Morgunblaðið - 11.06.1996, Side 12

Morgunblaðið - 11.06.1996, Side 12
Rúnar tryggði stigið RÚNAR Kristinsson tryggði liði sínu, Örgryte, eitt stig er AIK heimsótti Gautaborgar- liðið í gærkvöldi i sænsku úrvaisdeildinni. AIK komst yfir í fyrri hálfleik en Rúnar jafnaði með góðu skoti beint úr aukaspyrnu á 61. mínútu. Örgyrte er i 5. til 7. sæti með 12 stig en Gautaborg er efst með 21 stig. Rúnar hefur 4 gert þrjú af sjö mörkum Ör- gryte í deildinni og er liðið f sérflokki hvað varðar það að skora, hefur aðeins gert 7 mörk f 9 leikjum. Sigurður Jónsson lék ekki með Órebro á sunnudaginn, var í leikbanni. Níuaf hverjum tíu miðum seldir RÚMLEGA níutiu af hundr- aði aðgöngumiða á leiki í Evrópukeppninni f knatt- spyrnu eru nú þegar seldir eftir því sem forráðamenn mótsins sögðu í gær. Er það mun betri sala en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nú er upp- selt á nfu leiki og aðeins örfá sæti laus á fjóra leik til við- bótar. „Þetta cr 20 prósent meiri sala en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir,“ sagði Glen Kirton framkvæmdastjóri keppninnar. Gæti unnið 104 millj. DJARFUR fjárhættuspilari hefur veðjað 5,2 miUjónum á að Spánverjar mæti Itölum f úrslitaleik Evrópukeppninn- ar þann 30. júní nk. Ef sá mikli fjármálamaður reynist sannspár mun hann verða 104 milljónum ríkari, en þess má tíl gamans geta að líkurnar á því að þessi tvö lið mætist í úrslitaleiknum eru 20:1. -- IÞRBMR Skotar stóðust pressuna Hollendingar sóttu linnulítið en uppskáru aðeins eitt stig Hollendingar virtust hreinlega ætla að valta yfir Skota á upphafsmínútum fyrri hálfleiks þegar liðin mættust í öðrum leik A-riðils Evrópumótsins í knatt- spyrnu á Villa Park í Birmingham í gær. Það tók Skotana nokkrar mínútur að vakna til lífsins og Hollendingar fengu nokkur góð tækifæri til að skora í upphafi leiks en inn vildi knötturinn ekki. Hol- lendingar vildu svo fá vítaspyrnu þegar einn varnarmanna Skota kom í veg fyrir að Hollendingar næðu forystunni, er hann sló bolt- ann frá marki, en Leif Sundell, dómari frá Svíþjóð, var á öðru máli og lét leikinn halda áfram. Eftir þetta komust Skotarnir smám saman meira inn í leikinn og gerðu oft harða hríð að marki Hollendinga. Gary McAllister, fyrirliði Skota, komst næst því að skora þegar hann sneri knettinum skemmtilega yfir varnarvegg Hol- lendinga beint úr aukaspyrnu en Edwin van der Saar markvörður bjargaði stórkostlega. Besta færi Hollendina fékk Dennis Berg- kamp, leikmaður Arsenal, þegar hann slapp einn inn fyrir vörn Skota en missti boltann svo of langt frá sér þegar hann ætlaði að fara fram hjá Andy Goram markverði og náði þar af leiðandi ekki að koma sér í nægilega gott skotfæri. Skotar hófu síðari hálfleikinn af krafti en náðu ekki að fylgja öflugri bytjun eftir með marki og fljótlega tóku léttleikandi Hollend- ingar öll völd á vellinum og segja má að Skotar hafi vart komist fram yfir miðju það sem eftir lifði leiks. Hollendingar sýndu listir sín- ar á miðjunni en þegar kom að vítateig Skotanna var fyrir öflugur múr varnarmanna með glókollinn Colin Hendry fremstan í broddi fylkingar og þennan varnarmúr náðu Hollendingar aldrei að bijóta Reuter GIFURLEG barátta var í leiknum á Vllla Park. Hollendlngar sóttu llnnulftló en Skotar vörðust af mlklum kraftl. Hér hafa Skotar reyndar brugðlð sér í sóknina og það er Edgar Davids, Hollendingur til vinstri, sem á í höggi vlð framherjann Kevln Gallagher. þrátt fyrir margar ágætar tilraunir. Það er ljóst af leiknum í gær að Skotar verða Englendingum og Svisslendingum erfiður biti að kyngja en Guus Hiddink, þjálfari Hollendinga, var ekki ánægður með einungis eitt stig og taldi hann dómarann hafa brugðist á upphafsmínútunum þegar Hol- lendingar vildu fá að því er virtist réttláta vítaspyrnu. „Þetta var augljós hendi en dómarinn var ekki í aðstöðu til að sjá það. Við vorum óheppnir að skora ekki í upphafí leiksins þegar við réðum algjörlega gangi mála en þótt leik- urinn hafi verið markalaus var hann samt mun betri en opnunar- leikurinn milli Englands og Sviss,“ sagði Hiddink í leikslok. Það er þó næsta víst að Hiddink verður að finna nýjar aðferðir fyr- ir leikmenn sína til að komast í gegnum varnir andstæðinganna ef Hollendingar ætla sér áfram- haldandi þátttöku í keppninni. Eins og staðan er í dag eru öll liðin jöfn með eitt stig og því er að duga eða drepast í þeim leikjum sem eftir eru, en næsti leikur í riðlinum er leikur Svisslendinga og HoIIendinga og fer hann fram á Villa Park á fimmtudag. Tíundi sigur Frakka í röð KNATTSPYRNA / EVROPUKEPPNI LANDSLIÐA Christopher Dugarry gerði eina markið gegn Rúmeníu eftir slæm mistök markvarðarins FRAKKAR, sem margirtelja sigurstranglega í Evrópu- keppninni í Englandi, hófu keppni í gær með 1:0 sigri á sterku liði Rúmena á St. Ja- mes’ Park í Newcastle. Chri- stophe Dugarry gerði eina markið með skalla ifyrri hálf- leik, eftir hroðalega mistök markvarðar Rúmeníu. Aime Jacquet þjálfari stýrði franska landsliðinu í 24. skipti í gær og getur státað af þeim árangri að hafa aldrei beðið ósigur. Viðureignin í gær var raun- ar tíundi sigurleikur liðsins í röð. Frakkar virkuðu hikandi í byijun og Rúmenar réðu ferðinni en eftir markið hresstust Frakkarnir og eftir leikhléð voru þeir mun betri. Fóru á kostum og hefðu getað skorað nokkrum sinnum til viðbót- ar. „Rúmenska liðið var mjög gott og hættulegt allan tímann. En við öðlumst stöðugt meiri reynslu og mínir menn notfærðu sér greind sína í miklum mæli,“ sagði Jaquet eftir sigurinn. „Þetta var góð byij- un á keppninni. En ekkert er enn í höfn. Við erum rétt að byija.“ Rúmenski þjálfarinn Anghel Iordanescu sagði mark Christophe Dugarrys á 24. mín. hafa verið gífurlegt andlegt áfall fyrir lið sitt, eftir að það hafði stjórnað leiknum. „Við byijuðum mun betur en and- 'stæðingarnir...en gáfum þeim svo mark þvert gegn gangi leiksins. Þetta gerir það erfiðara en ella að komast áfram í næstu umferð keppninnar," sagði þjálfarinn og kenndi markverði sínum, Bogdan Stelea, algjörlega um markið. Skiljanlegt, því hann gerði mjög slæm mistök: Youri Djorkaeff fékk knöttinn úti á hægri kanti og há sending hans kom yst í vítateiginn miðjan, þar sem tveir varnarmenn voru til staðar gegn Dugarry. Engu að síður hljóp Stelea úr markinu til að freista þess að góma knött- inn, Dugarry náði honum hins veg- ar fyrstur og skallaði yfir mark- vörðinn í tómt markið. Ótrúlegt að sjá reyndan mann í landsliði af þessum styrkleika gera slík mistök, en atvikið sýnir að allt er mögulegt. Dugarry var himinlifandi með markið, en þetta var í annað skipti sem hann skorar með landsliðinu. „Við vorum eins og lamaðir fyrstu 20 mínúturnar en hefðum getað skorað þrívegis í seinni hálfleikn- um,“ sagði hann. Segja má að sterkar varnir hafi verið aðal beggja liða í gær, þann- ig að hvorugt náði í raun að leika jafn vel og þau eiga að geta en leikurinn var engu að síður skemmtilegur. Sérstaklega var franska vörnin góð með Laurent Blanc, Lilian Thuram og Marcel Desailly geysilega sterka. Miðju- menn Frakkanna léku vel og fram- línumennirnir sýndu styrk sinn í seinni hálfleik þó þeim tækist ekki að skora meira. En frönsku leik- mennirnir sýndu hvers vegna mik- ils er vænst af þeim í keppninni að þessu sinni. Rúmenska liðið lék einnig vel. Gheorghe Hagi var mjög góður á miðjunni, lék samheija sína vel uppi eins og hann gerir gjarnan en það dugði ekki að þessu sinni. Þó svo Rúmenar hafi tapað sýndu þeir að mörgu leyti hvað í þeim býr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.