Morgunblaðið - 30.07.1996, Blaðsíða 11
10 B ÞRIÐJUDAGUR 30. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞKIÐjUDAGUR 30. JÚLÍ 1996 B 11
Q&P ATLAINITA ’96
QS& ATLAIMTA '96
- He',*l!«aodaí:'
Nýkrýndur ólympíumeistari í
100 metra hlaupi karla,
Donovan Bailey frá Kanada, verð-
ur að teljast fljótasti jarðarbúinn
eftir að hafa sett heimsmet í úr-
slitahlaupinu á ólympíuleikvangn-
um í Atlanta. En er hann fljótast-
ur?
Ef Kanadamaðurinn hefði
hlaupið 100 metra til viðbótar á
sama tíma og hann hljóp í úrslita-
hlaupinu, kæmi hann í mark á
19,68 sekúndum. Sá tími er tveim-
ur hundruðustu úr sekúndu lakari
en tími Michael Johnsons í 200
metra hlaupi þegar hann setti
heimsmet. Meðalhraði Baileys er
þess vegna minni en meðalhraði
Johnsons í 200 metrunum.
Sieg Lindstrom, ritstjóri Track
& Field tímaritsins, sagði muninn
vera þann að reiknað er með því
að Bailey sé ræstur tvisvar úr rás-
blokkinni en Michael Johnson þarf
vitaskuld að fara aðeins einu sinni
af stað úr kyrrstöðu þegar hann
hleypur 200 metrana. „Það tekur
tvöfalt lengri tíma að hlaupa
fyrstu tíu metrana í 100 metra
hlaupi heldur en aðra tíu metra
kafla á leiðinni," segir Lindstrom.
Bailey þurfti 1,90 sekúndur til
að hlaupa fyrstu tíu metrana í
úrslitahlaupinu í Atlanta. Næstu
tíu metra hljóp hann á 1,20 sek-
úndum. Þegar Kanadamaðurinn
komst loks á skrið, hljóp hann
þriðja tíu metra kaflann á 0,80
sekúndum og þann fjórða á einum
tíunda úr sekúndu skemri tíma.
Fjórir undir 10
sekúndum
100 METRA hlaup karlanna á
laugardag var sögulegt vegna
þess að fjórir hlupu í fyrsta
skipti undir 10 sekúndum í
sama hlaupi. Bailey, Fred-
ericks (9,89), Boldon (9,90) og
Bandaríkjamaðurinn Dennis
Mitchell (9,99) náðu allir því
takmarki og sá fimmti, Michael
Marsh, Bandaríkjunum, hljóp á
10 sekúndum. Þá er merkilegt
að Bandaríkjamenn skuli ekki
hafa átt mann á verðlaunapalli
því það hefur ekki gerst síðan
í Montreal fyrir 20 árum, 1976,
fyrir utan leikana í Moskvu
1980 þegar Bandaríkjastjórn
meinaði íþróttamönnum þjóð-
árinnar að taka þátt vegna
árásar Sovétmanna inn í Afgh-
anistan skömmu áður.
Donovan Bailey
Kanada
Ólympíumeistari í 100 metra hlaupi karla.
Aldur: 28 ára, fæddur á Jamaíka.
Persónulegt met: 9,84 sekúndur 1996 (á ÓL), sem jafnframt er heimsmet.
Fyrri árangur: Fjórði í 200 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu innan-
húss 1995 - Sigurvegari í 100 metra hlaupi á heimsmeistaramótinu 1995
- Heimsmethafi í 50 metra hlaupi innanhúss.
• Donovan Bailey eyddi fyrstu árum ævi sinnar á Jamaíka en þrettán
ára gamall fluttist hann búferlum ásamt foreldrum sínum til Kanada. I
dag starfar Bailey sem markaðsráðgjafi í samvinnu við bróður sinn.
Kanadamenn endurheimtu það sem þeir höfðu um stundarsakirfyrir átta árum - gull og heimsmet en sigurvegarinn segist ekki vera að bæta fyrir mistök Bens Johnsons
Síðustu tíu metrana hljóp hann á
0,84 sekúndum.
Michael Johnson, sem hefur ekki
verið þekktur fyrir að vera snöggur
úr rásblokkinni, hljóp fyrri 100
metrana í 200 metra methlaupi
sínu á 10,31 sekúndu en seinni
hlutann hljóp hann tæpri sekúndu
skemur - 9,35 sekúndum. Hver
er munurinn? „Hann lagði ekki upp
í síðari 100 metrana úr kyrrstöðu,"
sagði Lindstrom.
Aftur á móti á þessi skýring
ekki við um 100 og 200 metra
hlaup kvenna. Ef tími Florence
Griffith-Joyner í 100 metra hlaup-
inu væri tvöfaldaður, myndi hún
samt sem áðúr bæta tíma sinn í
200 metra hlaupinu um 0,36 sek-
úndur.
Roba ryður
veginn
Nafn mitter
Donovan Bailey!
Chaplin
ekki að
grínast
YFIRDÓMARI í 100 metra
hlaupi karla var John
Chaplin. Þessi nafni gam-
anleikarans fræga á árum
áður var þó alls ekki að
grínast er hann sýndi Lin-
ford Christie rauða spjaldið
og vísaði honum þar með
úr úrslitahlaupinu. Bretinn
neitaði fyrst að yfirgefa
hlaupabrautina því honum
fannst hann ekki hafa þjóf-
startað í seinna skiptið.
„Dómararnir við rásmarkið
báðu hann að fara en hann
vildi það ekki. Ég var því
kallaður til og sýndi honum
rauða spjaldið. Þetta var
alls ekkert óvenjulegt,“
sagði Chaplin á blaða-
mannafundi.
Christie
var mjög
óhress
LINFORD Christie var að
vonum ókátur með að vera
dæmdur úr leik. „Mér
fannst ég fara af stað um
Ieið og skotið var af byss-
unni,“ sagði hann um
seinna þjófstartið, en vert
er að geta að skv. frásögn
yfirdómara hlaupsins mun-
aði nánast engu að startið
væri löglegt - en þó því,
að svo var ekki. „Svona er
lífið Ég brosi, en mér líður
engu að síður illa. Þetta
særði mig mjög,“ sagði
Bretinn. „Ég er viss um að
hefði hlaupið átt sér stað
alls staðar annars staðar
en í Bandaríkjunum, hefði
ég fengið að halda áfram.“
Christie
gagn-
rýndur
„HVERS vegna ekki?“ svar-
aði Linford Christie er
hann var spurður hvers
vegna hann hefði neitað að
yfirgefa hlaupabráutina.
Hann fór loks til hliðar við
rásmarkið en eftir hlaupið
skokkaði hann eftir braut-
inni að endamarkinu og
veifaði til áhorfenda. Þegar
hann kom í mark faðmaði
hann Frankie Fredericks,
silfurverðlaunahafa, að sér
en þeir æfa saman. Christie
var gagnrýndur fyrir að
neita að yfírgefa brautina
og eins fyrir „sigurhlaup“
hans, m.a. af Bandaríkja-
manninum Michael Marsh,
sem varð í fímmta sæti.
Donovan Bailey settist niður
með fjölskyldunni og nánum
vinum á hótelbar í miðborg Atlanta
skömmu eftir að hann hafði sett
glæsilegt heimsmet í 100 metra
hlaupi og slappaði loks af. „Auðvit-
að átti ég von á að ha'nn sigraði,“
sagði George Bailey, faðir hans,
og bætti við að hann hefði sagt
syninum fyrir hlaupið hvernig færi.
„Hann er mjög ákveðinn, ungur
maður og ég vissi að hann stæði
sig í hverju sem hann tæki sér
fyrir hendur. Hann byijar kannski
rólega en ekki afskrifa hann. Þeg-
ar hlaupið er hálfnað nær honum
enginn. „Pabbi, ég ætla að ná því,“
sagði hann við mig þegar ég talaði
við hann kvöldið fyrir hlaupið."
Bailey fékk sér bjór og vindil en
kærastan Michelle Mullin reyndi að
forðast reykinn. „Ég er ánægð, yfir
mig ánægð. Síðast sá ég hann
reykja svona þegar dóttir okkar
fæddist," en dóttirin Adrienna verð-
ur tveggja ára 15. ágúst.
„Ég átti von á að hann sigraði,"
sagði Mullin, „en ég var tauga-
óstyrk. Mjög taugaóstyrk.“ Bailey
hljóp á 9,84. „Ég átti von á að
heimsmetið félli og ég gerði ráð
fyrir að hann sigraði," bætti kær-
astan við.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
DONOVAN Bailey, fyrir miðju, á blaðamannafundi eftir að hafa tekið við gullverðlaunum fyrir sigur í 100
m hlauplnu. Vinstra megin er Ato Boldon sem varð þriðji og til hægri silfurverðlaunahafinn Frankie Fred-
ericks.
Fatuma Roba frá Eþíópíu sigraði
í maraþonhlaupi kvenna á
sunnudag. Hún hljóp á 2:26.04
klst. og skaut ólympíumeistaran-
um í Barcelona, Valentínu Yeg-
orovu frá Rússlandi, ref fyrir rass.
Yegorova hljóp á 2: 28.05 klst. -
tveimur mínútum á eftir Robu.
Bronsverð-
launin féllu
í hendur
Yuko Ari-
mori frá
Japan, en
hún hljóp á
2:28.39 klst.
Maraþon-
hlaupið
hófst klukk-
an sjö að
morgni að
staðartíma
til þess að
hitinn yrði
ekki óbæri-
legur fyrir
keppendur.
Furðuleg
sjón blasti
við þegar
keppendur
fóru af stað
því einn
starfsmaður
stóð enn
fyrir framan
hópinn þeg-
ar skotinu
var hleypt
af.
Sigur
Robu kemur
fjórum
árum eftir
að landa
hennar,
Derartu Reuter
Tulu, varð FATUMA Roba
fyrsta af-
ríska konan til þess að vinna
ólympíugull í 10.000 metra hlaupi.
Tulu og Roba voru báðar fæddar
í þorpinu Merero í Eþíópíu. Fat-
uma Roba, sem starfar sem lög-
reglukona í Eþíópíu, sagðist hafa
hlaupið eftir áætlun, „Ég var með
ákveðna hlaupaáætlun og hélt mig
við hana þó að Uta Pippig hafa
farið mjög hratt af stað. Eg var
alltaf nokkuð viss um að ég myndi
vinna.“
Uta Pippig frá Þýskalandi leiddi
hlaupið framan af en hægði á sér
eftir sautján kílómetra. Hún hætti
að lokum keppni sjö kíiómetrum
frá leikvangnum.
uð viss um að ég
myndi vinna“
Roba
Eþíópíu
Ólympíumeistari í maraþon-
hlaupi kvenna.
Aldur: 25 ára, fædd í Merero
í Eþíópíu.
Persónulegt met: 2:26.05 -
1996 (á ÓL).
Fyrri árangur: Þriðja í 10.000
mctra hlaupi á Afríkumeistara-
mótinu 1993 - Ellefta á heims-
meistaramótinu í hálfmaraþoni
1994 - Nítjánda í maraþoni á
heimsmeistaramótinu 1995.
■ Fatuma Roba er sú fjórða í
röðinni af sjö systkinum og er
hún foringi í lögregiusveit höf-
uðborgar Eþíópíu, Addis Ababa.
Hún er fyrst afrískra kvenna til
þess að fagna stgri í maraþon-
hlaupi á ólympiuleikum en kon-
ur kepptu fyrst í þeirri grein á
leikunum í Los Angeles 1984.
Ólympíumeistarinn
Christie dæmdur úr
leik fyrir tvö þjófstört
Kanadíska þjóðin varð fyrir
miklu áfaíli er Ben Johnson
féll á lyfjaprófi eftir að hafa sett
heimsmet og unnið gullverðlaun í
100 metra hlaupi á Ólympíuleikun-
um í Seoul fyrir átta árum. A laug-
ardagskvöldið fengu Kanadamenn
hins vegar uppreisn æru er Dono-
van Bailey - sem fæddur er á
Jamaíka, eins og Johnson - endur-
tók leikinn í Atlanta: Sigraði og
nældi þar með í gullverðlaun og
setti heimsmet í leiðinni; hljóp á
9,84 sekúndum.
Donovan Bailey varð heims-
meistari í 100 metra hlaupi í Gauta-
borg í fyrra og
sannaði á laug-
ardagskvöldið að
sá árangur var
engin tilviljun.
Fyrirfram var
búist við að
Frankie Fred-
ericks frá
Namibíu - vinur
og æfíngafélagi Olympíumeistar-
ans Linfords Christies - myndi
vinna til gullverðlauna. Hann átti
einmitt besta tíma ársins fyrir leik-
ana og hafði ekki lotið í lægra
haldi allt árið, en varð að sætta sig
við silfur þegar upp var staðið.
Ato Boldon frá Trinidad og To-
bago sigraði í öðrum undanúrslita-
riðlinum og Fredericks í hinum.
Boldon lofaði heimsmeti í úrslita-
hlaupinu - hvort sem það yrði hann
eða einhver annar sem bætti metið
- og strákur stóð við loforðið. Því
miður fyrir Boldon var það ekki
hann sem átti í hlut, en hann hljóp
engu að síður mjög vel og varð í
þriðja sæti. r
Eftirminnilegt
Úrslitahlaupið verður lengi í
minnum haft, svo mikið er víst. í
fyrsta lagi fyrir glæsilega frammi-
stöðu Baileys og heimsmet hans,
en líklega ekki síður fyrir það að
Christie, Ólympíumeistari í Barcel-
ona fyrir fjórum árum, þjófstartaði
tvívegis og var þar með dæmdur
úr leik. Hann átti erfitt með að
sætta sig við seinna atvikið og neit-
aði í fyrstu að yfirgefa hlaupabraut-
ina. Skv. reglum er mönnum vikið
úr hlaupi fyrir að þjófstarta tvisvar
og það var gert. Alls þurftu hlaup-
ararnir að byrja fjórum sinnum því
auk Christies þjófstartaði Boldon
einu sinni; fyrst Bretinn þá Boldon
og loks Christie aftur.
Bailey byijaði ekki sérlega vel í
úrslitahlaupinu. Fredericks og
Bandaríkjamaðurinn Michael
Marsh byijuðu best en þegar hlaup-
ið var hálfnað virtist Boldon vera
aðeins á undan Fredericks. En þá
var Bailey allt í einu kominn á
mikla ferð og hreinlega stakk
keppinautana af! Stórkostlegt
hlaup hjá þessum fótfróasta manni
heimsins. „Ég var alls ekki að
hugsa um metið og stefndi ekki á
neinn ákveðinn tíma. Þegar ég
hugsa um tíma
áður en ég fer
af stað klúðra ég
alltaf hlaupinu.
Alltaf. Núna
hugsaði ég bara
um að slaka á -
það var það eina
sem komst að í
koliinum á mér.
Eg lét þjófstörtin ekki fara í taug-
arnar á mér heldur fékk meiri tíma
en ella til að slappa af og hugsa
um hvað ég ætlaði að gera.
Ég vissi ekki einu
sinni, og
leiddi
hugann
ekki að
því,
hvort
Christie
hefði
þjófstartað
tvisvar eða
ekki,“ sagði
Bailey þegar
sigurinn var í
höfn.
Heima!
Meistarinn
var spurður, á
blaðamannafundi
eftir hlaupið,
hvort sigur hans yrði til þess að
bæta fyrir hneykslið sem Johnson
olli á sínum tíma.
„Ég er ekki að reyna að lagfæra
það sem Ben gerði í Seoul. Nafn
mitt er Donovan Bailey (!) en þessi
umræða á alltaf eftir að koma upp
meðan ég verð keppandi í sprett-
hlaupum, vegna þess að ég er fædd-
ur í Jamaíka og keppi fyrir Kanada
Loft var lævi blandið á
Ólympíuleikvanginum í
Atlanta á laugardags-
kvöldið. Skapti Hall-
grímsson fylgdist með
spennandi keppni í 100
metra hlaupi karla og
kvenna og þrístökki
karla.
aherslu
á það á blaða-
mannafundinum eftir
hlaupið að Jamaíka ætti ekki minna
í gullinu en Kanada og fyrrnefnda
landið ætti ekki einu sinni að þurfa
að deila gullinu. „Jamaíka er
heima, maður,“ sagði hann að-
spurður. „Ég er Jamaíkabúi. Það
er ekki hægt að taka frá mér. Ég
er Jamaíkabúi en hleyp fyrir
Kanada.“ Hann býr hins vegar í
Austin í Texas í Bandaríkjunum.
[eins og Johnsonj," sagði hann.
Hlauparar frá Jamaíka eru
geysigóðir, margir hveijir, og næg-
ir þar að nefna Linford Christie auk
Baileys. Ben Johnson var einnig
þaðan sem fyrr segir en margir
flytjast burt og gerast ríkisborg-
arar í öðrum löndum.
Bailey lagði
þó
Sigurreifur
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
DONOVAN Bailey, sem fæddur er á Jamaíka en er nú Kanadamaður, sigurreifur með kanadíska
fánann eftir að hafa sett heimsmet í 100 metra hlaupinu.
Bailey fljótastur?
Donovan Bailey
slappaði loks af
100MHLAUP KARLA
MARAÞON KVENNA
„Ég varalltaf nokk-