Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 17

Morgunblaðið - 11.05.1997, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 F 17 HÚSIÐ & GARÐURINN HÚS Bifreiða og landbúnaðavéla við Ármúla er með garðastáli frá Héðni en húsið á myndinni til hægri er við Vesturberg og klætt með garðapanel. SLÉTTAR Steni plötur eru á húsi Sjálfsbjargar við Hátún en hraunað Steni á Engjaseli 65-67. MÚRSTEINSFLÍSAKLÆÐNING er límd á plasteinangrun. STO-múrklæðning á Dúfnahólum 2-4 sést illa enda samskeytalaus. Álklæðningar eru einnig hér til og um þessar mundir er BYKO með tvær gerðir slíkra á lager. Reyno-bond er 0,5 mm á þykkt, tvær 0,2 mm álplötur og plast- efni á milli, sem heldur plötunni stífari eftir neglingu og gerir að verkum að speglun er lítil sem engin. Reyno-bond, sem er þýskt efni sem hefur verið hér á mark- aði í um 2 ár og hefur m.a. verið sett á Hamraskóla og hús Lög- mannafélagsins í Álftamýri. Fer- metrinn kostar 4-5.000 krónur, þ.e. platan sjálf. Plöturnar eru festar á álprófíla og vinkla misbreiða og tekur efn- ið mið af húsgerðinni. Hægt er að fræsa aðra plötuna af og þá er hin með plastefninu meðfæri- leg og sveigjanleg í frágangi. Reyno-bond er til í 2 litum á lag- er hjá BYKO en sérpantanir ann- arra lita eru háðar lágmarks- magni. Sömu sögu er að segja af 2 mm álklæðningu sem t.d. er á blokk í Funalind í Kópavogi og kostar 2.200-2.600 fermetrinn. Klæðningin er yfirleitt fest upp með álvinklum og álprófílum sem taka mið af húsagerð og því fylg- ir verð ekki hér með, því Pétur Andréson hjá BYKO sagði að reynsla af þessum efnum væri ekki orðin svo mikil hér á landi að hægt væri að nefna almenna tölu yfir kostnað á klæddan fer- metra. Hann giskar þó á að ál- klæðning sé um 20-30% dýrari en STENI. Álklæðningar hafa fyrst og fremst verið settar á fjölbýlishús og stórhýsi og segir Pétur að auglýsingar íslenskra byggingar- aðila undanfarið beri með sér að þetta sé tískuklæðningaefnið á íslenskum fjölbýlishúsum en ein- býlishús með álklæðningum eru ekki mörg. Ein nýjasta tegundin á mark- aðnum er svo múrsteinsklæðn- ing frá Bandaríkjunum sem er komin á fjögur hús hér á landi og hefur staðist prófanir Rann- sóknastofnunar byggingaiðnað- arins, að sögn Gylfa K. Sigurðs- sonar, umboðsmanns þessarar klæðningar. Hornsteinar Einangrun úr plastefni sem er rifflað að utan er fest upp á timb- ur-, stein- eða málmvegg með 10 festingum á fermetra. Ein- angrunin dregur ekki í sig raka. Múrsteinslaga steinflísar eru svo límdar á einangrunina með sér- stöku lími sem verður að gúmm- ímassa, að sögn Gylfa, þannig að raki hefur ekki áhrif á viðloðun steinsins við einangrunina. Síðan er sérstöku fúguefni sprautað í fúgurnar. Til eru 20 litir af steini en fúgan er almennt með se- mentslit. Við glugga og horn er gengið frá með sérstökum hornsteinum. Þessi klæðning hefur verið sett á fjögur hús þar á meðal Ásbúð við Dælustöðvarveg í Mosfellsbæ og Heiðargerði 4 í Reykjavík. Gylfi segir að vinnsluhraðinn sé um það bil vika á venjulegt einbýlishús og geti laghentir menn gert þetta sjálfir undir eft- irliti iðnaðarmanna. Efniskostn- aður er um 7.700 krónur á fer- metra, auk kostnaðar á horn- steina, sem er breytilegur eftir húsgerð. Heitir pottar Gœði, úrval og gott verð! # Níðsterkir, mótaðir úr framtíðarefninu akrýli, sem er hita- og efnaþolið og auðvelt að þrífa. # Fást með loki eða öryggishlíf. # Fáanlegir með vatns- og loftnuddkerfum. # Margir litir, 6 stærðir sem rúma 4-12 manns. # Veitum ráðgjöf um niðursetningu og frágang. Verð frá aðeins kr. 89.133 Fratnleiðunt einnig bornbaðkör <>f> sturtubotna tír akryli. Kotnið og skoðið baðkörin og pottana uppsetta í sýningarsal okkar eða hringið ogfáið seiulan litprentaðan beekling og verðlista. TREFJAR Hjalluhrautii 2, sínii 555 1027. Umboðsmenn á Islandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.