Morgunblaðið - 23.02.1997, Page 3

Morgunblaðið - 23.02.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 B 3 maður, segir að líkja megi vinnu- staðnum við fiskiskip. „Þar er regla á hlutunum og skipstjórinn ræður, eins og hér.“ Hann segir að vinnu- mórallinn sé almennt góður. Þó menn vinni stífa vaktavinnu og séu allan sólarhringinn uppi í stöðinni eigi þeir góð frí á milli. „Þetta eru svo stutt tímabil að það myndast ekki sama streitan og um borð í til dæmis frystitogara,“ segir Sveinn. „Ég er líka fyrrverandi sjómaður og finnst þetta ekki ólíkt,“ segir Sigmar. „Það er einn skipstjóri á hverju skipi og hann hefur fullkom- ið og endanlegt vald samkvæmt sjómannalögum. Ef brotið er gegn ákvörðunum hans kallast það upp- reisn. Mér finnst okkar fyrirkomu- lag ekki ólíkt því nema hvað hér eru fyrirmælin skráð og gefin út í handbókum en um borð í skipunum er meira um hefðir og venjur sem tekur tíma að komast inn í,“ segir Sigmar. „Engin leyndarmál" Leynd eða ákveðin duluð er yfir starfsemi ratsjárstöðvanna. Vitað er að starfsmennirnir undirrita eið- staf um trúnað þegar þeir hefja störf og maður heyrir á fólki í ná- grenninu að ekki sé líklegra til árangurs að spyija þá um starfsemi stöðvarinnar en að spyrja frímúrara um regluna sína. Ekki eru gefnar upplýsingar um það hvað margir eru á vakt í einu og fleira í þeim dúr. Strangar takmarkarnir á að- gangi styðja einnig hugmyndir um að verið sé að vernda hernaðar- leyndarmál. Sigmar harðneitar því að svo sé. „Hér eru engin leyndar- mál. Við erum að vernda vinnustað- inn en ekki starfsemina. Ætlumst til þess að menn komi til vinnu og séu að vinna á meðan þeir eru á vakt. Þeir mega síðan gera það sem þeir vilja í fríum,“ segir hann. Sigmar segir að þeir sem óski eftir að koma inn í stöðina og eigi þangað erindi fái aðgang. Aðrir ekki. Nefnir sem dæmi um þetta að starfsmanni sé ekki leyft að koma með vin sinn eða einhvern úr fjölskyldunni inn í stöðina, ekki nema á sérstaklega skipulögðum fjölskyldudegi. Ekki þýðir heldur fyrir ferðafólk að reyna að fá inn- göngu en talsvert er um að sótt sé í það. „Þetta er haft svona til að trufla ekki starfsemina. Ég hef ferðast víða um heim í viðskiptaer- indum. Fyrir mér er þetta ekkert öðruvísi en í ýmsum erlendum fyrir- tækjum," segir hann. Geislaheldur hjúpur Ýmislegt framandi ber fyrir augu blaðamanns í skoðunarferð um stöðina en ekkert sem líklegt er að þoli ekki dagsins ljós. Enda væri slíkum hlutum sjálfsagt ekki haldið að blaðamanni. Stöðvarstjórinn ger- ir þó sitt til að viðhalda dulúðinni með því að banna myndatökur í því „allraheilagasta", byrginu eða gámnum sem hýsir ratsjána. Þar inni virðast aðeins vera tölvur og tölvuskjáir þar sem flugumferðin kemur fram, í líkingu við það sem sést í flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli. Hjarta stöðvarinnar er varið með geislaheldum hjúp. Til að komast inn í hjartað og út úr því þarf að opna tvöfalda hurð og opnast sú síðari ekki fyrr en hin fyrri hefur fallið að stöfum. Er þetta gert til að aldrei sé opið inn í þennan hluta stöðvarinnar. Þar inni er vararaf- stöð og ýmsar birgðir og eiga starfsmenn að geta haldið ratsjánni gangandi í ákveðinn tíma þó allt gangi af göflunum utandyra. Bein útsending tll Kef lavíkur Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkur- fjalli er ein af fjórum ratsjárstöðv- um á íslandi. Hún er önnur af svo- kölluðum norðurstöðvum og kallast H-2. Hin norðurstöðin er á Bola- fjalli við Bolungai-vík. Auk þess eru stöðvar á Miðnesheiði_ og Stokks- nesi við Hornafjörð. I stöðvunum er ratsjár- og fjarskiptabúnaður til að fylgjast með flugumferð á stóru svæði í kringum landið og beina eftirlitsflugvélum Varnarliðsins í veg fyrir óboðna gesti. Loftnet rat- sjánna snúast inni í hvítu kúlunni sem eru einkennandi fyrir þessar stöðvar. í ratsjánum er háþróaður tölvubúnaður sem vinnur úr upplýs- ingum, stjórnar sendiafli og ratsjár- geislum, aðlagar búnaðinn veðurað- stæðum hveiju sinni, gefur upplýs- ingar um ástand og kvarðar búnað- inn. Atlantshafsbandalagið kostaði byggingu stöðvanna og bandaríski flugherinn greiðir kostnað við rekstur þeirra. Ratsjárstofnun sem er íslensk ríkisstofnun og heyrir undir utanríkisráðuneytið tók að sér reksturinn. Stöðvarnar nema flug- umferð á ratsjá og senda með ljós- leiðara beint til eftirlitsstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þaðan fara ákveðnar upplýsingar til flugstjórnarmiðstöðvar Flug- Morgunblaðið/Helgi Bjarnason ALLRAHEILAGASTI staðurinn á Gunnólfsvíkurfjalli. Sigmar Ólafsson stöðvarstjórl lokar ratsjárbyrginu. málastjórnar í Reykjavík og nýtast þannig við stjórnun flugumferðar á íslenska flugstjórnarsvæðinu. „Alltaf nóg að gera“ Ratsjárnar eru tölvustýrðar og í þeim er einnig tölvubúnaður til bil- analeitar. Stöðin er byggð þannig upp að þegar eitt kerfi bilar þá á annað að taka við þannig að starf- semin falli aldrei niður. Tölvurnar leita að bilunum og gefa fyrirmæli um það hvað eigi að gera við og hvernig. Sjálfvirknin er svo mikil að ekki virðist vera mikil þörf fyrir starfsmenn í stöðinni. „Hér er alltaf nóg að gera, við höfum aldrei þjáðst af verkefnaskorti,“ segir Sigmar. Tólf til fjórtán menn vinna í stöð- inni, tæknimenn, rekstrarmenn, stöðvarstjóri og skrifstofumað-► Nýir og glæsilegir ferðabæklingar Flugleiða, Út í heim, vor og sumar 97, og Flug og bíll 9 7, liggja frammi á söluskrifstofunum og á fcrðaskrifstofum. FLORIDA SPANN FLUGLEIÐIR Traustur íslenskur ferðafélagi -----------: MÝJUNG: ....... Greiða niá alla upphæðina með raðgreiðslu. Raðgreiðslur EURO og VISA til 24 mán. Hvergreiðsla þrt að lágmarki kr. 2,500- Si. Wiftírslmrj* Sií.*;idi stiiiiriliiiiuilmrg S'Iuyltótiii i ;:r TILBOÐ í brottför 27. mal og 3. júxú Verð aðeins 33.885 á mann m.v. 2 fullorðna og 2 böm (2-11 ára) 16 nætur í íliúð með i svefnhcrb. á Best Wcstem Sirata. Verð aðeins 49.270k, á mann m.v. 2 fullorðna í 6 nætur í stúdíóíbúð á BestWesternSirata. Verð á ttmabilinu 27. maí til 1. september (að undanskildum tilboðsferðum 27. maí og 3. júní): 39.885, á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11 ára) í 6 nætur í íbúð tncö 1 svcfnherb. á Bcst Westcrn Sirata. 57.270kr á mann m.v. 2 fultorðna í 6 nætur í stúdíófbúð á Best Westem Sirata. * Innifalið: flug. flugvallarskattar, gisting, íslensk fararstjórn og rútufcrðir til og frá flugvelli erlendis. Hafðu samband við söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn, ferðaskrifstofurnar eða símsöludeild Flugleiða ísíma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud. kl. 8 -19 og á laugard. kl. 8-16.) Veffang: www.icelaridair.is Sólarheiniur í Barcelona frá 30. maí til 26. september 43.920kr á mann m.v. 2 fullorðna í tvíbýli í 7 nætur á Hotel Caiabria (morgunv. ekki innifalinn). 35.«5kr á mann m.v. 2 fullorðna og 2 böm (2-11 ára) í 7 nætur f íbúð m. 1 svefnhcrb. á Apt. Hotei Citadines. * Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjóm. Sólarparadís á Costa Brava | FANALS í Lloret de Mar Tímabilið 6. - 26. júní og 22. ágúst -18. sept. 30.835 á mann m.v. 2 fullorðna og 2 börn (2-11 ára) í 7 nætur í ibúð með 1 svefnherb. á Brava Park. 1,3.620 á mann m.v. 2 fullorðna í 7 nætur í íbúð mcð 1 svefnherb. á Brava Park. Tímabilið 27. júní til 21. ágúst 37.535kr á mnnn m.v. 2 fullorðna og 2 böm (2-11 ára) f 7 nætur í íbúð með 1 svefnherb. á Brava Park. 56.820,, á mann m.v. 2 fullorðna í 7 nætur í íbúö tneð 1 svefnhcrb. á Brava Park. ' Innifalið: flug, flugvallarskattar, gisting, íslensk fararstjórn og rútuferðir til og frá flugvelli erlendis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.