Morgunblaðið - 11.05.1997, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LRi rl AÐ HUGA AÐ
FRAMHALDS i £ n
MYNDBÖND/KVIKMYNDIR/ÚTVARP-SJÓNVARP
SUNIMUDAGSMYIMDIR SJONVARPSSTOÐVANNA
Sjónvarpið ►22.30 Ekki liggja fyr-
ir umsagnir um spænsku bíómyndina
Taldir dagar (Dias contados, 1994)
en hún mun hafa hlotið verðlaun
fyrir iýsingu sína á „samskiptum
ungs fólks í borgarsamfélagi nútím-
ans“, eins og segir í dagskrárkynn-
ingu. Leikstjórinn heitir Imanol
Liribe og aðalhlutverk eru leikin af
Carmelo Gómez og Javier Bardem.
Stöð 2 ^21.30 Tveggja hluta sjón-
varpsmynd um Jane Tennyson lög-
reglukonu og glímu hennar við eigin
samstarfsmenn jafnt sem glæpa-
menn er fagnaðarefni og vonandi
MIRREN var útnefnd til Ósk-
arsverðlauna fyrir hlutverk
sitt í „The Madness of King
George“.
ISLEIVSKAR KOMRI
PLAYBOY
Hið heimsþekkta tímarit Playboy óskar eftir íslenskum ljósmyndafyrirsætum
vegna myndaþáttar sem tímaritið hefur ákveðið að gera á íslandi
í lok júlí næstkomandi.
Áhugasamar stúlkur eru beðnar um að senda umsóknir er greini frá
nafni, aldri (lágmark 18 ára), heimili og símanúmeri, og ljósrit af
nafnskírteini ásamt tveimur myndum, annarri andlitsmynd
og hinni í bikinibaðfötum til:
Auglýsingadeildar Morgunblaðsins merktar:
Fyrirsætur 321, fyrir 21. maí næstkomandi.
Haft verður samband við alla umsækjendur og myndum skilað.
Myndir af flestum heimsins þekktustu fyrirsætum hafa birst
í tímaritinu eins og sjá má í maíhefti blaðsins sem fæst
í bókaverslunum.
bregst hún ekki vonum eins og
Crackergerði í sinni Hong Kongreisu
nýlega. í Djöfull í mannsmynd
(Prime Suspect, 1996) er Tennyson
við skyldustörf í Manchester. Helen
Mirren leikur hana jafn vel og áður.
Leikstjóri Phil Davis.
Stöð 2 ►OO .35 Símaat er unglinga-
gaman sem ætti ekki höfða til eldri
en fjórtán ára en aðalpersónurnar í
Aulabárðum (The Jerky Boys, 1995)
hafa ekki vaxið upp úr því og standa
undir íslenska titlinum. Þeir hefðu
betur látið ógert að gera símaat í
glæponinum Alan Arkin, sem hefði
betur látið ógert að leika í þessari
leiðindaþvælu. Eldri en fjórtán ára
létu betur ógert að horfa á hana. 'h
Sýn ►22.55 Á föstudagskvöldið
sáum við stílfærða glæpamynd Co-
enbræðra Miller’s Crossing. I kvöld
býðst hins vegar mun betur heppnuð
afurð þeirra bræðra, hin geggjaða
gamanmynd Arizona yngri (Raising
Arizona, 1987) um óviðjafnanlegt
barnsrán. Nicolas Cage, Holly Hunt-
er og John Goodman fara á kostum.
★ ★ ★ 'h
Árni Þórarinsson
Helen Mirren
tekst á við djöfia
HELEN Mirren snýr
aftur á skjáinn í hlut-
verki rannsóknarlög-
reglukonunnar Jane
Tennison í nýjasta
myndaflokknum af
djöfli í mannsmynd
(„Prime Suspect 5“) á
Stöð 2 sunnudaginn 11.
maí og mánudaginn 12.
maí. Þetta er fimmta
innleggið í sögunni um
Tennison og baráttu
hennar við morðingja
og önnur fúlmenni á
Englandi.
Fyrsti myndaflokkur-
inn í seríunni var sýndur
árið 1990. Hann vakti strax athygli
vegna karakters Tennisons og túlk-
unar Helen Mirren. Tennison þótti
heilsteyptari og flóknari kvenpersóna
en oft á tíðum er boðið upp á í sjón-
varpsþáttum. Það voru ekki bara
gagnrýnendurnir sem voru hrifnir
heldur einnig áhorfendur. Svarið við
viðbrögðum áhorfenda var fleiri
myndaflokkar um lögreglukonuna
árið 1992, 1993, og 1995. „Prime
Suspect 5“, sem Stöð 2 sýnir um
helgina, var siðan gerður í fyrra.
Helen Mirren, sem er þekkt íyrir
að leika konur sem eru vel gefnar
og kynþokkafullar, hóf feril sinn árið
1965, þá 18 ára gömul. Hún fór með
hlutverk Kleópötru í Shakespeare-
stykkinu „Anthony and Cleopatra" í
uppsetningu í Old Vic-leikhúsinu.
Næstu árin var Mirren leikkona hjá
The Royal Shakespeare Company og
fór með mörg helstu kvenhlutverkin
sem Shakespeare skrif-
aði. í byijun áttunda
áratugarins var hún í
læri hjá Peter Brook og
lék í mörgum klassísk-
um leikhúsverkum.
Helen Mirren lék í
sinni fyrstu kvikmynd
árið 1968. Það var kvik-
myndaútgáfa Peters
Halls á „Midsummer
Night’s Dream“. Síðan
þá hefur hún leikið í ljöl-
mörgum kvikmyndum,
má þar nefna: „Calig-
ula“ (1979), „The Long
Good Friday" (1980),
„Cal“ (1984), „The
Mosquito Coast“ (1986), „The Cook,
the Thief, his Wife and her Lover“
(1989), „Where Angels Fear to Tre-
ad“ (1991), og „The Madness of King
George" (1994).
Mirren vann Cannes-verðlaun sem
besta leikkona fyrir hlutverk sitt í
„Cal“ árið 1984, og fyrir hlutverk
drottningarinnar í „The Madness of
King George" var hún útnefnd til
Óskarsverðlauna. Árið 1995 hlaut
hún Emmy-verðlaun fyrir frammi-
stöðu sína i „Prime Suspect 4“ en
hún hefur einnig hlotið bresku
BAFTA-verðlaunin fyrir hlutverk sitt
í myndaflokknum.
Síðustu tvö árin hefur Mirren
leikið í þremur kvikmyndum, auk
vinnunnar við nýjasta „Prime
Suspect" myndaflokkinn, og er ein
þeirra „Some Mother’s Son“ vænt-
anleg í kvikmyndahús hér á landi
bráðlega.
HELEN Mirren
CANNES
FILM
FESTIVAL
CANNES 1996
Ridicule
HÁSKÓLABÍÓ - GOTT BÍÓ