Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.06.1996, Blaðsíða 8
8 B ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR KORFUKNATTLEIKUR / NBA Ekkert stöðvar Jordan Chicago með pálmann íhöndunum eftir þrjá sigra íjafn mörgum leikjum Leikmenn Seattle SuperSonics sáu aldrei til sólar í þriðja leiknum gegn Chicago Bulls í bar- áttunni um NBA-meistaratitilinn þegar liðin mættust í Seattle í fyrri- nótt. Chicago hreinlega valtaði yfir Seattle og þegar upp var staðið höfðu leikmenn gestanna gert 108 stig gegn aðeins 86 stigum heima- manna. Það var ljóst strax í fyrsta leik- hluta hvert stefndi og um tíma var líkt og aðeins eitt lið væri á vellin- um. Allt virtist ganga upp hjá Chicago, og þá sérstaklega Michael Jordan, sem skoraði 12 stig strax á upphafsmínútunum, en að sama skapi mistókust nánast allar til- raunir heimamanna til að koma boltanum ofan í körfu andstæðing- anna. í öðrum leikhluta héldu leikmenn Chicago uppteknum hætti og 15 stig í röð frá Michael Jordan skil- uðu Chicago 24 stiga forystu í leik- hléinu, 62:38. Heimamenn sýndu örlítið lífsmark í þriðja leikhluta og náðu að minnka muninn niður í 12 stig, en lengra komust þeir ekki og eftir að Jordan hóf fjórða leikhluta með 5 stigum í röð fauk síðasta von Seattle út í veður og vind og eftirleikurinn var auðveldur fyrir hið geysisterka lið Chicago. Stórkostlegur lelkur „Þetta var stórkostlegur leikur hjá okkur. Michael hélt okkur á floti í fyrri hálfleik en allir lögðu sitt til málanna í þeim seinni,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Chicago, glaður í bragði eftir leikinn, en George Karl, þjálfari Seattle, vissi upp á sig sökina í leikslok og sagði sína menn hafa verið rassskellta í leiknum. Það er ljóst að róðurinn verður þungur fyrir Seattle í næsta leik, en ekkert lið í sögu NBA-deildar- innar hefur náð að snúa stöðunni 0:3 sér í hag. „Það var svekkjandi að tapa á heimavelli eins illa og við gerðum, það eina sem við getum gert er að beijast betur í næsta leik,“ sagði Shawn Kemp, sterkasti leikmaður Seattle, en Kemp náði sér aldrei á strik í leiknum og skorðaði aðeins 14 stig. 14sigrar, eitttap Chicago hefur nú unnið 14 leiki í úrslitakeppninni og aðeins tapað einum, en ekkert lið hefur fagnað meistaratitlinum með aðeins einn ósigur á bakinu í úrslitunum. Chicago virðist óvinnandi virki um þessar mundir og þarf George Karl heldur betur að leggja höfuðið í bleyti og finna upp einhvetjar nýjar leikaðferðir ef leikmenn hans eiga að ná að bjarga andlitinu. Michael Jordan var langstiga- hæstur í leiknum í fyrrinótt með 36 stig og sýndi það enn og sann- aði að hann er ókrýndur konungur körfuknattleiksins. Gary Payton, leikmaður Seattle, sagði sjálfs- traust Jordans hafa farið á æðra stig í öðrum leikhluta: „Við gættum hans ekki nógu vel og þótt karfan sé fyrir mér aðeins hringur með hangandi neti virðist hún endalaus fyrir honum,“ sagði Payton enn- fremur. Longley mjög góður Ástralinn Luc Longley kom næstur hjá Chicago með 19 stig, en er það persónulegt met hjá hon- um í úrslitakeppni, Toni Kukoc gerði 14 stig og átti sjö stoðsend- ingar en Scottie Pippen hafði óvenjuhægt um sig, átti að vísu níu glæsilegar stoðsendingar en gerði „aðeins“ 12 stig, sem þykir víst ekki mikið á þeim bænum. Hjá Seattle var Þjóðveijinn Detlef Schrempf stigahæstur með 20 stig en Gaiy Payton fylgdi fast á eftir með 19. Flest fráköst í leiknum tók hinn litríki Dennis Rodman, tíu tals- ins, en Rodman sagði eftir leikinn að hann væri undrandi á leik Seattle-liðsins: „Þeir hafa algjörlega misst taktinn. Það eina sem þeir gera er að reyna að reita mig til reiði. Þeir skilja ekki að það er ekki hægt að reita meistarann til reiði.“ Þá bætti Rodman við að Chicago-lið- ið hefði leikið stórkostlega og þegar þeir væru í þessum ham gæti ekk- ert lið í heiminum stöðvað þá. Chicago er nú með pálmann í höndunum og þarf aðeins einn sig- ur í viðbót til að hampa meistara- titlinum, en líklegt þykir að leik- menn Seattle láti titilinn ekki bar- áttulaust af hendi og komi því ákveðnari til leiks aðfaranótt fimmtudags en í leikjunum þremur sem búnir eru. FRJALSIÞROTTIR Kóngurinn á flugi Reuter MICHAEL Jordan var stórkostlegur í lelknum og Ijóst þykir að Jordan og samherjar hans fagna enn einum melstaratitlin- um. Hersey Hawkins fylgist hér með kónginum að störfum. Brynjar , Karl til ísafjarðar Guðni Guðna: son þjálfari KFÍ? BRYNJAR Karl Sigurðsson hefur verið ráðinn unglinga- þjálfari hjá Körfuknattleiks- félagi ísafjarðar. Hefur hann þegar tekið til starfa. Brynj- ar Karl hefur leikið með Val og mun leika með liði KFÍ sem leikur í fyrsta skipti í úrvaldsdeildinni i haust. Guðjón Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KFÍ, seg- ir að yngri flokkar félagsins styrldst ny'ög í sumar, meðal annars vegna ráðningar Bryiyars Karls, þvi fjórir eða fimm 18-19 ára strákar komi vestur í skóla og til að leika með liðinu. Ekki hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðsins en að sögn Guðjóns hafa stað- ið yfir viðræður við Guðna Guðnason fyrrverandi landsliðsmann úr KR sem leikið hefur með ÍS undan- farna vetur um að flylja til ísafjarðar og taka að sér þjálfun liðsins. Líkiegt er að sami sami Banilaríkjamaður, Christ- opher Osmont, leiíd með lið- inu en ekki hefur verið geng- ið frá því. Guðjón er einnig að leita fyrir sér með leik- mann frá Norðurlöndunum því talið er að útlendingaregl- an brotni upp í körfuboltan- um eins og öðrum íþróttum. Líklegt er að einn eða tveir af leikmönnum síðasta árs fari suður i háskólanám. Vésteinn: 62,78 m VÉSTEINN Hafsteinsson náði besta árangri sínum á árinu á fijálsíþróttamóti í Helsingborg í Svíþjóð um helgina. Hann kastaði kringlunni 62,78 metra og hafnaði í öðru sæti í mótinu á eftir Nink Swansney frá ír- landi sem kastaði 64,38 metra. Knut Hjeltness frá Noregi varð þriðji með 60,06 metra. Vé- steinn átti áður best 61,18 metra sem hann náði á móti í Bandaríkjunum fyrir skömmu. Tvö met Jóhanni til heiðurs TVÖ íslandsmet í frjálsíþróttum voru sett á móti sem Ármann hélt á sunnudaginn til heiðurs Jóhanni Jóhannssyni fyrrum formanni frjálsfþróttadeildar og heiðursfélaga Glímufélagsins níræðum. Sig- ríður Anna Guðjónsdóttir, HSK, stökk 13,07 metra í þrístökki og svokölluð landssveit karla hljóp 4x100 metra boðhlaup á 41,22 sekúndum. Sveitin var skipuð Olafi Guðmundssyni, Jóni Arnari Magnússyni, Birni Traustasyni og Jóhannesi Marteinssyni. Ivar Benediktsson skrifar eð boðhiaupinu þá bar Jón sig- ur úr býtum í fjórum greinum á mótinu og vann auk þess besta afrek þess í karla- flokki er hann stökk 7,52 metra í lang- stökki. Sigríður Anna vann besta af- rekið í kvennaflokki með metstökki sínu. Þetta var síðasta mót Jóns Arn- ars hér heima að sinni en um næstu helgi keppir hann með félögum sín- um í íslenska landsliðinu Evrópubik- arkeppninni í tugþraut sem fram fer í Tallin í Lettlandi. íslenska landsliðið keppir nú í 1. deild karla í fyrsta skipti eftir að það vann sinn riðil í 2. deildarkeppninni í fyrra- sumar á Laugardalsvelli. Hann kvaðst vera í góðri æfingu og vera bjartsýnn á verkefnið um næstu helgi. Þá hefði íslandsmetið í 200 metra hlaupi í síðustu viku verið óvænt ánægja. „Það eru líklega komin tíu ár síðan ég keppti síðast í tvöhundruð metra hlaupi og þá set ég met. Ætli það líði ekki aftur tíu ár þar til ég keppi næst í þess- ari grein,“ sagði Jón og glotti við tönn. „Á góðum degi ætti ég að geta náð metinu í hundrað metra hlaupi einnig." „Þrautin um næstu helgi er sú síðasta sem ég tek þátt í áður en Olympíuleikarnir hefjast í næsta mánuði. Síðan kem ég strax heim aftur og verð heima fram að mánað- amótum er ég fer út til Athens í Bandaríkjunum þar sem ég verð þar til keppni hefst í tugþraut á leikun- um þann þrítugasta júlí. Undirbún- ingurinn hefut' langur og strangur." Meiðsli þau sem hann varð fyrir í vinstri ökkla í Götzis eru óðum að jafna sig en til þess að verða við öllum búinn hefur hann lagt stund á langstökk upp á síðkastið með afstökki á hægri færi en ekki vinstri eins og hann er vanur. „Það getur verið gott að eiga varafót ef eitthvað kemur upp á,“ sagði Jón. Hann hef- ur á undanfömum mánuðum verið í mikilli sókn í spjótkasti, kúluvarpi og kringlukasti og kastaði meðal annars tveimur metrum lengra en áður í kringlukasti í síðustu viku. „Ég og Gísli þjálfari höfum lagt mikla vinnu í að laga tæknina hjá mér í köstunum og það hefur strax skilað sér í bættum árangri. Ég er að gæla við að geta náð 64 til 65 metra köstum í spjótkasti, jafnvel lengri hitti ég vel á. Þá kastaði ég yfir sautján metra í upphitun í kúlu- varpinu í Götzis um daginn þó ekki gengi allt upp er til keppninnar kom. Svo það eru talsverðar framfarir væntanlegar og nú er bara að hitta á það er á hólminn verður komið." ■ Úrslit / B10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.