Morgunblaðið - 23.02.1997, Qupperneq 30
30 B SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuhúsnæði
Til leigu er u.þ.b. 70 fm húsnæði á jarðhæð
í norðurhluta Sjálfsbjargarhússins, Hátúni
12. Húsnæðið samanstendur af tveimur rúm-
góðum herbergjum, gangi, salerni og lítilli
geymslu.
Upplýsingar veitir Sigurður Einarsson í síma
552 9133.
Suðurlandsbraut 54
Til leigu eru eftirtaldar einingar á Suðurlands-
braut 54.
A) 160 fm áberandi mjög gott verslunarhús-
næði á jarðhæð. Húsnæðið er í dag einn
salur, hefur mjög góða verslunarglugga og
snýr að Suðurlandsbraut. Laust strax.
B) 100 fm fallegt og vel innréttað skrifstofu-
húsnæði á 2. hæð. Húsnæðið skiptist í góða
móttöku, 3 góð skrifstofuherbergi og
geymslu. Laust 1. maí nk.
Upplýsingar veitir:
Ásbyrgi fasteignasala,
Suðurlandsbraut 54,
sími 568-2444.
Skrifstofuhúsnæði óskast
Höfum verið beðnir um að útvega til kaups
600 fm skrifstofuhúsnæði í Reykjavík, vestan
Elliðaáa, fyrir mjög traust og fjárhagslega
sterkt fyrirtæki. Húsnæðið þarf m.a. að vera
með rúmg. skrifstofuherb., fundarherb.,
móttöku og skjalageymslu. Umhverfið þarf
að vera snyrtilegt, aðkoma góð og næg bíla-
stæði. Óinnréttað húsnæði kemurtil greina.
A tvinnuhúsnæði,
Skipholti 50B,
105 Reykjavík,
sími 511-1600.
Atvinnuhúsnæði
Til sölu er atvinnuhúsnæði í Breiðholti sem
hentar vel fyrir skrifstofu eða smáiðnað.
Eignin skiptist í tvær hæðir, 20 fm kjallara
og 80 fm hæð.
Aðkoma er góð og almennt ástand er gott.
Selst á góðu verði ef réttur aðili finnst.
Fyrirspurnir sendist auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „E-1819".
Hvöt,
félag sjálfstæðiskvenna í
Reykjavík
Hvatarkonur og aðrir velunnarar féiagsins fjölmennum og gleðj-
umst saman vegna 60 ára afmælis Hvatar í afmælishófi í boði stjórn-
arsem haldið verður íValhöll laugardaginn 1. marskl. 17.00-19.00.
Stjórnin.
Opinn fundur um orkumál
í Reykjaneskjördæmi
Morgunverðarfundur Landsmálafélagsins Fram verður í Sjálfstæðis-
húsinu, Hafnarfirði, sunnudaginn 23. febrúar kl. 10.30.
Þingmenn og nokkrir af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins í bæjar-
stjórnum í kjördæminu hefur verið sérstaklega boðið til þessa fund-
ar, auk sérfræðinga frá Orkustofnun og Hitaveitu Suðurnesja.
Komið og kynnið ykkur hvar möguleikar okkar í orkumálum iiggja!
Landsmálafélagið Fram, Hafnarfirði.
Sumarhús óskast
Óska eftir 40-60 fm sumarhúsi til flutnings.
Staðgreiðsla í boði. Hámarksverð 1 millj.
Upplýsingar í síma 893 9855.
v
1) Gengilbeina
Já, ég ætlaði að fjalla um fyrri störf,
jafnmörg Vatnsdalshólum. Gengilbeina
var ég líka en fyrst var ég í uppvaskinu
því ég var bara sextán. Aldrei gleymi ég
lyktinni af vínleifum og sítrónum (oj!)
alltaf hálfgert maus að ná úr glös-
unum. Romm og kók fékk fólkið
sér og sítróna upp á punt (íslend-
ingar kunna ekki að meta delikat-
essa, fína tóna, bragðauka, töts,
nei sturta í sig, háma og troða
(ó)menningu oní sig) og sumir
fengu sér grænan pernó þá hélt
ég að einn daginn yrði ég eins og
hinir (fengi mér hitt og þetta)
ekkert bólar á því enn. Mér býður
við íslenzkum lífsmáta, á alla
kanta held ég bara, og mörg glös-
in höfðu rauðleitan blæ einhvers
glundurs og allt lyktaði þetta eins
og úr helvíti og innst inni vissi
ég að ég mætti þakka mínum
sæla að sleppa lifandi út úr þessu
völundarhúsi, mannskemmandi, á
meðan allir aðrir létu sér vel líka.
Skemmtu sér. Klikk!
Ári seinna var ég á per stöku
sinnum á bar í útjaðri Manchester
og hef því samanburð. Ég man að
ég mundi í huganum hvað heilu
og hálfu borðin vildu fá sér: Einn
pænt af lageröli, 3 bitter eitthvað,
7 æ þessi dökkbrúni mjöður hvað
hét hann (þetta var fyrir tuttugu
og fáum árum) nú aftur, en þá
mundi ég þetta allt allt heila kvöld-
ið hvað hver og einn hafði fengið
sér. Svo sagði fólkið: Og fá þú þér
svo einn sjálf (ég var sautján)
kva... en ég drakk ekki og alls
ekki þama á vinnustaðnum en þá
meinti það að ég ætti að eiga sem
næmi verði eins drykks og var
þetta hugsað sem kaupauki, tips!
enda var ég að spara fyrir gjöfum
til að hafa með til íslands. Helzt
vildi ég verða þarna eftir en það
fékkst bara leyfi í eitt ár og send
heim með skipi til landsins kalda
út í gegn.
Beint í Verzló, bezta skóla í
heimi, bezt í ensku berfætt í sand-
ölum í september stuttklædd með
alpahúfu. Það bendir til geðklofa
þegar ósamræmi er milli höfuð-
Fyrristörf
Borgarpistill
Sumir hafa komið svo víða víð á vinnumarkaðinum,
að með ólíkindum má telja. Ingibjörg Elín
Sigurbjörnsdóttir fjallar í Borgarpistli
m eitt af fyrri störfum sínum, sem hún segir
jafnmörg Vatnsdalshólum.
VIBBI litli
Málverk/Sigurður Eyþórsson
fats og skófatnaðar, só vott. En þarna
var komið eitthvert los á mig og víst var
bókfærsla létt og allt stemmdi en ekki
hjá kennaranum en þeir voru og eru sjálf-
ir alltaf að gorma sig upp hringstigann
með Tópas og tyggjó.
- „Viltu leysa eina af hérna á stilling-
unni?“ spurði þjónninn (stillingunni, hvað
er nú það?) Ég varð fljótlega beðin að
vinna á einhverri stillingunni - „hjá Óla
eða Pétri“ hétu þeir, yndislegt fólk og
snöggt upp á lagið og ekki sporlatt. Kvikk!
Stilling er ákveðið borðasvæði með hvít-
um dúkum og kertaljósum, afmarkað
teppalögðum gangfleti eða súlu, heimur
út af fyrir sig, dinnermúsík meðan skver-
að var af og hugsað: ætli þetta sé lífið?
fullorðna fólksins, þau tala í svo lágum
hljóðum, brosa blíðlega og hressilega til
mín eins og ég sé ekki tilbúin,
hafi lifað of stutt, ég sem hafði
verið heila eilífð í Englandi. —
„Þessir stólar fylgja þessum_ borð-
um“ já spekin leynist víða. Ég var
með stutta tjásuklippingarhárkollu
sem ég hafði keypt í Englandi því
þar eru allir svo vannærðir og illa
útlítandi með grænar tennur af
tedrykkju, sem veldur e-vítamíns-
korti, blóðlaus og með svo matt
hár að þurfti hárkollur og var bara
nokkuð almennt nema þannig
þekkti mig enginn sem betur fer
enda þekkti ég ekki svona fullorð-
ið fólk sem hékk á bar í Klúbbn-
um, ég hafði heyrt um þúsund-
krónubekkinn og einn benti á einn
bekk hálfhringlaga og ég hugsaði:
hvernig kemst það fyrir þarna og
sagði: - „Nei, sá bekkurerþama,"
og benti eitthvað í myrkrinu.
Kannski var þetta bara lygi. Á
íslandi er svo margt sagt en mað-
ur má alltaf reikna með að helm-
ingurinn sé sagt svona til bráða-
birgða því það þarf að redda still-
ingunni fyrir kvöldið og mylja
klaka og panta í buffetinu dúbon-
nett og gin og vodka (mest af
því) og bakkardí og kók þá þurfti
að opna allar með upptakaranum
undir borðinu allt litlar flöskur,
nei, ég lýg það var kútur en
ummmm að gera að hrúga nógu
miklum klaka í glösin svo kúnninn
fengi minna af dýru veigunum. -
„Vertu svo snögg að hella úr
sjússamælinum yfir í glasið, það
var lagið,“ sagði stuttur þjónn, -
„og helzt þannig að það nái ekki
upp að röndinni og láttu kúnnann
ekki sjá það fyrir alla muni. Svona
drýgjum við dýrmætan sopa.“
Eg þvoði öll föt strax sama
kvöld. Svuntan hvíta í vaskafatið
og hárkollan oj, reykingalyktina
lagði um allt en sítt hárið undir
var ekki eins stækjað svo ég gat
sofið með það mér við hlið.
HAPIÐI séð hvernig í biðröðum
skemmtistaða sumir þeirra sem
mæta síðastir í röðina komast þó
fyrstir inn, troða sér, smygla sér, þekkja
dyravörðinn eða eru með syndakvittun upp
á vasann, vip, eða hei, kannastu ekki við
mig? og viti menn þeir síðustu munu verða
fyrstir ... inn í gættina.
Svona rétt áður en ég geispa golunni
ætla ég að leiða villuráfandi sauði í allan
sannleikann um vinnustaði landsins. Ég
hef kannað aðstæður ef svo má segja.