Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. MAÍ1997 23
SKÓLASLIT Ríkislögregluskólans í Connecticut vorið 1950. Friðjón flytur þakkarávarp en ríkislög-
reglusljórinn og aðrir yfirmenn lögreglunnar eru á sviðinu.
VESTNORRÆNA þingmannasambandið þingar í Stykkishólmi í júní 1989. Friðjón er fremst fyrir
miðri mynd en auk hans má þekkja þá Alexander Stefánsson, Árna Gunnarsson og Óla Þ. Guð-
bjartsson á myndinni.
arina Alberts Guðmundssonar og
Eggerts Haukdals. Síðan leitaði
Gunnar til okkar Pálma um stuðn-
ing og þá þegar var orðið ljóst að
ríkisstjórnin yrði mynduð hvort sem
við yrðum með eða ekki.
Gunnar myndaði ríkisstjórn sína
við mjög sérstakar aðstæður en það
hvarflaði aldrei að honum að kljúfa
flokkinn. Geir var drengskaparmað-
ur og lagði einnig mikla áherslu á
að halda flokknum saman þótt sum-
ir legðu annað til.“
Efnahagsmálin erfið
-Hvernig gekk ríkisstjórninni að
takast á við þann vanda sem hún
var stofnuð til að leysa?
Samstarfið innan sjálfrar stjóm-
arinnar gekk furðuvel og þar náðist
oft samstaða um skynsamlegar til-
lögur en málið vandaðist oft þegar
þær voru bornar undir þingflokk-
ana. Á ýmsu gekk hins vegar í
þessum efnum.
Þórður, sonur minn, var ráðinn
efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar
haustið 1980. Á þeim tíma voru í
undirbúningi viðamiklar ráðstafanir
í efnahagsmálum sem hrint var í
framkvæmd í lok ársins. Þær
tryggðu viðunandi jafnvægi á árinu
1981. Undir lok ársins mátti þó sjá
blikur á lofti. Loðnan gaf sig ekki
og nær engin loðnuveiði var á árinu
1982. Við bættist óhagstæð við-
skiptakjaraþróun. Verðmæti heild-
araflans minnkaði meira milli ár-
anna 1981 og 1982 en hann hefur
gert nokkurt annað ár frá því í síld-
arkreppunni á sjöunda áratugnum.
Illa gekk að ná saman um viðeig-
andi aðgerðir til að mæta þessum
áföllum. Samstaða náðist ekki fyrr
en sumarið 1982 með útgáfu bráða-
birgðalaga um efnahagsaðgerðir.
Það má ef til vill til sanns vegar
færa að þessar aðgerðir hafi komið
nokkuð seint, en þær fólu þó í sér
að ríkisstjórnin gat státað af bæri-
legum árangri í efnahagsmálum
fram að þeim tíma. í framhaldinu
missti ríkisstjórnin hins vegar
meirihluta á Alþingi og við bættist
nýtt áfall, hrun þorskstofnsins.
Þetta leiddi til þess að veturinn
1983 varð mjög erfiður í efnahags-
málum.“
Vandræðagripurinn Gervasoni
Þrátt fyrir að efnahagsmálin
reyndust stjórninni þung í skauti
áttu þau ekki eftir að ógna lífi henn-
ar. Eftir að hún hafði setið í nokkra
mánuði varð þó einn maður til þess
að stjórnin sprakk næstum því og
þessi maður var ekki einu sinni ís-
lenskur ríkisborgari. Hér er átt við
Frakkann Gervasoni, sem var eftir-
lýstur af frönskum yfirvöldum fyrir
að neita að gegna herskyldu í hei-
malandi sínu. Hann flúði fyrst til
Danmerkur en þegar þarlend yfir-
völd komust að því að hann væri
eftirlýstur ætluðu þau að vísa hon-
um aftur til Frakklands. Hann sá
því sitt óvænna og kaus að flýja
til íslands. Hingað kom hann í sept-
ember 1980, komst ólöglega inn í
landið og óskaði síðan eftir pólitísku
hæli.
Mál Frakkans heyrði undir Frið-
jón, sem var dómsmálaráðherra.
Hann segist hafa tekið þá ákvörðun
að Gervasoni yrði að fara þar sem
hann hafði smyglað sér ólöglega inn
í landið. Á skömmum tíma reis þó
upp hreyfing hérlendis, sem barðist
fyrir því að Gervasoni yrði veitt
hæli. Guðrún Helgadóttir, alþingis-
maður Alþýðubandalagsins, tók
þegar í stað undir þessa kröfu og
sagðist myndu hætta stuðningi við
ríkisstjórnina ef Gervasoni yrði vís-
að úr landi.
Gervasoni-málið setti allt í hnút
innan ríkisstjómarinnar. Stjórnin
sat með minnsta mögulega meiri-
hluta á þingi og mátti því engan
veginn við því að missa stuðning
Guðrúnar. Úr þessu varð hið mesta
uppnám og héldu margir að dagar
stjórnarinnar yrðu senn taldir.
Það mæddi mikið á dómsmála-
ráðherranum. Rúður voru brotnar
í ráðuneytinu og einn morguninn
réðst hópur fólks þangað inn og
settist í stiga og ganga í mótmæla-
skyni. Ýmsir sendu ráðherra kaldar
kveðjur. Málinu lyktaði á þann veg
að Frakkinn var sendur aftur til
Danmerkur, þaðan sem hann kom,
f samráði við dönsk yfirvöld. „Eg
hélt í fyrstu að ég stæði einn eða
a.m.k. mjög fáliðaður í þessu máli
en raunin varð sú að stuðningur
almennings óx með degi hverjum
um allt land. Ég gladdist yfir því
að þjóðin skyldi kunna að meta hið
forna kjörorð: Með lögum skal land
vort byggja en með ólögum eyða.“
Menn héldu hópinn þrátt
fyrir skiptar skoðanir
Friðjón segir að þessi ríkisstjórn-
arár hafi óneitanlega verið mjög
sérstök og erfið fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í heild. Hann hafi þó átt
traustu fylgi að fagna í sínu kjör-
dæmi en þar voru líka skiptar skoð-
anir sem von var. „Ég bað menn
að reyna að halda hópinn í lengstu
lög. Þetta var í fyrsta sinn sem
þingmaður flokksins á Vesturlandi
hafði tekið sæti í ríkisstjórn. Auk
dóms- og kirkjumála hafði Gunnar
Thoroddsen beðið mig að gegna
embætti samstarfsráðherra Norð-
urlanda en fram að þeim tíma hafði
það starf verið í verkahring forsæt-
isráðherra. Ég sat öll árin í fjárveit-
inganefnd til þess að við sjálfstæðis-
ráðherrarnir ættum þar fulltrúa.
Ég ákvað líka að sækja alla þing-
flokksfundi sjálfstæðismanna þegar
unnt var.“
Sjálfstæðisflokkurinn gekk sam-
einaður til kosninganna 1983. í
prófkjöri fyrir kosningarnar hélt
Friðjón fýrsta sætinu á Vestur-
landi, Valdimar Indriðason var í
öðru sæti og Sturla Böðvarsson í
hinu þriðja. Friðjón segir litlu hafa
munað að þeir næðu allir kjöri.
„Sjálfstæðisflokkurinn hlaut met-
fylgi í kjördæminu, fór langt yfir
Framsókn og fékk fyrsta þingmann
kjördæmisins í fyrsta skipti frá
1959. Það mátti segja að við hefð-
um sannkallaðan óskabyr í þessum
kosningum."
Á fleygiferð í
erlendu samstarfi
Á þingmannsárum sínum lét
Friðjón alþjóðasamstarf mjög til sín
taka, m.a. hjá Sameinuðu þjóðun-
um, Þingmannasambandi Átlants-
hafsbandalagsins, EFTA, Evrópu-
ráðinu og Norðurlandaráði, þar sem
hann var lengi varaformaður laga-
nefndar. Þá sat hann í Vestnorræna
þingmannasambandinu og var for-
maður þess um tíma. „Ferðir á
þessa fundi og ráðstefnur voru yfír-
leitt með hraði fram og til baka því
að alltaf var nóg að gera heima.
Ég get bætt því við að þótt ég
hafi komið til rúmlega þijátíu þjóð-
landa hef ég aldrei getað hugsað
mér að eiga heima annars staðar
en á íslandi."
Friðjón sat lengi í fjárveitinga-
nefnd og segir að það hafi verið
fróðlegt og skemmtilegt en oft
annasamt. „Starfið gaf mér tæki-
færi til að fylgja eftir ýmsum mál-
um sem til framfara horfðu. Marg-
ir komu á okkar fund og ræddu sín
mál og sumarferðir fjárveitinga-
nefndar um landið, til að hitta þessa
forystumenn í heimabyggð og litast
um á vettvangi, eru alveg ógleym-
anlegar."
Af kjördæmapoti
-Varstu kjördæmapotari?
„Ég hef aldrei skammast mín
fyrir að vera kallaður kjördæmapot-
ari eða fyrirgreiðslumaður. Sem
alþingismaður hef ég alltaf talið
sjálfsagt að hjálpa þeim, sem til
mín hafa leitað, og greiða götu
þeirra eftir föngum. Hitt er svo
annað mál hvernig til hefur tekist.
Það er svo margt, sem erfitt er að
fást við, og tekur langan tíma að
leysa. Sumt er þakkað, annað ekki.
Um það er síst að fást. Mætur
maður, sem lengi sat á þingi, sagði
við mig eitt sinn, þegar við ræddum
um hin svokölluðu fyrirgreiðslumál:
„Tækist mér einhvem tíma að gera
kjósanda reglulega góðan greiða,
mátti ég eiga vist að hann styddi
mig ekki í næstu alþingiskosningum
á eftir.“
Á þingmannsferli mínum einsetti
ég mér að reyna að vinna sem
mest og best fyrir land og þjóð,
bæði erlendis og heima, að sjálf-
sögðu allt landið og miðin. En auð-
vitað hefur Vesturland staðið hjart-
anu næst allan tímann. Þegar ég
hitti dómsmálaráðherra Dana árið
1980 spurði ég hvort hann hefði
komið til íslands. Hann svaraði:
„Undanfarin ár höfum við hjónin
ferðast um ísland sumar eftir sum-
ar. Nú eigum við aðeins eftir að
skoða Vesturland."
„Ég svaraði: Þú ert hinn rétti
maður. Þú geymir þér það besta
þangað til síðast."
„Það kom í minn hlut og annarra
þingmanna Vesturlands að greiða
fyrir framfaramálum kjördæmisins
á Alþingi enda þekktum við þar
best til. Eg hef ávallt talið það vera
skyldu þingmanna að hafa auga
með litlu byggðunum og veija þær.
Það er dýrt fyrir fámenna þjóð að
byggja svo stórt land, sem ísland
er. Það er bæði vandi og vegsemd."
Úr stjórnmálum
í sýslumennsku
Friðjón hætti þingmennsku árið
1991. Var hann þá öðru sinni skip-
aður sýslumaður Dalamanna og sat
í því embætti til sjötugs. Hafði hann
þá verið sýslumaður í 22 ár sam-
tals. Mun það fágætt að sami mað-
ur hafi tvívegis á ævinni verið skip-
aður í sama sýslumannsembætti.
Friðjón ber hag Vesturlands og
landsbyggðarinnar fyrir bijósti og
segir að umfram allt sé mikilvægt
að þeir menn, sem veljist á þing
hveiju sinni, þekki sitt eigið land,
sögu þess og atvinnuhætti að fornu
og nýju. „Það sem mestu máli skipt-
ir er að stjórnmálamennirnir þekki
atvinnulífið og kjördæmið og þekki
til undirstöðuatvinnuvega þjóðar-
innar. Þeirrar reynslu aflar maður
sér ekki á skólabekk eða með verð-
bréfasölu í Reykjavík heldur með
því að lifa og hrærast úti í kjör-
dæmunum þar sem hjarta atvinnu-
lífsins slær. Það er gaman að eiga
myndarlega höfuðborg, þar sem
alíir vilja verá. En við verðum líka
að styðja og leggja rækt við byggð
og búsetu í öðrum héruðum lands-
ins og efla þjóðlega atvinnuvegi, svo
að allir geti haft nóg að gera og
unað glaðir við sitt.“
Með þessum orðum slær Friðjón
botn í samtalið og segir að hann
megi ekki vera að þessu spjalli.
Hann þurfi að drífa sig vestur í
Dali þar sem sitt annað heimili sé.
Það er greinilegt að æskuslóðirr.ar
og gamla kjördæmið víkja aldrei
úr huga Friðjóns Þórðarsonar.
Full búð af nýjum vörum
frá heimsþekktum
framleiðendum.
Hjá okkur eru
Visa- og
Euroraðsamningar
ávísun a staðgreiðslu
Sími 581-2275
3ja sæta sófi
2ja sæta sófi
Stóll
sófaborð
Sófasett, 3+1+1
kr. 39.000.-
kr. 29.000.-
kr.21.000.-
kr. 10.000.-
kr.81.000.-
usgogn
Ármúla 8 - 108 Reykiavík