Morgunblaðið - 23.02.1997, Síða 6
6 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
SANNLEIKS-
GILDI
A
AÐUR fyrr voru
myndir taldar
sönnunargagn og
trúverðugri en
skrifaður texti.
Ekki lengur. Tæknin hefur
breytt því. í bíómyndum og
þáttum sjáum við hvernig at-
burðir og leikarar eru settir inn
í svið fræðslumynda frá því
áður en þeir fæddust og enga
missmíð að sjá. Atburðum og
fólki skeytt saman. Við höfum
séð örla á þessu í sjónvarpsþátt-
um hér. Lítum fremur á það til
gamans í skemmtiþáttum, sem
ekki eiga að segja neitt. Með
nýju tölvugrafíkinni er hægt að
gera nánast hvað sem er með
myndefnið.
Lengi vel trúðu menn því að
myndir væru öruggar frásagnir
af raunverulegum atburðum og
að talandi fólk í sjónvarpi eða
útvarpi segði nákvæmlega
þetta. Einu myndafalsararnir
væru einræðisherrar eins og
Stalín, sem lét taka út af hinni
hefðbundnu mynd af hátt sett-
um ráðamönnum á svölunum í
Kremi þá sem féllu í ónáð og
bætt inn nýjum. Nú þykir varla
tíðindum sæta þó mynd-
um, jafnvel „fréttamynd-
um“, sé hagrætt. Kvik-
myndir af atburðum og
jafnvel viðtöl við fólk eru
klippt, fellt niður úr þeim
og skeytt inn í, eins og
sagnfræðingurinn Karst-
en, sem hefur kannað
sagnfræðilegt gildi
fréttakvikmynda, bíó-
mynda og heimildar-
mynda, benti á með
dæmum á sagnfræðin-
ámskeiði við Háskóla ís-
lands.
Þetta er viðtekið í aug-
lýsingum. í erlendri aug-
lýsingu fyrir eldvarna-
kerfi, byggt á reykskynj-
urum, sést leikari í gervi
Napoleons Bonaparte. Auglýs-
ingin hefst með víðri sýn yfir
Moskvuborg að brenna. Húsin
eru látin standa í ljósum logum.
Myndin dregin saman í nær-
mynd af Napoleon augliti til
auglitis við Rússakeisara (úr
heimildamynd). Segir við hann:
Ef þú hefðir keypt eldvarna-
kerfið okkar, þá hefði þetta
ekki gerst! Þetta er bráðfyndin
auglýsing sem fólk tekur ekki
of hátíðlega. Auðvitað eru aug-
lýsendur að koma inn hjá við-
takendum einhveijum boðskap
og nýta til þess æ betri tækni.
Það höfum við a.m.k. í undir-
meðvitundinni þegar um er að
ræða afmarkaða auglýsinga-
tíma. En mörkin eru hratt að
hverfa. Afþreyingarþættir
blanda saman fróðleiksmolum
og auglýsingum. Sumir orðnir
að mestu að markvissum aug-
lýsingaþáttum.
En ætli fólk átti sig almennt
á því að engu síður er hægt -
viljandi eða óviljandi - að hag-
ræða sannleikanum með mynd-
um, kvikmyndum og heimilda-
myndum í beinum frásögnum
af atburðum? Eða að viðtöl og
ummæli í fréttum eru klippt til
svo blærinn á þeim getur ger-
brenglast. Áhorfandinn segir
þó: Eg sá hann segja þetta!
Hefur komið fyrir að menn urðu
aldeilis hissa á því hvað þeir
voru að segja þegar þeir sáu
eða heyrðu í sjálfum sér. I hrað-
anum og tímaskortinum hafði
meiningin farið forgörðum.
Þannig er einfaldlega eðli nýju
tæknimiðlanna.
Þess vegna er víða talað um
að nútímafólk þurfi að læra að
lesa úr myndefni ekki síður en
lesefni. Ejálfun í
því sé að verða eitt
af því sem brýnt
sé að fólk læri
strax í barnaskóla.
Að túlka það sem þeir sjá og
heyra eins og það er fram bor-
ið. Leggja ekki meiri merkingu
í það. Þörf sé á aukinni vitund
almennings um meðferð þessar-
ar tækni til að varast hugsan-
legar afleiðingar hennar. Það
var því gott að sjá að þessi lekt-
or frá Hafnarháskóla var feng-
inn til að fjalla um heimildagildi
mynda á námskeiði fyrir sagn-
fræðinga í HÍ. Þeir verða auð-
vitað að kunna að vara sig.
Fólk þarf að læra að mynd er
ekki endilega sagnfræði. Haft
var eftir honum í viðtali um
fréttir að fólk, sem finnst það
ekki hafa fengið rétta meðferð,
geti þó krafist þess að fá leið-
réttingu.
Á prenti í blöðum má sjá slik-
ar leiðréttingar, af því að upp-
lýsingar voru ekki skilmerkileg-
ar eða misskilningur orðið milli
heimildamanns-og viðtakanda.
Eg trúi því að vönduð blöð vilji
hafa það sem sannara reynist.
Það er þó mismunandi. Nýlega
var ég í boði með tveimur mönn-
um, sem höfðu árangurslaust
beðið um að nafn þeirra væri
leiðrétt. Læknirinn af því að
blaðið (ekki þetta blað) hafði
slegið upp frétt um lækninn sem
hefði hrakið allt starfsfólkið
burtu og síðan sett hans nafn
þar inn í þótt hann væri nýkom-
inn á staðinn og kom hvergi
nærri. Hinn þegar skip hans
lenti í hrakningum og hann
borinn fyrir skýringum sem
hann hafði ekki sagt. Hvorugur
fékk leiðréttingu. Ég svaraði
því til að ekki væri sama Jón
og séra Jón og eina sem þeir
gætu gert væri að treysta ekki
viðkomandi fréttamönnum í sín-
um eða öðrum málum. Þeir
kváðust einmitt vel muna nöfn
þeirra. Þannig eiga fréttamenn,
ekki síst í litlum samfélögum
sem okkar, trúverðugleika sinn
undir sínum eigin vinnubrögð-
um. Það góða við sjónvarpið er
að maður sér þó venjulega við-
komandi fréttamann og vinnu-
brögð hans, góð eða miður
vönduð.
Kjami málsins er sá að í
nútímasamfélagi með nýrri
myndtækni og tækni í tölvu-
grafík fer hættan á að meðtaka
og trúa blint hratt vaxandi. Þar
inn í kemur t.d. allt þetta of-
beldi sem sýnist þar býsna
meinlaust. Því er orðið nauðsyn-
legt að kenna myndlestur strax
í barnaskóla og gera börnin
engu síður en sagnfræðinemana
meðvituð um sannleiksgildið
eða takmarkað sannleiksgildi
þess sem þau sjá. Við verðum
einfaldlega að læra að lifa með
nýrri tækni og siðum.
Gárur
eftir Eltnu Pálmadóttur
MANNLÍFSSTRAUMAR
MATARLIST / Er maburþab sem mabur borbar?
TREFJARÍKT LÍF
TREFJAR eru mér ætíð ofarlega í
huga, og sjaldan verður vísan um-
mikilvægi þeirra fyrir líkamann of
oft kveðin. En hvernig er hægt að
auka trefjaneyslu í hinu oft anna-
sama fjölskyldu- sem einkalífi?
Málið er að þó maður taki upp
trefjaríkar matarvenjur er
ekki þar með sagt að maður þurfi
að stokka upp allan fyrri matseðil.
Maður þarf t.a.m. ekki að hætta
að borða kjöt eða eftirréti ef þeim
er að skipta. Gott
er hins vegar að
venja sig á að
borða meira af
treijaríkum mat,
en minna af mat
sem inniheldur
sykur eða fitu.
Þegar bakað er
væri sterkur leikur
að fara að nota heilhveiti í stað
hvíts hveitis. Það er ekki svo mikil
fóm, en munar miklu hvað næringu
varðar. Heimabakað brauð er yfir-
leitt svo gott að maður þarf varla
smjör á það, notum það a.m.k. í
hófi, jurtaviðbit er náttúrlega holl-
ast. Mér finnst rosalega gott að
væta brauð í ólífuolíu. Heilhveitið
á einnig við í kökubasktri og þær
verða sko síst síðri við það. Mörgum
liggur óskaplega á í vinnuna að
morgni, og gleypa e.t.v. hálfa
brauðsneið og einn kaffisopa á leið-
inni út um dyrnar. En hollur morg-
unmatur krefst iítils undirbúnings.
Hrein jógúrt með ferskum eða
þurrkuðum ávöxtum eða AB-mjólk
með trefjaríku morgunkorni og glas
af ávaxtasafa er ekki flókinn rétt-
ur, en afar hollur.
Við Islendingar borðum mikið af
pasta, aðallega hvítu pasta. Sniðugt
væri að skipta yfir í gróft pasta,
sem fæst nú í miklu úrvali og sama
á við um hrísgijónin. Hvort tveggja
krefst ögn lengri suðutíma, en inni-
heldur mun meira af trefjum og er
saðsamara, en það „hvíta“ og mað-
ur þarf þ.a.l. minna af því til að
borða sig saddan. Hvorki dökkt
pasta né brún hrísgijón hafa hátt
kólesterólhlutfall, en það þarf hins
vegar að passa hvað sett er í sós-
una. Það er ekki nóg að nota gróft
pasta og drekkja því síðan í ijóma-
sósu. Grænmetis- og kjúklingasósa
inniheldur t.d. minna kólesteról en
kjöt- og ijómasósa. Notið heilhveiti
eða hveitiklíð til að þykkja sósur
með, til að þynna er sniðugt nota
hreinan grænmeitis- eða ávaxta-
safa nú eða vatn. Sulta er sniðug
sem bragðbætir í sumar sósur, t.d.
með villibráð.
Breytið „þvoið og skrælið" í „þvo-
ið og borðið" grænmetið og ávext-
ina (þar sem við á), t.d. um kartöfl-
ur, epli, perur o.fl. Gott er að borða
belgbaunarétti 2-3 sinnum í viku.
Ógrynnin öll fást hér af þurrkuðum
baunum, t.d. linsur, azukibaunir og
kíkerturnar góðu sem t.d. gyðinga-
rétturinn falafel er búin til úr (til
gamans má geta að hreint frábært
falafel-mix fæst í Heilsuhúsinu).
Falafel eru kíkertubollur sem frá-
bært er að setja í pítabrauð og
borða t.d. með raitu-jógúrtsósunni
indversku, chutney, rauðkáli, lauk,
og cous-cous. Einfaldara gæti það
ekki verið. Baunir almennt er síðan
sniðugt að nota í súpur, pottrétti,
karrýrétti og salöt, af því þær eru
svo trefja- og prótínríkar. Kjöt er
best í hófi, því þótt maður telji sig
velja magrasta kjötið inniheldur það
samt fitu. Þegar það er eldað er
best að þurrsteikja kjötið til að ná
úr því sem mestri fitu áður en
maður setur grænmeti og annað
sem verkast vill á pönnuna. Það
nauðsynlegata að mínu mati í
hveiju eldhúsi er góð og sterk tefl-
onhúðuð panna, eða önnur panna
sem ekki festist við, þá er auðvelt
að þurrsteikja bæði grænmeti eins
og lauk, sveppi og tómata í súpur
og einnig kjöt. Þannig forðast mað-
ur kólesterólið. Einnig er hægt að
laga alls kyns pitsur, pönnukökur
og kartöflurétti á pönnu án þess
að nota örðu af fitu. Notkun salts
er spurning um bragð, en einnig
um kólesteról, gleymum því ekki!
Hvað mjólkurvörum viðkemur er
best að neyta þeirra sem lægsta
fituinnihaldið hafa. Fiskur er hið
besta mál, því hann inniheldur
ómettaðar fitusýrur ólíkt kjöti, en
'þær eru mun hollari.
í þessum trefjafyrirlestri vitna
ég enn í franska eldhúsheimspek-
inginn og hæstaréttardómarann
Brillat-Savarin, en hann sagði „að
örlög þjóðar ráðist af hvunnda-
gskosti hennar“. Staðhæfing hans
gefur þessum trefjapredikunum
mínum tilgang. Með því að neyta
trefjaríkrar fæðu, sem bæði er holl
og yfirleitt ekki dýr verður auðveid-
ara fyrir launþega þessa lands að
trúa því að launin, burtséð frá
krónutölu, gefi manninum lifibrauð
sem haldi honum gangandi sem
sköpunarverki. Því þó gæs, beikon,
svínakjöt og nautakjöt hafi löngum
verið merki um velmegun og talin
til „eðlari“ fæðu, er hún sú feitasta
sem völ er á, og því ekkert til að
sækjast sérstaklega eftir. Þessi
bannsungna fæða ásamt kaloríurík-
um eftirréttum og kökum þarf ekki
alveg að hverfa af matseðlinum.
Hana er hægt að borða sjaldan, til
hátíðarbrigða í bland við aðra lofs-
ungna fæðu. Það er nú eitt sinn
þannig að maður hlakkar yfirleitt
mikið til þess sem brýtur upp dag-
legt mynstur, t.a.m. hátíða og
þeirra kræsinga sem þeim fylgja.
Hér fylgir hugmynd að eðalmorg-
unverði.
Jógúrt með sveskjum
(fyrir 4)
225 gr sveskjur
2 msk. rúsínur
4 'A dl hrein jógúrt
2 msk. sítrónusafi
Leggið sveskjurnar í bleyti yfir
nótt. Sigtið síðan vatnið frá og sker-
ið til helminga og fjarlægið steina.
Hrærið rúsínum saman við. Blandið
því næst jógúrt og sítrónusafa sam-
an við. Látið standa í kæli í minnst
hálftíma áður en jógúrtin er borin
fram. Berið fram í desertglösum
og skreytið með All Bran.
Gott er að borða líka heimabakað
brauð með og drekka nýkreistan
appelsínusafa í stað kaffis, sem
varast ber að drekka með sýrðum
mjólkurvörum. Borðið magran ost
eða sultu ofan á brauðið og notið
smjörið í hófi eða jurtasmjörlíki.
Ávextir eru mun trefjaríkari en
ávaxtasafi þannig að ekki sakar að
hafa niðurskorið epli eða grape-
ávöxt með í morgunsárið.
eftir Álfheiði Hönnu
Friðriksdóttur
IIÍUÐ
Til sölu 2ja herb. 49 fm. íbúð í
þríbýli að Snorrabraut 75,
Reykjavík. Sameiginlegt þvottahús
í kjallara. Verð kr. 4,7 mtllj.
VEITBNGASTAÐIR
Til sölu þekktur veitingastaður
með góða afkomu, staðsettur
miðsvæðis á Austurlandi. Gott
tækifæri sem býður upp á mikla
möguleika fyrir rétta aðila.
BIFREIÐAVERKST/EÐI
Til sölu bifreiðaverkstæði í eigin hus-
næði á Hóraði. Möguleiki á afram-
haldandi þjónustusamningum við
bifreiðaumboð. Vaxandi verkefni,
tilvalið tækifæri fyrir t.d. tvo sam-
henta menn. Fyrirtækið er í 180 fm.
húsnæði með 4 m lofthæð.
BEÓM- & GJAFAVÖRLR
Til sölu blóma- og gjafavörubúð,
ásamt videóleigu á Áustfjörðum.
Gott atvinnutækifæri fyrir
samhent hjón.
HÓTEL
Til sölu hótel og veitingastaður á
Austurlandi með góð viðskipta-
sambönd. Um er að ræða rotgróið
fyrirtæki sem býr við trausta afkomu
og vaxandi ferðamannastraum.
Upplýsingar veita Þórarinn eða Jónas
í síma 476-1666
FASTEIGNA- & SKIPASALA
AUSTV RLANDS
- tryggir farsœl fasteignaviöskipti ■