Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 56
'ay c *í*í
ViJXc
/v iyxai-c /
T
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVIK, SÍMI569 1100, SÍMBRÉF 569 1181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGÚR 11. MAÍ 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
•
Þorsteinn Pálsson sjávanítvegsráðherra
Vonandi
ekki hótanir
Morgunblaðið/RAX
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir það ekki koma
á óvart þótt Marshall P. Adair,
vara aðstoðarutanríkisráðhen-a
Bandaríkjanna, hvetji íslendinga
til að hefja ekki hvalveiðar að nýju,
en hann segist vona að það beri
ekki að taka orð hans sem hótanir
af hálfu bandarísku ríkisstjórnar-
innar.
Adair sagði í samtali við Morg-
unblaðið að bandarísk stjómvöld
teldu að það þjónaði ekki hagsmun-
um íslands að hefja hvalveiðar að
nýju. „Það er kalt mat mitt að
ákvörðun um að hefja hvalveiðar
gæti haft áhrif á afstöðu annarra
ríkja og þjóða til Islands, a.m.k. til
skamms tíma. Það gæti skipt sköp-
um fyrir viðskiptahagsmuni þjóð-
arinnar,“ sagði Adair m.a. í Morg-
unblaðinu í gær.
„Neikvæð afstaða bandarískra
stjómvalda kemur ekki á óvart.
Hún hefur alltaf legið fyrir. Ég
vona hins vegar að það eigi ekki að
skilja þetta sem hótanir af hálfu
bandarísku ríkisstjórnarinnar,"
sagði Þorsteinn.
Ræðum málið við
Bandaríkj astj órn
Þorsteinn sagði að það hefði alla
tíð legið ljóst fyrir að það yrði mik-
ið verk fyrir íslensk stjórnvöld að
Smíðað
í sólinni
ÞEGAR sumarið kemur verð-
ur öll útivinna skemmtilegri
en áður og þeir sem vinna
skrifstofuvinnu fara að öfunda
starfsstéttir eins og smiði af
því að fá að njóta góða veð-
ursins. Eins og sjá má lék
bros um varir þessa kappsama
smiðs þar sem hann var að
ljúka mótauppslætti vestur á
Granda í Reykjavík.
Erfiðar aðstæður við Æsu
*
Lík annars skipverjans komið um borð í Oðin
BRESKIR kafarar fluttu lík skip-
stjórans á Æsu, sem fannst í flak-
inu síðdegis á föstudag, um borð í
varðskipið Óðin í gær. Lík hins
skipverjans sem fórst var ekki
fundið á hádegi.
Þórólfur Halldórsson, sýslumað-
ur á Patreksfirði, segir að líkið hafi
verið flutt upp í böi-um og búið að
koma því fyrir í varðskipinu. Kaf-
arar fundu líkið síðdegis á föstu-
dag. Þeir gengu frá því og
undirbjuggu fyrir flutning upp á
yfirborð.
Tveir fulltrúar frá ID-nefnd eru
um borð og telja menn sig vita um
hvom skipverjanna sé að ræða, að
sögn Þórólfs, þótt ekki hafi verið
gengið úr skugga um það formlega.
Sýslumaður segir ekki útséð um
hvort hitt líkið sé um borð, erfitt
sé að athafna sig við flakið vegna
myrkurs og minnsta hreyfing þyrli
upp leir.
sannfæra nágrannaþjóðir okkar
um réttmæti þess að hefja hval-
veiðar að nýju. „Þess vegna hafa
menn núna ákveðið að taka eitt
skref í einu í þessu máli og vanda
til alls undirbúnings."
Þorsteinn sagði að nokkuð væri
um liðið frá því íslensk stjórnvöld
ræddu hvalamálið við bandaríska
ráðherra. Það yrði væntanlega
gert fyrr en seinna í framhaldi af
samþykkt ríkisstjórnarinnar.
„Innan Evrópusambandsins hef-
ur einnig verið neikvæð afstaða til
hvalveiða, en Bandaríkin eru eina
þjóðin sem hefur látið í það skína
að þeir myndu beita aðrar þjóðir
viðskiptaþvingunum, jafnvel gegn
alþjóðlegum skuldbindingum sín-
um á því sviði. Að því leyti hafa
þeir gengið lengra en aðrar þjóð-
ir,“ sagði Þorsteinn.
Ættingjar hinna látnu komu til
Bfldudals í gær og munu dvelja í
safnaðarheimilinu. Til stendur að
þeir fái að bera kistuna frá borði
en ekki var búið að ákveða hvenær
af því yrði um hádegi í gær, að
sögn Þórólfs. Fimm fulltrúar lög-
reglu eru um borð og verða þeir
áfram þar til búið er að ganga úr
skugga um hvort lík hins skipverj-
ans sé í flakinu. Stóð til að kafa aft-
ur niður síðdegis í gær.
Lífeyrisfrumvarpið
Niðurstaða
fæst í kvöld
STJÓRNARFLOKKARNIR
taka afstöðu til þess í kvöld,
sunnudagskvöld, hvort af-
greiðslu lífeyrisfrumvarps rík-
isstjórnarinnar verði frestað til
hausts, eins og forsvarsmenn
ASÍ og VSÍ hafa óskað eftir.
Þingflokkur Sjálfstæðis-
flokksins ræddi málið á sameig-
inlegum fundi með miðstjórn
flokksins í Löngumýrarskóla í
Skagafirði í gær. Davíð Odds-
son forsætisráðherra sagði við
Morgunblaðið að málið hefði
ýmsar hliðar.
„Það er auðvitað æskilegt að
ná sáttum um málið og gefa
þessum félögum tækifæri til
þess að kynna sínum aðilum
þessar hugmyndir, sem ræddar
hafa verið. A hinn bóginn er
einnig afar æskilegt að ganga
frá málinu af ýmsum ástæð-
um,“ sagði Davíð.
Útflutningshópur Félags íslenskra stórkaupmanna um afnám línutvöföldunar
Stjómvöld hafa afhent
frystitogumm veiðiréttinn
Vestfírðir
* Viðræður
hafnar
VIÐRÆÐUR milli samninganefnda
Alþýðusambands Vestfjarða og
vinnuveitenda á Vestfjörðum hófust
á ísafirði í gær eftir nokkurt hlé.
ASV lagði fram nýtt tilboð í gær,
sem gerði ráð fyrir að 100 þúsund
kr. lágmarkslaunum yrði náð á
lengri tíma en áður. Geir Gunnars-
son vararíkissáttasemjari sagði að
vinnuveitendur hefðu tekið tilboð-
inu fálega, en menn myndu engu að
síður halda viðræðum áfram og
kanna á ný hvort einhver möguleiki
væri á samningum. Engin leið væri
að segja fyrir um hvað það tæki
langan tíma. Deilan væri í erfiðum
hnút og hann vonaðist eftir að menn
myndu leggja sig fram um að finna
lausn á henni.
„BYGGÐARLOG á landsbyggðinni,
sem eiga mest undir línuveiðum og
landvinnslu, hafa minni fisk með til-
heyrandi atvinnuleysi og fólksflótta.
A sama tíma er stanslaus aukning í
kvótaeign frystitogara, sem hafa ver-
ið að kaupa upp þær veiðiheimildir,
sem línubátar fengu í skiptum fyrir
afnám línutvöföldunar.“
Þetta er m.a. niðurstaða útflutn-
ingshóps Félags íslenskra stórkaup-
manna sem kynnti á blaðamanna-
fundi í gær þær afleiðingar, sem af-
nám línutvöföldunar á síðasta ári hef-
ur haft í för með sér. Þar kom fram
að línuafli á tímabilinu frá nóvember
til febrúar hafi aðeins verið innan við
helmingiu- þess sem hann var á sama
tímabili í fyrra. Innan vébanda út-
flutningshóps FÍS eru öll sjávarút-
flutningsfyrirtæki landsins að undan-
skildum sölusamtökunum SH, IS og
SÍF.
Sveltir saltfiskmarkaðir
í áliti hópsins segir að verðmæt-
ustu saltfiskmarkaðir íslendinga á
Spáni, Italíu og Grikklandi, sem vilja
eingöngu „krókaveiddan fisk“ vegna
hvítleika og gæða fisksins, séu nú
sveltir af íslenskum fiski og hafi orð-
ið að leita sér að krókafiski frá
Færeyjum og Noregi, þar sem eng-
ar hömlur séu á veiðum smábáta á
króka. íslendingar séu þar af leið-
andi að missa þessa markaði vegna
pólitískrar veiðistjórnunai-.
Ennfremur segir: „Landvinnslan
sem og fiskvinnslufólk virðist engan
rétt hafa. Núverandi sjávarútvegs-
nefnd Alþingis undir stjórn Þorsteins
Pálssonar, sjávarútvegsráðherra,
hefur fært frystitogurum og kvóta-
eigendum réttinn til veiða.
Þessi þróun hefur verið á kostnað
bátaflotans sem árum saman hefur
þjónað landvinnslunni. Þetta hefur
verið gert með aukinni virkni kvóta-
kerfisins á kostnað landvinnslunnar
svo sem með afnámi frjálsra veiða
smábáta með krókum, úreldingu
smábátaflotans og afnámi línu-
tvöföldunar.
Við nýjar kvótaúthlutanir, svo sem
á síld og úthafskarfa, hafa fi'ystitog-
arar og nótaskip alfarið fengið þann
kvóta, en smærri bolfiskskip ekkert.
Og til viðbótar úthlutun á þorskkvóta
hafa sömu skip fengið fullan hlut.
Eðlilegra væri að smærri bolfiskskip,
sem veiða fyrh' landvinnsluna, fengju
alla viðbótarúthlutunina á bolfiski.
Það myndi tryggja best uppbyggingu
atvinnulífs á landsbyggðinni."