Morgunblaðið - 13.08.1996, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
ÞRIÐJUDAGUR 13. ÁGÚST 1996 B 3
KNATTSPYRNA
II KÖRFUBOLTI
Sögulegur sigur KA
17ára
biðá
enda
Sigur KA á Þór í gærkvöld var
sögulegur, ef ekki forsöguleg-
ur. KA-mönnum hafði ekki tekist
■■■að sigra nágranna
Stefán Þór sína í deildarleik í
Sæmundsson sextán leikjum frá
skrifarfrá 1980 og Akur-
ureyn eyringar fyrir löngu
famir að tala um hefð í þessu sam-
bandi. Hefðin var rofín í sautjánda
leiknum, KA vann sanngjamt 2:1
og er 17 eflaust happatala liðsins í
dag.
Leikurinn byrjaði fjörlega, snarp-
ar sóknir á báða bóga, fjölmargar
homspyrnur en lítið um góð mark-
tækifæri. Birgir Þór átti gott skot
að KA-markinu á 14. mín. en Egg-
ert varði vel í horn. Á 18. mín. sendi
Davíð Garðarsson fram á Hrein
Hringsson sem stakk sér inn fyrir
og komst í dauðafæri. Eggert varði
skot hans en Árni Þór Árnason
fylgdi vel á eftir og hamraði boltann
í netið. Staðan 1:0 og virtist það
ekki koma neinum á óvart.
Þórsarar vom heldur sprækari í
hálfleiknum en vöm KA hafði greini-
lega jafnað sig eftir leikinn gegn
Fram og jöfnuðu rétt fyrir leikhlé.
Helgi Aðalsteinsson átti þá langa
sendingu inn frá hægri, beint á Þor-
vald Makan sem skallaði auðveldlega
í netið; 1:1. Seinni hálfleikur var
skelfing daufur; KA-menn frískari
en Þórsarar á hælunum. Besti maður
vallarins, Þorvaldur Makan Sig-
björnsson gerði sigurmarkið á 85.
mín. fékk sendingu inn á vítateig
Þórs, var á undan markverði og vam-
armanni Þórs og lyfti knettinum yfir
Atla markvörð og í netið.
Morgunblaðið/Golli
ÍBA sóttl Stjörnuna heim í Garðabæ í gærkvöldi í 1. delld kvenna og varö að sætta slg við
tap, 5:1, eftlr að jafnt hafði verlð í leikhléi, 1:1. Hér á myndinnl sækir Elva B. Ásgelrsdóttir
leikmaður Stjörnunnar að Maren Vignisdóttur markverðl ÍBA, en hafðl ekki árangur sem erfiði.
Tæpt hjá Blikastúlkum
Breiðabliksstúlkur hafa ekki í
annan tíma í sumar verið nær
því að tapa stigi og á Akranesi í
^■■■■B gærkvöldi er þær
Sigþór sóttu Skagastúlkur
Eiriksson heim. Eftir að hafa
skrifar frá átt meira j ieiknum
Akranesi . c . , .,
í fyrri halfleik var
það ekki fyrr en á 70. mínútu sem
þeim tókst að skora sigurmark sitt
í leiknum. Var þar að verki Ásthild-
ur Helgadóttir með vítaspyrnu sem
dæmd var eftir brot á Ingibjörgu
Ólafsdóttur. Skagastúlkur mót-
mæltu ákaft; töldu að brotið hefði
verið fyrir utan teig, en dómarinn
var ömggur með ákvörðun sína.
Eftir markið reyndu Blikar að
bæta við en allt kom fyrir ekki og
munaði þar mest um stórleik
Steindóru Steinsdóttur í marki ÍA.
Rétt undir leikslok fékk Magnea
Guðlaugsdóttir tækifæri til að jafna
fyrir ÍA en Sigfríður Sóphusdóttir
i marki Blika varði vel og tryggði
þar með sigurinn og tíunda sigur-
leikinn í röð í deildinni.
ísland í
neðsta
sæti
Islenska landsliðið í körfuknattleik
beið um helgina 87:100 ósigur
fyrir Svíum á Opna Norðurlanda-
mótinu í Finnlandi og hafnaði þar
með í neðsta sæti mótsins.
„Við hófum leikinn á svæðisvörn
því hugmyndin var sú að hægja á
Svíunum og loka vítateignum. Það
gekk bara ekki nægilega vel því
strákarnir voru orðnir þreyttir eftir
erfiða leiki á mótinu og kraftinn
vantaði í varnarleikinn," sagði Jón
Kr. Gíslason, þjálfari landsliðsins,
að leik loknum.
„Annars er ég sáttur við leik ein-
staklinganna í liðinu og úrslit leikja
sem slík. Við vorum að leika gegn
mjög sterkum þjóðum en vorum
engu að síður inni í öllum leikjunum.
Ég er ánægður með breiddina í lið-
inu, allir eru að skila sínu og liðið
þarf ekki að treysta á einstaklings-
framtak einhvers eins leikmanns.
Aðrar þátttökuþjóðir bera virðingu
fyrir íslandi og það getur ekkert lið
bókað sigur á íslendingum fyrir-
fram,“ bætti Jón jafnframt við en
bestir íslenska liðsins gegn Svíum
voru Guðmundur Bragason og Helgi
Jónas Guðfinnsson.
Stig íslands: Guðmundur Bragason 26,
Helgi Jónas Guðfinnsson 22, Hermann
Hauksson 9, Marinó Guðlaugsson 7, Her-
bert Amarson 7, Guðjón Skúlason 4, Jón
Arnar Ingvarsson 4, Pétur Ingvarsson 4,
Sigfús Gizurarson 2, Hjörtur Harðarson 2.
í kvöld
Knattspyrna
Landsleikur liða skipuðum
leikmönnum 21 árs og yngri.
Sauðárkr.: ísland - Malta ...19
2. deild karla:
Víkin: Víkingur - ÍR...19
Þróttarar
á toppnum
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Þróttarar skutust í efsta sæti 2.
deildar karla í gærkvöldi -
a.m.k. um stundarsakir - er liðið
sigraði Leikni 5:1 í
opnum og nokkuð
fjörugum leik. Ekki
er vist að Þróttur
verði í efsta sæti
lengi því leik efstu liðanna, Fram og
Skallagríms, var frestað.
Þróttarar voru betri þó svo mun-
urinn á markatöflunni hefði ekki
þurft að vera svona mikill því heima-
menn fengu ágætis færi til að skora
en tókst það aðeins einu sinni, kom-
ust þá í 1:0. Vöm Þróttar, sem var
aðeins skipuð þremur leikmönnum
að þessu sinni, var gjörsamlega stein-
sofandi og það nýtti Birgir sér.
Tíu mínútum síðar fór Heiðar
Ómarsson hræðilega með gott færi,
einn gegn markverði fyrir miðju
marki, en missti boltann of langt frá
sér. Þróttarar snéru vörn í sókn,
Heiðar Sigurjónsson komst inní send-
ingu varnarmanna sín á milli, renndi
laglega á Gunnar sem skoraði. Þriðja
markið gerði Óskar eftir einleik upp
vinstri kantinn og Árni bætti þriðja
markinu við úr vítaspyrnu rétt fyrir
hlé.
Er stundarfjórðungur var liðinn
af síðari hálfleik átti Vignir Þór
Sverrisson laglegt skot af löngu færi,
yfir Axel Gomes markvörð Þróttar,
í þverslána og niður, en dómarinn
taldi boltann ekki inni. Páll bætti
fjórða marki Þróttar við um miðjan
hálfleikinn og undir lok leiksins tókst
Þrótturum ætlunarverk sitt, að láta
Sigurð Hallvarðsson skora!
FH-ingar í ham
Völsungur reið ekki feitum hesti
frá viðureign sinni við FH-inga
á Húsavík á sunnudagskvöld og þeg-
ar upp var staðið
höfðu gestimir skor-
að fjögur falleg mörk
án þess að heima-
menn næðu að svara
fyrir sig. Eftir einungis fimmtán
mínútna leik hafði Lúðvík Arnarson
komið FH-ingum í 2:0 með góðum
skallamörkum og um miðjan fyrri
hálfleik leit svo þriðja markið dagsins
ljós og var þar að verki hinn mark-
sækni Hörður Magnússon. Lúðvík
fullkomnaði þrennu sína stundar-
fjórðungi fyrir leikslok með enn einu
skallamarkinu.
Hefðu FH-ingar með smá heppni
svo hæglega getað bætt við fleiri
mörkum en varla er hægt að tína til
eitt einasta marktækifæri heima-
manna, sem eitthvað bragð var af
og er það nú ljóst að Völsungar verða
að fara að taka sig saman í andlitinu
hyggist þeir koma sér í þægilegri
stöðu í deildinni.
Frá Páli
Rikharðssyni
á Húsavik
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Kominn nærri
heimsmetinu
KOMEN var nærri heims
metinu í 3.000 m hlaupi.
Hlaupagarpurinn Daniel Komen
frá Kenýa hljóp á öðrum besta
tíma sögunnar í 3.000 metra hlaupi
karla, sjö mínútum og 25,16 sek-
úndum, á alþjóðlegu móti í Mónakó
um helgina og var hann þar með
einungis fimm hundraðshlutum frá
því að jafna tveggja ára gamalt
heimsmet Alsírbúans Noureddine
Morcelis.
Komen, sem aðeins er 20 ára
gamall, er fyrrum heimsmeistari
unglinga bæði í 5.000 og 10.000
metra hlaupum og á hann greini-
lega mikla framtíð fyrir sér á
hlaupabrautinni. „Ég hugsaði ekk-
ert um heimsmetið meðan á hlaup-
inu stóð, eina hugsunin sem komst
að var að vera fyrstur í mark,“
sagði Komen að hlaupinu loknu en
Kenýabúar röðuðu sér í fimm efstu
sætin í 3.000 metrunum.
Heimsmethafmn og nýkrýndur
ólympíumeistari í 1.500 metra
hlaupi, Noureddine Morceli, ætlaði
sér að keppa í 1.500 metrunum á
mótinu í Mónakó en hætti við þátt-
töku á elleftu stundu sökum
meiðsla.
Kenýska Dananum Wilson Kip-
keter, sem ekki tók þátt á Ólympíu-
leikunum í Atlanta af íþróttapólit-
ískum ástæðum, tókst ekki að láta
draum sinn um að slá 15 ára gam-
alt heimsmet Sebastian Coes í 800
metra hlaupi rætast en hann kom
þó engu að síður í mark á besta
tíma ársins, einni mínútu og 42,59
sekúndum.
Þá náðu þær Steffi Nerius frá
Þýskalandi og Svetlana Masterkova
frá Rússlandi einnig besta árangri
ársins í sínum greinum, Nerius í
spjótkasti, 69,42 metrum, en Mast-
erkova í 800 metra hlaupi, einni
mínútu og 56,04 sekúndum.
KNATTSPYRNA
Landsleikur
á Króknum
íkvöld
LANDSLIÐ íslands og Möltu
skipuð leikmönnum 21 árs og
yngri eigast við i landsleik í
knattspyrnu á Sauðárkróks-
velli i kvöid klukkan nítján.
Er þarna um að ræða vináttu-
landsleik en A-landslið þjóð-
anna mætast á Laugardals-
velli á morgun klukkan 20.
Þetta er í fyrsta skipti sem
landsleikur í knattspyrnu er
háður á Sauðárkróki.