Morgunblaðið - 11.05.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 11.05.1997, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Alina Pavel Dubik Manásek „Sacred arias“ ALINA Dubik mezzosópran og Pavel Manásek organisti halda tónleika í Háteigskirkju í kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20.30. Tónleikarnir bera yfírskrift- ina „Sacred arias“. Á efnis- skránni eru verk eftir Handel, Bach, Pergolesi, Franck og Dvorák. Tónleikar Karlakórsins Stefnis VORTÓNLEIKAR Karlakórs- ins Stefnis verða í dag, sunnu- dag, i Hlégarði, Mosfellsbæ, og hefjast þeir kl. 20.30. Á efnisskránni eru íslensk lög eftir Sigfús Einarsson, Inga T. Lárusson, Sveinbjöm Sveinbjömsson, Skúla Hall- dórsson, Svavar Benediktsson, Magnús Ingimarsson og Björgvin Þ. Valdimarsson. Stjómandi kórsins er Lárus Sveinsson. Undirleikari er Sig- urður Marteinsson. Einsöng syngja Stefán Jónsson og Birgir Hólm Ólafsson. Sýning á verkum Onnu Jónu í París SÝNING á málverkum Önnu Jónu verður opnuð í París 15. maí kl. 19. Sýningin er í boði Dominique Tric’aud og Jean Marie Biju-Duval og Elliott Barnes. Sýningin, se_m ber yfír- skriftina Kvika íslands eða Le Magma d’Islande, verður til húsa að 4, Place Denfert-Roc- hereau í 14. hverfi. Hún verð- ur opin um helgar til 19. júlí og er áhugasömum bent á að mæta á staðinn. Tónleikar til styrktar flygilsjóði KÓR Digraneskirkju, undir stjóm Sólveigar Sigríðar Ein- arsdóttur, einsöngvararnir Guðrún Lóa Jónsdóttir, Hildur Edda Jónasdóttir, Sigríður Sif Sævarsdóttir, Þórunn Stefáns- dóttir og eldri hópur Kórs Snælandsskóla, undir stjórn Heiðrúnar Hákonardóttur, halda tónleika í Digranes- kirkju í dag, sunnudag, kl. 20.30. Ágóði tónleikanna rennur í flygilsjóð. Undirleik- ari einsöngvara er Kolbrún Ósk Óskarsdóttir. Á efnisskrá eru verk eftir innlend og erlend tónskáld. Lúðrasveitir í Ráðhúsinu VORTÓNLEIKAR skólalúðra- sveita Laugamess-, Árbæj- ar- og Breiðholtsskóla verða haldnir í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, sunnudag, kl. 16. Þórunn Guðmundsdóttir sópransöngkona í Bústaðakirkju Kristnin í mismunandi myndum ÞÓRUNN Guðmundsdóttir, sópransöngkona, og Kristinn Öm Kristinsson, píanóleikari, halda tónleika í Bústaðakirkju á mánu- dagskvöld kl. 20.30. Á efnisskrá eru kirkjuleg verk eftir Purcell, Barber, Brahms, Sigurð Þórðarson og Jón Leifs. Efnisskráin spannar, að sögn Þórunnar, allt frá dýpstu alvöru, t.d. í Fjórum alvarlegum söngvum eftir Brahms til hálf- gerðrar léttúðar í sumum af Söngvum einsetumannsins eftir Barber. Fjölbreytt „Það er óhætt að segja að þetta verði fjölbreytt þótt þetta verði allt saman kirkjuleg verk, höfund- ar nálgast viðfangsefn- ið á mismunandi hátt. Það er gaman að sjá hvernig hin kristna trú getur birst í mismun- andi myndum hjá ólík- um höfundum. Við fluttum þessa sömu efnisskrá á Akureyrui fyrir skömmu oog fengum góðar viðtökur hjá áheyrendum." Þau Þórunn og Kristinn hafa unnið Þórunn Guðmundsdóttir töluvert saman á und- anförnum árum. Þau hafa meðal annars komið fram á Gerðu- bergstónleikum og Háskólatónleikum og 1995 kom út geisla- diskur þar sem þau fluttu lög eftir Jón Leifs og Karl O. Run- ólfsson. Þórunn Guð- mundsdóttir stundaði framhaldsnám í söng í Bandaríkjunum og lauk meistaragráðu frá Tónlistarháskó- lanum í Bloomington, Indiana. Hún hefur komið víða fram sem ein- söngvari, meðal annars með Kammersveit Reykjavíkur og í konsertuppfærslu á Orfeo Monte- verdis. Þá hefur hún sungið ein- söng með ýmsum kórum og haldið fjölda einsöngstónleika. Kristinn Örn Kristinsson stund- aði framhaldsnám í Bandaríkjun- um og lauk BA-prófí frá Southern Illinois University. Frá því að Kristinn kom heim frá námi hefur hann komið víða fram sem með- leikari og undirleikari. Kristinn er skólastjóri Tónlistarskóla íslenska suzuki-sambandsins. Enskir rithöfundar sagðir sjálfumglaðir og þröngsýnir London. The Daily Telegraph. Listsýning eldri borgara í Garðabæ BARATTA forsvarsmanna stærstu bresku bókmenntaverð- launanna verður æ hatrammari og nýlega sakaði einn þeirra enska rithöfunda um að standa bandarískum starfsbræðrum sín- um langt að baki. Það var Lisa Jardine, formaður dómnefndar Orange-bókmenntaverðlaun- anna, sem falla eingöngu konum í skaut, en hún sagði alltof marga enska rithöfunda vera „sjálfum- glaða og einstrengislega", að bækur þeirra bæru vitni „þröng- sýni“ og að þær ættu ekkert er- indi á erlendan markað. Meðal þeirra sem Jardine telur falla undir þessa skilgreiningu eru Martin Amis, Graham Swift, sem hlaut Booker-verðlaunin fyrr á þessu ári, Pat Barker, sem hlaut þau í fyrra og Julian Barnes. Dómnefndin sem Jardine er í forsæti fyrir, birti fyrir skemmstu lista yfir þær bækur sem komust í úrslit. Á þeim lista eru tvær bandarískar skáldkon- ur, tvær kanadískar, ein skosk og ein frá Norður-írlandi. Eng- inn Englendingur er i hópnum. Jardine, sem er prófessor í ensku og deildarsljóri heim- spekideildar Queen Mary og Westfieldskólans í London, segir England vera lítið land og að sjóndeildarhringur of margra rithöfunda sé of þröngur. „Ensk- ir höfundar ættu að horfa lengra fram á veg, leita alþjóðlegra vís- ana í tengslum við umfjöllunar- efni sitt. Og til að byija með ættu þeir að lesa bandarískar skáldsögur." Jardine segir að bandarískar nútímabókmenntir, hvort heldur er eftir karla eða konur, standi enskum verkum svo miklu fram- ar, að hún efíst um að Englend- ingur geti unnið til breskra bók- menntaverðlauna sem séu opin Bandaríkjamönnum. Þeir séu al- þjóðlegir í skrifum sínum; þau hafi visan til fólks um allan heim. Þeir séu metnaðarfyllri og hristi upp í fólki. Þar sem bandarískir höfundar megi keppa til Orange- bókmenntaverðlaunanna, megi ganga út frá því vísu að betri bók muni hljóta þau en Booker- og Whitebread-verðlaunin, sem eru lokuð rithöfundum utan breska samveldisins. Því fer fjarri að Orange-verð- launin séu hafin yfir alla gagn- rýni en þau voru veitt í fyrsta sinn í fyrra. Gagnrýnin hefur einkum beinst að því að þau falli einungis konum í skaut, í fyrra neitaði skáldkonan Anita Brookner, að senda verk í keppn- ina, þar sem hún byggðist á, já- kvæðri mismunun" með því að útiloka karlmenn og í slíku vildi hún ekki taka þátt. í fyrra gerðist það að tveir úr dómnefndinni gátu ekki orða bundist yfir þeim verkum sem bárust í keppnina. Sögðu þeir mörg þeirra gróf, dónaleg, leið- inleg og full af niðurdrepandi vandamálum, t.d. hjónaskilnaði. Jardine hefur tekið undir þetta og segist ekki hafa trú á svoköll- uðum kvennabókmenntum. Kveðst hún hafa orðið fyrir von- brigðum með þau verk sem send voru í keppnina. Sagði hún ekki eingöngu við rithöfunda að sak- ast, heldur einnig þær kröfur sem útgefendur gerðu til rithöf- unda, en þeir neyddu konur til að skrifa um tilf inningavanda ýmiskonar. Hvað sem þessu Iíður, verða Orange-verðlaunin veitt 4. júní og eru skáldkonurnar sem til- nefndar eru: Margret Atwood, fyrir „Alias Grace“ og Anne Mic- haels fyrir „Fugitive Pieces", en þær eru báðar kanadískar, Bandarikjakonurnar Jane Mend- elsohn fyrir „I was Amelia Ear- heart“ og E. Annie Proulx fyrir „Accordion Crimes", hin norður- írska Deirdre Madden fyrir „One by One in the Darkness" og Manda Scott frá Skotlandi fyrir „Teeth“. SÝNING á myndlist, leirlist og glerskurði úr listasmiðju eldri borgara Garðabæjar verður opnuð í Kirkjuhvoli, Safnaðar- heimili Garðabæjar, í dag, sunnudag, kl. 13-16. Sýningin er afrakstur af vetrarstarfi Nýjar bækur • TÍUNDA bindið í Safni til iðn- sögu íslendinga ber heitið T/rna tal. Saga úrsmíði á íslandi. Sagt frá sigurverki og tímamælum. Höfundur er Edda Kristjánsdóttir sagnfræðingur og framhalds- skólakennari. í bókinni er rakið upphaf og framvinda úr- smíði á íslandi allt frá því að fyrsta úrsmíða- vinnustofan tók til starfa fyrir u.þ.b. 120 árum. Fjallað er um hvemig ný stétt sérhæfðra iðnað- armanna, úrsmiðir, hösluðu sér völl í tæknisnauðu landi þar sem hagleiksmenn af ýmsum toga höfðu áður sinnt viðgerðum eða tímamælar sendir utan til við- gerða. eldri borgara. Sýndar verða 90 akrýlmyndir, 20 olíumál- verk, 40 glerlistarverk og 50 hlutir gljáprent-keramik undir handleiðslu Gretu Há- kensen og Helgu Vilmundar- dóttur. í bókinni er einnig fjallað um sögu tímamælinga og þróun tíma- mæla frá sólúrum til sesínklukkna. Lýst er elstu aðferðum manna við að átta sig á gangi tímans og fjall- að um tilurð og þróun sigurverks- ins og sagt frá rafeindaverki sem orðið hefur ráðandi á síðustu árum. Þá er greint frá fornu ís- lensku tímatali. í bókarauka eru birtar tölulegar upplýsingar um innflutning á úr- um og klukkum í töflum og skýr- ingarmyndum. Bókin er prýdd fjölda mynda og teikninga sem skýra og auka efni hennar. Ritun Tíma talsvar samstarfs- verkefni Iðnsögu íslendinga og Úrsmiðafélags íslands. Iðnsaga íslendinga annaðist umsjón verksins og prentundirbúning. Útgefandi erHið íslenska bók- menntafélag. Tíma taler277 blaðsíður að stærð. Útsöluverð er kr. 3.900. Sinfóníuhljómsveit Islands Tvennir tónleikar með bandarískri efnisskrá SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands efnir til tvennra tónleika í næstu viku, miðvikudaginn 14. maí kl. 20 og fimmtudaginn 15. maí á sama tíma. Hljómsveitarstjóri og einleikari verður Wayne Marshall en einsöngvari Kim Criswell. Á efnisskrá verða eingöngu banda- rísk verk eftir George Gershwin, Aron Copland, Rodger & Hart og Leonard Bernstein. Wayne Marshall kemur nú öðru Wayne Kim Marshall Criswell sinni fram með SÍ, áður var hann hér á ferð í mars 1995. Marshall leikur jöfnum höndum djass og klassíska tónlist, auk þess að stjóma hljómsveitum. Aðalhljóð- færi hans er orgel og hefur hann haldið einleikstónleika víða um lönd. Á tónleikunum í næstu viku mun hann leika á píanó í Rhapsody in blue eftir Gershwin. Kim Criswell er einkum þekkt fyrir söng sinn í söngleikjum en hún hefur jafnframt komið fram sem einsöngvari í Royal Festival Hall, Carnegie Hall og Lincoln Center. Þá hefur hún tekið þátt í fjölda hljóðritana fyrir EMI og leikið í sjónvarpsþáttum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.