Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.02.1997, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 B 9 lítið ljón úr eir með glæsilegan makka sem kom af öskubakka heima hjá Sveini Jónssyni. Styttan fylgdi liðinu í mörg ár og var ætíð sett í gluggann á búningsherberg- inu á Melavellinum eða Laug- ardalsvelli og gat þannig séð yfir völlinn. Ekki skóp ég þá hjátrú að ljónið þyrfti endilega að fylgja liðinu en félagar mínir kröfðust þess, og oftar en ekki neitaði til dæmis Órn Steinsen að fara útá leikvöll fyrr en ég hafði sent eftir ljóninu heim.“ íþróttafréttamennskan „Ég byrjaði snemma að fylgjast með ensku knattspyrnunni og fyrst í gegnum norska blaðið Sportsmanden sem ég fór að kaupa tíu ára gamall í Bókabúð Braga á Lækjartorgi. Þetta var árið 1947 en þá gekk Arsenal vel og var á toppnum. Síðan hef ég stutt við bakið á þeim. í 5. bekk í MR fékk ég svo ósk frá Alþýðu- blaðinu um hvort ég væri ekki til- kippilegur til þess að skrifa um enska boltann í sunnudagsblað Alþýðublaðsins. Þeir vildu komast inná þann markað þar sem Morg- unblaðið var einrátt, að gefa sunnudagsblaðið út á Iaugardags- kvöldi og selja á götunum. Það var alltaf mikil blaðasala á götun- um en almenningur gekk þá rúnt- inn. Keypti fólk gjarnan Moggann á rúntinum og oft eftir böll kippti fólk blaðinu með sér heim. Alþýðu- blaðið vildi vera öðruvísi en Mogg- inn og vildi vera með nýjustu úr- slit frá Englandi. Ég átti að fylla dálka á forsíðu og baksíðu og vann þetta uppj á Alþýðublaði á laugar- dögum. Ég hafði nú ekki mikið fyrir þessu enda hafði ég venjulega eytt laugardögum í að fylgjast með ensku knattspyrnunni hvort sem var.“ Eftir stúdentspróf frá Mennta- skólanum við Reykjavík 1955, gerðist Bjarni stundakennari við Gagnfræðaskóla vesturbæjar og stundaði jafnframt sagnfræðinám við Háskóla íslands áður en hann hóf störf hjá Hamri. Um svipað leyti kynntist Bjarni konu sinni Álfheiði Gísladóttur og eiga þau fjögur börn; Gísla Felix, Bjarna Felix, Ágústu og Aðalbjörgu. Á sjöunda áratugnum var Bjarni öt- ull í félagsmálum, var í stjórn KR og KSÍ og í stjórn og samninga- nefnd Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Árið 1972 hóf Bjarni síðan störf hjá Sjónvarpinu. Festist í sjónvarpinu „Ég hafði um nokkurt skeið séð um enska boltann fyrir sjónvarpið á laugardögum og hafði aldrei ætlað mér að gera neitt annað. Gerði það svo einhvern tímann fyrir Omar Ragnarsson að lýsa einum og einum fótboltaleik hérna heima og hann lofaði að ég þyrfti aldrei að gera neitt annað. Svo bað hann mig fyrir handboltaleik og þá gerðum við skriflegt sam- komulag um að ég þyrfti aldrei að lýsa neinu öðru en handbolta og fótbolta. Það samkomulag stóð í einn mánuð þegar hann bað mig fyrir júdókeppni. Síðan vissi ég ekki mitt ijúkandi ráð fyrr en ég varð fastur hjá Sjónvarpinu. í fyrstu var þetta ekki mikið starf. Ég kom niður í Sjónvarp klukkan fimm, eftir vinnu fyrir VR, og sá um íþróttir fyrir áttafréttir og fór síðan bara heim. Því næst var ég beðinn fyrir tíufréttimar í útvarpið og síðan bættist sífellt við. Sagði það á hveiju ári að nú myndi ég fara að draga mig úr þessu, þar sem ég hafði meira en nóg á minni könnu, en ég hef ætíð haft svo ansi gaman af þessu. Það kemur oft fyrir að ég lýsi hand- bolta- eða fótboltaleik og skemmti mér konunglega en les það svo í blöðunum daginn eftir að leikurinn hafi verið leiðinlegur." Lag Dana „Vi er rode, vi er hvide“ var til dæmis vinsælasta lag Rásar tvö án þess að heyrast nokkurn tímann í útvarpi, heldur eingöngu sem kynningarlag sjónvarpsins. i .. i þeirra „Vi er rode, vi er hvide“ var til dæmis vinsælasta lag Rásar tvö án þess að heyrast nokkurn tímann í útvarpi, heldur eingöngu sem kynningarlag sjónvarpsins. Frá heimsmeistarakeppninni á Spáni fjórum árum fyrr gátum við einungis sýnt í svarthvítu og vegna júlílokunar átti hvorki að sýna undanúrslitaleiki né úrslitaleik. Þá hótaði ég að hætta og útvarpsráð gaf á endanum eftir. Hef ég í ófá skipti hótað að hætta þegar mér hefur þótt útvarpsráð ekki sýna skilning á eðli íþróttanna.“ Starfs- aðstaða íþróttafréttamannsins er gjörbreytt í dag og hafa myndbönd og tölvur þar skipt mestu. Uppá síðkastið hef ég nokkuð nýtt mér alnetið til að afla mér upplýsinga um úrslit leikja, íþróttamenn og margt fleira, en þar er ýmislegt að finna sem stærstu fréttastof- urnar útí heimi greina ekki frá. Ég verð þó að viðurkenna að netið er tímasuga í aðra röndina." Bjami Felixson hefur á löngum ferli lýst hundruðum kappleikja en sá sem honum er efst í huga er landsleikur í handknattleik við Dani á heimsmeistaramótinu í Sviss 1986. „Ég sat við hlið dönsku útvarps- mannanna og var einungis þunnt pappaspjald á milli okkar til að lýsingar okkar blönduðust ekki um of. Allt gekk að óskum í fyrri hálfleik og var jafnt i hálfleik. í síðari hálfleik gekk íslendingum hins vegar allt í haginn og unnu leikinn með níu marka mun. Við markaskorun íslendinga æstist ég um allan helming en þeir dönsku töluðu sífellt minna og svo fór að ég talaði yfir dönsku útsendinguna og lýsti leiknum eiginlega fyrir dönsku þjóðinni um leið. Eftir leik hnipptu þeir í mig og óskuðu eft- ir að fá að ræða við mig og sá ég að þeir voru frekar þungir í skapi. Ég hringja heim úrslit í öðrum leikjum en lét svo tilleiðast og fór inn í blaðamannaherbergi og var þess handviss að nú yrði ég tekinn í gegn. En þar taka þeir á móti mér með níu bjórum, röð- uðum upp í pýramída, og sögðu þetta launin mín fyrir að lýsa leiknum fyrir þá!“ Fyrir skömmu keypti Stöð 2 sýningarréttinn á ensku knat- spyrnunni á íslandi og næsta haust Montreal var opnað örlítið fyrr en hefur sjónvarpsstöðin útsendingar venjulega og því varð ég eini mað- frá knattspyrnuvöllum á Englandi. urinn í tvo daga sem sást í lit. Bjami Felixson hóf störf hjá Sjón- Næsta stóra skref í tæknimálum varpinu til þess að fjalla um enska var stigið 1982 þegar við sýndum boltann og er í hugum margra fyrst beint erlendis frá. Það var frá ómissandi hluti af enska boltanum úrslitaleik ensku deildarbikar- > sjónvarpi. Nú hefur komið fram keppninnar á Wembley milli Liver- ?ð Arnar Björnsson er á leið til pool og Tottenham. Leikurinn var Islenska útvarpsfélagsins á eftir æsispennandi og framlengdur og enska boltanum, en hvað um líklega í fersku minni sjónvarpsá- Bjarna sjálfan? „Um slíkt get ég horfenda enda höfðum við einungis ekkert sagt. Ég mun vissulega gervihnattasamband í 90 mínútur. sakna enska boltans, það segir sig Heimsmeistarakeppnin í knatt- sjálft þar sem ég byijaði að sjá spyrnu í Mexíkó var fyrsti erlendi un} hann og ætlaði aldrei að gera iþróttaviðburðurinn sem við gátum rieitt annað. Varðandi framtíð gert góð skil í sjónvarpi. Sýndi mína vil éS segja eins og knatt- sjónvarpið tvo leiki á dag og mik- spyrnumenmrnir; ég tek einn leik ill áhugi myndaðist meðal lands- fyrir í einu!“ manna, þá sérstaklega vegna Höfundur er nýbakaður vasklegrar framgöngu Dana. Lag íþróttafréttamaður. Á fyrstu árum Bjarna Fel í Sjón- varpinu var mikið umstang að taka upp íþróttaleiki. Myndbönd voru ekki komin til sögunnar og filmur í kvikmyndatökuvélar runnu á enda eftir tíu mínútur. Því var um tvennt að velja, ákveða fyrirfram hvaða hluta leiksins átti að taka upp eða, ef um stærri íþróttavið- burði var að ræða, eyða níu eða tíu filmuhylkjum sem var mjög kostnaðarsamt. „Beinar útsendingar voru ör- sjaldan og þá eingöngu þegar Norðmenn lánuðu okkur tækni- búnað til þess í kringum alþingis- kosningar. Þá reyndum við að nýta búnaðinn sem allra best og héldum íþróttamót í sjónvarpssal. Lyftingar voru á þessum tíma mjög vinsælar og kjörnar til að vera í sjónvarpssal. Auk þess reyndum við fímleikamót sem gengu misjafnlega og einnig fijálsíþróttamót en fræg er senan þegar Jón Olafsson kom skyndi- lega inní sjónvarpssal á harða- spretti en hann hafði þá tekið at- rennuna á ganginum þar sem ekki var hægt að mynda hann. Verst gekk þó badmintonmótið en þar lék Kínveiji sem alltaf skaut bolt- unum uppí Ijósaloft og þeir skiluðu sér ekki aftur. Fyrstur í lit Árið 1976 var ég svo fyrstur manna til að sjást í lit í íslensku sjónvarpi. Sjónvarpið var lokað í júlí eins og menn muna og lita- breytingin fór fram í sumarleyf- inu. En vegna Ólympíuleikanna í BJARNI Fel á sér marg- ar hliðar. Hér má sjá hann á gullaldarárum KR en einnig sem íþróttafréttarita að störfum við heldur bágar aðstæður ásamt Páli Reynis- syni sem horfir í upp- tökuvélina, og gant- ast við keppinautinn af Stöð 2, Valtý Björn Valtýsson. í leik og starfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.