Morgunblaðið - 04.05.1997, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 4. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Þeir félagar Bubbi
Morthens og Kristján
Kristjánsson hafa verið
í hópi vinsælustu tón-
listarmanna landsins
undanfarin misseri. Þeir
sögðu Arna Matthías-
syni af því aðþeir
hygðu á náið samstarf
næstu mánuði.
BUBBI Morthens og Kristján „KK“
Kristjánsson hafa verið í hjópi vin-
sælustu tónlistarmanna landsins
undanfarin ár; Bubbi allt frá því
ísbjamarblús kom út fyrir sautján
árum og Kristján frá því hann sendi
frá sér breiðskífuna Lucky One fyr-
ir tæpum fímm árum, þá nýfluttur
hingað til lands eftir langvarandi
búsetu erlendis. Lucky One var
meðal annars merkileg fyrir það
að það var fyrsta plata í áraraðir
sem náði að seljast meira en plata
með Bubba Morthens, en 1992
sendi Bubbi frá sér „Kúbuplötuna"
Von.
Upp frá því hafa margir litið á
þá Bubba og Kristján sem keppi-
nauta og þá litið framhjá því hvað
þeir eru ólíkir tónlistarmenn að fást
við ólíka hluti og þegar við bætist
að þeim er vel til vina verða allar
vangaveltur um markaðsglímu hjá-
kátlegar. Það kemur því ekki þeim
sem til þekkja á óvart að þeir hyggi
á samstarf eins og það sem hefst
annað kvöld í Þjóðleikhúskjallaran-
um, en það er aðeins forsmekkur-
inn; fyrstu tónleikar samstarfs þar
tónleikar eins og nú stendur til.
Þeir félagar rifja líka upp að fyrir
ekki svo löngu hittust þeir reglulega
heilan vetur og léku sér með hug-
myndir, sömdu saman á annan tug
Iaga sem beðið hafa í salti. „Það
varð mikið til af músík á þeim tíma,“
segir Kristján, „og það verður ör-
ugglega gefíð út einhvem tíma.
Málið er bara að við eru samnings-
bundnir ólíkum útgáfufyrirtækjum
sem eru í harðri samkeppni og því
ólíklegt að af því verði í bráð,“ seg-
ir hann og bætir við að einhver
umræddra laga verði væntanlega á
tónleikadagskrá þeirra, þó ekki hafí
þeir valið lög á tónleikana I Þjóðleik-
húskjallaranum annað kvöld.
Fyrstu tónleikarnir
í langri ferð
Tónleikarnir í Þjóðleikhúskjallar-
anum verða fyrstu tónleikarnir í
langri ferð, því þeir stefna á spilirí
í allt sumar. Fyrst er að ljúka við
ýmis verkefni; Bubbi lauk fyrir
skemmstu við upptökur á breiðskífu
sem kemur út fyrir jól og Kristján
hefur í nógu að snúast; er að semja
tónlist við verðlaunaverk Benónýs
Ægissonar, tekur þátt í flutningi á
breiðskífu Bítlanna um Pepper lið-
þjálfa og síðan ætlar hann að taka
upp plötu síðsumars, kassagítar-
plötu eins og hann segir sjálfur frá.
Þeir segjast vænta þess að sam-
starf þeirra félaga verði gjöfult og
skemmtilegt umfram allt; það er
svo margt í tónlist okkar sem fellur
vel saman,“ segir Kristján og Bubbi
segir að þeir þekki lög hvor annars
út í æsar og nú séu þeir að velja
lög sem falli vel að ólíkum gítarleik
þeirra. „Við ætlum að fara með list-
ina til fólksins, bjóða fólki út um
land að koma í félagsheimili eða
skóla og hlusta á okkur, bjóða fólki
upp á tónleika, en ekki fyllerí.“
Morgunblaðið/Kristinn
Listin til fólksins
sem þeir hyggjast meðal annars
fást við ýmisleg lög sem þeir hafa
samið saman á undanförnum árum.
Þekkst frá
þrettán ára aldri
Þeir Bubbi og Kristján segjast
hafa þekkst frá því þeir voru þrettán
ára og þó samgangur hafí ekki ver-
ið mikill, meðal annars vegna þess
að Kristján bjó erlendis um hríð, þá
hafí þeir alltaf vitað hvor af öðrum
og fylgst með úr fjarlægð. Tónlistar-
legur bakgrunnur þeirra er um
margt líkur; báðir heilluðust af
bandarískum blús og þjóðlagatónlist,
en hafa unnið úr því á ólíkan hátt.
„Bubbi hefur gefíð út svo mikið af
plötum að hann hefur farið um víðan
völl í tónlist," segir Kristján, „sem
skilur helst á milli okkar, en ég á
örugglega eftir að reyna ýmislegt;
ekki má gleyma því að ég hef ekki
gefíð út nema fimm plötur.“
Margir hafa talið þá félaga keppi-
nauta eins og getið er, en þeir blása
á allt slíkt tal, skella reyndar uppúr
þegar það berst í tal. „Ári eftir að
Kristján flutti heim til íslands lék
þann með mér á tónleikaplötu,“ seg-
ir Bubbi og bætir við að þeir hafí
margoft troðið upp saman af ýmsu
tilefni, þó ekki hafí það veri heilir
Arangur samvinnu
í textílhönnun
UNDANFARIN ár hafa Textíldeild
MHÍ og ístex hf. átt samstarf um
ýmis verkefni á sviði textílhönnunar.
I vetur gerðu deildin og ístex með
sér samning um samvinnu að nám-
skeiði í prjónahönnun/prjónatækni
fyrir nemendur á öðru ári. Istex lagði
nemendum til efni en skólinn
kennslu og aðstöðu. Markmið nám-
skeiðsins var að nemendur lærðu að
vinna hugmyndir og skissur mark-
visst fyrir prjón.
Nemendur hönnuðu fatalínu að
eigin vali og lögðu fyrir dómnefnd.
Kennarar voru Guðrún Gunnars-
dóttir og Amþrúður Ösp Karlsdóttir.
Auk þess sá Guðríður Ástgeirsdóttir
textílfræðingur hjá ístex hf. um að
kynna nemendum framleiðsluferlið
frá skissu hönnuðar að prjónaðri flík.
í tengslum við þetta námskeið heim-
sóttu nemendur Þjóðminjasafnið,
Garnaverslunina Storkinn, Ptjóna-
stofuna Janus, Saumastofuna Tinnu,
Gretu Sörensen prjónahönnuð, auk
ístex hf.
Mánudaginn 5. maí kl. 13 verður
afrakstur námskeiðsins kynntur
þeim aðilum sem stóðu að námskeið-
inu og tóku á móti nemendum, auk
gesta. Fullbúnar flíkur og skissur
verða til sýnis og verkefnið kynnt.
Kynningin fer fram í húsnæði MHÍ
Skipholti 1, 3. hæð, „Barmahlíð".
STYRKURTIL
TÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á
þessu ári veita tónlistarfólki styrk tilframhaldsnáms
erlendis á nœsta skólaári 1997-1998.
Veittur verður styrkur að upphæð kr. 500.000.-
Verður þetta fimmta úthlutun úr sjóðnum.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráform sendist fyrir 25. maí nk. til
formanns sjóðsins:
Erlendar Einarssonar,
Selvogsgrunni 27,
104 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár
frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna
hæfni umsækjanda.
Tvær sýningar eftir á
Litla-Kláus og Stóra-Kláus
NÚ ERU aðeins tvær sýningar
eftir á barnaleikritinu um
Litla-KIáus og Stóra-KIáus á
Stóra sviði Þjóðleikhússins.
Leikritið byggist á sam-
nefndu ævintýri H.C. Andersen
og segir frá Litla-Kláus sem
er bláfátækur en bæði glaður
og nægjusamur. Stóri-KIáus er
hins vegar alveg steinríkur en
bæði skapillur og gráðugur. Er
sagan sögð með ívafi af tónlist,
dansi og gamni.
Þórarinn Eldjárn samdi söng-
textana, lýsingu hannaði Jó-
hann Bjarni Pálmason, höfund-
ur leikmyndar og búninga er
Messíana Tómasdóttir, danshöf-
undur Ástrós Gunnarsdóttir.
Jóhann G. Jóhannsson, tónlist-
arstjóri Þjóðleikhússins samdi
tónlistina og leikstjóri er Ásdís
Þórhallsdóttir.
Leikendur eru Bergur Þór
Ingólfsson, Sigrún Edda Björns-
dóttir, Bryndís Pétursdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir, Orn Árna-
son, Magnús Ragnarsson, Harpa
Arnardóttir, Ragnheiður
Steindórsdóttir, Vigdís Gunn-
arsdóttir, Jóhann Gunnar Jó-
hannsson, Sveinn Þórir Geirs-
son og Valur Freyr Einarsson.
Síðustu sýningar eru í dag
og 11. maí.
Vorhátíð Skóla-
hljómsveitar
Grafarvogs
VORHÁTÍÐ Skólahljómsveitar
Grafarvogs verður í dag og hefst
með því að hljómsveitin leikur á
skemmtun eldri borgara í Laugar-
dalshöll. Eftir skemmtuninn, kl. 15,
verður haldið upp í Húsaskóla, þar
sem hátíðinni verður fram haldið.
Þar koma fram allir nemendur
blásaraskólans ýmist einir sér eða
við píanóundirleik Unnar Vilhelms-
dóttur. Gestir Tónskóla grunnskól-
anna í Grafarvogi koma í heimsókn
og leika á píanó og forskólanemar
leika eigin útsetningu á lagi úr
Konungi ljónanna. Foreldrafélag
sveitarinnar verða með kaffiveiting-
ar og kökuhlaðborð gegn vægu
gjaldi.
Landsmót Samtaka íslenskra
skólalúðrasveita verður haldið í vor
í Grafarvogi og munu um 700 ung-
ir tónlistarmenn koma til Reykja-
víkur og halda alls um 60 tónleika
í Reykjavík 29.-31. maí næstkom-
andi. Þetta verður í fyrsta sinn sem
landsmótið er haldið í Reykjavík.
Vortónleikar Ár-
nesingakórsins
ÁRNESINGAKÓRINN í Reykjavík
heldur vortónleika sína í Lang-
holtskirkju í dag kl. 16. Á efnis-
skránni má m.a. sjá lög eftir ísólf
Pálsson, Pál ísólfsson, Gershwin,
Silcher og Schrader.
Einsöngvarar með kórnum eru
Elísabet F. Eiríksdóttir og Magnús
Torfason, Árni Sighvatsson, Ing-
var Kristinsson, Þorsteinn Þ.
Bjarnson og Þorsteinn Þorsteins-
son. Kristján Stefánsson frá Gil-
haga leikur á harmonikku og Einar
Þorvaldsson á gítar. Undirleikari á
tónleikunum er Bjarni Jónatans-
son. Stjórnandi kórsins er Sigurður
Bragason.
Laugardaginn 10. maí kl. 20.30
verður kórinn með tónleika í Dala-
búð, Búðardal. Þar mun söng-
félagið Vorboðinn einnig koma
fram.
Tónleikum í
Kópavogskirkju
frestað
TÓNLEIKUM sem vera áttu í
Kópavogskirkju í kvöld, sunnudag-
inn 4. maí, verður frestað um eina
viku vegna veikinda og verða þeir
haldnir sunnudaginn 11. maí kl. 21.
Þar koma fram Ingibjörg Marteins-
dóttir sópran; Einar S. Einarsson
og Kristinn Árnason, gítar, ásamt
Erni Falkner orgel.
Orgeltónleikar í
Grensáskirkju
ORGELTÓNLEIKAR verða í
Grensáskirkju mánudaginn 5. maí
kl. 20.30. Órgelleikari kirkjunnar,
Árni Arinbjarnarson, leikur orgel-
verk eftir Sweelinck, Buxtehude,
Bach og Jón Þórarinsson.