Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 43

Morgunblaðið - 11.05.1997, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ I DAG SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 43 BRIPS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson GABRIEL Chagas, Bras- ilíumaðurinn knái, sat í vestur og átti út gegn sex tíglum. Þetta var í janúar síðastliðnum, í Mcallan- mótinu í London. Félagi Chagas var Zia Mahmood, en mótherjamir Seymon Deutsch og Michael Rosen- berg: Austur gefur; allir á hættu. Norður ♦ 832 ▼ D103 ♦ DG3 ♦ ÁKDG Vestur ♦ 1064 V Á4 ♦ 72 ♦ 1098764 Austur ♦ G975 V KG985 ♦ 98 ♦ 32 Suður ♦ ÁKD ▼ 762 ♦ ÁK10654 ♦ 5 Véstur Norður Austur Suður Chagas Rosenberg Zia Deutsch - - Pass 1 tígull Pass 2 grönd * Pass 3 tígiar Pass 3 työrtu ** Dobl Pass Pass 3 grönd Pass 4 grönd Pass 6 tíglar Allir pass * 13-15 punktar. ** Styrkur í hjarta. Einfaldar sálir leggja nið- ur hjartaás í byijun, enda hefur makker lýst yfir styrk í hjarta. Þá fer slemman tvo niður. Stóttugir spilarar koma út undan hjartaásn- um, þar sem ekki er útilok- að að blindur komi upp með KG. Þá fer slemman einn niður. En hvað gera menn eins og Chagas? Hann kom út með spaða (!?) og Deutsch fékk alla slagina. Hvers vegna í ósköpun- um spilaði Chagas ekki út hjarta? Svarið er tvíþætt: í fýrsta lagi treysti hann mótherjunum til að eiga fyrirstöðu í litnum. Rosen- berg á hrós skilið fyrir stökkið í slemmuna með óvarinn hjartalit. Hann ótt- aðist að geimið færi niður með hjarta út (sem er rétt, því hjartaútspil drepur bæði þijú grönd og fimm tígla) og taldi meiri líkur á að sleppa við hjartaútspil ef hann færi galvaskur í slemmu! Hárrétt reiknað! Hin ástæðan (og sú veigameiri) fyrir útspili Chagas var sú staðreynd að Zia Mahmood sat í aust- ur. Zia er kunnur fyrir „pókerdobl" á ekki neitt í þeim tilgangi að þyrla upp moldviðri. í setunni á undan hafði hann farið illa með leikarann og vin sinn Omar Sharif, þegar hann doblaði fyrirstöðusögn með þijá hunda og plataði Sharif þar með niður á borðleggjandi slemmu. Við sjáum það spil á þriðjudaginn. Með morgunkaffinu Ást er... þegar kvöldmatur er næstum tilbúinn þegar þú kemurheim. TM Reg. U.S. Pal OH. — al right* r*««cv»d (c) 1997 Los AngMt Tlmos Syndicata ? f HÖGNIHREKKVÍSI SKÁK Umsjón Margelr Pétursson HVÍTUR leikur og Staðan kom upp á opnu móti í Mar del Plata í Arg- entínu í vor. Heimamaður- inn Pablo Zarnicki (2.560) hafði hvítt og átti leik, en Hennan Van Riemsdijk (2.395), Brasilíu, var með svart. 20. Bxg6! - hxg6 21. De4 (með tvöfaldri hót- una, á a8 og g6) 21. - Kg7 (Eða 21. - Ha6 22. Dxg6+ - Kh8 23. Hfdl! Og nú á svartur ekkert betra en 23. - Rf6 24. exf6 - Bxf6 25. Dh5+ - Kg8 26. Hd3 með vinningsstöðu á hvítt) 22. Dxa8 - Bb7 23. Da5 - Dc6 24. Dd2 - Hf5 25. Hxf5 - exf5 26. Ra5 og svartur gafst upp. Hraðmót Hellis mánudagskvöld kl. 20 í Hellisheimilinu í Mjódd í Breiðholti. vinnur ORÐABÓKIN Að lúta í gras FYRIR nokkrum árum var minnzt á það við mig, að þeir, sem fjöll- uðu um íþróttir, ekki sízt knattspyrnu, notuðu á stundum ofangreint orðasamband um það lið, sem tapaði leik. Þetta varð til þess, að ég helg- aði einn pistil minn þessu efni. Ekki alls fyrir löngu heyrði ég svo kunnan fréttaritara RÚV taka svo til orða, að þekkt erlent lið hefði orðið að lúta ígras fyrir öðru liði. Þetta gefur tilefni til að víkja enn einu sinni að þessu orðafari og þá ekki sízt í von um, að þeir, sem grípa til þessa orða- smbands og þá vafalaust til þess eins að auka fjöl- breytni málsins, athugi, hvað í þessu orðalagi felst raunverulega. Hér geta einmitt leynzt ýms- ir pyttir, sem auðvelt er að detta ofan í, ef ekki er gætt fyllstu varkárni. Vafalítið er hér ruglað saman tveimur orðtök- um og - öðru þeirra raunar brenglað - á þann hátt, að úr verður allt annað en menn vildu sagt hafa. Talað er um að lúta í lægra haldi, þegar e-r bíður lægri hlut eða tapar t. d. leik. Hins vegar er alþekkt í fornu máli orðasam- bandið að hníga í gras, sem er í upphafi komið úr bardagamáli og merk- ir beinlínis að falla eða deyja í orustu, sbr. hnfga að velli, hníga í valinn. Sá, sem talar um að lúta í gras, áttar sig auðsæi- lega ekki á, hvað felst raunverulega í þessu orðasambandi. - J.A.J. STJÖRNUSPÁ eltlr Franees Drake NAUT Afmælisbam dagsins: Þú hefurgóða stjómunarhæö- leika, en átt betra með að vinna einn en með öðmm. Þú ert þrjóskur og ættir ekki að láta smámái íþyngja þér. Hrútur (21.mars- 19. apríl) Nýtt verkefni lofar góðu og þú skalt forðast að lenda í rimmu við afbrýðisaman starfsfélaga. Mundu að reiðin gerir engum gott. Naut (20. apríl - 20. maí) Þér lfður best ef þú færð að sökkva þér niður f hugmyndir þfnar en þarft að hafa stjóm á ráðríki þínu. Leggðu áherslu á heilbrigt líf. Tvíburar (21.maí-20.júní) Þú ert hugsjónamaður og þarft að legggja þig fram um að vera hagsýnn í viðskiptum. Láttu ekki smámál heima fyrir ergja þig. Krabbi (21. júnf — 22. júlf) Þú ert stór f anda og hugsun. Hugsaðu vel um að ofgera þér ekki og reyndu að byggja upp hraustan líkama. Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Þú þarft að sýna meiri sjálfs- aga til að halda einbeitni í starfi og mæta á réttum tfma. Það gefur þér meira að vera heima f kvöld, en að fara út á lffið. Meyja (23. ágúst - 22. september) Einhver afbrýðisamur verður á vegi þfnum og þetta er ekki rétti tíminn til að mynda sam- bönd. Haltu þér í fjarlægð um stund og fylgdu þínum eigin ráðum. vög (23. sept. - 22. október) 5 Leggðu áherslu á það fyrri part dags, að létta undir með fjölskyldumeðlimum, eink- anlega þeim eldri. Eftir það skaltu gera eitthvað fyrir sjálfan þig. Sporödreki (23. okt. - 21. nóvember) Almennt er nú góður tfmi til að sýna sig og sjá aðra. Ein- hvers staðar átt þú leyndan aðdáanda. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þú þarft að vinna á móti allri truflun núna, svo þú getir klárað verkefni þitt. Ef þú beitir þig aga muntu upp- skera í betri afkomu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Velgengni örvar þig til dáða. Flýttu þér ekki svo, að þú megir ekki vera að því að hlusta á góð ráð og kanna alla möguleika. Vatnsberi (20.janúar- 18. febrúar) Fólk notar ýmis ráð til að fá þig til að skipta um skoðun. Þú lætur það ekki hafa áhrif á þig, en finnst það þreyt- andi. Vertu bara þolinmóður. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Sít Nú skaltu gera hlé á félags- starfi, sem hefur tekið sinn toll, og vera einn með sjálfum þér um tíma. Hvfldu þig og farðu snemma f háttinn. Stjömuspána á að iesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum gmnni vísindalegra staðreynda. í allt sumar bjóðum við konum að koma á 3j a vikna aðhaldsnámskeið hjá okkur. Þetta eru lokuð námskeið 5 tímar í viku og gefa konum gott tækifæri til að megra sig og styrkj a án þess að vera bundin við löng æfingakerfi. Fyrsta námskeiðið hefst 20. maí Innritun er hafin á þessi námskeið! Núna bjóðum við nýja kraftmikla súpertíma fyrir vanar konur. Stanslaus keyrsla og fjör í tvöföldum erfiðistímum. Fyrstanámskeiðið hefet 2. júní Innritun er hafin á þessi námskeið ATH: A ðeinsfyrír vanar! Frjálsa áskriftakerfið okkar gerið þér kleift að mæta h venær sem þér hentar og æfa þig undir leiðsögn lærðra kennara. Tímamir eru frá morgni til kvölds. Bamapössun fyrir hádegi. Þú nœrð árangrí hjá okkur!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.