Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 19

Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ1997 19 LISTIR Burtfarartón- leikar Harald- ar Vignis HARALDUR Vignir Svein- björnsson píanó- leikari heldur burtfararprófs- tónleika frá Tón- listarskóla Kópa- vogs þriðjudags- kvöldið 13. maí kl. Haraldur 20.30 í Gerðar- safni. Árni Harðarson hefur verið kennari hans í píanóleik. Á efnisskránni eru verk eftir D. Scarlatti, L. van Beethoven, F. Chopin, Hjálmar H. Ragnarsson, A. Scriabin og C. Debussy. Lúðrasveit danska lífvarðarins MÁLMBLÁSARAKVINTETT úr Lúðrasveit konunglega danska líf- varðarins heldur tónleika í Hafnar- borg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, mánudaginn 12. maí kl. 20.30. Kvintettinn hefur starfað síðan 1990. Efnisskráin spannar allt frá Bach til Bítlanna og einnig tónverk sem samin eru sérstaklega fyrir málmblásarakvintett og verk sem eru útsett sérstaklega fyrir þennan hóp. Málmblásarakvintettinn leikur við ýmis tækifæri í Danmörku, t.d. opin- berar móttökur, og einnig við opin- berar heimsóknir dönsku konungs- fjölskyldunnar erlendis. Kvintettinn lék við hátíðarhöld í tengslum við silfurbrúðkaup dönsku konungs- hjónanna síðastliðið haust. Kvintett- inn kemur einnig reglulega fram á kammertónleikum og kirkjutónleik- um. Meðlimir kvintettsins eru Svend Vermund, Stig Sönderriis, Peter Schjödt, Ib Lolck og Carsten Geisler. Voruppskera Tónlistarskóla Hafnarfjarðar TÓNLEIKAR yngri deildar Tónlist- arskóla Hafnarfjarðar, 8-14 ára, verða haldnir á morgun, mánudag, kl. 20 í Víðistaðakirkju. Miðvikudag- inn 14. maí verða forskólanemar einnig með sína voruppskeru kl. 20 í Víðistaðakirkju. Vorsýning Kvöldskóla Kópavogs VORSÝNING Kvöldskóla Kópavogs verður haldin sunnudaginn 11. maí kl. 13-18 í Snælandsskóla. Verklegar greinar skipa stóran sess í starfsemi skólans og verður sýnt frá þeim á sýninguni, t.d. bók- band, útskurður, silfursmíði, skraut- skrift, myndbandsupptökur, græn- metisréttir, fatasaumur, leirmótun, vatnslitamálun, trésmíði, trölladeig og ljósmyndun, segir í tilkynningu frá skólanum. Burtfararpróf Bjarnveigar Ingibjargar BURTFARARTÓNLEIKAR Bjarn- veigar Ingibjargar Sigbjörnsdóttur verða haldnir í sal Tónlistarskóla FÍH, Rauðagerði 27, mánudaginn 12. maí kl. 20.30. Á efnisskrá verða verk eftir J.S. Bach, Beethoven, Brahms, Bartokog Sinding. Karlakór Kefla- víkur í Fella- og Hólakirkju KARLAKÓR Keflavíkur heldur tón- leika í Fella- og Hólakirkju í dag, sunnudag, kl. 17. Dagskráin er með hefðbundnum karlakóralögum, óperukórum og léttmeti í bland, ásamt lögum af nýrri geislaplötu sem kórinn gaf nýlega út, segir í tilkynningu. Stjórnandi kórsins er Vilberg Vig- gósson, undirleikarar eru Ágota Joó á píanó, Gestur Friðjónsson á harm- oníku og Þórólfur Þórsson leikur á bassa. Einsöng syngur Steinn Erl- ingsson baríton. Vinnu- konurnar hætta SÍÐUSTU sýningar á leikritinu Vinnukonunum eftir Jean Genet sem sýnt hefur verið í Kaffileikhúsinu að undanförnu verða í kvöld, sunnu- dagskvöld, og föstudaginn 16. maí. Ekki verða aukasýningar. Leikstjóri er Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leikendur eru Rósa Guðný Þórsdóttir, Steinunn Ólafs- dóttir og Jóna Guðrún Jónsdóttir. Þýðingu gerði Vigdís Finnbogadóttir ásamt leikstjóra. Kór Átthagafé- lags Stranda- manna ÁRLEGIR vortónleikar Kórs Átt- hagafélags Strandamanna verða í Seljakirkju sunnudaginn 11. maí kl. 17. Einsöngvarar eru Hrafnhildur Björnsdóttir og Sigmundur Jónsson. Píanóleikari er Layfey Kristinsdóttir. Einnig er leikið undir á harmonikku og trommur. Stjómandi er Þóra V. Guðmundsdóttir. Frátekið borð í Kjallaranum TVÆR konur utan af landi, önnur frá Akureyri og hin frá Homafirði, eiga frátekið borð í Listaklúbbi Leikhús- kjallarans á mánudagskvöldið kl. 21. Hér er á ferðinni leiksýning eftir Jónínu Leósdóttur, einn verðlauna- höfunda í samkeppni Leikfélags Reykjavíkur um bestu leikritin í til- efni 100 ára afmælis félagsins. Leik- stjóri er Ásdís Skúladóttir, en kon- urnar leika þær Saga Jónsdóttir og Soffía Jakobsdóttir, en þjónustu- stúlku Leikhúskjallarans leikur Þór- ey Sigþórsdóttir. Kvennakór Hafnarfjarðar KVENNAKÓR Hafnarfjarðar heldur árlega vortónleika í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði sunnudaginn 11. maí kl. 17. Sérstakur gestur á tónleikun- um verður Sigrún Hjálmtýsdóttir. Á efnisskránni verða innlend og erlend lög. Stjórnandi kórsins er Halldór Oskarsson og undirleikari Hörður Bragason. piaa MITSUBISHI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.