Morgunblaðið - 25.07.1996, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1996 B 3
Þýzk fyrírtæki vilja
lengrí viimuviku
Bonn. Reuter.
PERRIER-auglýsingin, sem vakti reiði kvennasamtaka.
UMRÆÐUR um geysimikinn
launakostnað í Þýzkalandi hafa
færzt á nýtt stig vegna áskorana
um lengri vinnuviku.
Þýzka verzlunarráðið, DIHT,
hefur hvatt aðila vinnumarkaðarins
til að reyna að lengja vinnuvikuna
og kunn rannsóknarstofnun segir
að minnka verði launakostnað um
20%.
Yfirlýsingar þessar eru síðasta
innleggið í þýzkar deilur um hvort
launakostnaður er of hár eða ekki.
„Alvarleg skyssa“
„Stytting vinnuvikunnar á síð-
ustu árum var alvarleg skyssa, sem
nauðsynlegt er að leiðrétta," sagði
formaður DIHT, Hans-Peter Stihl,
í blaðinu Bild Zeitung og kvaðst
telja 40 stunda vinnuviku ákjósan-
legri en 37 stunda vinnuviku, sem
nú tíðkast og verkalýðsfélög vilja
stytta ennþá meir.
„Með því að stytta vinnuvikuna
á sama tíma og laun voru hækkuð
var launakostnaður aukinn svo
mjög að hundruð þúsunda hafa
misst atvinnuna,“ sagði hann.
Launakostnaður vestur-þýzkra
iðnfyrirtækja er sé mesti í heimin-
um samkvæmt athugunum, sem
hafa verið gerðar, og vinnutími
þýzkra verkamanna er einn sá
stytzti sem um getur.
Framleiðsla úr landi
Fyrirtæki hafa flutt framleiðslu
sína úr landi vegna lægri kostnað-
ar, sem hefur stuðlað að því að
atvinnuleysi hefur aldrei verið
meira í Þýzkalandi frá stríðslokum.
Stihl sagði að verkalýðsfélög
yrðu að skilja að ekki væri hægt
að gera Þýzkaland að betri vinnu-
stað nema með meiri vinnu eða
minni tekjum.
„Að halda að hægt sé að vinna
styttri vinnutíma og lifa samt betur
er misskilningur," sagði hann.
DAG, samband skrifstofumanna,
deildi á hugmyndir Stihls og kvað
þær mundu stuðla að auknu at-
vinnuleysi.
„Starfsmenn hafa orðið að greiða
fyrir hverja þá stund sem vinnuvik-
an hefur stytzt um með því að fá
ekki kauphækkanir, sagði varafor-
maður DAG, Ursula Konitzer, í yfir-
lýsingu.
IW-stofnunin sagði að skera yrði
niður lapnakostnað um 20% til að
Þjóðveijar yrðu aftur samkeppnis-
hæfir og skoraði á fyrirtæki, stjórn-
völd og aðila vinnumarkaðarins að
skera upp herör til að stuðla að
auknu heilbrigði efnahagslífsins.
Sveigjanlegri vinnutími
Stofnunin sagði að fyrirtæki
gætu dregið verulega úr launa-
kostnaði með sveigjanlegri vinnu-
tíma, betri nýtingu véla og hag-
kvæmara vinnuskipulagi. Ríkið ætti
að draga úr skattbyrði fyrirtækja
og verkalýðsfélög samþykkja að
raunlaun yrðu ekki hækkuð fyrir
árið 2000. Umræða þessi kemur í
kjölfar skýrslu frá hinni virtu Ifo-
stofnun, þar sem sú almenna skoð-
un var dregin í efa að launakostnað-
ur væri of hár og sagt að há laun
í Þýzkalandi væru réttlætanleg
vegna mikillar framleiðni.
Ifo fór hörðum orðum um kvart-
anir um óhófleg vinnulaun, sagði
að til þeirra lægju aðallega pólitísk-
ar ástæður og hélt því fram að það
sem aðallega hefði grafið undan
samkeppnishæfni væri hækkun
marksins.
Perrier
dregur aug-
lýsingu
til baka
París. Reuter.
PERRIER, hinn kunni franski öl-
kelduframleiðandi, hefur dregið
til baka auglýsingu með töppum
á konubrjóstum vegna mótmæla
evrópskra kvennasamtaka.
Eve Magnan, talsmaður Perri-
ers, sagði að fjarlægð hefðu verið
auglýsingaspjöld í Belgíu með
myndum af þremur ungum ber-
brjósta konum með Perrier-tappa
ÞOTT uppi séu áætlanir um að
einkavæða ítalska ríkisflugfélagið
Alitalia bendir allt til að leiðin verði
löng og ströng. Félagið er rekið
með gífurlegu tapi og skuldirnar
hafa hrannast upp. Heildarskuldir
félagsins nema nú 3.400 milljörðum
ítalskra líra sem jafngildir 150 millj-
örðum íslenskra króna
Forstöðumenn félagsins eru þó
bjartsýnir á að takast muni á næsta
ári að koma rekstrinum á réttan
kjöl. Ýmsir eru þó tortryggnir á það
og úr röðum stjórnmálamanna hey-
rast þær raddir að réttast væri að
skipa rannsóknarnefnd til að kanna
rekstur og stöðu félagsins niður í
kjölirin.
Flugfélagið hefur verið rekið með
halla mörg undanfarin ár, en á
þessu ári stefnir í methalla upp á
400 milljarða líra sem svarar til
17,6 milljarða króna. Þar við bæt-
á brjóstvörtunum undir slagorð-
inu „Wonderbulies" (Undrabólur).
Hún neitaði því að Perrier, sem
er dótturfyrirtæki svissneska
matvörurisans Nestle SA, hefði
látið undan kaupbannshótun evr-
ópskra kvennnasamtaka, EWL,
sem segjast hafa 2500 kvenna-
hópa á bak við sig.
ast 800 milljarðar, sem varið var
til sparnaðarráðstafana, meðal ann-
ars vegna eftirlauna til starfs-
manna, sem látnir voru hætta fyrir
eftirlaunaaldur. Á fyrstu þremur
mánuðum ársins nam hallinn 272
milljörðum. í fyrra var hallinn 444
milljarðar líra, en nam 289 milljörð-
um líra 1994. Ofan á heildarskuldir
fyrirtækisins upp á 3.400 milljarða
líra bætast enn við 1.200 milljarð-
ar, sem eru skuldbindingar vegna
fjármagnsleigu og fleira.
Vonast eftir blessun ESB
Undanfarin ár hefur verið stefnt
að aukinni einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja, sem eru mörg á Ítalíu og
eitt af þeim er Alitalia. Ljóst þykir
þó að ekki þýði að tala um einkavæð-
ingu fyrr en tekist hefur að ná tök-
um á rekstrinum og koma honum á
réttan kjöl. Forráðamenn fyrirtækis-
„Perrier-auglýsingaherferðin,
sem átti að standa til júlíloka,
hefur verið takmörkuð vegna
þess að hún átti að vera brandari
og engan að hneyksla eða
móðga,“ sagði Magnan.
Evrópsku kvennasamtökin
héldu því frama að þau hefðu
unnið „stórsigur."
ins láta í ljós vonir um að með fyrir-
huguðum aðgerðum nú muni takast
þegar á næsta ári að hindra halla
og koma rekstrinum á slétt. Slíkt
verður þó aðeins gert með fjárfram-
lögum frá ítalska ríkinu og til þess
þarf samþykki Evrópusambandsins.
Italska stjórnin er vongóð um að
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins muni leggja blessun sína
yfir fjármögnunaráætlunina, líkt og
hún hefur gert hingað til með önnur
evrópsk flugfélög eins og til dæmis
Air France, sem svipað er ástatt
fyrir og Alitalia.
Nokkrir þingmenn stjórnarand-
stöðunnar hafa lýst yfir vantrú á
að sparnaðarráðstafanirnar dugi til
og efasemdum um ný ríkisframlög.
Að þeirra áliti væri nær að kanna
allan rekstur félagsins og hver beri
ábyrgð á tröllslegum halla flugfé-
lagsins.
Einkavæðing Alitalia tefst
vegna gífurlegs halla
Róm. Morgunblaöið.
PENINGAMARKAÐSSJÓÐUR
Engin binding.
Með nýjum peningamarkaðssjóði VlB,
Sjóði 9, getur þú ávaxtað fé þitt eða
fyrirtækis þíns haftalaust. í einn
sólarhring, eða lengur ef því er að skipta.
Það er enginn kostnaður. Enginn
binditími. Enginn munur á kaup- eða
sölugengi. Tvö símtöl nægja - eitt til að
kaupa og annað til að selja.
Sjóður 9 fjárfestir einkum í skamm-
tímaskuldabréfum og víxlum ríkis og
banka. Lágmarkseign í sjóðnum eru
250.000 krónur. Til að auðvelda bókhald
sendum við tvö viðskiptayfirlit á ári.
Mánaðarhækkun þingvísitölu borin saman við
mánaðarhækkun verðlags á ársgrundvelli
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi Islands •