Morgunblaðið - 23.02.1997, Side 5

Morgunblaðið - 23.02.1997, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 B 5 FYRSTA sveinsprófið í matreiðslu og framreiðslu var haldið á Hótel Valhöll 1945, Matur og þjón- ustaí 70 ár Sjötíu ár eru í þessum mánuði liðin frá því að Félag matreiðslumanna og Félag framleiðslumanna voru stofnuð. Stein- grímur Sigurgeirsson kynnti sér sögu félaganna af því tilefni. ÍSLENSKIR nemar hafa staðið sig vel í norrænum nemakeppn- um. Hér keppa þau Hendrik Hermannsson og Heiðbrá Þóreyj- ardóttir á siðasta ári. SJÖTÍU ár eru langur tími og það hefur margt breyst frá því að fimm þjónar og tveir matsveinar héldu fund á Hótel Heklu við Lækjartorg, þann 12. febrúar 1927, og ákváðu að stofna Matsveina- og veitinga- þjónafélag íslands. Félög þessara stétta halda nú upp á sjötíu ára afmæli sitt og af því tilefni hefur saga þeirra verið skráð af Gylfa Gröndal og má lesa hana í bókinni Þjónusta, matur og menning, sem nýkomin er út. Bjartsýni ríkti á árunum fyrir kreppuna miklu og allmargir klúb- bar voru starfræktir í Reykjavík á þessum tíma. Margir báru þeir framandi og spennandi nöfn, s.s. Moonlight-klúbburinn og Charles- ton-klúbburinn þótt sumir hafi sótt nafngiftir nær heimahögunum s.s. Vesturbæjarklúbburinn og Bíl- stjóraklúbburinn. Voru alls 88 dansleikir auglýstir í Morgunblað- inu árið 1927. Veitingastöðum og kaupskipum hafði einnig flölgað töluvert og þar með þeim mönnum er störfuðu við matreiðslu og fram- reiðslu. Helsti hvatamaður þess að þeir ákváðu að stofna með sér félags- skap var Ólafur Jónsson og kemur fram í bók Gylfa að hann hafí þeg- ar haustið 1926 vakið umræðu á því að þörf væri á hagsmunafélagi veitingastétta. Ólafur hafði ungur lært framreiðslu í Danmörku og starfaði um árabil í Kaupmanna- höfn, London, Berlín og París. Hann varð yfirþjónn á Hótel Borg er það var opnað árið 1930 og starfaði síðar á Akureyri. Hann lést 1934.. Árið 1923 hafði einn helsti leið- togi danskra framreiðslumanna, Ludvig Jensen, stuðlað að stofnun íslenska þjónafélagsins. Það átti að vera deild í danska félaginu en starfsemi þess lognaðist út af um ári eftir stofnun. Takmörkuð réttindi Réttindi þessara stétta voru vægast sagt af skornum skammti á þessum árum og löng og erfið barátta var fyrir höndum eftir að félagið var stofnað. Ekki auðveld- aði það hagsmunabaráttuna að margir félagsmenn unnu á skipum og áttu því erfitt með að taka þátt í félagsstarfi. Starfsemi félagsins fór hægt af stað en árið 1931 var samþykkt að félagið skyldi ganga í Alþýðu- samband íslands, en sú ákvörðun var nokkuð umdeild innan félagsins í ljósi þess pólitíska raunveruleika er var á íslandi á þessum árum. Það var síðan ekki fyrr en hálfum öðrum áratug eftir stofnun, eða árið 1941, að matreiðsla og fram- reiðsla urðu löglegar iðngreinar. Var fyrsta sveinsprófið haldið í Hótel Valhöll á Þingvöllum haustið 1945. í riti Gylfa er viðhorfum til veitingastétta lýst og nefnt dæmi af því er matsveinninn Gísli Guð- mundsson, er barðist hart fyrir lög- gildingu starfsgreinanna, mætti á fundi í Iðnráði. Vildu menn þar meina að það gæti vart telist iðn- grein að elda mat og hvað þá að það þyrfti kunnáttu og iðnréttindi til að „leggja hnífapör, diska og bolla á borð“. Það hafa gengið á skin og skúr- ir í sögu félagsins. Félagið klofnaði 1941 í tvö félög, er bæði voru nefnd Matsveina- og veitingaþjónafélag, annað aðallega skipað þjónum og hitt kokkum. Mátti ekki síst rekja klofninginn til deilna um aðildina að Alþýðusambandinu. Matsveina- og veitingaþjónafélag Islands varð hins vegar að Félagi matreiðslu- manna árið 1950 og Matsveina- og veitingaþjónafélag Reykjavíkur varð að Meistarafélagi matsveina- og veitingaþjóna 1945 og loks að Félagi framreiðslumanna árið 1947. Félag Framreiðslumanna og Félag matreiðslumanna eru enn starfandi í dag. Menntun mikilvægt baráttumál Auk beinna kjaramála hefur helsta baráttumál matreiðslu- og framreiðslumanna undanfarna sjö áratugi verið starfsmenntun. Við byggingu Sjómannaskólans var gert ráð fyrir að matsveinar á fiski- skipaflotanum gætu stundað þar nám sitt líkt og aðrir sjómenn. Hugmynd vaknaði síðar um að nota kennslueldhús skólans sem aðstöðu fyrir sérstakan fagskóla og árið 1947 voru samþykkt lög um Matsveina- og veitingaþjóna- skólann. Fjárveiting til hans var samþykkt í fyrsta skipti árið 1955 og hann hefur síðan annast mennt- un veitingastétta. Brautryðjendur skólans voru þeir Tryggvi Þorfinns- son skólastjóri og Sigurður B. Gröndal yfírkennari. Þeir voru báð- ir ráðnir til starfa 1955 og kenndi Tryggvi matreiðslu og Sigurður framreiðslu. Árið 1971 voru ný lög um skól- ann samþykkt og nafni hans breytt í Hótel- og veitingaskólann. Hann var lengi vel til húsa við Suður- landsbraut í húsi Hótel Esju en hefur nú tekið til starfa í nýju og glæsilegu húsnæði í Kópavogi, sem eflaust á eftir að þýða byltingu whvað varðar menntun veitinga- stétta á íslandi. Þótt veitingastéttimar starfi í dag enn í aðskildum félögum hefur verið efnt til samstarfs skyldra stétta með stofnun sambandsins Matvís. Auk matreiðslu- og fram- reiðslumanna eiga kjötiðnaðar- menn og bakarar aðild að sam- bandinu. ÞAÐ hefur verið fremur lítið um nýjung- ar á reynslulistanum síðustu mánuðina þótt alltaf tínist eitthvað inn, en reynslu- vínin fást eins og kunnugt er í vínbúðun- um í Kringlunni, Eiðistorgi, Stuðlahálsi og Akureyri. Tvö Beaujolais-vín frá framleiðandan- um Pasquier Desvignes komu í reynslu- sölu fyrir skömmu. Þótt þessi framleið- andi sé nýr hér á markaðnum á fyrirtæk- ið rætur sínar að rekja til Cruze-fyrirtæk- isins en Beaujolais-vín undir því nafni nutu mikilla vinsælda á Islandi hér á árum áður. Annars vegar er um að ræða venjulegt Beaujolais-vín (980 kr.) og hins vegar vín er kennt er við þorpið Moulin-á-Vent (1.210 kr.) Beaujolais-vínið er frá 1995 og Moulin-vínið frá 1994. Stíll þeirra er áþekkur þótt þorpsvínið sé nokkuð öflug- ra líkt og vera ber. Vínin hafa ágæta lengd og fyllingu, rauð ber ráða ferðinni og þá jafnvel skógarber. Ávöxturinn er þokkalegur en ögn hlédrægur. Þetta eru milliklassa Beaqjolais-vin í ágætu lagi. Þægileg matarvín, með léttum máltíðum, vín í ágætu jafnvægi. Vínin líða helst fyrir að ávöxturinn mætti vera ferskari og yngri, fyrst að þetta eru nú Beaujola- is-vín og einnig er Moulin-vínið meira í átt að Villages-vínum en Cru. Það hefur þó yfir sér ágætan þokka. Reynslu- vín Einhver þekktasta vínblanda sögunn- ar er sú sem gengur undir nafninu Kir. Drykkur þessi á rætur sínar að rekja til Búrgundarhéraðs í Frakklandi og samanstóð upphaflega af blöndu sól- berjalíkjörsins Cassis de Dijon og hvít- víns úr þrúgunni Aligoté. Kir Royal hins var blanda Cassis og kampavíns eða þá Crémant de Bourgogne, freyðivín Búrg- undarhéraðsins. Nú til dags er Kir hins vegar orðið samnefnari yfir blöndu úr Cassis og hvítvíni. Drykkurinn dregur nafn sitt af fyrrum borgarstjóra Dijon, andspyrnuheljunni Canon Félix-Kir, sem bauð ekki upp á neitt annað en þessa blöndu er opinberar móttökur voru haldnar á hans veguin. í reynslusölu er nú Kir Royal frá Lejay-Lagoute (1.340 kr). Sólberjalyktin stekkur upp úr glasinu um ieið og minnir jafnvel á sólberjahlaup. Vínið er fallega dimmrautt, freyðir vel með fáguðum bólum er endast lengi. Jafnvægi blönd- unnar er nær fullkomið og cassisinn ríf- ur vel í og gefur drykknum mikið bragð. Afbragðs fordrykkur, laus við alla væmni. Tawny-púrtvín Tvö Tawny-púrtvín hafa einnig bæst við í reynslusölu, en það sem aðgreinir Tawny-púrtvín frá öðrum púrtvínum er að þau hafa verið geymd mun lengur á eikartunnum og fá því yfirbragð jafnt hvað varðar lit, ilm og bragð. Conde de Monsul Tawny frá Rozes (1.530 kr. engin tilgreining á aldri) nær hins vegar ekki Tawny-einkennunum nema að hluta. Litur vínsins er of rauð- leitur og ilmur og bragð minna í raun meira á hefðbundin, einfaldari púrtvín en Tawny. Ilmur vínsins er áfengur, með heitum, sætum ávöxtum en heildar- myndin fremur einföld og sérkennalítil. Cockburns 10 Years Old Tawny (1.970 kr.) sýnir hins vegar fín Tawny-ein- kenni, mjög ljós, þroskaður brúnleitur litur og áberandi hnetur, aðallega hesli- hnetur, í bland við við, sýróp og áfengi. Tawny með vel ásættanlega dýpt og þéttleika en þau eru einmitt tilvalin eft- irréttavín.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.