Morgunblaðið - 23.02.1997, Qupperneq 24
24 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Atvinna - atvinna
Óskum að ráða í eftirfarandi störf hjá okkur:
Rafvirkjun
Rafiðnfræðingur, rafvirkjameistari, rafvélavirki
eða sveinn í rafvirkjun með þekkingu á almenn-
um lögnum, stýrikerfum og rafbúnaði skipa.
Rafeindasvið
Tæknifræðingur eða rafeindavirkjameistari
með alhliða þekkingu.
Starfið felst m.a. í að veita deild forstöðu.
Skapandi starf fyrir duglegan mann.
Viðkomandi þurfa að hafa þjónustulund og
eiga gott með að starfa með öðrum. í um-
sókn skal gefa upp menntun og fyrri störf.
Allar upplýsingar gefur Sævar Óskarsson.
PÓLLINN HF., Aðalstræti 9, 400 Isafjörður,
s. 456 3092, fax456 4592, po///nn@mmedia.is
Yfirverkstjóri
íÁhaldahús Kópavogs
Tæknimaður óskast til afleysingastarfa í 1 ár
í starf yfirverkstjóra Áhaldahúss Kópavogs.
Ráðningartími frá 15. apríl nk.
Umsóknarfrestur til 7. mars 1997.
Upplýsingar gefur Stefán L. Stefánsson,
deildarstjóri framkvæmdadeildar, í síma
554-1570.
Starfsmannastjóri.
„Au pair“ Stuttgart
Þýsk fjölskylda í Stuttgart með tvö börn, 5 og
9 ára, óskar eftir barngóðri „au pair“, stúlku
eða pilti, í eitt ár frá og með ágúst nk.
Umsóknir á ensku eða þýsku sendist til Fam-
ilie Hoppe, Am Wallgraben 71,70565 Stuttgart.
Ertu að hugsa um að opna
líkamsræktarstöð?
Nú er tækifærið. Hef til sölu notuð tæki fyrir
tækjasal. Gott verð.
Upplýsingar í síma 897 7470.
Atvinna óskast
Fjölskyldumaður óskar eftir framtíðarstarfi,
helst hjá heildsölu. Góð reynsla af sölu-
mennsku og mannlegum samskiptum. Upp-
lýsingar í síma 564-4432.
„Au pair“ Bergen
Læknisfjölskyldu í Bergen vantar barngóða,
áreiðanlega og reyklausa „au pair“ frá og
með apríl ’97, átján ára eða eldri. Tilvalið
fyrir þá sem hafa áhuga á íþróttum og tónlist.
Upplýsingar í síma 004 7552 92509.
Atvinna á Selfossi
Laus er til umsóknar staða forstöðumanns
hjá Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra á
Suðurlandi.
Starf forstöðumanns gerir kröfur um:
- fjölbreytileg samskipti
- sveigjanleika
- ákveðni
- fagleg vinnubrögð.
Æskilegt er að umsækjandi hafi þroskaþjálfa-
menntun eða aðra sambærilega uppeldis-
menntun, og hafi góða þekkingu á málefnum
fatlaðra.
Allar nánari upplýsingar veitir Dóra Eyvindar-
dóttir s. 482 1922.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Bókhald/afleysing
Þjóðleikhúsið óskar eftir starfsmanni til að
sjá um daglegt bókhald í eitt ár. Viðkomandi
þarf að vera vanur að vinna við bókhald og
geta unnið sjálfstætt. Um 80% starf gæti
verið að ræða.
Nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri.
Umsóknir merktar „Bókhald" berist skrifstofu
Þjóðleikhússins, Lindargötu 7, fyrir
10. mars nk.
A
Starfsmenn á
gæsluvöllum
Lausar eru til umsóknar tvær stöður starfs-
manna á gæsluvöllum Kópavogs. Um er að
ræða 60% störf frá 1. apríl og 1. maí nk.
Umsóknarfrestur er til 9. mars nk. Launakjör
samkvæmt kjarasamningum Starfsmannafé-
lags Kópavogs.
Nánari upplýsingar gefur daggæslufulltrúi
Félagsmálastofnunar Kópavogs sími
554-5700.
Starfsmannastjóri.
Nýtt og spennandi!
Við hjá Vöku-Helgafelli erum að setja í gang
nýtt og spennandi verkefni og af því tilefni
óskum við eftir að ráða áhugasamt fólk til
sölu- og kynningarstarfa.
Góð vinnuaðstaða og góð laun í boði fyrir
gott fólk.
Vinsamlegast hafið samband við Sigríði Jón-
asdóttur í síma 550-3000 milli kl. 9-13 mánu-
dag og þriðjudag.
*
VAKA-HELGAFELL
Síðumula 6 - sími 550 3000
Heilsugæslustöðin Sauðárkróki
Læknir
Læknir óskast til afleysinga við Heilsugæslu-
stöð og Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki
í 6-7 mánuði eða samkvæmt samkomulagi.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst.
Jafnframt óskast læknir til sumarafleysinga
á Heilsugæslustöðina.
Mjög góð starfsaðstaða.
Nánari upplýsingar veitir Örn Ragnarsson,
yfirlæknir, í síma 455 4000.
Tæknistjóri
flugvirkjar
Auglýst er eftir tæknistjóra með aðsetur í
Reykjavík til þess að skipuleggja og veita
forstöðu viðhaldi flugvéla Flugfélags íslands hf.
Óskum ennfremur eftir að ráða flugvirkja.
Um er að ræða aðsetur á Akureyri og Reykjavík.
Nánari upplýsingar gefa Páll Halldórsson í
síma 505-0565 og 505-0567 og Jón Karlsson
í síma 461-2102.
Afgreiðslumaður
óskast til starfa í véladeild okkar.
Æskilegt er að umsækjendur þekki til bíla-
og vélaviðgerða og séu á aldrinum 20-40 ára.
Skriflegar umsóknir, merktar: „Afgreiðslu-
maður", með upplýsingum um náms- og
starfsferil berist skrifstofu okkarfyrirfimmtu-
dag 27. febrúar nk.
FÁLKINN
Suðurlandsbraut 8,
108 Reykjavík.
Hf. Eimskipafélag islands annast þjónustu og ráðgjöf á sviði al-
hliða flutninga- og vöruþjónustu
Viðski ptaf ræði ng u r
EIMSKIP óskar eftir ráða viðskiptafræðing í
farmskrárdeild útflutningsdeildar fyrirtækis-
ins. Leitað er að duglegum og áhugasömum
starfskrafti í framtíðarstarf.
Helstu verkefni:
• Umsjón með gjaldskrá og samningum.
• Eftirlit með útgáfu farmbréfa.
• Farmskrárvinnsla.
Hæfniskröfur:
• Stjórnunarhæfileikar.
• Sjálfstæð vinnubrögð.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Góð enskukunnátta.
• Reynsla í tölvunotkun.
Fyrir réttan starfsmann er í boði fjölbreytt
og krefjandi starf með margvíslegum tæki-
færum til faglegs og persónulegs þroska.
Umsóknum skal skilað til Hjördísar Ásberg,
starfsmannastjóra EIMSKIPS, Pósthús-
stræti 2, 101 Reykjavík fyrir 1. mars nk.
EIMSKIP
EIMSKIP leggur áherslu á að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum
hjá félaginu og þar með stuðla að því að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaði.
RAD/A UGL YSINGAR
Garðabær
- einbýli óskast
Einbýlishús eða rúmgóð íbúð óskast til leigu
í Garðabæ. Helst fyrir 1. maí.
Upplýsingar í símum 565 8910 og 565 8610.
Einbýlishús
Gott einbýlishús á Stór-Reykjavíkursvæðinu,
helst með tveimur íbúðum, óskast til leigu í
1 ár.
Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Upplýsingar í síma 567 5071.
3ja herbergja íbúð óskast
Innheimtuþjónustan ehf. óskar eftir 3ja herb.
íbúð í Reykjavík fyrir starfsmann sinn.
Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið
gegn sanngjarnri leigu. Langtímaleiga.
Upplýsingar í síma 553 3666 og eftir kl. 18.00
í síma 553 6196.