Morgunblaðið - 11.05.1997, Síða 18
18 F SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997
HUSIÐ & GARÐURINN
MORGUNBLAÐIÐ
DÆMI um hús þar sem endurgerð hefur heppnast vel að mati Úlfars. Fischersund 3, Hringbraut 43-47, Þingholtsstræti 11, Hverfisgata 18.
Þetta er ekki
bara einhver
fasismi
MIKILVÆGAST er að þekkja húsið
mjög vel áður en byrjað er að rífa
hluti í burtu,“ segir Nikulás Úlfar
Másson arkitekt og deildarstjóri
húsadeildar Árbæjarsafns um
endurgerð gamalla húsa. Hann
segir búið að eyðileggja flest göm-
ul hús í Reykjavík en að þau séu
jafnframt að koma tilbaka smátt
og smátt, með réttum endurbót-
um.
Timburhús frá 1880-1915
ganga kaupum og sölum stans-
laust að sögn Úlfars. Stóri bruninn
í Reykjavík varð árið 1915 og eftir
það var bannað að byggja timbur-
hús. Úlfar segir að húsin séu
menningararfur sem eigi skilyrðis-
laust að varðveita í upprunalegu
horfi en á því hafi verið misbrestur
í gegnum tíðina.
„Þetta sér maður um allan bæ.
Bæði er búið að klæða húsin efn-
um sem passa þeim ekki, til dæm-
is úr plasti, og svo hafa þau mörg
verið augnstungin, póstar og
sprossar fjarlægðir og heilt gler
sett í staðinn. Húsin missa vissa
reisn við þetta."
Hann segir því nauðsynlegt að
rannsaka hvenær húsið er byggt
og hver byggði áður en hafist er
handa við endurbætur.
Sem dæmi um viðeigandi
klæðningar nefnir hann timbur
eða bárujárn og hægt er að kom-
ast að því hjá Árbæjarsafni hver
saga hússins er. Oft má finna
gamlar Ijósmyndir. „Fólk heldur
oft að miklu dýrara sé að gera
húsið upp í samræmi við fyrri venj-
ur, sem oftast er misskilningur.
Það er líka allt annað andrúmsloft
í gömlum húsum en nýjum, þar
sem allir hlutir eru framleiddir í
verksmiðju. Ég nefni sem dæmi
abest og umræðuna um húsasótt.
Svo er um að gera að reyna að
ÚLFAR Másson arkitekt og deildarstjóri húsadeildar Árbæjarsafns.
viðhalda kostunum sem fylgja því
að búa í gömlu húsi og nota upp-
runalegt efni eins og kostur er, til
dæmis timbur, gifs og linoleum
málningu.
Meira rifið en
nauðsynlegt er
íslendingar virðast haldnir þeirri
áráttu að vilja laga allt að nýjustu
tísku, sem hefur farið illa með
gömul hús um allt land.“
Hluti af skýringunni felst líka í
því að sögn Úlfars að iðnaðar-
menn nútímans eru fákunnandi
um gömul hús. „Menn eru alltaf
að leita að einföldustu lausnunum
en það þarf ekki að vera tímafrek-
ara að gera húsið upp eftir göml-
um aðferðum. Þegar hús er skoð-
að mjög vandlega er auðveldara
að gera sér grein fyrir því hvað
raunverulega þarf að endurbæta
og algengara er en hitt að fólk sé
að rífa burtu meira en nauðsynlegt
er.“
Huga þarf að því hvort raki er
í kjallara eða sökkli og þurrka upp
í kringum hann ef svo reynist vera.
„Ef fólk vill kjallara undir húsinu
þarf að hafa stöðu grunnvatns í
huga þegar grafið er niður. Kjallar-
ar hafa farið á flot hjá mörgum
sem ekki hafa gætt að því. Einnig
þarf að muna að láta steininn
halda sér að utanverðu og steypa
að innanverðu."
„Þetta er ekki bara einhver fas-
ismi því staðreyndin er sú að hús
sem eru gerð vandlega upp eins
og við Kirkjustræti, Þingholts-
stræti 11,29 og mörg hús í Grjóta-
þorpi eru miklu fallegri en ella."
Bárujárnið varð allsráðandi sem
þakefni frá 1880 að Úlfars sögn.
„Það sem helst þarf að passa á
þessum húsum er að nota flatan
kjöl en ekki kúlulaga. Steinflísar
koma líka til greina en þær hafa
ekki verið mikið notaðar hér, þótt
þær hafi sést 1870-80."
Fljótlega var farið að setja
pappa á grind húsanna að utan-
og innanverðu segir Úlfar jafn-
framt. „Hvað einangrun varðar er
oftast í lagi að sprauta steinull inn
í grindina en þá verður að gæta
þess að ytri pappinn, sem er þá
bakvið timbur- eða járnklæðning-
una, sé ekki of þéttur. Ef svo er
myndast raki að innanverðu,
grindin blotnar og húsið eyði-
leggst. Því þarf að taka þennan
pappa af og setja vindpappa með
pam-gildi 20 í staðinn," segir
hann.
Einnig er hægt að einangra
húsið að innanverðu með bygging-
arplasti sem veldur minnstri rösk-
un, eða að utan. „Ef hús er byggt
eftir 1903 er bárujárnið neglt á
lista og upplagt að nota bilið sem
þeir mynda til þess að setja ein-
angrun. Ef bilið er ekki fyrir hendi
og húsveggurinn breikkar, þarf að
hnika gluggunum til svo þeir verði
ekki of djúpt inni í veggnum."
íslendingar linir við
viðhald
Úlfar segir grundvallaratriði að
skoða ofan í kjölinn hvað þarf að
laga áður en hafist er handa.
„Maður hefur hvað eftir annað
horft upp á fólk henda klæðningu
og gluggum sem bara þurftu við-
hald, ekki endurnýjun. Gott við-
hald er besta varðveislan en ís-
lendingar virðast mjög linir við
það. Þeir vilja frekar rífa í tætlur,
byggja nýtt og ekki hugsa um það
meira fyrr en aftur er rifið í tætlur."
Hvað steinhús frá 1920-40 við-
víkur, til dæmis í Norðurmýri, Hlíð-
um og Melum, segir Úlfar mik-
ilvægast að nota sömu efni við
endurgerð. „Áferð á veggjum er
mjög mikilvæg, til dæmis steining
með silfurbergi, skeljasandi og
hrauni. Einnig hefur verið mikið
um augnstungur. Loks er áhersla
lögð á að mála þessi hús ekki ef
þau hafa ekki verið máluð áður."
Loks segir Úlfar að sumum þyki
fastheldnin ganga fulllangt en
bendir á máli sínu til stuðnings
að engum dytti í huga að setja
Peugeot-stuðara á gamlan
Volkswagen.
Gæðamold í garðinn þinn
og garðaurganginn burt!
Við færum þér gædamold og flytjum gardaúrganginn burt í jarðvegsbanka.
Einfalt og umfram allt umhverfisvænt.
Upplýsingar í síma 568 8555
&
GÁMAMÓNUSTAN HF.
BÆ7T UMHVERFI - BETRIFRAMTÍD
5 6 8 8 5 5 5 7 F A X : 5 6 8 8 5 3 4
Fibertex
Jarðvegsdúrkurinn
er kominn.
Er til í öllum stærðum.
Básfell ehf.
sími 567 3560,
Stangarhyl 6,110 Reykjavík.