Morgunblaðið - 11.05.1997, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 11.05.1997, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 37 MINNINGAR JÓNAS PÉTURSSON •+> Jónas Pétursson, bóndi og * fyrrverandi alþingismaður, fæddist á Hranastöðum í Eyja- firði 20. apríl 1920. Hann lést í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 18. febrúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Egilsstaða- kirkju 1. mars. Með nokkrum orðum vil ég minn- ast góðs vinar og merks manns, Jónasar Péturssonar, fyrrv. til- raunastjóra og alþingismanns. Jón- as lést í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 18. febrúar síðastliðinn, hátt á 87. aldursári. Hann var Eyfirðingur að ætt, fæddur á Hranastöðum í Eyja- firði 20. apríl 1910. Að loknu bú- fræðinámi frá bændaskólanum á Hólum stundaði hann búskap á föð- urleifð sinni um árabil, en sinnti auk þess ráðunautsstarfí í Eyja- fírði. Árið 1947 lá leið Jónasar aust- ur á Fljótsdalshérað. Gerðist hann bústjóri og tilraunastjóri á Hafursá í Vallahreppi og síðar á Skriðu- klaustri í Fljótsdal, er tilraunastöðin á Hafursá var flutt þangað um 1950. Á Skriðuklaustri starfaði Jónas sem tilraunastjóri um alllangt skeið, en frá árinu 1962 var hann búsett- ur að Lagarfelli í Fellahreppi. Á Skriðuklaustri hófust kynni mín af Jónasi Péturssyni, er ég sem ungur drengur var þar í barna- skóla. í fæðingarsveit minni, Fljótsdalnum, var farskóli á þessum árum og kennt á nokkrum bæjum í sveitinni yfír veturinn. Kennari var Guttormur V. Þormar í Geita- gerði. Flesta veturna mína í barna- skóla var skólinn eitthvað á Skriðuklaustri, að mig minnir. í hinu stóra og virðulega húsi Gunnars skálds var gott kennslu- rými og þar voru sum börnin i heimavist yfír vikuna, en önnur gengu daglega frá næstu bæjum. í hópi hinna fyrmefndu var sá, er þetta ritar, enda heimili mitt ysti bær sveitarinnar og því um nokkurn veg að fara. A Klaustri var gott að vera og vel að öllum börnum búið, mikill og góður matur á borðum og atlæt- ið hið besta. Jónas reyndist okkur krökkunum vel. Hann var hlýr í umgengni og nærgætinn, en áicveðinn ef því var að skipta, nákvæmur og vildi hafa reglu á hlutunum, hvem hlut á sín- um stað. Hann var snyrtimenni svo af bar og lagði ríka áherslu á góða umgengni jafnt innan húss sem utan. Hvarvetna þar sem Jónas lagði hönd að verki var snyrti- mennska í fyrirrúmi, hvort sem var við heyskap, skepnuhirðingu eða annars staðar. Hann var natinn skepnuhirðir og hafði ætíð mikil afskipti af fjárbú- inu á Skriðuklaustri, þótt hann hefði menn til að sinna fjárgæslunni sér- stáklega. Kindurnar vom áreiðan- lega þær skepnur, er stóðu honum næst. Heyrði ég því fleygt, að Jón- as hefði þekkt hverja kind á búinu af svipnum, ekki veit ég hvað hæft var í því, en þykir ekki ólíklegt, að svo hafi verið, þó var ætíð margt fé á tilraunabúinu. Jónas var maður félagslyndur og blandaði mikið geði við sveitungana í dalnum, naut þar vaxandi vin- sælda og sat m.a. í hreppsnefnd Fljótsdalshrepps um árabil. Jónas fylgdi Sjálfstæðisflokknum lengst af að málum, á þeim vett- vangi áttum við samleið um nokk- urt skeið, en síðar störfuðum við saman í Lkl. Múla á Fljótsdalshér- aði, sem stofnaður var um áramótin 1970. Jónas var einn af stofnfélög- um klúbbsins og virkur félagi í honum, meðan heilsa leyfði. Þar nutu sín vel hæfíleikar Jónasar og reynsla hans, frjó hugsun og vilji til að koma góðum málum í fram- kvæmd. Jónas var í kjöri fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í Austurlandskjör- dæmi við alþingiskosningarnar 1959, náði kjöri og sat á Alþingi allt til ársins 1971. Áður hafði hann skipað sæti á lista flokksins í Norður-Múlasýslu. Um ástæður þess að Jónas ákvað að taka efsta sæti á lista flokksins skal ekki fjöl- yrt hér. Deilur höfðu komið upp um það, hver skipa skyldi það sæti. Sveinn Jónsson, bóndi á Eg- ilsstöðum, sem lengi hafði verið í forustuliði flokksins á Austurlandi, og Einar Sigurðsson, útgerðarmað- ur, títt nefndur hinn ríki, gerðu báðir tilkall til þingmennsku. Um málið varð ekki samstaða í for- ustuliði flokksins. Var Jónas Pét- ursson fenginn til að taka efsta sæti listans við erfiðar aðstæður. Jónas sýndi þar sem endranær mikinn þegnskap, en var ómaklega legið á hálsi af ýmsum flokksmönn- um fyrir þá ákvörðun. Það kom þó í ljós að Jónas reynd- ist farsæll þingmaður, sem kom ýmsum góðum málum fram í þing- mannstíð sinni. Hann var trúr mál- svari sveitanna og hinna dreifðu byggða. Áhugamál hans var að sveitimar efldust og landið væri allt byggt. Þau málefni mótuðu störf hans öll, hvort sem var heima í hér- aði eða á Alþingi. Lengst mun þó halda nafni Jónasar á lofti sá góði þáttur, er hann átti í því, að tókst að ljúka framkvæmdum við hring- veginn þjóðhátíðarárið 1974. Jónas lagði til, að efnt yrði til sérstakrar fjáröflunar vegna þessa verkefnis og var það samþykkt. Það var því vel við hæfí, að Jónas var gerður að formanni þjóðhátíðamefndar í Múlaþingi hátíðarárið, er minnst var 11 alda byggðar í landinu. Hér er ekki ætlunin að gera út- tekt á þingmennsku Jónasar Pét- urssonar, en ég hygg, að sagan muni sýna, að hann reyndist þar ýmsum fremri, sem hærra höfðu. Jónas var enginn hávaðamaður í daglegu fari. Hann var ekki mað- ur hinna breiðu spjóta. Stóryrði um menn og málefni heyrði ég aldrei af hans munni. Hann var íhugull, glöggur og gætinn, vildi undir- byggja hvert mál vel, en fastur fyr- ir, ef því var að skipta, átti auðvelt með að setja skoðanir sínar fram í ljósu og einföldu máli, framfara- maður, en vildi þó halda fast við það, sem vel hefur reynst. Jónas lét af störfum tilrauna- stjóra á Skriðuklaustri árið 1962 og fluttist ásamt fjölskyldu sinni að Lagarfelli í Fellahreppi, þar sem hann hafði byggt sér íbúðarhús. Var Jónas meðal hinna fyrstu, er byggði í Fellabæ, eins og hann heit- ir nú i dag. + Innilegar þakkir sendum við öllum þeim mörgu sem studdu okkur og styrktu við andlát og út- för ástkærrar dóttur okkar og systur, KRISTÍNAR HÖLLU HARALDSDÓTTIR, Guðrúnargötu 7. Sérstakar þakkir færum við fjölskyldu okkar, vinnufélögum, skólasystkinum og vinum hinn- ar látnu, bæðí í Mosfellsbæ og í Reykjavlk. Guð blessi ykkur öll. Helga S. Bachmann, Haraldur Hjartarson, Sigríður Sóley Kristjánsdóttir, Ragnheiður Helga Haraldsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, INGIBJARGAR FRIÐRIKSDÓTTUR, Glæsibæ 19, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13d og skurðstofu á Landspítalanum. Friðrik Ragnar Eggertsson, Guðrún Björg Egilsdóttir, Hafsteinn Eggertsson, Þórunn Elfa Guðjohnsen, Guðjón Ingi Eggertsson og barnabörn. SplendestO seidenSticker blússur Oðumv^ TÍSKUVERLSUN v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680 + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, SIGURBJÖRNS KÁRASONAR, Hrafnistu ( Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunardeildar Hrafnistu f Hafnarfirði. Valur Sigurbjörnsson, Þór Sigurbjörnsson, Þuríður Björnsdóttir, Sigríður Hanna Sigurbjörnsd., Ottó Schopka, barnabörn og barnabarnabörn. Kona Jónasar var Anna Jósafats- dóttir, ættuð úr Skagafirði, hin ágætasta kona. Börn þeirra eru: Hreinn, tæknifræðingur, búsettur í Reykjavík, Erla, talsímavörður, bú- sett á Egilsstöðum, en yngstur er Pétur Þór, sveitarstjóri í Eyjafjarð- arsveit. Anna lést í ársbyrjun 1984 og eftir það bjó Jónas einn í húsi sínu með góðri aðstoð Erlu, dóttur sinnar. Með komunni í Fellabæ hófst nýr kapítuli í lífí Jónasar. Þar sinnti hann ýmsum störfum, var m.a. framkvæmdastjóri Verslunarfélags Austurlands um árabil. Því starfí sinnti Jónas af sömu trúmennsku og öðrum, sem honum voru falin. Mesta áhugamál hans var þó jafnan viðhald byggðarinnar í landinu. Hann tók mikinn þátt í byggða- hreyfíngunni svokölluðu, sem hafði að markmiði valddreifingu í þjóðfé- laginu og mótaði ákveðnar tillögur í því efni. Þar var Jónas óþreytandi að vekja til umhugsunar og dáða og skrifaði fjölda greina í blöð og tíma- rit um þau efni og önnur áhugamál sín. Jónas var mikill aðdáandi þjóð- skáldanna íslensku og vitnaði oft til þeirra í skrifum sínum. Hann hafði óbilandi trú á framtíð sveit- anna og hinna dreifðu byggða ef menn aðeins kynnu að stilla saman krafta sína og snúa bökum saman í vöm og sókn. Orð Kristjáns forseta Eldjáms um lífbeltin tvö vom honum töm á tungu: Hið græna belti landsins og hafið og fískimiðin umhverfís land- ið. Þetta tvennt taldi Jónas að ætti að vera grundvöllur atvinnuupp- byggingar á komandi árum og sóknar þjóðarinar til bættra lífs- kjara. Slík rök munu ætíð verða í gildi fyrir litla þjóð, sem verður að búa að sínu. Lífbeltin tvö em og verða tilverugrundvöllur þjóðarinn- ar. Ýmislegt í þjóðfélagsþróun síð- ustu ára var Jónasi ekki að skapi, hann var gagnrýninn á margt í aðgerðum stjórnvalda, en einnig á vaxandi peninga- og gróðahyggju, sem víða örlar á í þjóðlífinu og mælir flest á vogarskálum Mamm- ons, jafnvel fullveldi og frelsi þjóð- arinnar. Jónas var heill íslending- ur, hann vildi byggja landið allt og byggja á því, sem íslenskt er. Hann vildi setja manngildið ofar auðgildinu. Honum var ljóst, að maðurinn lifir ekki á brauði einu saman. Hann var trúmaður og rækti vel kirkju sína, þess naut hún á ýmsan hátt. Síðast bar fundum okkar saman í ársbyijun 1994 vegna láts föður míns, en milli foreldra minna og Jónasar var ætíð góður vinskapur, sem entist til hinstu stundar. Heilsa Jónasar var þá þannig, að hann treysti sér ekki til að koma að jarð- arförinni, en hringdi og bað mig að koma við hjá sér, hvað ég og gerði nokkmm dögum síðar. Áttum við gott spjall, þar sem á góma bar landsmálin og sitthvað fleira. Þrátt fyrir lakari heilsu var áhuginn enn hinn sami fyrir málefnum lands og lýðs og baráttuþrekið óbilað. Mér þykir gott að minnast þessa samtals, nú þegar Jónas er allur. Merkið stendur, þótt maðurinn falli. Hans er gott að minnast sem hins góða drengs og trausta vinar. Ég og mitt fólk frá Droplaugar- stöðum þökkum honum samfylgd- ina um árin mörgu og vináttu, sem aldrei bar skugga á. Samúðarkveðj- ur em fluttar börnum hans, aldr- aðri systur og öðmm skyldmennum. Hvíli hann í Guðs friði. Ólafur Þ. Hallgrímsson, Mælifelli. + Þökkum af alhug hjálpsemi í veikindum og samúð við fráfali móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu, systur og mágkonu, HELGU ÓLAFDÓTTUR, lllugagötu 75, Vestmannaeyjum. Ólafur R. Eggertsson, Málfríður D. Gunnarsdóttir, Kristján G. Eggertsson, Guðný Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn, Margrét Ólafsdóttir, Steindór Hjörleifsson. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför STEFANÍU EIRÍKS KARELSDÓTTUR, Hraunbæ 70, Reykjavík. Óskar Gunnar Sampsted, Albert Óskarsson, Elísabet Stefanía Albertsdóttir, Gunnhildur Amelía Óskarsdóttir, Gunnar Antonsson, Bryndís Óskarsdóttir, Sigurbjörg G. Albertsdóttir. + Útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HERDÍSAR FRIÐRIKSDÓTTUR, er andaðist aðfaranótt 5. maí, fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 15.00. Guðmundur Pétursson, Alda Guðmundsdóttir, Hartvig Ingólfsson, Friðrik Rúnar Guðmundsson, Hólmfríður Árnadóttir, Hildur Guðmundsdóttir, Dýri Guðmundsson, Pétur Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.