Morgunblaðið - 10.09.1996, Side 20
20 C ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Um 70 sumarbústaðir í Lóninu
Brýnt að skipuleggja
svæðin áður en byggt
verður meira
KRINGUM 70 sumarbústaðir eru
nú í Bæjarhreppi í Lóninu í Austur
Skaftafellssýslu og hafa þeir risið
þar undanfarna áratugi. Síðustu
árin hefur verið mælst til þess við
landeigendur að fleiri bústaðir
yrðu ekki reistir fyrr en búið er
að ganga frá skipulagi svæðisins.
Hákon Valdimarsson bygginga-
fulltrúi sýslunnar segir brýnt að
fá þetta skipulag sem landeigend-
ur kosta með þátttöku Skipulags
ríkisins.
Flestir sumarbústaðir í Lóninu
eru inn með Stafafellsfjöllum í landi
jarðanna Brekku og Stafafells, en
þar eru nálega 50 bústaðir. Þá er
um tugur bústaða í Laxárdal og
nokkrir í landi Þórisdals, flestir í
eigu stéttarfélaga og segir Hákon
Valdimarsson það eina svæðið sem
sé byggt samkvæmt skipulagi.
Hákon telur að hugsanlegt sé
að bæta við nokkrum bústöðum inn
með Stafafellinu en slíkt verði að
bíða skipulags. Segir hann hug-
myndina að kortleggja núverandi
sumarbústaðabyggð og vinna síðan
HORFT niður stigann góða
en hann varð að vera nokkuð
brattur og gripu arkitektarn-
ir til þessarar lausnar, þ.e. að
hafa þrepin hálf.
skipulag fyrir svæðin og fá það
staðfest. Meðal þeirra sumarbú-
staða sem risið hafa á síðustu ára-
tugum í Stafafellslandinu er Fells-
hamar sem er í eigu hótelhaldar-
anna á Höfn, þeirra Áma Stefáns-
sonar og konu hans Svövu Sverris-
dóttur. Bústaðinn byggðu þau fyrir
einum sex ámm en hann teiknuðu
þeir bræður Björn og Sigbjöm
Kjartanssynir sem reyndar eiga
sjálfír bústað á sama svæði.
Fellshamar er um 50 fermetrar
að grunnfleti og segir Sigbjöm
arkitekt að hér hafi ekki verið far-
in sú leið að reisa hefðbundinn
sumarbústað og ætti það bæði við
lögun hans og litaval en bústaður-
inn er grámálaður, nokkuð háreist-
ur enda með svefnlofti eða leikrými
og anddyri og annað svefnherberg-
ið em eins konar útbyggingar.
Húsið stendur rétt undir hamri og
í brekkunni undir honum hefur
náttúran verið látin halda sér en
við húsið er grasflöt, lítill matjurta-
garður og þar hefur einnig verið
plantað talsverðu af tijám.
Morgunblaðið/jt
FELLSHAMAR heitir þessi bústaður í landi Staðarfells í Lóni.
SÉÐ úr stofunni yfir eldhúskrókinn í átt að svefnloftinu eða leik-
plássi. Tvö herbergi eru síðan til hægri á myndinni.
_ Morgunblaðið/Ásdís
LOÐIN við Bergholt 10 hlaut viðurkenningu sem vel skipulagður
og fallegur garður, en eigendur eru Guðlaug Hálfdánardóttir og
Ásbjörn Þorvarðarson.
Umhverfissamtök-
in Mosi fá styrk
frá Mosfellsbæ
NÝLEGA afhenti umhverfísmálaráð
Mosfellsbæjar einstaklingum og fyr-
irtækjum viðurkenningar fyrir fegr-
un umhverfis og uppgræðslu. Garð-
urinn að Bergholti 10 var verðlaun-
aður og viðurkenningu fengu jörðin
Dalland og Sigurplast hf. fyrir um-
gengni og snyrtilegan frágang húss
og lóðar við Völuteig 3.
Viðurkenningarnar vora afhentar
í hófi í tilefni af 9 ára afmæli Mos-
fellsbæjar í síðasta mánuði. Guðlaug
Hálfánardóttir og Ásbjörn Þorvarð-
arson búa í Bergholti 10 og sagði
Ásbjöm að í götunni væri mjög skjól-
sælt og góð skilyrði til ræktunar
enda hefði gróðri fleygt þar fram
síðustu 10 til 15 árin.
Ekki vildi hann gera mikið úr
þeirri vinnu sem fælist í umsjón verð-
launagarðsins en sagði að allt sem
væri skemmtilegt væri lítil vinna.
Hjónin láta sér ekki nægja að sinna
garðinum heima við því þau eru með
í hópi sem sér um tijáræktarsvæði
við Seljalandsfoss.
Við þetta tækifæri veittu bæjar-
yfirvöld umhverfíssamtökunum
Mosa sérstakan 150 þúsund króna
styrk vegna framlags samtakanna
til umverfismála í Mosfellsbæ. Jó-
hann Siguijónsson bæjarstjóri sagði
í samtali við Morgunblaðið að sam-
tökin hefðu undanfarin ár gengist
fyrir ýmsum aðgerðum til að glæða
áhuga og umræðu um umhverfis-
mál, staðið fyrir ráðstefnu og upp-
græðsluátaki og verið í farabroddi
varðandi hvaðeina í útivistar- og
umhverfismálum.
JÓNAS Sigurðsson (t.v.), formaður bæjarráðs afhendir Andrési
Arnalds styrk Mosfellsbæjar fyrir framlag umhverfissamtakanna
Mosa til umhverfismála.
Hafa framleitt 10O
þúsund fermetra af
timburhúsum
RISIÐ er í Lindahverfinu í Kópa-
vogi hús frá S.G.-einingahúsum á
Selfossi og er þar eitt hundrað þús-
undasti fermetrinn sem fyrirtækið
hefur framleitt í timburhúsum.
Framleiðsla slíkra húsa hófst árið
1966 þegar Sigurður Guðmundsson
hóf smíði timburhúsa á verkstæði
sínu og tók að flytja samsetta hús-
hluta á byggingarstað en með því
styttist byggingatíminn vemlega.
Sjálf húsagerðin hefur þróast
verulega þennan tíma eftir því sem
reynslan hefur kennt, kröfur bygg-
ingayfirvalda breytst og markaður-
inn hefur fengið nýjar hugmyndir.
Óskar G. Jónsson sölustjóri segir
að hús frá S.G.-einingahúsum sé
nú að fínna í öllum sýslum lands-
ins, frá Vestfjörðum til Austfjarða,
á Norðurfírði á Ströndum, í Gríms-
ey, höfuðborgarsvæðinu og nánast
hvar sem er á landinu.
Minnstu húsin segir Óskar vera
um 60 fermetra og þau stærstu em
um og yfír 500 fermetrar, til dæm-
is leikskólar. — Auk íbúðarhús-
næðis og leikskóla framleiðum við
í dag sumarhús, kennslustofur,
verslunar- og skrifstofuhúsnæði og
getum boðið hús til nánast hvaða
notkunar sem vera skal, segir Ósk-
ar.
Reisa hús á viku
Húsið við Isalind 1 í Kópavogi
var reist á innan við tveimur vikum.
Skrifað var undir verksamning 17.
maí í vor og þegar undirstöðurnar,
sem kaupandi sá sjálfur um, voru
tilbúnar seint í júlí kom flokkur frá
S.G.-einingahúsum og reisti húsið.
Lauk verkinu fyrir verslunar-
mannahelgi og var húsið þá tilbúið
að utan og búið að einangra loft
og veggi. Kaupendur sáu um af-
ganginn og eru nýlega fluttir inn.
Húsið er 131 fermetri að stærð
ásamt 27 fermetra sambyggðum
bílskúr.
Óskar G. Jónsson segir að meðal-
húsið sé reist á fjórum til fimm
dögum en verkið taki stundum 7
til 8 daga eftir því hversu lengi
HÚS frá S.G.-einingahúsum hafa risið um land allt og þetta
myndarlega 300 fermetra hús er á Tálknafirði.
unnið er dag hvern. í upplýsinga-
riti fyrirtækisins er að finna fjöl-
margar teikningar frá ES arki-
tektastofunni í Reykjavík og ýmsar
upplýsingar um timbureiningahús.
Urn 40 manns starfa hjá fyrirtæk-
inu í dag en auk timburhúsafram-
leiðslunnar rekur fyrirtækið bygg-
ingavöruverslanir á Selfossi og
Hvolsvelli.
VIÐ ísalind 1 í Kópavogi var reist á dögunum hús frá S.G.-eininga-
húsum á Selfossi og er þar 100 þúsundasti fermetrinn sem fyrir-
tækið smíðar i þessari húsagerð.