Morgunblaðið - 26.01.1997, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ
52 SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1997
MYIMDBÖIMD/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓIMVARP
Djöfulleg’ véla-
brögð Urquharts
HINN ÁSTSÆLI forsætisráðherra Francis Urquhart.
ÆTTIRNIR Síðasta spil
hófu göngu sína í Sjón-
varpinu síðastliðið
mánudagskvöld og verð-
- ur annar þáttur af fjórum sýndur
annað kvöld. Áður hefur sjónvarp-
ið tekið til sýninga tvær þáttarað-
ir í sama flokki, Spilaborg og
Kóngur í uppnámi. Þættirnir eru
gerðir eftir samnefndum skáldsög-
um Michael Dobbs og fjalla um
klækjarefmn Urquhart sem seilist
langt í breskum stjórnmálum.
Höfundurinn, Dobbs, er enginn
nýgræðingur á sviði stjórnmál-
anna. Hann vann við frétta-
mennsku í Bandaríkjunum þegar
Watergate-hneykslið komst í há-
— -mæli, fýlgdi Margréti Thatcher
eftir við hvert fótmál þegar hún
steig sín fyrstu skref sem forsætis-
ráðherra, slapp naumlega í
sprengjutilræði við bresku ríkis-
stjómina í Brighton og var starfs-
mannastjóri Normans Tebbits í
þingkosningunum 1987. Síðast en
ekki síst var hann um skamma
hríð varaformaður í breska íhalds-
flokknum, skipaður af John Major.
Urquhart seilist til áhrifa
Spilaborg, fyrsta þáttaröð í þrí-
leiknum um Urquhart, hefst á af-
sögn Margrétar Thatcher. Sjónir
okkar beinast því næst að Urqu-
~-vhart á skrifstofu sinni, sem segir:
„Einhvern tíma tekur allt enda.
Jafnvel sú stjórn sem lengst og
farsælast ríkir líður einhvern tíma
undir lok.“ Leitin að eftirmanni
hefst þegar og eru margir kallað-
ir. Urquhart bíður átekta og heitir
þeim fullri hollustu sem ber sigur
úr býtum.
Sem eru auðvitað bara orðin
tóm. Urquhart seilist til áhrifa
með því að beita upplýsingum sem
hann kemst yfir sem flokksvörð-
ur. Hann nær trúnaðartrausti
Collingridge, forsætisráðherra,
með vélabrögðum sem eru svo
djöfulleg að þegar Collingridge
neyðist loks til að segja af sér
þakkar hann aðeins einum manni
fyrir að hafa staðið við bakið á
sér, Urquhart.
Þegar svo er komið sögu er
Urquhart búinn að sverta mannorð
allra þeirra sem taldir voru líkleg-
ir til að hreppa stöðu forsætisráð-
herra, þannig að hann einn stend-
ur eftir með pálmann í höndunum.
í lokaatriði þáttanna kemur blaða-
maður til hans og spyr hvort hann
hafí drepið til að ná völdum. Hann
viðurkennir það og kastar henni
fram af húsþaki. Þegar myndavél-
in beinist að líkinu sést hendi seil-
ast í segulbandið, sem augljóslega
er enn að taka upp. Það er síðasta
spilið í Spilaborginni.
Urquhart knésetur kónginn
Kóngur í uppnámi, önnur þátta-
röðin í þríleiknum hefst á krýningu
nýs konungs. Urquhart hefur
treyst stöðu sína á þinginu og
þarfnast samkvæmt konu sinni,
Elizabeth, „nýrra krefjandi verk-
efna“. Ekki líður á löngu þar til
henni verður að ósk sinni. Rót
vandans liggur í Buckingham-höll.
„Vandamálið er að hann [kóngur-
innj hefur hugmyndir,“ segir
Urquhart önugur við aðstoðar-
mann sinn og það er sem orðunum
hafi verið dýft í eitur. „Hann hef-
ur samvisku. Hann vill leggja eitt-
hvað af mörkum.“
Kóngurinn er ötull við að benda
á hvað virðist fara úrskeiðis í sam-
félaginu og nýtur sívaxandi hylli
almennings á meðan Urquhart
dalar í vinsældum. Einnig steðjar
Urquhart ógn af flokksbróður sín-
um og aðstoðarkonu sinni sem
einnig verður ástkona hans. Þau
reynast hafa segulbandið undir
höndum sem hvarf í lok fyrstu
þáttaraðarinnar og ætla að ljóstra
upp leyndarmálinu. Ekkert virðist
geta komið í veg fyrir hrun spila-
borgarinnar.
En Urquhart veit sínu viti og
svífst einskis. Til að klekkja á
kónginum, sem hefur efnt til úti-
funda, lætur hann ræna honum.
Hann kemur síðan fram sem ör-
yggið uppmálað og lætur herinn
bjarga kónginum aftur. Auðmýk-
ing kóngsins er algjör. Hvað varð-
ar leyndarmálið á segulbandinu
kemur hann því, að því er virðist,
undir græna torfu með því að
koma samsærismönnunum fyrir
kattarnef. Þáttaröðinni lýkur á því
að kóngurinn segir af sér, sonur
hans tekur við og Urquhart syngur
við krýninguna: „God Save the
King“.
Reiðubúinn að færa fórnir
I Síðasta spili, lokaþáttaröð þrí-
leiksins, stendur Urquhart frammi
fyrir sinni stærstu áskorun. Hann
hefur setið sem forsætisráðherra
í rúman áratug og er á þröskuldi
þess að slá met sem sá forsætis-
ráðherra sem lengst hefur setið á
valdastóli á öldinni. En þjóðin virð-
ist orðin þreytt á honum og flokks-
bræður hans er farið að lengja
eftir nýjum forsætisráðherra.
Urquhart lætur hins vegar eng-
an bilbug á sér fínna. Hann er
reiðubúinn að færa ýmsar fórnir
til að lífga almenningsálitið við.
Hann er reiðubúinn að fórna öllum
nema sjálfum sér - jafnvel eyja-
skeggjum á Kýpur. Hann hættir
öllu til að komast í metabækurnar
og hvernig sem fer er ljóst að
nafn hans gleymist aldrei.
Ný Bond-
stúlka
valin
► NÆSTA Bond-stúlka,
Michelle Yeoh, leikkona frá
Hong Kong, verður líklega
ekkert lamb að leika sér
við fyrir Pierce Brosnan.
Yeoh er nefnilega sérfræð-
ingur í kung fu. Ekki þarf
hún heldur að skammast
sín fyrir útlitið þvi hún var
áður ungfrú Malaysia.
Hún mun þar með fylla
flokk þokkagyðja á borð
við Ursulu Andress, sem
lék Honey Rider í „Dr.
No“, Honor Blackman, sem
lék Pussy Galore í „Gold
finger“, og Famke Janssen,
sem lék Xeniu Onatopp í
„Goldeneye".
Yeoh er best þekkt fyrir
að leika á móti Jackie Chan
í „Supercop", en hefur
einnig leikið í hasarmynd-
um frá Hong Kong á borð
við „Yes“, „Madam“ og
„Royal Warriors". Næsta
mynd með henni nefnist
„The Soong Sisters".
Ekki hefur ennþá verið
valinn titill á nýju Bond-
myndina, en tökur á henni
hefjast fljótlega. Leikstjóri
verður Roger Spottiswo-
ode og er áætlað að hún
verði frumsýnd um jólin.
FAMKE Janssen lék síð-
ast á móti Brosnan.
BRUGÐIÐ á leik í Ulu eðli.
Lítill gullmoli sem
ekki má gleymast
Holur reyr (Hollow Reed)_______
D r a m a
★ ★ ★
Leikstjóri: Angela Pope.
Framleiðandi: Elizabeth Kalser.
Handrit: Paula Milne. Kvikmynda-
taka: Reni Adefarasin. Tónlist:
Anne Dudley. Aðalhlutverk: Martin
Donovan, Joely Richardson, Ian
Hart, Jason Flemyng, Sam Bould.
90 mín. Bresk. Scala, Senator Film
and Channel Four Films/
Myndform. 1996.
MÓÐIR Olivers ásamt hinum
ofbeldisfulla sambýlismanni
sínum.
Fyrirsjáanleg en
viðunandi afþreying
lllt eðli (Natural Enemy)
Spennumynd
★ '/2
Leikstjóri: Douglas Jackson. Hand-
rit: Kevin Bernhardt. Kvikmynda-
taka: Rodney Gibbons. Aðalhiut-
verk: Donald Sutherland, William
McNamara, Leysley Ann Warren.
89 mín. Bandarísk. Filmline Inter-
national/Bergvík. 1996. Bönnuð
börnum innan 16 ára.
VERÐBRÉFASALINN Ted Ro-
barts (Donald Sutherland) á í fjár-
hagserfíðleikum. Fyrirtæki hans
stendur höllum fæti og hann er við
það að missa rándýrt stórhýsi sem
er nýbyggt. Til þess að rétta úr
kútnum hefur hann fengið sér til
aðstoðar Jeremy Harper (William
McNamara), ungan og bráðefnileg-
an verðbréfasala, og er markmiðið
að nýta þekkingu hans til þess að
geta gengið frá hinum stóra samn-
ingi, sem leysa á allan vanda.
Til þess að halda í þennan eftir-
sótta starfskraft býður hann hon-
um hluta af hagnaði fyrirtækisins
auk afnota á þriðju hæð húss síns.
Eiginkonu hans
Sandy, (Lesley
Ann Warren), mis-
líkar ráðstöfun
þessi en sættir sig
við hana fyrirtæk-
isins vegna. Har-
per hefst þegar
handa við að vinna
traust Sandyar,
sem hinsvegar fer að gruna hann
um að hafa óhreint mjöl í pokahorn-
inu.
Hér er á ferðinni nokkuð viðun-
andi afþreying. Helsti galli
myndarinnar er þó hve söguþráður-
inn er fyrirsjáanlegur en leikstjór-
inn Jackson nær þrátt fyrir það á
stundum að skapa spennu. Hann
hefði þó að ósekju mátt leika á fleiri
sálfræðilegar nótur á kostnað of-
beldisatriða, sem í mynd sem þess-
ari eru að sumu leyti óþarfi. Don-
ald Sutherland og Lesley Ann
Warren eru fagmenn sem að vanda
skila sínu en þrátt fyrir ágætis
takta tekst William McNamara
ekki að bera myndina uppi.
Skarphéðinn Guðmundsson
ÞRÁTT fyrir lof erlendra gagnrýn-
enda rataði Holur reyr ekki í bíóhúsin
hér á landi, sem að einhveiju leyti
má réttlæta með of miklu framboði á
myndum. Það er þó því miður ekki
nægilega mikið framboð af myndum
sem þessari og hefði hún því
fyllilega átt það skilið að fá
að njóta sín í bíó.
Myndin segir á afar næman
hátt frá andlegum raunum
Olivers, 9 ára drengs, sem
hefur átt erfitt með að sætta
sig við skilnað foreldra sinna.
Þegar faðir hans, sem er sam-
kynhneigður og á sambýlis-
mann, kemst að því að sam-
býlismaður móður Olivers beitir hann
líkamlegu ofbeldi þá fer hann fram á
forræði yfir honum.
Þessir viðkvæma saga, sem byggð
er á sönnum atburðum, er rakin af
mikilli alúð og tillitssemi við hinn
unga Oliver og þær ömurlegu aðstæð-
ur sem hann er í. Leikstjóranum Ang-
elu Pope tekst undra vel að lýsa hugar-
angri og laða fram samkennd með
Oliver, sem leikinn er hreint frábær-
lega af Sam Bould. Aðrir leik-
arar standa sig einnig með
prýði, auk þess sem öl! tækni-
vinna er óaðfinnanleg.
Vegna þess að Holur reyr
var ekki sýnd í bíó á hún á
hættu að hverfa í skugga
annarra mynda og týnast,
eins og oft hendir slík mynd-
bönd. Það væri hinsvegar
synd ef slíkt henti þessa mynd
því hún er lítill og skínandi skær
gullmoli sem enginn unnandi vand-
aðra og mannlegra mynda má láta
fram hjá sér fara.
Skarphéðinn Guðmundsson
Fargo
(Fargo) ★ ★ ★
Tungllöggan
(Lunar Cop) 'h
Fresh
(Fresh) ★ ★V2
Af hundum og köttum
(The Truth About Cats and
Dogs) ★ ★
Stepford elginmennirnir
(The Stepford Husbands) '/1
Elst vlö dreka
(Chasing the Dragon) ★V2
Njósnað mikið
(Spy Hard) ★
Hvítur maður
(White Man) ★ ★‘/2
Barnfóstruklúbburinn
(The Baby-sitters Club) ★ ★
Geggjuð mamma
(Murderous Intent) ★‘/2
Bert
(Bert) ★ ★‘/2