Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 41

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 41
I MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ1997 41 BREF TIL BLAÐSINS Þyrstir ferðamenn Frá Jóhannesi Bergsveinssyni: ELÍN Pálmadóttir, blaðakona, rit- ar í fastadálk sinn Gárurí Morgun- blaðinu sunnudaginn 4. maí sl. undir yfírskriftinni: „Dýr þorsti“. Þar segir hún frá reynslu Breta nokkurs, kvikmyndastjóra, sem hér var á ferð nýlega. Þyrsti hann á rölti um miðbæ Reykjavíkur, pantaði sér bjórglas á knæpu og varð furðu lostinn er hann var rukkaður um fimm hundruð krón- ur fyrir svaladrykkinn. Ég neita því ekki að í augum Breta kann þetta að virðast hátt verð fyrir eina ölkrús, a.m.k. hætti Bretinn við kaupin og sagði: „En svo að- framkominn er ég ekki að ég drekki eitt bjórglas fyrir fimm pund.“ (Samkvæmt mínum út- reikningi tæplega fjögur og hálft pund, en látum það vera.) Svo spurði hann: „Sá ég ekki í ein- hveijum bæklingum að þið ætlið að reyna að fá ferðamenn til Is- lands?“ Elín hefur greinilega nokkrar áhyggjur af því, að fæla kunni einhverja frá að heimsækja land og þjóð þegar kvikmyndagerðar- maðurinn segir kunningjunum á Bretlandi frá því, hve dýrt sé að ganga sig þyrstan í henni Reykja- vík. Sjálfur lít ég þetta nokkuð öðr- um augum. Mér finnst í fyrsta lagi athyglis- vert, að verðið á áfenginu skuli hafa haft þau áhrif á tilvonandi neytanda, að hann hætti við drykkjuna. Það sýnir ljóslega hversu verðlagning áfengis er öflugt tæki til þess að stjóma áfengisneyslu þjóðarinnar. í öðru lagi finnst mér að ein- hver hefði átt að upplýsa þennan þyrsta ferðamenn og aðra um það, að Reykjavík er borg sem nýtur þeirrar sérstöðu, að úr kalda- vatnskrönum hennar streymir eitt- hvert hreinasta og besta vatn, sem fáanlegt er í heiminum. Ofan á kaupin er það kalt, svalandi og þyrstir göngumenn geta drukkið það frítt að vild. Mér finnst í þriðja lagi að ekki eigi að auglýsa Reykjavik sem stað, þar sem ferðamenn koma til þess að þamba ódýrt áfengi eða til þess að horfa á heimamenn, allra síst unglinga, drekka sig öl- óða. Þvert á móti fínnst mér, að við eigum að auglýsa ísland sem land, þangað sem menn leita til þess að anda að sér hreinu, heil- næmu lofti, drekka hreint, ómeng- að vatn, borða fjallalamb og fersk- an físk og njóta fegurðar óspilltrar náttúru. Það er enginn akkur í að draga til landsins drykkjurúta, fótboltabullur, umhverfísspilla, eða aðra skaðvalda, jafnvel þótt af þeim megi hafa einhveija aura. Þetta er mín skoðun. JÓHANNES BERGSVEINSSON, læknir, Bárugötu 35, Reykjavík. Kœru viðskiptavinir Um leið og við bjóðum Evu Ægisdóttur velkomna, viljum við láta ykkur vita að hún hefur hafið störf á stofunni okkar. FAXAFENI 9 108 REYKJAVÍK SÍMI 588 9299 Blab allra landsmanna! - kjarni málsins! Leyndarmálið í Kópavogi erum við að Ijúka byggingu hússins nr. 15 við Funalind sem er líltið einstakt fjölbýlishús með 10 íbúðum Frágangur á þessu húsi er öðruvísi en þú átt að venjast í slíkum húsum á islandi. Húsið er allt klætt að utan með áli. Gluggar eru sámsettir ál- uy timburyluygar með 3löldu yleri. Viðhaldspeningarnir þinir lara því i utanlandslerðir eða annað það sem þér hentar betur. Aö innan er húsið allt hið vandaðasla. Sameign er opin, björt og skemmtileg. Allir innveggir eru klæddir með tvöföldu gipsi og einangraðir með steinull. sem gefur mjög góða hljóðeinangrun, enyin sprungumyndun og gipsið er dautt elni sem veldur ekki ofnæmi. Innréttingar og hurðir eru úr kirsuberjaviö og eru vönduð íslensk framleiðsla. Séi þvottahús fylgir hverri íbiið. Baðherberyi er flísaiayt í hólf og gólf. Þar er einnig að linna vandaöa haöinnréttingu, góð blundunartæki. já og konur athugið á baöinti er vegg-hengt klósett sem auöveldar veruleya þrifin fyrir karliim. Skápar eru í öllum herbergjum og í torstofu. Á gólfi verður vandað yeynheilt parket. íbúðirnar eru ríkulega búnar sjónvarps-, síma- og rafmagnslenglum. Vöndtið eldunariæki lylgja i eldhúsi. íbúðirnar eru stærii og rúinbetri en gengur og gerist. Stórar svalii fylgja ibúðunum á efri hæðum og sér lóö fylgir íbúðum á jarðhæð. Staðsetning er miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Gott aðgengi er í allar átlii og stutt í þjónustu, skóla og dagheimili. Lóð verður fullfrágengin og hiti vetður i slétt. Þetta er eitt hús með öllu. Hér þarf engu að bæta við eða framkvæma áötir en flutt er inn. Enginn lalinn koslnaöur. Bara lyklarnir og flytja inn. En því miður eru þetta bara 8 íbúðir svo það er betra að segja engum frá þessu, heldur drifa sig beint og festa sér eina af þessum einstöku íbúðum. afhjúpad FUNALIND 15 Opid hús Laugardag og sunnudag frá kl. 13.00 -16.00 H -GÆÐI Suðurlandsbraut 16-108 Reykjavlk SIMI 588 8787 - FAX 588 8780 # # I Hú veráir aócsfá þelta fim! Reykjavíkurvegi 60 - 220 Hafnarfirði Sími 565-5522 - Fax 565-4744

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.