Morgunblaðið - 11.05.1997, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 11.05.1997, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. MAÍ1997 33 RANNVEIG HELGADÓTTIR + Rannveig _ Helgadóttir fæddist á Óðinsgötu 2, Reykjavík, hinn 2. nóvember 1907. Hún lést á Grensásdeiid Sjúkrahúss Reykjavíkur 1. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Kristín Sigurðardóttir, f. 1878, d. 1930, og Helgi Helga- son, skrifstofumaður og leikari hjá Leikfélagi Reykjavíkur, f. 27. maí 1876, d. 1951. Systkini Rannveigar: 1) Jón Helgason, kaupmaður, f. 22.9. 1904, d. 17. maí 1973. Eftirlifandi kona hans er Klara Bramm Helga- son. 2) María Knoop Helgason, f. 25.2. 1906, d. 1985 í Chile, Suður-Ameríku. Gift Robert Knoop. Hann er látinn. 3) Sig- ríður Helgadóttir, f. 21.7. 1909, d. 24.2.1991. Eiginmaður henn- ar var Kristinn Jónsson, kaup- maður. Hann lést 1. maí 1979. Rannveig giftist Sveinbirni Eg- ilssyni, útvarpsvirkjameistara 3. október 1930. Foreldrar hans voru Sigríður Jónsdóttir frá Vaðnesi og Egill Sveinsson, tré- smiður frá Múla í Biskupstung- um. Rannveig og Sveinbjörn eignuðust fjögur börn. 1) Krist- ínu, f. 13.10. 1933, Kristín gift- ist Sigurði Skúlasyni frá Kefla- vik árið 1955. Þau skildu. Sig- urður lést árið 1996. Börn þeirra: Skúli, vélstjóri, f. 19.8. 1955, kvæntur Hlíf Matthías- dóttur, matreiðslumanni. Birta Ósk Gunnarsdóttir er dóttir Hlífar og stjúpdóttir Skúla. Elsku amma Venný. Þú kvaddir þennan heim að kveldi 1. maí á 90. aldursári. Mikið held ég að þú hafir verið hvíldinni fegin, en fyrir mestu var að þú gast verið á heimili þínu þar til fyrir sex vik- Saman eiga þau soninn Svein- björn. Rannveig, sölumaður, f. 11.5. 1959, gift Eliasi Kristj- ánssyni, tollfulltrúa. Synir þeirra eru Arnar Már, Atli og Alfreð. Kristín giftist árið 1967 Magnúsi Blöndal Jóhannssyni, tónskáldi, sonur þeirra er Mar- inó Már Magnússon, lögreglu- maður, f. 5. ágúst 1971. Þau skildu. Árið 1978 giftist Kristín Þorgeiri Þorsteinssyni, sýslu- manni á Keflavíkurflugvelli. Þau skildu. 2) Agla, fædd 16. apríl 1936. Hún lést á heimili móðursystur sinnar Maríu í Chile árið 1964. 3) Úlfar, starfsmaður Alþingis, f. 12.3. 1940, kvæntur Kristínu Stein- grímsdóttur, meinatækni. Börn þeirra: a) Sveinbjörn, f. 31.8. 1969. Unnusta hans Valerie. Sonur Sveinbjörns, Róbert Máni, f. 5.5. 1990, b) Agla Ragna, f. 15.2. 1972, og Gunnar Steinn, f. 18.12. 1975. 4) Helgi, f. 30. 1. 1947; Helgi var kvæntur Rögnu Fossberg og áttu þau soninn Ivar Örn, f. 17.12. 1977. Seinni kona Helga er Hólmfríður Björg Ólafsdóttir. Dóttir hennar og stjúpdóttir Helga, er Gunnur Ösp Jónsdóttir. Helgi og Björg eiga saman soninn Egil Óla, f. 3. apríl 1996. Útför Rannveigar fer fram frá Dómkirkjunni á morgun, mánudaginn 16. maí og hefst athöfnin klukkan 15.00. um, ég veit að það var þér mikils virði. En nú er tómlegt á Óðinsgötu 2 og sorgleg tilhugsun að þar verði ekki hægt að kíkja inn til þín í kaffisopa þegar ég á leið um bæ- inn. Ég man alltaf hvað þú varst SIGURLAUG GUÐ- RÚN EINARSDÓTTIR + Sigurlaug Guð- rún Einarsdótt- ir var fædd á Grund á Eyrarbakka 27. júní 1899. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur 30. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Einar Jónsson frá Álfsstöðum á Skeiðum og Oddný Guðmundsdóttir frá Steinum undir Eyjafjöllum. Sig- urlaug Guðrún var áttunda í röð tólf systkina sem eru öll látin. Útför Sigurlaugar Guðrúnar verður gerð frá Hallgríms- kirkju mánudaginn 12. maí og hefst athöfnin klukkan 13.30. Mig langar að minnast með fáum orðum Sigurlaugar Guðrúnar Ein- arsdóttur, sem lést að kvöldi 30. apríl síðastliðinn, 97 ára gömul. Þegar ég hugsa til Gunnu fylgja þeim hugsunum Magga systir henn- ar og Skólavörðustígur 35, þar sem þær systur bjuggu til margra ára. Fljótlega eftir að ég kynntist Hafsteini, við þá 16 og 17 ára göm- ul, fór hann með mig í heimsókn til afasystra sinna og varð mér fljótt ljóst hve mikinn þátt þær Gunna og Magga höfðu átt í æsku hans og systkina. Gunna bjó í kjallaranum og Magga í risinu þegar ég kynntist þeim. Gunna var heilsuhraust og hefur stiginn upp í risið til Möggu, sem hún fór á hveijum degi í mörg ár, verið ágæt líkamsrækt. Gunna er síðust af sex alsystkin- um sem öll náðu háum aldri fyrir utan eina systur sem dó á unglings- aldri. Gunna átti eina dóttur, Jónu, sem búsett er í Bandaríkj- unum. Þegar Gunna bað mig að lesa bréfin frá dóttur sinni og barnabörnunum fimm, vissi ég að við værum orðnar vinkonur. Finnst mér það ómetanlegt að hafa kynnst þessum gömlu konum sem settu upp svuntu á hverjum ein- asta degi. Það var allt- af notalegt að líta til þeirra og ávallt tekið vel á móti gestum. Á Skólavörðustígnum voru alltaf sömu rólegheitin, næst- um eins og tíminn stæði í stað. Gunnu og Möggu fannst sérstak- lega gaman að fá börn í heimsókn, þá var stutt í barnið hjá þeim sjálf- um. Það var eitt sem Gunna og Magga höfðu mikla ánægju af, það var að taka myndir. Ef eitthvað var um að vera í fjölskyldunni mættu Gunna og Magga með myndavél- arnar sínar og eru ófá myndaalbúm til sem geyma gamlar minningar. Eftir að Magga dó árið 1988, flutti Gunna á dvalarheimili aldr- aðra í Lönguhlíðinni. Gunna bjó þar í íbúð með hlutina sína og myndirn- ar sínar sem henni þótti svo vænt um. Gunna hafði mikla ánægju af að sauma út og stytti sér oft stund- ir við það meðan augun leyfðu. Það þurfti ekki mikið til að gleðja Gunnu, stutt heimsókn af ættingj- unum var ánægjuefni fyrir hana. Guð blessi minningu hennar. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Guðmunda Valdimarsdóttir. ánægð þegar ég byijaði að drekka kaffi því mamma hefur aldrei drukkið kaffi og það skildir þú aldr- ei því góður, sterkur kaffisopi var alveg nauðsynlegur. Afi kvaddi fyr- ir 10 árum og er nú örugglega ángæður að vera búinn að fá þig til sín og Öglu ykkar. Nú hellast yfir mig minningarnar um ykkur afa. Afi var að vinna úti á verk- stæði og þú að búa til marmelaði eða ömmulaði eins og við kölluðum það oft, það jafnaðist ekkert á við það og gerbollurnar góðu og allt annað sem þú gerðir. Það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér og mörg gullkornin sem frá þér komu sem ég geymi vel í minningunni um þig. Ég er svo lánsöm að hafa verið skírð í höfuðið á þér og brosi nú yfir því að ég verð einhverntíma kölluð amma Venný eins og þú varst alltaf kölluð og vona ég að ég reynist barnabörnum mínum eins vel og þú reyndist mér alltaf. Elsku amma mín, þín verður minnst um ókomna tíð. Hafðu þökk fyrir allt. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Þín dótturdóttir, Rannveig Sigurðar- dóttir (Venný). Mig langar í örfáum orðum að minnast elskulegrar ömmu minnar, Rannveigar Helgadóttur, eða ömmu Venný eins og hún var alltaf nefnd. Hún amma Venný var alveg ein- stök kona og afskaplega mikið mun ég sakna hennar og heimsókna minna í eldhúsið hjá henni að Óðins- götu 2. Við gátum endalaust talað saman um allt milli himins og jarð- ar og hversu vel hún fylgdist með öllum nútíma málum þrátt fyrir háan aldur og hversu vel við náðum saman þrátt fyrir sextíu og fimm ára aldursmun. Amma Venný var þvílíkur lista- kokkur og þann tíma sem ég vann í SPRON skrapp ég alltaf í hádeg- inu til ömmu í kræsingarnar henn- ar, þetta voru ómissandi stundir. Allt sem hún amma Venný kenndi mér og sagði mér frá, allar hennar minningar frá hennar æsku, foreldrum sínum og ýmsu öðru frá því að hún var ung kona, þessar minningar mun ég geyma og varð- veita allt mitt líf. Amma Venný var einstaklega skemmtileg kona og uppfull af mjög sniðugum húmor og alltaf stutt í grínið og endalaust hægt að grín- ast með henni. Minningin um yndislega vinkonu og ástríka ömmu mun lifa með mér ávallt. Ég vildi að ég gæti þakkað henni fyrir allt sem hún gaf mér af sinni þekkingu. Blessuð sé minning hennar. Sonardóttir, Agla Ragna Úlfarsdóttir. t Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, PÉTUR BJÖRNSSON, Álftamýri 58, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins. Dagmar Ingólfsdóttir, Anna Bára Pétursdóttir, Ingólfur Guðmundur Pétursson. t Elskuleg dóttir okkar, JÓNA SJÖFN ÆGISDÓTTIR, Hraunkambi 4, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, vina og ástvina. Anna Hauksdóttir, Ægir Hafsteinsson, Heimir Guðjónsson. t Elskuleg móðir mín, amma okkar og lang- amma, LÁRA LÚÐVÍKSDÓTTIR, Daibraut 27, Reykjavík, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju mánudaginn 12. maí kl. 13.30. Óskar Ágústsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir og amma okkar, SIGURLAUG GUÐRÚN EINARSDÓTTIR Lönguhlíð 3, áður Skólavörðustíg 35, andaðist hinn 30. apríl og verður jarðsett frá Hallgrímskirkju mánu- daginn 12. maí kl. 13.30. Oddný Jóna og Phil Greguski, börn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför séra JÓHANNS S. HLÍÐAR. Aðstandendur. Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík * Sími 553 1099 Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um hclgar. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS GUNNLAUGSSONAR læknis, Seltjarnarnesi. Karen Oktavía Kaldalóns Jónsdóttir, Henrik Friis, Þorbjörg Kaldalóns Jónsdóttir Balys, Elsa Kirstín Kaldalóns Jónsdóttir, Sólveig Kaldalóns Jónsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Sigvaldi Kaidalóns Jónsson, Margrét Kaldalóns Jónsdóttir, Þórhallur Kaldalóns Jónsson, Eggert Stefán Kaldalóns Jónsson, Helge Grane Madsen, Guðrún H. Brynleifsdóttir, Helga Kristinsdóttir, Gunnþóra Óiafsdóttir, Berglind Gunnarsdóttir, barna- og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.