Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 35

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 11. MAÍ1997 35 RAGNA JÓNSDÓTTIR + Ragna Jónsdóttir var fædd 25. nóvember 1919. Hún lést 14. apríl síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Langhoits- kirkju 24. apríl. Ragna systir okkar kvaddi þetta líf að kvöldi 14. apríl á hjúkrunar- heimilinu Seli. Það var kyrrð og friður yfir henni síðustu sólarhring- ana, en hún var lengi búin að berjst við veikindin og var því lausnin kærkomin. Ragna vann í Vagla- skógi á sumrin, en Vaglaskógur var unaðsreitur okkar unglinganna í þá daga, hún var svo á Akureyri á veturna með léttari vinnu, þar til hún fluttist til Reykjavíkur. Þar vann hún í blómabúðinni Flóru og við heimilisstörf. Hún giftist Tryggva Guðmundssyni frá Garðs- horni í Kræklingahlíð en hann var verslunarmaður í Reykjavík. Þau eignuðust fallegt heimili og voru samhent um að prýða það sem best. En svo kom stóra áfallið, þau hjón- in lentu í bílslysi, ásamt öðrum hjón- um, vinafólki sínu. Þeir létust báðir en þær slösuðust illa og hafa þær átt í því síðan. Báðar hafa þær sýnt ótrúlegan styrk. Elsku Sísí, við hugsum til þín og biðjum fýrir þér. Eftir þetta flutti Ragna í minni íbúð á Kleppsveginum. Hún, ásamt vinkonum sínum, kom upp blóma- búðinni Blóminu og ráku þær búð- ina í nokkur ár, þar vann Ragna og naut þess að vera með blómun- um, einnig vann hún um tíma hjá Skólagörðum Reykjavíkur. En Norðurlandið togaði í hana og á hveiju sumri kom hún norður á bílnum sínum, hún kom við í Skagafirðinum og á Akureyri, en austur fyrir Vaðlaheiði var ferðinni ávallt heitið og endastöðin var á Þverá, þar naut hún þess að ganga um beijabrekkurnar og hlusta á árniðinn, og hitta litlu börnin. Þann- ig fór að fyrir níu árum fluttist hún norður á Svalbarðseyri, keypti þar íbúð, þá var hún komin í nágrenni við frændur og vini sem henni voru kærir. Þar hlúði hún að blómunum sínum og talaði við þau, hún vissi að: í hveiju blómi sefur sál; enda voru blómin hennar falleg. Ragna hafði mjög gaman af handavinnu og var smekkvís á það, fallegir voru dúkarnir sem hún pijónaði og hnýtti og gaf í allar áttir. Við færum öllum alúðarþakkir sem aðstoðuðu hana í veikindunum. Öllu starfsfólki á Seli færum við bestu þakkir fyrir einstaka um- hyggju fyrir Rögnu og hlýhug sem við fundum. Að síðustu, Ragna Erlingsdóttir og fjölskylda, hjartans þakkir fyrir hve þið reyndust henni vel til hinstu stundar. Ragna mín, við viljum þakka þér fyrir öll árin, það var gott að eiga þig fyrir systur, við vitum að þú færð góða heimkomu. Það verður vel tekið á móti þér á eilífðarströnd- inni, þar sem bíða vinir í varpa og fagna þér. Góður guð blessi þig. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Nú rikir kyrrð í djúpum dal þótt duni foss í jöklasal. 1 hreiðrum fuglar hvíla rótt. Þeir hafa boðið góða nótt. Nú saman leggja blómin blöð er breiddu faðm mót sólu glöð, í brekkum fjalla hvíla hljótt. Þau hafa boðið góða nótt. Nú hverfur sól við segulskaut og signir geisli hæð og laut en aftanskinið hverfur hljótt. Það hefur boðið góða nótt. (M.G.) Systkinin Kristín, Sólveig, Ferdinand, Anna og Friðrika. Elsku Ragna. Mig langar til að minnast þín með nokkrum orðum. Þegar ég sit hérna í íbúðinni þinni og horfi á allar fallegu myndirnar þínar og failegu hlutina, finnst mér óhugs- andi að þú sitjir aldrei framar í stólnum við gluggann með pijónana eða eitthvað annað milli handanna. Ekkert kertaljós eða maltöl á borð- inu handa okkur, en allt hefur sinn gang eins og þú sagðir svo oft. Mig langar að þakka þér fyrir allar yndislegu stundimar sem við áttum saman. Þegar ég var lítil stelpa og kom suður til Reykjavíkur gerðum við margt skemmtilegt saman. Þú varst svo dugleg að fara með mig hitt og þetta, sýna mér það sem Reykjavík hafði upp á að bjóða. Við fórum á söfn, í leikhús og óperu. Það er ógleymanlegt þeg- ar við tvær fórum á Carmen. Þú varst svo fín og allt var svo stór- fenglegt fyrir mig, sveitastelpuna. Þegar ég var orðin eldri og kom suður til að keppa á fijálsíþrótta- mótum varstu óþreytandi að keyra okkur systkinin. Þú varst oft á íþróttavellinum að horfa á okkur keppa, svo var farið heim til þín á Kleppsveginn, upp á 7. hæð, og þar beið oftar en ekki ilmandi kjúkling- ur og full skál af glansandi stórum ávöxtum. Það var alltaf sérstakt andrúmsloft í þessari litlu, fallegu íbúð í Reykjavík. Þú komst margar ferðir norður í Þverá og það var alltaf jafn spenn- andi og gaman. Það voru ótrúleg- ustu hlutir sem þú færðir okkur krökkunum, allt eitthvað svo fram- andi og fínt. En svo fluttir þú norður og í nágrenni við mig. Þú komst með alla þína fallegu hluti og bjóst þér nýtt heimili. Það var gott að hafa þig nálægt, notalegt að koma til þín í rólegheitin, spjalla og fá malt- sopa. Amór á eftir að sakna þess að fá ekki ís eða malt hjá Göggu eins og hann lystir og ekki pijónar þú fleiri röndóttar legghlífar á Þór- dísi eða lopasokka á Jolla. Þú varst virkilega listfeng kona, allt lék í höndum þér, hvort sem þú varst að pijóna dúka, eiga við blómin, búa til slaufur á skímarkjóla eða stoppa í sokka. Þér þótti svo vænt um krakkana, þú varst alltaf að gefa þeim eitt- + Arnbergur Gíslason, bóndi og verkamaður, frá Vina- minni á Borgarfirði eystra fæddist á Mýnesi í Eiðaþinghá 25. janúar 1905. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði hinn 30. apríl síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Ilvalsneskirkju 9. maí. Með þessum fátæklegu orðum langar okkur að kveðja afa okkar og langafa Arnberg Gíslason. Elsku afi og langafi, þrátt fyrir sorg og söknuð finnum við fyrir hamingju og létti vitandi af þér í góðum höndum „ömmu á Borgar- firði“, sem kom og sótti þig er stund þín var runnin. hvað fallegt. Það kunnu þau að meta og þakka þér fyrir. Eg vil þakka þér, elsku Ragna, fyrir alla hjálpsemina og umhyggjuna. Það gaf mér mikið að geta verið hjá þér síðustu stundirnar, finna að þér fannst gott að ég var nálægt, sjá þig brosa og segja „það er allt í lagi með mig“. Þannig varstu. Vorlaufið unga, veika og smáa, veit það um blóm sitt um daggir, yl og ljós? Vorlauf míns hjarta, vorlauf míns trega, verður þú rós? (Þorsteinn Valdimarsson) Við í Laugartúni 15 þökkum þér allt. Þín nafna, Ragna. Ég vildi ég gæti verið blóm, verið í garði þínum, dáðst að þér og dáið svo draumaheimi mínum. Þá gengir þú um garðinn þinn og grétir að blómi mínu, höndunum þínum vefðirðu mig að hjarta þínu. (Vilmundur Gylfason) Elsku amma Gagga, takk fyrir allt það sem þú varst okkur Arn- óri. Eg veit að þú fylgir okkur hvert sem við förum hér eftir. Ég hugsa að þú sért núna stödd í yndislegum blómagarði og þar líður þér vel. Það síðasta sem þú sagðir við mig var „Hvernig líður þér?“ Ef þú skyldir ekki hafa heyrt það, þá leið mér mjög vel því ég var hjá þér. Við sjáumst aftur seinna. Þórdís Jónsdóttir. Nú er sál þín rós í rósagarði Guðs kysst af englum döggvuð af bænum þeirra sem þú elskaðir aldrei framar mun þessi rós bliknað að hausti (R.P.Ó.) Helga, Lilja Björk og Anna Sigríður. í tónum andartaksins óma guðlegir sann- leikshljómar, sem ætlað er líf og þroski í vitund þess sem efast, en er. Tónamir geta breytt myrkri í birtu og ósætti í frið í hug- um allra sem þrá ijósið, en sjá það ekki ef þeir sofa. Andartakið geymir sögu kynslóð- anna án orða, því það er. Það sem er öðl- ast eilífð, en ekki það sem var eða verður. (Jóna Rúna Kvaran.) Elsku mamma, pabbi, Magga, Siggi, Jóhanna, Nonni, Gísli, Lo- vísa, Grétar, Salla, Rúnar, Lilla, Bibba og Sævar, svo og barnabörn, barnabarnaböm og aðrir ástvinir, guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar á þessari kveðjustund. Stefanía, Guðný og Arnbergur, Bandaríkjunum. Til höfunda greina TÖLUVERÐUR fjöldi aðsendra greina bíður nú birtingar í Morgunblað- inu. Til þess að greiða fyrir þvf að biðtími stytt.ist og greinar birtist skjótar en verið hefur um skeið, eru það eindregin tilmæli Morgunblaðs- ins til greinahöfunda, að þeir skrifi að jafnaði ekki lengri greinar en sem nemur tveimur A-4 blöðum með mesta línubili eða að hámarki 6.000 tölvuslögum. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vélrituð og vel frá geng- in. Ákjósanlegast er að fá greinarnar jafnframt sendar á disklingi, þ.e. að blaðinu berist bæði handrit og disklingur. Auðveldust er móttaka svokaliaðra ASCll skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Word- Perfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Þeir, sem þess óska, geta fengið disklingana senda til baka. Merk- ið disklingana vel og óskið eftir endursendingu. Ritstj. ARNBERGUR GÍSLASON + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, ÓSKARS SÖEBECK prentara, Dalbraut 27, Reykjavik. Lilja Söebeck. + Innilegar þakkirtil allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa, bróður og mágs, KLEMENZAR R. GUÐMUNDSSONAR. Albert Klemenzson, Ingibjörg Þ. Klemenzdóttir, Vigdís Klemenzdóttir, Róbert Klemenzson, Elínborg Guðmundsdóttir, Hörður Hjartarson, Svanhvít Sverrisdóttir, Hjálmar Jónsson, Friðrik Sigurmundsson, Ingimundur Eymundsson Sigfríð Hallgrímsdóttir og barnabörn. + Kæru ættingjar og vinir. Við sendum ykkur innilegar þakkir fyrir samúð ykkar og hlýjar kveðjur við andlát og útför móður okkar, ÁGÚSTU ÁGÚSTSDÓTTUR. Við viljum þakka starfsfólki á Reykjalundi sér- staklega fyrir einstaka umhyggju og hjúkrun hennar í gegnum erfið veikindi. Fyrir hönd barna okkar og barnabarna, l'ris Ástmundsdóttir, Ástmundur Agnar Norland, Guðlaug Ástmundsdóttir, Níels Indriðason, Björn Ástmundsson, Guðmunda Arnórsdóttir, Ásta I. Ástmundsdóttir, Örn Sigurðsson. + Kæru ættingjar og vinir, innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUNNARS KR. JÓNSSONAR vélstjóra, Lækjarkinn 18, Hafnarfirði. Guð blessi ykkur. Margrét Eyþórsdóttir, Ástríður Gunnarsdóttir, Trausti Gunnarsson, Sesselja Gunnarsdóttir, Eggert Kristinsson, Ingibjörg Jóna Gunnarsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem heiðruðu minningu hjartkærrar nöfnu okkar, GUÐRÚNARJENNÝJAR JÓNSDÓTTUR, Víkurbraut 32, Grindavík. Sérstakar þakkir til slysavarnadeildanna Þór- kötlu og Þorbjarnar. Erna Guðrún Gunnarsdóttir, Ragnar Torfason, Jenný Jónsdóttir, Reynir Jóhannsson. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför, GUNNARS MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR, sem lést þann 23. apríl sl. Guðbjörg Pálmadóttir, Hörður Guðmundsson, Bragi Gunnarsson, Herdís Þorgeirsdóttir, Anna G. Gunnarsdóttir, Ragnar Danielsen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.