Morgunblaðið - 17.09.1996, Side 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
fHo TjjiraMaíi i5>
Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 17. september 1996
Blað C
íbúðarkaup
og námslán
SKULDIR minnka greiðsluget-
una, hverjar sem þær eru og
því hljóta íbúðarkaup að taka
mið af þeim, segir Grétar J.
Guðmundsson í þættinum
Markaðurinn. Þetta gleymist
því miður stundum í umræðum
um námslán. / 2 ►
Útgöngu-
leiðir
GREIÐAR útgönguleiðir úr
húsum eru nauðsynlegar, ef
eldsvoða ber að höndum. I þætt-
inum Smiðjan fjallar Bjarni
Ólafsson m. a. um útgönguleið-
ir, þegar útidyr eða stigar hafa
lokazt. Nauðsynlegt er, að fólk
kynni sér þær vel. / 18 ►
Lóðir á
Seltjarn
arnesi
| ÝTT byggingasvæði á
vestanverðu Seltjarnar-
I nesi með lóðum fyrir 24
hús hefur vakið talsverða at-
hygli. Arkitektarnir Helga
Bragadóttir og Ágústa Svein-
björnsdóttur og landslagsarki-
tektinn Ingibjörg Kristjáns-
dóttir hafa skipulagt þetta
svæði og tekur deiliskipulagið
mið af verðlaunatillögu þeirra
frá 1994.
Með því er reynt að skapa
nýjan valkost á Nesinu með
nokkuð þéttri byggð meðal-
stórra sérbýla á tiltölulega litl-
um einkalóðum og sameiginlegu
útivistarsvæði.
Lóðirnar verða 500-700 ferm.
að stærð, en húsin verða af
tvenns konar gerð, annars veg-
ar einbýlishús á einni hæð og
hins vegar parhús á tveimur
hæðum. Einbýlishúsin verða
nær útjöðrum svæðisins að
sunnan og vestan en parhúsin
verða á svæðinu norðan og aust-
anverðu.
Kynningarfrestur á skipulag-
inu er til 27. september og síðan
hafa bæjaryfírvöld 4-6 vikur til
þess að taka afstöðu til athuga-
semda, sem kunna að berast
varðandi skipulagið.
Áhugi á þessum lóðum er að
vonum mikill og margir hafa
þegar kynnt sér skipulagið með
byggingaráform í huga, enda
um sérstaklega aðlaðandi svæði
að ræða og þar við bætist, að
þetta eru síðustu lóðirnar á
Vestursvæðinu. Vonir standa til,
að lóðirnar komi í sölu í byijun
næsta árs og þá gætu bygginga-
framkvæmdir hafizt að fullu
næstavor. /16 ►
Mikil aukning í
húsbréfaumsókn-
um byggingaraðila
Á fyrstu átta mánuðum þessa árs
varð yfir 70% aukning í húsbréfaum-
sóknum byggingaraðila miðað við
sama tímabil í fyrra, sem sýnir, að
umsvif í smíði nýrra íbúða eru ólíkt
meiri í ár en á síðasta ári. Athygli
vekur, að þessi aukning hefur orðið
aðallega á síðustu þremur mánuðum.
Aukingin í skuldabréfaskiptum
vegna nýbygginga byggingaraðila
er samt enn aðeins 6% meiri í ár.
Skýringin á því er m. a. sú, að hús-
bréfalán eru ekki veitt fyrr en íbúð-
ir eru fokheldar og stundum taka
byggingaraðilamir út húsbréfalánin
í áfóngum, eftir því sem framkvæmd-
um miðar áfram.
Þá kemur það einnig fyrir, að
byggingaraðilarnir eru búnir að
selja áður en að húsbréfaláninu kem-
ur og þá er það kaupandinn, sem tek-
ur lánið. Fjöldi umsókna vegna ný-
bygginga einstaklinga er þó svipað-
ur nú og á sama tíma í fýrra.
Innkomnar umsóknir um húsbréf
vegna notaðs húsnæðis voru um 22%
fleiri í ágústlok miðað við sama tíma-
bil í fyrra, sem sýnir að hreyfing á
notuðum íbúðum er talsvert meiri í
ár.
Þar við bætist, að þeim eignum
fjölgar stöðugt, sem búið er að taka
húsbréfalán út á. Þá þarf ekki að gefa
út ný húsbréf nema að litlu leyti, þeg-
ar þessar eignir skipta um eigendur,
þar sem kaupandinn yfirtekur áhvíl-
andi húsbréf.
Útgefin húsbréf námu 1260 millj-
ónum kr. í síðasta mánuði og heild-
arútgáfan nam 9,2 milljörðum kr. í
ágústlok. Ávöxtunarkrafa húsbréfa
lækkaði lítilega í síðasta mánuði, en
það sem af er september hefur hún
verið mjög stöðug.
Afgreiðslur í húsbréfakerfinu í jan.- ágúst 1996p ^ breyting frá sama | tímabili 1995 CTj #/ Innkomnar umsóknir MW/íFj Notað húsnæði '—1 5000 Breyting jan.-ág. 1996/1995 22,3%
Endurbætur -21,9%
Nýbyggingar einstaklinga 2,4%
Nýbyggingar byggingaraðila 72,6%
Samþykkt skuldabréfaskipti Notað húsnæði - fjöldi 20,7%
Notað húsnæði - upphæðir 16,7%
Endurbætur - fjöldi 6,4%
Endurbætur - upphæðir -7,9%
Nýbyggingar einstaklinga - fjöidi 17,4%
Nýbyggingar einstaklinga - upphæöir 12,2%
Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi 6,4%
Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir -5,9%
Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæð 18,1%
Útgefin húsbréf
Reiknað verð 18,3%
EEFIN
HJA SKANDIA
Það borgar sig
aðgera verðsanianburð!
Skandia
Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi
eftir fjármálastoíhunum. Skandia keppist
við að bjóða alltaf besta kaupgengið
og staðgreiðir húsbréfin samdægurs.
FJÁHFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA
Ráðgjafar Skandia veita allar upplýsingar
um kaupgengi Húsbréfa.
Hærra kaupgcngi þýðir hærra verð
fyrir Húsbréfin þín.
LAUGAVEGI 170
5-4 0 5 0 B O
F= A X 5AO 50