Morgunblaðið - 10.09.1996, Blaðsíða 1
• MARKADURINN • SMIDJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
Lán og
greiðslugeta
SEGJA má með nokkrum sanni,
að möguleikar skuldara á að
endurgreiða lán, séu mikilvæg-
ari þáttur lánveitinga en þær
tryggingar, sem veittar eru fyr-
ir þeim, segir Grétar J. Guð-
mundsson í þættinum Markað-
urinn. /2 ►
V«' ■*--iV'
Ný efni
og aðferðir
NYJAR lagnaaðferðir og ný
lagnaefni munu draga úr vatns-
tjónum, segir Sigurður Grétar
Guðmundsson í þættinum
Lagnafréttir. Stilling ofnhita-
kerfa er víða brýn nauðsyn og
ekki síður eftirlit og stilling
loftræstikerfa. /7 ►
Ú T T E K T
Lóðir og
stórhýsi
AÐ vekur ávallt athygli,
þegar stórar lóðir á
grónum svæðum í
Reykjavík koma í sölu. Hjá
Eignamiðluninni er nú til sölu
8.500 ferm. lóð við Köllunar-
klettsveg. Vegna staðsetning-
ar sinnar hefur lóðin margvís-
lega kosti, en hún er í iðnaðar-
hverfi og bæði stutt frá höfn-
inni og umferðaræðum í kring.
Við Krókháls 5 er Eigna-
miðlunin einnig með stóra lóð í
sölu, en á henni má byggja
8.000-10.000 ferm. hús.
I viðtali hér í blaðinu í dag
við Sverri Kristinsson, fast-
eignasala í Eignamiðluninni,
er fjallað um þessar lóðir og
nokkrar stórbyggingar, sem
Eignamiðlunin er með til sölu.
Að sögn Sverris eru auðar lóð-
ir í grónum hverfum yfírleitt
eftirsóttari og um leið dýrari
en lóðir í nýjum hverfum.
— Framboð á lóðum í grón-
um hverfum er yfirleitt lítið og
ef byggja má íbúðarhús, skipt-
ir það að sjálfsögðu miklu
máli, að öll þjónusta er yfírleitt
þegar til staðar, segir Sverrir.
SÍF-skemmurnar svonefndu
við Keilugranda 1 eru nú til
sölu hjá Eignamiðluninni, en
þær eru um 4900 ferm. —
Petta húsnæði fæst á mjög
hagstæðu verði, en fermetrinn
þar er á um 19.500 kr., segir
Sverrir.
Við Brautarholt 20 er
Eignamiðlunin með þekkt hús
í sölu, en þar var áður Þórs-
kaffi tii liúsa. Ásett verð er 95
millj. kr., en húsið er fjórar
hæðir og selst í einu lagi eða
hlutum. / 26 ►
Lægra fermetraverð
eftir því sem
húsin eru stærri
TÖLUVERÐUR munur er á fer-
metraverði í sérbýli á höfuðborgar-
svæðinu, en undir sérbýli falla bæði
einbýlishús og raðhús. Teikningin
hér til hliðar sýnir meðal fermetra-
verð í þeim húseignum, sem skiptu
um eigendur á síðasta ári og er þar
byggt á útreikningum frá Fasteigna-
mati ríkisins, sem ná til steinhúsa, er
reist eru 1940 og síðar.
Eins og sjá má, er fermetraverðið
lægra eftir því sem húsin eru stærri.
Vissir dýrir þættir eru sameiginleg-
ir með öllum íbúðarhúsum. Þar má
nefna eldhús og bað, útihurð og
margs konar búnað. Margs konar
undirbúningur kostar líka svipað,
hvort sem húsin eru stór eða lítil.
Hagræði við innkaup í stór hús eru
meiri vegna magnsins. Sama gildir
við vinnu við að koma efninu fyrir á
endanlegan stað. Sem einfalt dæmi
má nefna, að kostnaður við að setja
20 rafmagnsdósir í hús er hlutfalls-
lega minni á einingu en ef aðeins þarf
að setja örfáar.
Fleira hefur áhrif á fermetraverð
en stærð húsanna. Þau eru auðvitað
mjögmisjöfn að allri gerð ogmismik-
ið í þau borið. Sum hverfi eru líka eft-
irsóttari en önnur og það hefur einn-
ig áhrif á verðið.
Þá er það líka mjög misjafnt, hve
vel húsum er haldið við, en aldur húsa
er að sjálfsögðu mismunandi og
greinilegt, að feimetraverðið er yfir-
leitt hærra, eftir því sem húsin eru
yngri, enda þótt það sé ekki algild
regla.
Að sögn fasteignasala hefur verð á
stórum húsum ekki hækkað, enda
þótt talsvert hafi selzt af þeim að
undanförnu og er ástæðan ekki hvað
sízt fyrirgreiðsla verðbréfafyrir-
tækja og lánastofnana, sem hófu að
lána svokölluð fasteignalán til allt að
25 ára í fyrra. Kaup á stórum húsum
eru því auðveldari nú en áður.
Fasteignaverð í sérbýli
á höfuðborgarsvæðinu 1995
Fermetraverð eftir stærð
. . ■ ^
í fjölbýli til
samanburðar I Serbyll
r ^
l^r
67.576
Þadborgarsig
adgera verðsamanburð!
Skandia
Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi
eftir fjármálastofnunum. Skandia keppist
við að bjóða alltaf besta kaupgengið
og staðgreiðir húsbréfin samdægurs.
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA H F • LAUGAVEGI 17 0
Ráðgjafar Skandia veita allar upplýsingar
um kaupgengi Húsbréfa.
Hærra kaupgengi þýðir hærra verð
fyrir Húsbréfin þín.
SlMI 540 50 60 • FAX 540 50 S1