Morgunblaðið - 23.02.1997, Síða 28

Morgunblaðið - 23.02.1997, Síða 28
' 28 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Land til leigu - Sogn í Ölfusi 10763 Leigutilboð óskast í hluta jarðar- innar Sogn í Ölfusi til 3ja ára frá og með 1. mars nk. Um er að ræða ræktað og óræktað land samtals 109,2 ha ásamt útihúsum. Tilboð skulu berast Ríkiskaupum, Borgar- túni 7, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14.00 þann 27. febrúar 1997 þar sem þau verða opnuð í viðurvist bjóðenda er þss óska. BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 552-6844, B r é f a s ! m i 562-6739-Netfang: rikiskaup@rikiskaup.is Hestar í óskilum í Grafningi eru þrír hestar í óskilum síðan snemma sumars. Að Bíldsfelli er brúnn, gæfur hestur, í meðallagi stór og á járnum. Að Hlíð er sótrauður, gæfur hestur, tagllaus á járnum. Að Torfastöðum er í óskilum rauð hryssa í meðallagi stór, gæf og brauðvön. Nánari uppl. í síma 482 2656. Hreppsstjóri Grafningshrepps. The Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation Auglýsing um styrki íslandsdeild Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation mun á árinu 1997 verja um 4 milljónum króna til að styrkja tengsl íslands og Japans á sviði vísinda, viðskipta og menn- ingar. Styrki þessa má bæði veita stofnunum og einstaklingum vegna verkefna íJapan eða samstarfs við japanska aðila. Einkum verða veittir verkefnastyrkir tengdir Japan, ferðastyrkir og styrkir vegna skamm- tímadvalar í Japan. í umsókn, sem verður að vera á ensku, sænsku, norsku eða dönsku, skal gefa stutta en greinargóða lýsingu á fyrirhuguðu verk- efni ásamt fjárhagsáætlun og nöfnum a.m.k. tveggja umsagnaraðila eða meðmælenda. Auk þess verður að fylgja staðfesting frá samstarfsaðila í Japan og/eða þeim sem skipuleggur dvölina þar. Fyrir hönd fulltrúa íslands í stjórn Scandina- via-Japan Sasakawa Foundation, tekur ritari íslandsdeildar, Helga Magnússon, Skeiðar- vogi 47, 104 Reykjavík, sími 553 7705, fax 553 7570, við umsóknum og veitir allar frek- ari upplýsingar. Umsóknir skulu berast fyrir 25. mars nk. Menntamálaráðuneytið Styrkir til háskólanáms í Svíþjóð Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til háskólanáms í Svíþjóð námsárið 1997-1998. Styrkfjárhæðin er 7.000 s.kr. á mánuði í átta mánuði. Jafnframt bjóða sænsk stjórnvöld fram tvo styrki handa íslendingum til vísindalegs sérnáms í Svíþjóð á sama háskólaári. Styrkirnir eru til 8 mánaða dvalar V en skipting í styrki til skemmri tíma kemur einnig til greina. Umsóknir um styrkina, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls- götu 4, 150 Reykjavík, fyrir 24. mars nk. Menntamáiaráöuneytið, 21. febrúar 1997. Fræðslumiðstöð Reykjavíkur Innritun ígrunnskóla Reykjavíkur Innritun 6 ára barna (fædd 1991) fer fram í grunnskólum Reykjavíkur dagana 26. og 27. febrúar 1997, kl. 9-16 báða dagana. Sömu daga fer fram innritun skólaskyldra barna og unglinga sem þurfa ða flytjast milli skóla næsta vetur. Þetta á við þá nemendur sem flytjast til Reykjavíkur, koma úr einkaskólum eða þurfa að skipta um skóla vegna breyt- inga á búsetu innan borgarinnar. Þá nem- endahópa sem flytjast í heild milli skóla að loknum 7. bekk þarf ekki að innrita. Vegna skipulagningar og undirbúningsvinnu er nauðsynlegt að öll börn og unglingar sem svo er ástatt um verði skráð. Sömu daga fer einnig fram innritun þeirra barna sem munu sækja lengda viðveru (heils- dagsskóla) næsta vetur. Það er áríðandi að sótt verði um dvöl í lengdri viðveru á tilskild- um tíma þar sem ekki er hægt að ábyrgjast vistun ef sótt er um síðar. Lýðveidissjóður Lýðveldissjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til minni háttar verkefna á sviði vist- fræði sjávar og til eflingar íslenskri tungu. Styrkir geta verið til eins eða þriggja ára. Alls nema styrkirnir ár hvert 5 millj. kr. á hvoru sviði. Umsóknum skal fylgja ítarleg greinargerð þar sem fram komi afmörkun verkefnis, verklýs- ing og verkáætlun og annar rökstuðningur sem máli skiptir. Sérstaklega skal gerð grein fyrir gildi verkefnisins, hagnýtu og/eða fræði- legu, tengslum þess við önnur verkefni og nýmælum, ef þeim er að skipta. Ef sótt er um fé til kaupa á tækjabúnaði, þarf að skii- greina hann eins nákvæmlega og kostur er. Með umsóknum skal fylgja yfirlit yfir fyrri störf og ritverk umsækjenda er máli skipta fyrir þau verkefni sem um ræðir. Þeir sem hlutu styrki úr sjóðnum á fyrra ári, verða aðendurnýja umsókn sína, ef þeir vilja koma til greina við úthlutun þessa árs, en þurfa ekki að senda á ný greinargerðir eða gögn um verkefnið, enda hafi sjóðstjórn þá borist framvinduskýrsla fyrir árið 1996. Sjóðstjórn mun senda umsóknirtil umsagnar sérfræðinga á því sviði sem um ræðir eftir því sem þurfa þykir. Við mat á umsóknum mun stjóðstjórn m.a. taka tillit til eftirfarandi atriða: 1. Vísindalegs og hagnýts gildis fyrirhugaðs verkefnis. 2. Að verkefni sér skýrt afmarkað, markmið skýr og vel rökstudd. 3. Að gerð sé grein fyrir stöðu þekkingar á umræddu sviði og hvernig verkefnið teng- ist fyrri rannsóknum ef við á. 4. Þekkingar og færni umsækjanda. 5. Að verkáætlun sé traust og trúverðug og rækileg kostnaðaráætlun sé í samræmi við markmið. 6. Að verkefnið feli í sér mikilsvert framlag á sínu sviði eða í því felist nýmæli. Umsóknir skal senda til Lýðveldissjóðs, Skrifstofu Alþingis, 150 Reykjavík, eigi síðar en 1. apríl 1997. Úthlutun styrkja mun fara fram 17. júní nk. Tónlist fyrir alla Auglýst er eftir tillögum að tónlistardag- skrám í skólum og fyrir almenning á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla skólaárið 1997- 1998. Hugmyndir þurfa ekki að vera bundnar ákveðnum flytjendum. Þegar tillögur eru metnarereftirfarandi m.a. hafttil hliðsjónar: I. Tónlistardagskrár fyrir skóla skulu vera við hæfi nemenda grunn- og framhaldsskóla og fela með einhverju móti í sér bæði skemmtun og fræðslu og miðast við lengd einnar kennslustundar. Ljóst skal vera með hvaða hætti höfða á til mismunandi aldurs- hópa og tillaga feli í sér hugmynd um áhuga- vert kynningar- og námsefni til nota við kennslu í tengslum við tónleika. II. Flytjendur skulu hafa góða tónlistar- menntun. Að jafnaði skulu þeir hafa haslað sér völl í tónlistarlífi hér á landi. Til greina kemur jafnframt að veita efnilegum tónlistar- mönnum sem eru að stíga sín fyrstu spor, tækifæri á vettvangi Tónlistar fyrir alla. Þeir skulu jafnframt geta boðið fullgilda tón- leikadagskrá til að flytja á opinberum tónleik- um. III. Flytjendur, sem standa að sömu til- lögu, skulu að jafnaði ekki vera fleiri en fimm. Þeir skulu reiðubúnir að fara hvert á land sem er til tónleikahalds í skólum og fyrir al- menning meðan skólar starfa enda standi hver ferð ekki lengur en tíu daga. IV. Tónlistardagskrár með öllum tegund- um tónlistar eiga heima á skólatónleikum uppfylli þær ofangreind skilyrði og skal úrval úr tillögum hverju sinni vera fjölbreytt þar sem gætt er nokkurs jafnvægis milli ólíkra tegunda tónlistar. V. Stuðla skal að því að tónlistarfólk í heimabyggð taki þátt í verkefninu, ýmist með sjálfstæðu framlagi eða með því að taka þátt í tónlistardagskrá aðkomuhópa. Tillögur berist Tónlist fyrir alla, Síðumúla 34, 108 Reykjavík. Verkefnisstjóri veitir allar frekari upplýsingar í síma 588 3153. Skilafrestur rennur út 4. mars nk. Ert þú rétt nærð/nærður? Er ofátið að angra þig? Er blóðsykurinn of hár? Hvað með kólesterolið? Taktu á vandamálinu núna! Hringdu. Næringarráðgjöf Guðrúnar Þóru, sfmi 551 4126. FJÖLBRAlfTASKÓUNN BREIÐHOLTI Námskeiö tyrir sjúkraliða Áfengis- og vímuefnasjúkdómar Námskeið fyrir sjúkraliða sem starfa á öllum sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Fjallað verð- ur um þróun sjúkdómanna og dulin einkenni þeirra á almennri sjúkradeild, áfengisfíkn kvenna o.fl. Námskeiðið er 10 stundir. Kennt verður 4. og 5. mars nk. í Fjölbrauta- skólanum Breiðholti. Námskeiðið hefst kl. 16.15 báða dagana. Skráning á skrifstofu skólans og í síma 557 5600. Skólameistari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.