Morgunblaðið - 11.05.1997, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ
j 42 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997
ráðgjöf • bókhald • skattaaðstoð • kaup og sala fyrirtækja
=FYRIRTÆKI TIL SÖLU
• Tískuvöruverslun í eigin húsnæði í Kringlunni.
• Lítíð innflutningsfyrirtæki með föndurvörur o.fl.
• Þekkt hugbúnaðarfyrirtæki með góð viðskiptasambönd.
• matvælaframleiðsla hentugt til flutnings, pizzur o.fl.
• Snyrtívöruverslun í verslunarkjama, góð kjör.
• Ljósmyndavöruverslun, framköllun í miðbæ Rvík.
• Þekkt og góð blóma- og gjafavöruverslun í austurbæ.
• Lítil heildverslun með innfl. á vörum fyrir efiiaiðnað
• Sérverslun með gjafavörur, eigin innflutningur.
• Þekkt sólbaðstofa í Hafnarf. mjög góð tæki og innr.
• Sölutum í Hafiiarf., matvara, ís, sælgætí og video.
• ísbúð í Múlahverfi, góð tæki, gott verð.
• Kaffihús v/Hlemmtorg. Góð tæki og áhöld.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTAN
Jagmennska íjyrirrúmi
Síðumúla 31 • 108 Reykjavik • Sími 568 9299 • Fax 568 1945
•f
FOSSVOGUR - NÝTT
Nr. 8661. Vorum að fá í sölu gott endaraðhús á einni
hæð, stærð 145 fm auk sólstofu og bílskúr. Bein sala eða
skipti á 100-130 fm íbúð í Fossvogi, Gerðum eða Leitum.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
ESPIGERÐI - LAUS
Nr. 8113. 4ra herbergja 110 fm íbúð á 3. hæð í lyftu húsi.
3 svefnherbergi. Tvennar svalir, mikið útsýni. Áhv. 4,9
millj. Verð 9,6 millj. LAUS STRAX.
AUSTURSTRÖND
Nr. 8635. Mjög góð 3ja herbergja endaíb. á 5. hæð í lyftu-
húsi ásamt stæði í bílageymslu. Vandaðar innréttingar og
gólfefni. Þvottahús á hæðinni. Stórar suður svalir. fbúð,
hús og sameign í góðu ástandi. Verð 8,0 millj. LAUS
STRAX. Ath. skipti á sérbýli möguleg.
REYNIMELUR
Nr. 8655. Góð 95 fm endaíbúð á 4. hæð í góðu fjölbýli. 4
svefnherb. Nýstandsett baðherb. Parket á gólfum. Útsýni.
Hús í góðu ástandi. Verð 8,2 millj.
Kjöreign
Ármúla 21, sími 533 4040, '~-ú
Dan V.S. Wiium, hdl., lögg. fasteignasali.
FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI
S: 533 1313 Opið í dag kl. 12 -14.
Höfum fengið nokkrar stórar
eignir vel staðsettar til sölu-
meðferðar. Fjársterkir aðilar
koma aðeins til greina og
aðeins eru gefnar upp-
lýsingar á skrifsofu frónar.
Vesturbær, tvær íbúðir. um er
að ræða 3ja herbergja og aðra 2ja her-
bergjaíbúð á sömu hæð, alls 150 fm.
Hentugt fyrir samhent fólk. Áhv. 6 millj.
Verð kr. 9,8 millj. 0413
Vesturbær 67 fm 2ja - 3ja herb.
uppgerð og falleg íb. á 1. hæð í 6 íb. húsi. |
Flísar á stofu, eldhús innrétting uppgerð
o.fl. Áhvílandi 4 millj. hagstæð lán. 0443
|
Við KR völlinn 56 fm ibúð á 1. hæð. j
Hentar einstaklingi eða ungu pari. Parket §
og ágætar innréttingar. Áhv. 3,2 millj. frá
Húsnæðisst.
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags
Ættingja leitað
ÉG HEF verið að rannsaka
ættarsögu mína í nokkur
ár en hef ekki getað rakið
einn ættarlegginn. Frænka
mín, Mildred Randall, var
fædd í Poplar, London í
kringum 1880/85 og gift-
ist hún Einari Helgasyni,
dagsetning ekki þekkt.
Þau settust að á Hessle-
svæðinu í Hull og áttu 3
böm, James, fæddur um
1912, Emily, fædd um
1914 og Joan, fædd um
1916.
í Englandi hefði Helga-
son verið ættamafn þeirra
en í dag er enginn með því
nafni lifandi í Hull og að-
eins ein fjölskylda, óskyld,
með þetta nafn í landinu.
Ég geri mér grein fyrir
því að eftir svo langan tíma
getur verið erfitt að rekja
ættina en ef lesendur
blaðsins hefðu einhveijar
upplýsingar eða tillögur
um hvar helst skyldi leita,
þætti mér vænt um að
heyra frá þeim.
Netfang mitt er
stanndirect.co.uk - fax-
númer mitt er +44 181 289
1849 og heimilisfangið er:
Stanley R. Gooch
144 Anerly Road
London
SE20 8DL
England.
Nemendur
Laugarvatns-
skóla ’46-’48
NEMENDUR Laugar-
vatnsskóla 1946, 1947 og
1948. Hvemig væri að
hittast 28. júní í tilefni
afmælis okkar? Sé áhugi
fyrir hendi, hringið í Stein-
gerði s. 567-3930, Ólaf s.
553-1490, Ólöfu s.
553- 6173 og Maríu
554- 1704.
Miðbæjarskóla-
mót 24. maí -
nemendur
fæddir 1944
NEMENDUR fæddir
1944, sem vom í Miðbæj-
arskólanum og útskrifuð-
ust fyrir 40 árnrn með
gamla góða fullnaðarpróf-
ið, ætla sér að hittast laug-
ardaginn 24. maí 1997. í
fréttabréfi sem sent var
nemendum misritaðist því
miður símanúmer Lísu
Thomsen. Því birtum við
hér nöfn okkar og síma-
númer og hvetjum ykkur,
kæm skölasystkin, til að
tilkynna þátttöku ykkar
ekki síðar en 12. maí.
Lísa Thomsen, s.
482-2670, Birgir Blöndal,
s. 557-3577, Elísabet Páls-
dóttir, 567-2236, Helga
Stephensen, s. 552-9044,
Kolbrún Eiríksd., s.
552-0849, Nína Guð-
laugsd., s. 553-6308 og
Sesselja Magnúsdóttir,
557-2049.
Tapað/fundið
Smábarnapeysa
týndist
SMÁBARNAPEYSA, gul
og hvít, týndist á Lauga-
vegi eða í miðbæ 25. apríl
sl. Peysan hefur mikið til-
finningalegt gildi fyrir eig-
andann. Skilvís finnandi
vinsamlega hringi í Bryn-
hildi, sími 581-1289, fund-
arlaun.
Gullhringur fannst
GULLHRINGUR fannst
fýrir utan JL-húsið. Uppl.
í síma 551-8457.
Myndavél tapaðist
við Víkartind
MYNDAVÉL tapaðist við
Víkartind eða varð eftir í
Toyota-jeppa sem feijaði
okkur tvo félaga niður að
Víkartindi sl. fimmtudag.
Ef einhver hefur orðið var
við myndavélina, vinsam-
legast hafið samband í
síma 554-2788.
Dýrahald
Týndur kisi á
Hvaleyrarholti
KONNI, 5 ára geltur
högni, hvarf að heiman frá
Háholti, Hvaleyrarholti,
Hafnarfirði, miðvikudag-
inn 7. maí. Hann er svart-
ur með hvíta bringu, kvið
og hvítur á fótum. Hann
er með eyrnamerki R3
H069 og hálsól með fugla-
fælu og merkispjaldi með
símanúmeri 555-3480.
Vinsamlegast svipist um
m.a. í bílskúrum, geymsl-
um og þvottahúsum á
Hvaleyrarholtinu. Konni
var nýfluttur í Hafnarfjörð
og hefur líklega tapað átt-
um. Vinsamlega látið vita
ef kisi finnst í síma
555-3480 gegn góðum
fundarlaunum.
Kettlingur fæst
gefins
8 VIKNA læða fæst gef-
ins. Hún er kassavön.
Uppl. í síma 897-1209.
Fallegir kettlingar
fást gefins
EINSTAKLEGA fallegir
kettlingar fást gefins á góð
heimili. Upplýsingar í síma
587-6087.
Pennavinir
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á bréfa-
skriftum og tónlist en hún
leikur á píanó:
Takako Yonezawa,
3 Minami Ogiyama,
Furano-shi,
Hokkaidou,
076 Japan.
ÞÝSKUR frímerkjasafnari
vill komast í samband við
íslenska safnara með skipti
í huga:
Helmuth Rosteck,
HailstSdter Weg 16,
D-90425 Niirnberg,
Germany.
TUTTUGU og eins árs
finnsk stúlka með áhuga á
tónlist, bréfaskriftum o.fl.:
Marika Lehto,
Kivel&ntie 13,
16200 Artjárvi,
Finland.
TUTTUGU og átta ára jap-
önsk húsmóðir með áhuga
á popptónlist, kvikmyndum
og bréfaskriftum:
Mayumi Matsumoto,
101, 227-5, Ootake,
Kawaguchi-shi,
Saitama-ken,
334 Japan.
SAUTJÁN ára sænsk
stúlka með áhuga á tónlist,
bókmenntum og tungumál-
um.
Hún nemur nú ensku og
frönsku og hyggst bæta
spænsku, þýsku og tákn-
máli við síðar:
Sofia Edgar,
VSttlösa Skogsbo,
53391 Götene,
Sweden.
Víkveiji skrifar...
AÍMÁNUÐUR er hliðið að
sumrinu. Hann skartar oft
heiðum bláhimni, þótt hitastigið sé
á stundum lágt. Og sárkaldir hafa
dagarnir verið undanfarið.
Meðalhiti maímánaðar á tíu ára
tímabili, 1986 til 1996, var samt
sem áður 6,4 gr. C í Reykjavík,
samkvæmt Almanaki Háskólans
1997, sem geymir margan fróðleik-
inn og er raunar ómissandi upp-
flettirit á heimilum landsmanna.
Meðalhitinn á Akureyri var litlu
lægri, eða 6,0 gr. C.
Meðalhiti heitustu mánaðanna,
júní, júlí og ágúst, þessi tíu ár var
sem hér segir: 1) Reykjavík: 8,8
gr. C, 10,9 gr. C og 10,4 gr. C.
2) Akureyri: 9,5 gr. C, 10,8 gr. C
og 10,5 gr. C. Það var mjótt á
munum milli höfuðbyggða sunnan
og norðan heiða. Sólarstundir í höf-
uðborginni eru flestar að meðaltali
á sólarhring í maímánuði, 5,9, en
í júnímánuði á Akureyri 6,3.
Meðalhiti áranna, sem fyrr voru
nefnd, var 4,3 gr. C í Reykjavík
og 3,6 gr. C á Akureyri. Það er
eins gott að eiga jarðhitann vísan
í landi sem okkar. Og sól í sinni.
Og jákvætt viðhorf til lífsins og til-
verunnar.
XXX
MESTUR hiti sem mælst hefur
á íslandi við staðalaðstæður
er 30,5 gr. C, mælt á Teigarhorni
22. júní 1939. Mestur hiti í Reykja-
vík mældist 9. júlí 1976, 24,3 gr.
C. Gott væri að fá þó ekki væri
nema eina viku af slíkum dögum,
mættu vera tvær, og þá helzt í
sumarfríinu!
Kuldaboli á einnig sín íslands-
met. Mestur kuldi mældist á Gríms-
stöðum og Möðrudal 22. janúar
frostaveturinn 1918, mínus 38 gr.
C. Daginn áður mældist mestur
kuldi í Reykjavík, mínus 24,5 gr.
C. Nöturlegt hlýtur að vera að
ganga um götur, að ekki sé nú tal-
að um vegleysur, í 25 stiga gaddi,
ef norðan garri fylgir með í kaup-
bæti.
Vindurinn magnar kuldann. í
Almanaki Háskólans 1997 segir:
„Við mínus 5 gr. C og 6 vindstig
svarar vindkælingin til 13 gr. hita-
stigslækkunar, þ.e. kælingin er
svipuð og við mínus 18 gr. C í
logni.“
Það er létt verk að selja sólar-
landaferðir í slíku veðurfari.
XXX
YÍKVERJA rak í rogastans þeg-
ar hann gluggaði í Alþingis-
tíðindi á dögunum. Hann varð furðu
lostinn við lestur framsögu dóms-
málaráðherra fyrir skýrslu um or-
sakir, umfang og afleiðingar heimil-
isofbeldis hér á landi. Ráðherrann
sagði m.a.:
„í þriðja lagi kemur fram að 1,3%
kvenna og 0,8% karla hafa orðið
fyrir ofbeldi af völdum maka á sl.
12 mánuðum. Um 54% af þeim
konum, sem hafa verið beittar of-
beldi hafa verið beittar grófu of-
beldi á móti 38% af körlunum... í
fjórða lagi kemur fram að samtals
hafa á bilinu 1.000 til 1.100 konur
mátt þola ofbeldi af hendi núver-
andi eða fýrrverandi eigin- eða sam-
býlismanns á síðast ári. Af þeim
hafa um 750 konur mátt þola of-
beldi oftar en einu sinni...“!
Það er óhugnanlegt að heimilisof-
beldi af þessari stærðargráðu skuli
vera til staðar i íslenzku samfélagi.
Það þarf að fara vendilega ofan í
saumana á þessu vandamáli.
xxx
JÖLMENNUR hópur starfar á
sjúkrahúsum, öldrunarstofn-
unum og heilsugæzlustöðvum
landsins - eða 8.370 manns. Þetta
kom fram í máli heilbrigðisráðherra
á Alþingi fyrir skemmstu. Þó eru
undanskildar stjórnsýslu- og eftir-
litsstofnanir, svo sem Trygginga-
stofnun ríkisins, Geislavarnir ríkis-
ins og Landlæknisembættið.
Heilbrigðiskerfíð skilar og góðum
árangri. Arðsemi þess kemur fram
í betri líðan fólks, lengri starfsævi
og verulega minni fjarvistum frá
vinnu. Það á trúlega eftir að vaxa
enn, enda fjölgar þjóðinni samhliða
því að meðalævin lengist. Þörfin
fyrir öldrunarþjónustu vex því stöð-
ugt. Þetta er sama þróun og í öðrum
velmegunarríkjum.