Morgunblaðið - 23.02.1997, Síða 15

Morgunblaðið - 23.02.1997, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 B 15 Stjömustríðsbálknum, bókum, leikföngum, tölvuleikjum og öllu því sem við kemur myndunum, nemi um fjórum milljörðum Bandaríkjadala en það fæst ekki staðfest hjá bókhöldurum Lucas- film. Breytingar Lucas hefur gert smávægilegar breytingar á myndunum fyrir end- ursýningarnar, sem hann hafði verið að íhuga allt frá því myndirn- ar voru gerðar. „Ég var ekki full- komlega ánægður með ýmislegt í fyrstu myndinni; sum brelluskot voru raunverulega aldrei fullklár- uð og atriði vantaði sem ég hafði ekki tök á að fílma vegna peninga- leysis og tímaskorts,“ segir Lucas. Hann hefur bætt nokkrum mínút- um við hveija mynd og endurbætt brelluskotin. í Stjörnustríði er tvennt sem hann hefur aukið við. „Mikil vinna hefur farið í að stækka geimstöðina Mos Eisley. Upphaflega leit hún út eins og lítill bær. Ég hafði aðeins hálfa götu til að kvik- mynda og engar brellur eða baktjöld. í nýju út- gáfunni getum við ferð- ast um geimstöðina, við höfum gert hana meira spenn- andi. Einnig hef ég sett aftur inn í myndina atriði þar sem Han Solo hittir Jabba the Hut en það hafði verið klippt út fyrir frumsýn- inguna. Ég vildi hafa það með vegna þess að það hefur þýðingu síðar meir í tengslum við það sem kemur fyrir Han við lok myndar- innar og ég vildi geta myndað tengsl á milli fyrstu myndarinnar og þeirrar þriðju eins og þau áttu að vera upprunalega.“ Þá hefur hljóðið verið endurbætt og sett í stafrænt form. Stjörnustríð braut blað í gerð ævintýramynda. Aldrei áður höfðu verið gerðar jafnvandaðar og ná- kvæmar og vel heppnaðar kvik- myndabrellur fýrir ævintýramynd (Stanley Kubrick hafði tíu árum áður lagt grunninn að starfi Luc- asar með mynd sinni „2001: A Space Odyssey"). Tæknibrellurnar höfðu þvert á móti tíðum verið akkillesarhæll þeirra. Stjörnustríð var á margan hátt fyrirrennari stóru zilljóndollara brellumynd- anna sem við þekkjum í dag og markaðssetning hennar varð fyrir- mynd þeirrar markaðssetningar sem nú er alvanaleg. Myndin var frumsýnd fljótlega eftir miðjan maí en síðan hefur sá tími verið notaður til að hefja hina ábata- sömu sumarmyndavertíð. Gerð framhaldsmynda varð að viðtek- inni venju eftir að „Empire“ og Jedinn voru gerðar og það sem áður kölluðust litlar B-myndir frá Hollywood urðu risavaxnar, stjörnum prýddar brellumyndir dagsins („Batman“, „Die Hard“). Lucas átti hugmyndina Lucas átti sjálfur hugmyndina að því að endursýna myndirnar hveija á fætur annarri. Nokkrum árum áður en kom að tuttugu ára afmæli Stjörnustríðs fóru menn að velta því fyrir sér hvernig best væri að minnst tímamótanna. „Og ég lagði til að við reyndum að dreifa myndunum sem trílógíu hverri á fætur annarri á fáeinum vikum svo fólk gæti upplifað þær eins og það þijúbíó sem þær áttu alltaf að vera. Ég sagði að það yrði mjög við hæfi á tuttugu ára afmælinu." Hann hafði rétt fýrir sér eins og í ljós hefur komið. Leikararnir í myndunum voru að mestu óþekktir og eru það enn nema Harrison Ford hefur orðið að súperstjörnu og Alec Guinness, sem nú er 82 ára gamall og lék hinn vitra öldung Obi-Wan Kenobi, er næstum alveg hættur kvik- myndaleik. Mark Hamill, sem lék Láka geimgengil, hefur lítið orðið ágengt á leikarabrautinni og Carrie Fisher er þekktari í seinni tíð fyrir að skrifa um Hollywood („Postcards From the Edge“) en leika í Hollywoodmyndum. Flestir aðrir leikarar voru óþekkjanlegir sem Svarthöfði (rödd James Earl Jones), vélmennin C-3PO, R2-D2 eða loðni risinn Chewbacca. Varla þarf að taka það fram að endursýning Stjörnustríðs- bálksins mun auka á spenninginn eftir forsögunni sem Lucas undir- býr nú tökur á af fullum k'rafti. Hann mun sjálfur ætla sér að leik- stýra fyrstu myndinni í næstu trí- lógíu og skrifa handritið en hún mun fjalla um hvernig Svarthöfði hinn ungi, sem í þá tíð hét Anak- in geimgengill, varð verri en allt sem vont er og gekk loks til liðs við hið illa heimsveldi. Er búist við fyrstu myndinni í kvikmynda- hús árið 1999. Lucas á enn eftir að velja dreifíngar- og samstarfs- aðila sinn við gerð myndanna þriggja. 20th Century Fox gerði með honum Stjörnustríðsbálkinn og hefur unnið sér prik með endursýningunum en á það ber líka að líta að vinátta Lucasar og Steven Spielbergs er áralöng og mikil og Spielberg veitti ekki af Kubrick lagði grunn að starfi Lucasar með 2001: A Space Odyssey. kassastykki til að koma fótunum undir nýja kvikmyndaverið sitt, DreamWork. Og spurningin er fyrst þetta gengur svona vel með Stjörnustríðsbálkinn og endursýn- ingarnar hvort markaðsfræðing- arnir í Hollyood fari ekki í fram- haldi að dusta rykið af gömlum myndum, bæta inní þær tölvugraf- ík og endursýna með glæsibrag uppá von og óvon. Næsta endur- sýning: „ET“, gjörið þið svo vel. ERLENT Serbía Draskovic lofar kon- ungdæmi Belgrad. The Daily Telegraph. VUK Draskovic, einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Serbíu, hef- ur lýst því yfír að hann myndi leggja forsetaembættið niður og gera landið að konungdæmi ef hann næði kjöri í forsetakosningum sem ráðgerðar eru í lok ársins. Hann kveðst myndu draga sig í hlé og skrifa skáldsögur byggðar á reynslu sinni af serbneskum stjórnmálum. Draskovic sagði í viðtali um helg- ina að hann vildi fá Alexander Karadjordjevic, krónprins Júgóslav- íu og son Péturs II konungs, til að verða konungur Serbíu. Alexander, sem fæddist í London og býr þar enn, kveðst fús til að snúa til Serb- íu verði hann beðinn um það. Höfum engan skilning á lýðræðinu „Alexander hefur lifað alla ævina í lýðræðisríkjum, Englandi og Bandaríkjunum,“ sagði Draskovic. „Hann er ekki eins og við, sem höfum alist upp við kommúnisma. Við höfum engan skilning á lýðræð- inu. Það sem við þurfum er konung- dæmi, eins og í Bretlandi. Ef þetta gerðist yrði ég mjög ánægður með að geta snúið mér aftur að skáld- sagnaskrifum um allt það sem hef- ur gerst.“ Draskovic viðurkenndi þó að Serbar þyrftu að samþykkja stofn- un konungdæmis í þjóðaratkvæða- greiðslu og ekki er víst að stjórnar- andstaðan sameinist um hann sem forsetaefni sitt. Tilfinningastreita kvenna eykur líkur á hjartasjúkdómum Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. SÆNSK rannsókn virðist stað- festa þá viðteknu skoðun að kven- fólk láti sig tilfinningalífið meiru varða en karlar, sem gangist hins vegar meira upp í vinnunni. Rann- sóknin sýnir að fjölskylduvanda- mál auka áhættu meðal kvenna á hjartasjúkdómum og meðal annars getur skilnaður íjórfaldað áhætt- una. Það er hins vegar vinnustaða- vandi, sem er helsti áhættuþáttur karla, að því er segir um rannsókn- ina í Svenska Dagbladet. Takmark rannsóknarinnar var að kanna samband streitu og hjartasjúkdóma hjá konum og náði hún til 600 kvenna undir 65 ára aldri á Stokkhólmssvæðinu. Helm- ingur kvennanna var hjartasjúkl- ingar, en hinar höfðu ekki kennt sér meins. í ljós kom að marktæk- ur munur var á hópunum að því leyti að í hópi hjartasjúklinganna voru áberandi fleiri konur, sem áttu eða höfðu átt við fjölskyldu- vanda að etja, bæði hjónabands- erfíðleika, ástlaus hjónabönd, skilnaði og erfiðleika barnanna. Skilnaður er sá þáttur, sem einn sér virðist skapa mesta áhættu, eða fjórfalda hættu á hjartasjúk- dómum, meðan hjónabandserfið- leikar rúmlega tvöfölduðu áhætt- una, en þar á eftir kom vinnu- streita og streita vegna barna. Það hefur lengi verið vitað að streita væri áhættuvaldur hvað hjarta- sjúkdóma snerti, en það kemur á óvart að konur skuli svo varnar- lausar gagnvart tilfínningastreitu. Vonast er til að þegar fram í sæki geti niðurstöðurnar nýst í sálrænni endurhæfingu kvenkyns hjarta- sjúklinga, ekki síður en líkamleg endurhæfíng og bættar matar- og lífsvenjur nú. Konudagsblómaúrvahð er hjá okkur Málsverður á Hótei r Oðinsvéum fylgir konudagsblóm- vendinum frá okkur Einnig óvæntur glaðningur frá s^T P.s. Þú getur sparað þer sporm! Heimsendingarþjónusta, símar 561 3030 og 551 9090 blómaverkstæði INNA SKOLAVORÐUSTIG 12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SIMI 551 9090 Næg bílastæbi (Bílastæbahúsib Bergstabir). Ekkert stöbumælagjald um helgar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.