Morgunblaðið - 17.09.1996, Page 1

Morgunblaðið - 17.09.1996, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARDAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR • fHo TjjiraMaíi i5> Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 17. september 1996 Blað C íbúðarkaup og námslán SKULDIR minnka greiðsluget- una, hverjar sem þær eru og því hljóta íbúðarkaup að taka mið af þeim, segir Grétar J. Guðmundsson í þættinum Markaðurinn. Þetta gleymist því miður stundum í umræðum um námslán. / 2 ► Útgöngu- leiðir GREIÐAR útgönguleiðir úr húsum eru nauðsynlegar, ef eldsvoða ber að höndum. I þætt- inum Smiðjan fjallar Bjarni Ólafsson m. a. um útgönguleið- ir, þegar útidyr eða stigar hafa lokazt. Nauðsynlegt er, að fólk kynni sér þær vel. / 18 ► Lóðir á Seltjarn arnesi | ÝTT byggingasvæði á vestanverðu Seltjarnar- I nesi með lóðum fyrir 24 hús hefur vakið talsverða at- hygli. Arkitektarnir Helga Bragadóttir og Ágústa Svein- björnsdóttur og landslagsarki- tektinn Ingibjörg Kristjáns- dóttir hafa skipulagt þetta svæði og tekur deiliskipulagið mið af verðlaunatillögu þeirra frá 1994. Með því er reynt að skapa nýjan valkost á Nesinu með nokkuð þéttri byggð meðal- stórra sérbýla á tiltölulega litl- um einkalóðum og sameiginlegu útivistarsvæði. Lóðirnar verða 500-700 ferm. að stærð, en húsin verða af tvenns konar gerð, annars veg- ar einbýlishús á einni hæð og hins vegar parhús á tveimur hæðum. Einbýlishúsin verða nær útjöðrum svæðisins að sunnan og vestan en parhúsin verða á svæðinu norðan og aust- anverðu. Kynningarfrestur á skipulag- inu er til 27. september og síðan hafa bæjaryfírvöld 4-6 vikur til þess að taka afstöðu til athuga- semda, sem kunna að berast varðandi skipulagið. Áhugi á þessum lóðum er að vonum mikill og margir hafa þegar kynnt sér skipulagið með byggingaráform í huga, enda um sérstaklega aðlaðandi svæði að ræða og þar við bætist, að þetta eru síðustu lóðirnar á Vestursvæðinu. Vonir standa til, að lóðirnar komi í sölu í byijun næsta árs og þá gætu bygginga- framkvæmdir hafizt að fullu næstavor. /16 ► Mikil aukning í húsbréfaumsókn- um byggingaraðila Á fyrstu átta mánuðum þessa árs varð yfir 70% aukning í húsbréfaum- sóknum byggingaraðila miðað við sama tímabil í fyrra, sem sýnir, að umsvif í smíði nýrra íbúða eru ólíkt meiri í ár en á síðasta ári. Athygli vekur, að þessi aukning hefur orðið aðallega á síðustu þremur mánuðum. Aukingin í skuldabréfaskiptum vegna nýbygginga byggingaraðila er samt enn aðeins 6% meiri í ár. Skýringin á því er m. a. sú, að hús- bréfalán eru ekki veitt fyrr en íbúð- ir eru fokheldar og stundum taka byggingaraðilamir út húsbréfalánin í áfóngum, eftir því sem framkvæmd- um miðar áfram. Þá kemur það einnig fyrir, að byggingaraðilarnir eru búnir að selja áður en að húsbréfaláninu kem- ur og þá er það kaupandinn, sem tek- ur lánið. Fjöldi umsókna vegna ný- bygginga einstaklinga er þó svipað- ur nú og á sama tíma í fýrra. Innkomnar umsóknir um húsbréf vegna notaðs húsnæðis voru um 22% fleiri í ágústlok miðað við sama tíma- bil í fyrra, sem sýnir að hreyfing á notuðum íbúðum er talsvert meiri í ár. Þar við bætist, að þeim eignum fjölgar stöðugt, sem búið er að taka húsbréfalán út á. Þá þarf ekki að gefa út ný húsbréf nema að litlu leyti, þeg- ar þessar eignir skipta um eigendur, þar sem kaupandinn yfirtekur áhvíl- andi húsbréf. Útgefin húsbréf námu 1260 millj- ónum kr. í síðasta mánuði og heild- arútgáfan nam 9,2 milljörðum kr. í ágústlok. Ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði lítilega í síðasta mánuði, en það sem af er september hefur hún verið mjög stöðug. Afgreiðslur í húsbréfakerfinu í jan.- ágúst 1996p ^ breyting frá sama | tímabili 1995 CTj #/ Innkomnar umsóknir MW/íFj Notað húsnæði '—1 5000 Breyting jan.-ág. 1996/1995 22,3% Endurbætur -21,9% Nýbyggingar einstaklinga 2,4% Nýbyggingar byggingaraðila 72,6% Samþykkt skuldabréfaskipti Notað húsnæði - fjöldi 20,7% Notað húsnæði - upphæðir 16,7% Endurbætur - fjöldi 6,4% Endurbætur - upphæðir -7,9% Nýbyggingar einstaklinga - fjöidi 17,4% Nýbyggingar einstaklinga - upphæöir 12,2% Nýbyggingar byggingaraðila - fjöldi 6,4% Nýbyggingar byggingaraðila - upphæðir -5,9% Samþykkt skuldabréfaskipti alls - upphæð 18,1% Útgefin húsbréf Reiknað verð 18,3% EEFIN HJA SKANDIA Það borgar sig aðgera verðsanianburð! Skandia Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi eftir fjármálastoíhunum. Skandia keppist við að bjóða alltaf besta kaupgengið og staðgreiðir húsbréfin samdægurs. FJÁHFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA Ráðgjafar Skandia veita allar upplýsingar um kaupgengi Húsbréfa. Hærra kaupgcngi þýðir hærra verð fyrir Húsbréfin þín. LAUGAVEGI 170 5-4 0 5 0 B O F= A X 5AO 50

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.