Morgunblaðið - 23.02.1997, Side 16
16 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ATVI NNU\ UGL YSINGA R
Blómabúð
Vanur starfsmaður, sem getur unnið sjálf-
stætt, óskast til starfa. Unnið er á vöktum.
Umsóknum skal skila fyrir 26. febrúar á
afgreiðslu Mbl. merktar: „B-1423".
Fasteignasala
Fasteignasalan Ásbyrgi óskar að ráða
eftirtalið starfsfólk:
1. Sölumann fasteigna. Viðkomandi þarf að
hafa góða framkomu, hafa gott vald á
íslensku, geta unnið við tölvu og hafa bíl
til umráða. Krefjandi starf fyrir kraftmikinn
mann.
2. Ritara til starfa hálfan daginn eftir hádegi
frá kl. 13-18. Starfið felst í almennum
skrifstofustörfum, innheimtu og síma-
vörslu. Umsækjandi þarf að hafa góða
framkomu, hafa almenna tölvukunnáttu
og vera lipur í umgengni.
Upplýsingar um framangreind störf verða
ekki veittar á skrifstofu Ásbyrgis eða um-
sóknir mótteknar þar.
Umsóknir leggist inn á afgreiðslu Mbl.,
merktar: „Á - 15274“, í síðasta lagi fyrir 27.
febrúar nk.
Akureyrarbær
Hæfingarstöðin
við Skógarlund
Þroskaþjálfi óskast til starfa í Hæfingarstöð-
ina við Skógarlund.
Um er að ræða 100% starf deildarstjóra.
Starfsmaður þarf að vera tilbúinn til að taka
þátt í ögrandi og uppbyggjandi starfi Hæfing-
arstöðvarinnar.
Laun samkv. kjarasamningi STAK og Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður
í símum 462-1754 og 462-1755. Uppiýsingar
um kaup og kjör eru veittar í Starfsmanna-
deild Akureyrarbæjar í síma 462-1000.
Umsóknareyðublöð fást á Starfsmannadeild
Akureyrarbæjar og er umsóknarfrestur til 5.
mars nk.
Starfsmannastjóri.
TVÍ
Tölvuháskóli VI,
Ofanleiti 1,
103 Reykjavík.
Lektor við TVÍ
Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands auglýsir
lektorsstöðu í tölvufræðum lausa til umsókn-
ar. Umsækjendur þurfa að vera vel menntaðir
og hafa unnið við hugbúnaðargerð. Tölvuhá-
skólinn býður upp á tveggja ára nám á háskóla-
stigi í kerfisfræði og fyrirhugað er að koma á
fót þriggja ára B.S. námi í tölvufræðum.
Kennarar við skólann hafa aðstöðu til að sinna
rannsóknum og öðrum verkefnum samhliða
kennslu. Til greina kemur að ráða kennara,
sem er að vinna að masters- eða doktorsgr-
áðu í fjarnámi við erlendan háskóla, í hlutastarf.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf, skal skila til skólans ekki
síðar en 17. mars nk. Staðan veitist frá 1.
ágúst nk. eða samkvæmt samkomulagi en
kennsla á haustönn hefst 25. ágúst 1997.
Laun eru samkvæmt samkomulagi við skóla-
stjórn og verða miðuð við menntun og starfs-
reynslu.
Frekari upplýsingar veitir Nikulás Hall,
kennslustjóri. Sími 568 8400, fas 568 8024.
Tölvupóstur nick(a)tvi.is.
Tölvuháskóli Verzlunarskóla Islands.
Ferðamál
25 ára stúlka með BA-próf í frönsku frá HÍ
óskar eftir framtíðarstarfi við ferðamál. Hefur
mikla reynslu. Frábær tungumálakunnátta.
Áhugasamir hafi samband í síma 552 7019
(símsvari).
Laus staða
Staða deildarstjóra á skattstofunni í Vest-
mannaeyjum er laus til umsóknar.
Góð tölvukunnátta áskilin.
Starfsreynsla við bókhaldsstörf æskileg.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Nánari uppl. um starfið veitir undirritaður.
Umsóknir sendist skattstjóra, Heiðarvegi 15,
pósthólfi 256, 902 Vestmanneyjum, fyrir 1.
mars nk.
Vestmannaeyjum, 19. febrúar 1997.
Skattstjórinn í Vestmanneyjum,
Ingi T. Björnsson.
LANDSPÍTALINN
.../' þágu mannúðar og vísinda...
Deildarlæknir óskast
1) Á lungnaskor Vi'filsstaðaspi'tala frá 1.
mars nk. í sex til 12 mánaða stöðu eða eftir
nánara samkomulagi.
Starfið felst í lyflækningum, sérstaklega
greiningu og meðferð lungnasjúkdóma, svo
og svefnrannsóknum og meðferð sjúklinga
með kæfisvefn. Staðarvaktir.
Upplýsingar veitir yfirlæknir í síma 560 2800.
2) á rannsóknastofu Háskólans í meina-
fræði. Lágmarksráðningartími eru þrír mán-
uðir. Ráðningu í eitt ár (eða lengur) fylgir
þátttaka í rannsóknarverkefni samkvæmt
viðmiðunarreglum framhaldsmenntunarráðs
læknadeildar.
Upplýsingar veitir Jónas Hallgrímsson, pró-
fessor, í síma 560 1900.
Geðdeild Landspítalans
Félagsráðgjafi óskast
á endurhæfingarskor í 80% starf. Áskilin er
menntun félagsráðgjafa og reynsla í starfi
æskileg. í starfinu felst almenn félagsráðgjöf
í skorinni og vinna á dagdeild.
Upplýsingar veitir Margrét Jónsdóttir, félags-
ráðgjafi, í síma 560 2600.
Umsóknir berist til Sigurrósar Sigurðardótt-
ur, yfirfélagsráðgjafa, fyrir 15. mars nk.
Meðferðarstjóri óskast
á áfengis- og vímuefnaskor, deild 16, að
Teigi. Teigur er göngu-dagdeild fyrir alkóhól-
ista og vímuefnaneytendur og fíkla með aðr-
ar geðtruflanir. Meðferðin fylgir þeirri stefnu
að vímuefnaneysla sé fjölskyldusjúkdómur
og áhersla lögð á fjölskylduna sem heild.
Starfið felur í sér umsjón með meðferðinni
og stjórnun. Æskilegt er að umsækjandi
hafi háskólamenntun í sálarfræði, félags-
fræði eða sambærilegum greinum og stjórn-
unarreynslu.
Meðferðarfulitrúi óskast
einnig að Teigi. Starfið felur í sér einstakl-
ingsvinnu með fíklum og aðstandendum
þeirra, hópstjórn, fjölskylduviðtöl og fyrir-
lestra. Einhver reynsla af 12-spora meðferð-
arkerfi æskileg.
Skriflegar umsóknir um bæði störfin að Teigi
berist til Óttars Guðmundssonar, læknis,
geðdeild Landspítalans sem veitir nánari
upplýsingar í síma 560 2890.
Umsóknarfrestur er til 10. mars nk.
Skrifstofustjóri
Búðahreppur auglýsir eftir skrifstofustjóra á
skrifstofu Búðahrepps.
Laun fara eftir kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og FOSA.
Skriflegar umsóknir, þar sem greinir frá
menntun og fyrri störfum, sendist skrifstofu
Búðahrepps, Hafnargötu 12,
750 Fáskrúðsfirði.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1997.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri
Búðahrepps í síma 475 1220.
Sveitarstjóri.
Heilsugæslustöðin
Hólmavík
Sjúkrahúsið
á Hólmavík
Hjúkrunarfræðing vantar til sumarafleysinga
á Heilsugæslustöð Hólmavíkur til að leysa
af hjúkrunarforstjóra.
Upplýsingar veitir Sigurósk, hjúkrunarfor-
stjóri, í síma 451-3188, heimasími 451-3435
og Jóhann Björn, framkvæmdastjóri, í síma
451-3395.
Hjúkrunarfræðing vantar á Sjúkrahúsið
Hólmavík til afleysinga í starf hjúkrunarfor-
stjóra frá apríi nk. til 1. nóvember 1997.
Upplýsingar veitir Margrét, hjúkrunarfor-
stjóri, í síma 452-3477, heimasími 451-3173
og Jóhann Björn, framkvæmdastjóri, í síma
451-3395.
Umsóknir, með upplýsingum um fyrri störf
og menntun, sendist til Jóhanns Björns Arn-
grímssonar, framkvæmdastjóra, Borgabraut
6, 510 Hólmavík.
Einnig vantar sjúkraliða/starfsfólk til sumar-
afleysinga á Sjúkrahús Hólmavíkur.
Öllum umsóknum verður svarað.
Ritstjóri óskast
Vaka-Helgafell óskar eftir að ráða til starfa
ritstjóra. Um er að ræða tímabundið starf í
níu mánuði en með möguleika á fastráðningu
að þeim tíma liðnum. Starfið felst í ritstjórn
á einstökum verkum og umsjón með útgáfu
á bókum og blöðum í klúbbum Vöku-Helga-
fells. Auk þess að starfa náið með hönnuð-
um, prófarkalesurum og prentvinnsluaðilum
hérlendis, hefur ritstjórinn töluverð sam-
skipti við erlend bókaforlög og prentsmiðjur.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi
skilyrði:
• Háskólapróf í íslensku eða bókmennta-
fræði.
• Hafa reynslu af ritstjórn og umsjón með
útgáfu á bókum eða tímaritum.
• Geta unnið skipulega og haft umsjón með
stórum og viðamiklum verkefnum.
• Hafa gott vald á að skrifa og tala ensku
og eitt Norðurlandamál.
Skriflegum umsóknum, ásamt meðmælum,
skal skila til Vöku-Helgafells fyrir 5. mars nk.
merktar: „Ritstjóri".
*
VAKÁ-HELGAFELL