Morgunblaðið - 26.01.1997, Síða 28

Morgunblaðið - 26.01.1997, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: FRAMKVÆMDASTJÓRI: RITSTJÓRAR: * IÞEIM kjaraviðræðum, sem nú standa yfir hafa verið nokkuð skiptar skoðanir um, hvernig túlka beri kröfugerð sumra verkalýðsfélaga t.d. þeirra, sem eru innan Verka- mannasambandsins. Sumir segja, að þessi félög krefjist 40% kauphækkunar yfir línuna, aðrir að slíkt sé mistúlkun á kröfugerðinni. Um sé að ræða kröfu um aðlögun kauptaxta að raunverulegum launum og ekki sé farið fram á launakostnaðar- hækkun fyrirtækja, sem nálgist þessar tölur. Ef miðað er við ummæli, sem Morgunblaðið hafði í gær eftir Halldóri Björnssyni, formanni Dagsbrúnar, er erfitt að festa hendur á því, sem um er að ræða. í frásögn af samtali við formann Dagsbrúnar segir m.a.: „Aðspurður hvað felist í kröfum Dagsbrúnar um aðlögun taxta að greiddum launum, sagði Halldór Björnsson, formaður Dagsbrúnar að þar væru menn að tala um að skoða þá leið, að taka ýmsar sporslur inn í kaup- ið. „Það getur allt komið til greina í því sambandi nema vaktaálag eða vaktaskiptagjöld. Það er vonlaust að það gæti gengið,“ sagði hann. „Við höf- um sagt sem svo, að við erum tilbúnir til að skoða þetta en það þýðir að við þurfum að eiga samstarf við okkar félagsmenn Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. til þess að fá þá til að sætta sig við að hluti af þeirra launa- hækkun komi fram á þennan hátt.“ . . . Aðspurður hvað hann telji, að kröfur Dagsbrúnar hafi í för með sér mikla aukningu á launakostnaði fyrir fyrirtæki, sagði Halldór Björnsson ljóst að ef verið væri að ræða um beinar kauphækkanir væri talan um 40%. „Ef allt annað er þá óbreytt og engu má breyta í þjóðfélaginu, þá erum við í erf- iðum málum, ég viðurkenni það.“ Halldór sagði að við samn- inga, sem gerðir voru við jarð- gangnagerð nýlega hafi verið farin sú leið að bæta við taxta ýmsum sporslum. Bilið á al- mennum töxtum og töxtum við vinnu í jarðgöngum væri nú u.þ.b. 44% en kauphækkun sú, sem verkamenn hefðu fengið vegna samningsins hefði verið 4-6%.“ Eins og af þessu má sjá er erfitt að festa hendur á því, skv. ummælum formanns Dags- brúnar sjálfs, hvað um er að ræða. Til þess að hægt sé að krefjast þess af vinnuveitendum að þeir ræði þetta tiltekna mál af alvöru, þ.e. aðlögun kaup- taxta að raunverulegum launum verður að liggja ljóst fyrir um hvað verkalýðshreyfingin er að tala. Hvaða þætti í núverandi launum er hún tilbúin til að fella inn í kauptaxta og hveija ekki? Á meðan þetta liggur ekki skýrt fyrir er varla við því að búast að raunhæfar samningaviðræð- ur geti farið fram um þennan þátt málsins. En hér kemur fleira til sögunnar. í Morgunblaðinu í fyrradag var frá því skýrt, að Lára V. Júlíusdóttir, lögmaður, hefði höfðað mál fyrir héraðsdómi fyrir hönd félagsmanns í verka- lýðsfélaginu Sleipni til þess að koma í veg fyrir að svonefnd ráðningarsamningsbundin kjör væru skert með kjarasamning- um. í þessu virðist felast krafa um það, að hvort sem er form- legur eða óformlegur samningur sem starfsmaður fyrirtækis ger- ir við vinnuveitanda sinn verði ekki skertur með kjarasamn- ingi, sem verkalýðsfélag við- komandi starfsmanns geri. Ef dómur félli á þennan veg þýddi það, að verkalýðsfélag gæti ekki gert samning um að fella yfir- borganir og ýmsar aukagreiðsl- ur til starfsmanna inn í taxta- kaup. , Nú getur auðvitað enginn bannað einstaklingi að höfða slíkt mál fyrir dómstól en jafn- framt verður ekki séð, hvernig vinnuveitendur geta gert samn- inga við viðsemjendur sína um aðlögun kauptaxta að raunveru- legum launum á meðan slíkt mál er fyrir dómstól. Þeir geta átt það yfir höfði sér að dómstól- ar komist að þeirri niðurstöðu, að verkalýðsfélag geti ekki gert slíkan samning fyrir hönd fé- lagsmanna sinna. Það verður því ekki annað séð en krafan um aðlögun kaup- taxta að raunverulegum launum sé í sjálfheldu af tveimur ástæð- um; annars vegar vegna þess að ekki komi nægilega skýrt fram hvað í kröfunni felst skv. ummælum formanns Dagsbrún- ar en hins vegar vegna um- rædds dómsmáls. í báðum til- vikum virðist frumkvæði verka- lýðshreyfingarinnar þurfa að koma til og engan veginn ljóst, að hún geti haft nokkur áhrif á hvort dómsmálinu verður haldið til streitu. KJARASAMNINGAR OG MÁLAFERLI ÞAÐ VAR MARGT eftirminnilegt, sumt skemmtilegt í krepp- unni. Margt sem bregður fallegu ljósi á heldur fátæklegt um- hverfi. Þetta var lítið samfélag en fólkið var stórt í sniðum. Þá var hlúð að arfieifðinni og plastið var ekki komið til sögunnar. Þá voru menn sigldir ef þeir fóru til útlanda. Það var álíka merkilegt og þegar menn fara nú á snjósleða yfir Vatna- jökul. En þótt margir væru fátækir voru þeir auðugir í anda. Þegar ég talaði við Ólaf Kr. Teitsson sjómann á sínum tíma minntist hann á fátæktina suð- ur með sjó. Það var ekki bolli af mjöli af- lögu þegar hann var að alast upp á Vatnsleysuströnd. En þeir tóku til hendi, “fjórir bræðra minna fóru á skútu og ég í vega- vinnu og á sjóinn og það endaði með því, að pabbi varð hæsti skatt- greiðandinn í hreppnum." Það var mikið af skáldskap á þessum árum, eða milli styijalda. Margir lásu skáldskap en ungu skáldin voru ekki betur í sveit sett en nú á dögum. í samtalsbók okkar Páls ísólfssonar / dag skein sól segir frá ungu skáldi, Davíð Stef- ánssyni sem átti eftir að semja Gullna hliðið. Menn verða ekki þjóð- skáld fyrren samtíðin hefur vaxið inn í verkin þeirra. Davíð átti held- ur góðu gengi að fagna alla tíð og sam- tíðin óx inní verk hans hraðar en mörg önnur skáld hafa átt að venj- ast. Samt átti hann undir högg að sækja einsog önnur ung- skáld. Og tíminn hafði engan áhuga á því að tengjast Jónasi Hall- grímssyni fyrren löngu eftir dauða hans. 1 samtölum okkar Páls nefnir hann Davíð Stefánsson til sögunn- ar með þeim hætti að menn geta dregið þó nokkum lærdóm af frásögninni. Þegar þeir Davíð óku suður Flóann sagði hann þessum unga vini sín- um undan og ofan af ástandinu á Eyrar- bakka, „minnti sér- staklega á Guðmund á Stóru- Háeyri, þann mikla sjósóknara og kempu, og gat þess að hann mundi, þegar við ækjum inn í þorpið, að líkindum standa á miðri aðalgötunni fyrir framan húsið sitt og væri þá vel til fallið að taka hann tali, því hann væri nokkuð lesinn maður og hefði áhuga á skáldskap. Svo vel bar 5 veiði að Guðmundur var úti að venju, þegar við ókum inn í þorpið og skimaði til allra átta. Við stönzuðum bílinn og ég ávarp- aði hann, kynnti svo Davíð fyir honum með þessum orðum: „Hér kem ég með skáldið Davíð Stefáns- son frá Fagraskógi, sem þú kann- ast eflaust við.“ Hann svaraði: „Ég hygg að ég kannist ekkert við hann. Er hann einn af þessum yngri skáld- um?“ Ég kvað það vera. En þá seg- ir karlinn: „Mér er ekkert um yngri skáldin. Jónas og Bjami eru mínir menn.“ „Jæja,“ segi ég. Svo var dálítil þögn, en þá bætir karlinn við og segir við Davíð: „Ert þú kannski sonur hans Stefáns alþingismanns frá Fagraskógi?“ Davíð kvað það vera. „Já, mér er kunnugt um það,“ sagði karlinn, „að hann er ágætis maður." „Hefurðu ekki heyrt neitt eftir Davíð?“ spyr ég enn. „Heyrt eða heyrt ekki,“ segir karlinn, „ég gef ekkert fyrir nýja skáldskapinn og kæri mig ekkert um hann, enda kunnu þeir gömlu miklu betur að yrkja en nýju skáldin." Nú sá ég, að farið var að þykkna í vini mínum Davíð og svo mikið var víst, að hann spurði karlinn ekki frekar um bókmenntir eða hvort hann ætti rifrildi af gömlum bókum.“ Ungum skáldum er ekki alltaf tekið einsog hvítum hesti svo maður skírskoti í eitt þekktasta kvæði Davíðs. Þau þurfa að hafa sterk bein, minnug þess að listgildi fer ekki eftir vinsældum og verðlaun- um; minnug þess að Tíminn og vatnið, sérstæðasta og mikilvæg- asta brautryðjendaverk í íslenzkri ljóðlist þessarar aldar, e.t.v. ásamt Þorpi Jóns úr Vör, var gefið út í 200 tölusettum eintökum og sagði Ragnar Jónsson mér að það hefði tekið heilan áratug að selja upplag- ið; þ.e. 20 bækur á ári að meðal- tali! Menn ríða ekki alltaf feitum hesti frá alvörubókmenntum(!) M. HELGI spjall frá Fagraskógi REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 25. janúar AÐ ER SJÁLFSAGT OG eðlilegt, að víðtækar umræður fari fram á opinberum vettvangi um hið fyrirhugaða ál- ver á Grundartanga, sem nú eru vaxandi lík- ur á, að verði að veru- leika. Skiljanlegt er að fólk, sem býr í námunda við iðjuver sem þetta velti fyrir sér áhrifum þess á umhverfi, hættu á mengun o.s.frv. Það er líka í samræmi við tíðarandann, að þeir sem vinna að ferða- þjónustu og bera ábyrgð á henni spyiji spuminga um áhrif slíkra iðjuvera og ann- arra stórframkvæmda á erlenda ferða- menn og áhuga þeirra á að heimsækja ísland. Allt er þetta þáttur í þeim almennu umræðum, sem eiga að fara fram í lýðræð- isþjóðfélagi. Almenningur hefur' nú betri aðgang að upplýsingum um margvísleg málefni en áður og þátttaka hins almenna borgara í umræðum og þar með ákvarð- anatöku er afar mikilvæg og á eftir að verða enn þýðingarmeiri eins og rakið var í merkri úttekt í tímaritinu Economist um jólin og sagt hefur verið frá á þessum vettvangi. í slíkum umræðum er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir það, sem áður hefur gerzt og skoða umræður um álver á Grundar- tanga í samhengi við það. Hver er forsaga þess, að fyrir rúmum þremur áratugum var leitað eftir samningum við erlent álfyr- irtæki um byggingu álvers í Straumsvík? Hún er sú, að við Islendingar höfum bitra reynslu af því, að svipull er sjávarafli. Þótt einungis sé litið til þessarar aldar höfum við aftur og aftur kynnzt afleiðing- um aflabrests fyrir afkomu þjóðarbús og einstaklinga. Þegar samningar stóðu yfir um álverið í Straumsvík var mönnum enn í fersku minni hvarf síldarinnar eftir ævin- týraleg sfldarár fyrir, um og eftir lýðveldis- stofnun. Raunar var síldin komin aftur, þegar hér var komið sögu en hvarf á nýj- an leik, þegar hrun varð aftur í síldveiðum á árunum 1967 og 1968. En það var ekki bara síldin, sem hvarf. Hvað eftir annað á þessari öld hafa Islend- ingar upplifað aflabrest á þorskveiðum, með öllum þeim afleiðingum, sem slíkur aflabrestur hefur. Jafnvel þótt aflinn væri viðunandi hafði þjóðin einnig kynnzt því, að verðlag á sjávarafurðum á erlendum mörkuðum gat líka hrunið. Það var ein helzta ástæða kreppunnar, sem gekk í garð á árinu 1967 og stóð fram á árið 1969. Reynsla þjóðarinnar var sú, að það væri ekki hægt að byggja afkomu hennar á fískveiðum eingöngu. Þess vegna var horft til hinnar helztu auðlindar landsmanna, orku fallvatnanna, sem Einar Benediktsson, skáld, hafði reyndar gert snemma á öldinni. Hugsunin að baki samningunum um álverið í Straumsvík var sú að skjóta fleiri stoðum undir lífsafkomu fólksins í landinu. Þeir samningar lögðu grundvöll að og voru forsenda fyrir fyrstu stórvirkjun á Islandi, Búrfellsvirkjun. Ef menn lesa umræður á Alþingi á þessum árum kemur í ljós, að þá voru líka uppi þau sjónarmið, að ekki ætti að byggja slíkt álver og að engin ástæða væri til að byggja stórvirkjun við Búrfell. Þau sjónarmið urðu undir á Alþingi.. Að sjálfsögðu urðu gífurlegar almennar umræður um byggingu álversins, sem svip- ar að sumu leyti til þeirra umræðna, sem nú fara fram en álverið var byggt og þeg- ar litið er yfir þriggja áratuga sögu þess verður ekki annað sagt en sú ráðstöfun hafí reynzt farsæl fyrir okkur íslendinga. Við höfum haft af því góðar tekjur. Við höfum eignazt Búrfellsvirkjun og ótti manna við mengandi áhrif frá álverinu hefur ekki orðið að veruleika. í umræðum um álverið í Straumsvík var því m.a. haldið fram, að erlend stórfyrir- tæki væru í biðröð til þess að komast til íslands og byggja hér stóriðjuver vegna þess að raforkan væri svo ódýr. Veruleik- inn reyndist vera annar. í kjölfarið á samn- ingunum við Svisslendinga var leitað eftir samningum um byggingu járnblendiverk- smiðjunnar í Hvalfírði. Þá kom í ljós, að það var enginn í biðröðinni. Niðurstaðan varð sú, að fyrirtækið var byggt, en ís- lenzka ríkið var í upphafi meirihlutaaðili að því og hefur jafnan átt stóran hlut í því síðan. Síðan kynntumst við því af eigin raun, að það er ekki bara sjávarafli, sem er svip- ull. Miklar sveiflur eru í eftirspurn eftir bæði áli og járnblendi og sömuleiðis mikl- ar sveiflur í verðlagi þessara afurða. Af þessum sökum lenti járnblendiverksmiðjan á Grundartanga í miklum erfiðleikum eins og menn vita en jafnframt hefur tekizt með glæsibrag að ráða fram úr þeim og stjómun fyrirtækisins, sem Jón Sigurðsson hefur haft forystu um, hefur jafnan verið til sérstakrar fyrirmyndar. Margvíslegir erfiðleikar steðjuðu einnig að rekstri ál- versins í Straumsvík eins og annarra ál- vera í heiminum. Þessi reynsla sýndi okkur, að það var út af fyrir sig ekki hægt að byggja á því að meiri stöðugleiki væri í stóriðju en fisk- veiðum, þótt eftir sem áður væri mikil- vægt að afkoma þjóðarinnar byggðist nú á öðru en sjávarútvegi eingöngu. Til við- bótar kom svo í ljós, að það var síður en svo auðvelt að fá erlend fyrirtæki til að fiárfesta í stóriðju á íslandi. Auk stækkun- ar ísal er fyrirhugað álver Columbia Vent- ures fyrsta nýja álverið, sem samningar hafa tekizt um að byggja hér frá hinum upphaflegu samningum við Svisslendinga. Þetta er veruleikinn þrátt fyrir það að samningamenn íslendinga hafi verið á þönum um heimsbyggðina í áratugi í leit að nýjum samstarfsaðilum. Til viðbótar við stóriðju reyndum við fyrir okkur í uppbyggingu útflutningsiðn- aðar, til þess að treysta afkomumöguleika þjóðarinnar sem voru afar ótraustir um miðja öldina. í kjölfar aðildar okkar að EFTA árið 1970 var hafizt handa um að byggja upp m.a. útflutning á ullarvörum, sem einkenndist af mikilli bjartsýni um skeið. Síðar kom í ljós, að við höfðum ekki erindi sem erfiði þar. Hins vegar hef- ur smátt og smátt tekizt að byggja upp útflutningsiðnað í framleiðslu, sem tengist sérþekkingu okkar í sjávarútvegi. Og á seinni árum hefur íslenzk hugbúnaðargerð einnig náð vissri fótfestu, sem gæti vel verið vísbending um, að fleiri tækifæri séu á því sviði. Nokkrir bjartsýnismenn í ferðaþjónustu töluðu um það á þessum árum að við gætum haft miklar tekjur af erlendum ferðamönnum ekki síður en aðrar þjóðir. Menn höfðu ekki mikla trú á því og á þá var varla hlustað. Rétt er að hafa í huga í þessu sambandi, að fyrir aðeins þijátíu árum var þjónusta við ferðamenn svo fá- brotin, að þegar ferðast var um Suðurland t.d. var hægt að velja um tvær súputegund- ir á þeim veitingastöðum, sem á annað borð voru til, þ.e. sætsúpu eða kraftsúpu. Þennan bakgrunn er nauðsynlegt að hafa í huga, þegar rætt er um hugsanlegt álver Columbia á Grundartanga. Meiri- hluta lýðveldistímans hefur markvisst ver- ið unnið að því að skjóta fleiri stoðum undir afkomumöguleika þjóðarinnar. Það hefur tekizt smátt og smátt en við erum reynslunni ríkari. Til þess að tryggja stöð- uga og batnandi afkomu þurfum við að hafa mörg járn f eldinum. Jafnframt er ljóst, að í hvert sinn, sem fyrirhugað er að reisa nýtt iðjuver hefjast umræður um mengunaráhrif frá því, landbúnaðurinn sé í hættu o.s.frv. Ekkert af þessu er nýtt. Allt hefur þetta gerzt áður en nú byggjum við á þriggja áratuga reynslu, sem sýnir að hrakspár svartsýnismanna hafa aldrei rætzt. ÁSTÆÐA ER TIL að fjalla um sjónar- mið forystumanna í ferðaþjónustu sér- staklega en Ferða- málaráð samþykkti ályktun fyrir nokkrum dögum, þar sem vamaðarorð eru látin falla í sambandi við nýtt álver og staðsetningu þess. í sér- stakri úttekt á viðhorfí ferðaþjónustunnar, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, laugar- dag, segir Magnús Oddsson, framkvæmda- stjóri Ferðamálaráðs m.a., að Ferðamála- ráð sé ekki að álykta gegn uppbyggingu virkjana og stóriðju heldur að hvetja til þess að hugað verði betur að staðsetningu slíkra iðjuvera vegna sjónmengunar og þeirrar ásýndar, sem þau gefi landinu. Síðan segir Magnús Oddsson: „Tilefnið er að við erum að fá núna niðurstöður úr hverri könnuninni á fætur annarri, sem sýna okkur að það er þessi ásýnd og nátt- úran eins og hún kemur fólki fyrir sjónir, sem hefur mest áhrif á að hingað skuli koma erlendir gestir... Málið snýst um það, að menn hugi meira að staðsetningu slíkra mannvirkja í framtíðinni, hönnun þeirra og útliti með tilliti til sjónmengun- ar.“ Pétur J. Eiríksson, einn af fram- kvæmdastjórum Flugleiða, sem sæti á í framkvæmdastjórn Ferðamálaráðs, segir einnig í samtali við Morgunblaðið í dag, laugardag: „Þegar við tölum um umhverf- isslys þá erum við meðal annars að vísa til innreiðarinnar til Reykjavíkur, sem er sennilega sú ljótasta, sem vestur-evrópsk borg getur státað af. Hún verður það reyndar ekki fyrr en komið er að Straums- vík en það virðist vera eins og það sé lög- mál á Islandi að í kringum iðnað, að ekki sé talað um stóriðju, eigi ljótleikinn að ráða. Það er þessi reynsla, sem gerir það að verkum, að við teljum að skipulagsyfir- völd og ríkið eigi að haga staðarvali þann- ig að stóriðja valdi ekki sjónmengun." Ekki eru allir, sem vinna við ferðaþjón- ustu sammála þessum sjónarmiðum. Þann- ig segir Pétur Snæbjörnsson, hótelstjóri Hótels Reynihlíðar við Mývatn m.a. í sam- tali við Morgunblaðið í dag, laugardag: „Að minnsta kosti finnst fólki til dæmis eftirsóknarvert að koma að Kröfluvirkjun og við fáum oft fyrirspurnir um það, hvort hægt sé að koma og skoða Kísiliðjuna. Það er ekki þar fyrir, að Kísiliðjan mætti hafa miklu snyrtilegra í kringum sig en mannvirkið sjálft vekur jákvæða athygli frekar en hitt. Fólk hefur yfírleitt skilning á því, að menn þurfa að lifa á einhveiju og nýta auðlindir og það þykir eðlilegt. Að mínu viti mega menn auðvitað ekki hlaupa útundan sér og þora ekki að nýta neitt og ætla bara að vera í einhveiju stöðnunarástandi. Það vill enginn vera á slíkum stað.“ Halldór Bjarnason, framkvæmdastjóri Safaríferða, sem er einn umsvifamesti aðilinn í sölu og skipulagningu ferða fyrir útlendinga hingað til lands, segist ekki hafa orðið var við, að þær virkjana- og stóriðjuframkvæmdir, sem þegar hafi verið ráðizt í hér á landi hafí valdið nokkrum skaða hvað varði komu erlendra ferða- manna hingað, þvert á móti hafí þær orð- ið til þess að vegakerfið hafí orðið betra og þannig stuðlað að aukinni ferða- mennsku. Halldór Bjarnason segist ekki geta ímyndað sér að fyrirhugaðar virkj- ana- og stóriðjuframkvæmdir geti haft nokkur áhrif á straum erlendra ferða- manna til landsins. Hins vegar segir Hall- dór Bjamason: „Frekar held ég að hval- veiðar hafi neikvæð áhrif heldur en stór- iðja ef rétt er að henni staðið. Það geta auðvitað allir viðurkennt, að álver í Hval- fírðinum kemur til með að raska dálítið hugarró íslendinga að minnsta kosti en jámblendið hefur ekki hlotið nein ámæli frá útlendingum, sem ég hef heyrt að minnsta kosti.“ Og loks er ástæða til að vitna til um- mæla Gunnars Guðmundssonar hjá Ferða- skrifstofu Guðmundar Jónassonar, sem segir, „að ekki mætti gleyma því að hvort tveggja þyrfti að vera til hér á landi, ferða- þjónusta og stóriðjan, en fara yrði með gát í allri uppbyggingu. Ekki mætti gleyma því, að virkjanarannsóknir hafí á sínum tíma orðið til þess að opna hálendið fyrir umferð ferðamanna.. Sjónarmið ferðaþjón- ustunnar „ „ Morgunblaðið/Snorri Snorrason OXARARFOSSIKLAKABONDUM Raunsæi verður að ráða reynslu af rekstri og vitum að þar háttar vandkvæði I OLLUM ÞESS- um umræðum verð- um við að láta raun- sæi ráða ferðinni að lokum. Við höf- um þriggja áratuga álversins í Straumsvík hafa ekki orðið meiri af völdum mengunar. íslenzk stjórnvöld hafa gert mjög strangar kröfur til Columbia Ventures um aðgerðir til þess að draga úr mengun af völdum fyrirhugaðs álvers við Grundartanga og fyrirtækið hefur lýst því yfir, að það muni uppfylla þær kröfur. Raunar hefur það vakið athygli hversu mikla áherzlu for- ráðamenn fyrirtækisins hafa lagt á að kynna sér sjónarmið andmælenda álversins á Grundartanga. Aðstoðarforstjóri fyrir- tækisins óskáði sjálfur eftir fundi með hreppsnefnd Kjósarhrepps og sat almenn- an borgarafund í Leirársveit um málið. Það hefur enginn sýnt fram á með nokkr- um skynsamlegum rökum, að sérstök ástæða sé til að hafa áhyggjur af áhrifum álversins á umhverfi þess. Forráðamenn ferðaþjónustu verða líka að horfa á þessi mál af raunsæi. í fyrsta Iagi hefur fjöldi erlendra ferðamanna, sem kemur til íslands, margfaldast á þeim þremur áratugum, sem álverið hefur verið í Straumsvík og ekki að sjá, að sú „sjón- mengun", ef menn vilja kalla það svo, hafi haft nokkur áhrif á ferðir þeirra. Hið sama má segja um Kísiliðjuna við Mývatn, að meint „sjónmengun" af völdum hennar virðist ekki hafa haft nokkur áhrif á ferð- ir erlendra ferðamanna til Mývatns, þótt ýmsar aðrar spumingar hafi vaknað í sam- bandi við rekstur þess fyrirtækis. Jámblendiverksmiðjan á Grandartanga sýnist heldur ekki hafa haft nokkur áhrif í þá átt að draga úr heimsóknum erlendra ferðamanna til íslands og þess vegna erf- itt að sjá, að álver á Grandartanga mundi hafa einhver önnur og verri áhrif. Ástæð- an er auðvitað sú, að bæði álverið í Straumsvík og járnblendiverksmiðjan á Grundartanga era byggð í því sem hægt er að kalla þéttbýli. Það er t.d. sements- verksmiðja á Akranesi í næsta nágrenni við jámblendið. Það hefur hins vegar eng- inn haft orð á hvalstöðinni í Hvalfirði, sem miðað við umræður á alþjóðavettvangi mætti ætla, að mundi hafa eða ætti að hafa haft meiri áhrif á erlenda ferðamenn en jámblendiverksmiðjan. Álverið í Straumsvík er byggt í næsta nágrenni Hafnarfjarðar, þar sem er margvísleg at- vinnustarfsemi. Það er auðvitað grundvallarmunur á því að reisa slík iðjuver, þar sem önnur mann- virki eru fyrir eða þegar framkvæmdir á hálendinu sjálfu era til umræðu. Þar er hægt að tala um raunverulega sjónmeng- un, ef ekki er farið varlega í framkvæmd- ir við virkjanir og t.d. lagningu háspennu- lína út frá þeim um stór landsvæði. Við skulum heldur ekki gleyma því að mikill fjöldi ferðamanna á ákveðnum án- ingarstöðuin á hálendinu getur eyðilagt þessa staði. Það hefur ekki alltaf verið skemmtilegt að koma í Landmannalaugar, af þeirri einföldu ástæðu að við liggur að svæðið þoli ekki þann mikla fjölda fólks, sem þangað kemur. Þar hefur verið hægt að tala um annars konar sjónmengun en þá, sem við blasir í Straumsvík eða Grund- artanga. Og menn hafa lengi haft áhyggj- ur af því að ekki mætti lengra ganga í Herðubreiðarlindum. Vamaðarorð Ferðamálaráðs beinast þess vegna ekki að réttum þáttum. Við getum ekki tryggt afkomu fólksins í land- inu til frambúðar, ef hvergi má standa fyrir neinum framkvæmdum, sem skjóta styrkari stoðum undir hana. Okkur verður að takast með skynsamlegum hætti að búa í sátt við land okkar og nýta landkosti þess á raunsæjan hátt. Við lifum ekki lengi á öfgum að hveiju sem þær beinast hveiju sinni. „Jafnframt er ljóst, að í hvert sinn, sem fyrir- hugað er að reisa nýtt iðjuver hefj- ast umræður um mengunaráhrif frá því, landbún- aðurinn sé í hættu o.s.frv. Ekkert af þessu er nýtt. Allt hefur þetta gerzt áður en nú byggj- um viðáþriggja áratuga reynslu, sem sýnir að hrakspár svart- sýnismanna hafa aldrei rætzt.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.