Morgunblaðið - 11.05.1997, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.05.1997, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Óveðursský hrannast upp yfir Kennedy- fjölskyldunni Hneykslismál umlykja nú enn einu sinni Kennedy-fjölskylduna. Tveir synir Bobbys Kennedys, Michael og Joseph, njóta nú lít- illa vinsælda. Annar þeirra á yfír höfði sér ákæru fyrir nauðgun fyrír að hafa staðið í ástarsambandi við unglingsstelpu og hinn þykir hafa farið harkalega með fyrri konu sína. í Massachusetts hafa margir fengið nóg af frægustu fjölskyldu Bandaríkjanna. BANDARÍKJAMENN eiga sér enga konungsfjöl- skyldu eins og Bretar, en þeir eiga ígildi hennar í Kennedy-fjölskyldunni, sem hefur sett mark sitt á bandarískt þjóðlíf á þessari öld. Fjölskyldan hefur orðið fyrir mörgum áföllum og oft hefur virst að hún væri í álögum. Alltaf hefur þó almenningur verið reiðubúinn að fyrirgefa. Nú eru hins vegar komin upp tvö mál, sem ýmsir segja að gætu fyllt mælinn og orðið til að gera að engu frama- vonir Josephs Kennedys í stjómmál- um. Ástarsamband við barnapíuna Fyrir rúmri viku greindi dagblað- ið The Boston Globe frá því að Michael Kennedy, sonur Bobbys Kennedys, hefði verið í ástarsam- bandi við barnapíu fjölskyldunnar á heimili hennar í Cohasset í Massa- chusetts-ríki. Stúlkan hefur ekki verið nafngreind, en hún er sögð 19 ára gömul. Samkvæmt frásögn- um fjölmiðla lauk sambandi Micha- els Kennedys við stúlkuna haustið 1996 og gæti það hafa hafist þegar hún var 14 ára. Stúlkan er dóttir áhrifamikilla hjóna í Cohasset, sem eru góðvinir Michaels Kennedys og konu hans, Victoriu Gifford. Saksóknarinn á staðnum er nú að rannsaka málið og hafi samband þeirra hafíst þegar stúlkan var 14 ára gæti Michael Kennedy átt yfír höfði sér dóm fyrir nauðgun. Þetta mál hefur leitt til þess að ýmis fyrri hneyksli hafa verið rifjuð upp. Árið 1991 var William Kennedy Smith ákærður fyrir nauðgun í Flórída og sýknaður, en mikið var gert úr málavöxtum, meðal annars því að áður en hin meinta nauðgun átti að eiga sér stað hafði Edward Kennedy, öld- ungadeildarþingmaður og sá eini, sem eftir lifir af Kennedy-bræðrun- um fjórum, dregið frænda sinn til drykkju um miðja nótt á páskahá- tíðinni. Vinsælu sænsku KWA garðhúsgögnin eru komin r. nvarin ■ Gæði og ending 15 ára reynsla á íslandi Ármúla 8-108 Reykjavík Sími 581-2275 «568-5375 • Fax 568-5275 Undir smásjá fjölmiðla KENNEDY-fjölskyldan er enn á ný undir smásjá fjöl- miðla vegna hneykslismála. Á myndunum eru (frá vinstri) Michael Kennedy, Joseph P. Kennedy II, William Kennedy Smith, Sheila Rauch Kennedy og Edward Kennedy. áberandi, en Michael er enginn við- vaningur í stjórnmálum. Hann stjórnaði meðal annars erfíðri kosn- ingabaráttu Edwards Kennedys fyrir endurkjöri í öldungadeild Bandaríkjaþings árið 1994 og tókst að knýja fram sigur. „Lífið er stund- um barátta fyrir okkur öll og okkar fjölskylda er ekki frábrugðin öðr- um,“ sagði Joseph Kennedy um bróður sinn. „Hún fær bara dálítið meiri athygli en aðrar fjölskyldur eins og þið getið séð.“ Skilnaður dugði ekki En hann getur ekki aðeins kennt bróður sínum um hina neikvæðu athygli. Árið 1991 skildi Joseph Kennedy við konu sína, Sheilu Rauch Kennedy. Sá skilnaður var borgaralegur. Tveimur árum síðar sagði Joseph, sem vitaskuld er kat- ólikki, henni að hann hygðist láta kirkjuna ógilda hjónaband þeirra til þess að hann gæti kvænst annarri konu sinni í kirkju og farið að ganga til altaris að nýju. Katólska kirkjan í Boston samþykkti ógildinguna í haust í fyrra, en Sheila hefur áfrýj- að þeirri ákvörðun og er málið nú til umfjöllunar í Páfagarði. Sheila Rauch Kennedy lét ekki þar við sitja heldur skrifaði bók um málið, „Brostið traust“ (Shattered Faith), sem er nýkomin í bókabúðir og er til umræðu í öllum kjaftaþáttum bandarísks sjónvarps. í bókinni er að fínna ófagrar lýsingar á fram- ferði Josephs Kennedys. Hún segir að hann hafí komið fram við sig af mikilli frekju, sem hafí aukist jafnt og þétt, og látið eins og hún væri einskis virði. „Þegar hjóna- bandinu lauk var ég einfaldlega orðin hrædd við hann,“ skrifaði Sheila um Joseph. Hún lýsir degin- um, sem hann bað um ógildingu hjónabandsins: „Um leið og ég hraðaði mér inn á salemið reyndi ég að rifja upp hvenær ég hefði síðast kastað upp ... Ég man að ég hugsaði að Joe hlyti einfaldlega að vera genginn af göflunum." Þeg- ar hún kvaðst ekki vilja ógilda hjónabandið sagði hann: „Hvaða rétt hefur þú til að vera andvíg?" Örlagaríkt kvöld árið 1969 er reyndar talið hafa gert út um draum Kennedys um að verða forseti. Þá fór bíll hans út af brú með þeim afleiðingum að Mary Jo Kopechne, sem var með honum í ökutækinu, drukknaði og er enn verið að gefa út bækur um það hvort Kennedy- fjölskyldan hafí gert samsæri til að hylma yfír það, sem raunverulega gerðist í Chappaquiddick. Óheppileg tímasetning Tímasetningin á uppljóstruninni á sambandi Michaels Kennedys við bamapíuna er afar óheppileg fyrir bróður hans, Joseph. Joseph Kennedy hefur setið á þingi um nokkurt skeið fyrir demókrata en hefur nú augastað á ríkisstjóra- stólnum í Massachusetts, þar sem repúblikani að nafni Will- -------- iam Weld hefur setið frá því að Michael Dukakis, forsetaframbjóðandi demókrata 1988, fór frá. Bill Clinton Bandaríkja- forseti hyggst nú gera Weld að sendiherra í Mexíkó og hefði það átt að greiða götu Kennedys, sem hafði fyrir fjórum mánuðum afgerandi forskot á Paul Cellucci, vararíkisstjóra, sem tekur við af Weld samþykki þingið að hann verði sendiherra, samkvæmt skoðanakönnunum. Joseph Kennedy hefur alltaf verið nokkuð vinsæll, en nú virðast stuðnings- menn hans vera að snúa við honum baki í hrönnum. íbúar Massachus- etts hafa sjaldnast hikað við að kjósa einhvern úr Kennedy-fjöl- skyldunni og aldrei hefur frambjóð- andi úr fjölskyldunni beðið lægri hlut í kosningum þar. Svo virtist sem honum mundi ekki verða skota- skuld úr því að sigra í ríkisstjóra- kosningunum, sem haldnar verða á næsta ári, en nú kynnu að vera ýmis tormerki á því. Bræðurnir Joseph og Michael eru nánir. Joseph hefur verið meira Hjá þeim endurtekur sagan sig aftur og aftur Kjósendur margir fullsaddir Kjósendur í kjördæmi Josephs Kennedys, sem nær meðal annars til Boston og Cambridge, eru marg- ir óánægðir. Sumir benda á að hægt hafí verið að fyrirgefa Ed- ward Kennedy ýmislegt vegna þess að hann hafi alltaf haft áhrif og völd á þingi. Það væri hins vegar ekki hægt að nota völd Josephs í fulltrúadeildinni sem afsökun fyrir því að kjósa hann. Aðrir segja ein- faldlega að mælirinn sé fullur. „í gegnum árin hef ég oft lokað augunum þegar hegðun Kennedy- fjölskyldunnar var annars vegar, en nú býr mér ekki örlæti í huga gagnvart þeim,“ sagði Margie Ull- man-Weil, sem í tíu ár hefur kosið Joseph Kennedy án umhugsunar, í samtali við The Boston Globe. „Hvemig er hægt að ógilda hjóna- _________ band, sem hefur staðið í öll þessi ár og fætt af sér tvö börn? Hvað þýðir þetta fyrir börnin? Að hann hafi í raun sagt að hjónabandið hafí aldrei ” verið til?“ Annar kjósandi var ómyrkur í máli. „Þetta er ógeðslegt," sagði Diane Gerros fasteignasali í Cam- bridge. „Ég hef alltaf kosið Kennedyana þegar þeir hafa verið í framboði, en nú leita á mig efa- semdir.“ Margir kjósendur virðast taka þessum síðustu tíðindum persónu- lega og afstaða þeirra virðist ekki aðeins beinast að bræðrunum, held- ur Qölskyldunni allri. „Þeir eru mikið í fréttum, ef það er ekki kvennafar og skilnaður er það áfengissýki og ásökun um nauðganir í Palm Beach,“ sagði Elissa Steele skartgripasali. „Þetta eru mikil vonbrigði. Eg er ekki að ætlast til þess að neinn sé fullkom- inn, en hjá þeim endurtekur sagan sig einfaldlega aftur og aftur og aftur ... Ég heyri hvað eftir annað að fólk hefur fengið sig fullsatt af þeim.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.