir
frábæra frammistöðu Peters
Schmeichels í markinu að þeir
skorðu ekki fleiri mörk.
Eftir mikinn sóknarþunga Port-
úgala í upphafi leiks fengu
Danir sannkallaða óskastöðu er
Brian Laudrup gerði fyrsta mark
leiksins á 21. mínútu og var það
frekar slysalegt fyrir Portúgali.
Baia, markvörður þeirra, ætlaði að
spyrna boltanum út úr vítateignum
eftir að hafa fengið sendingu til
baka frá samheija. Ekki vildi betur
til en svo að boltinn fór í höfuðið
á Mikkel Bech og þaðan til vinstri
fyrir fætur Brians, sem þrumaði
boltanum með hægri fæti efst í
vinstra markhomið.
Markið kom Portúgölum í opna
skjöldu því þeir höfðu stjórnað
leiknum af mikilli leikni. Hraðinn
var mikill í leik þeirra enda liðið
skipað mjög tæknilega góðum leik-
mönnum, eins og Rui Costa og Joao
Pinto, sem náðu oft að opna vörn
Dana upp á gátt en þá var það
helsta hindrunin sem varð á vegi
þeirra, Peter Schmeichel.
Atgangurinn við mark Dana
jókst í síðari hálfleik og það varð
eitthvað að láta undan og það gerð-
ist þegar átta mínútur voru liðnar.
Joao Pinton náði þá að bijótast upp
vinstri kantinn og sendi boltann inn
í vítateiginn og þar var félagi hans,
Sa Pinto, og skallaði neðst í hægra
hornið — óveijandi fyrir Scheichel.
Danir fengu reyndar tvívegis
ágæt færi til að komast yfír í síð-
ari hálfleik. Fyrst Brian Laudrup
sem átti skot af stuttu færi eftir
frábæra sendingu bróður síns, en
Reuter
BRIAN Laudrup kom Dönum yfir gegn Portúgal. Hann leikur
hér á portúgalska varnarmanninn Fernando Couto í leiknum.
Vitor Baia gerði vel í að veija með
fæti. Claus Thomsen átti síðan
skalla yfir úr upplögðu færi.
Leikur portúgalska liðsins lofar
góðu og var í ætt við það sem ger-
ist best í Suður-Ameríku — léttleiki
og hraði. Danir áttu ágæta kafla
og voru Laudrup-bræðurnir yfir-
burðamenn í liðinu út á vellinum.
„Portúgal er með mjög gott lið.
í liðinu eru nokkrir frábærir knatt-
spyrnumenn, sem hafa nánast full-
komið vald á knettinum," sagði
Richard Möller-Nielsen, þjálfari
Dana.
„Venjulega hefði ég verið ánægð-
ur með jafntefli í fyrsta leiknum,
en miðað við hvernig leikurinn spil-
aðist er ég svolítið vonsvikinn. Við
vorum miklu betri og áttum skilið
að sigra,“ sagði Antonio Oliveira,
þjálfari Portúgals.
Perez bjargvættur
i