Morgunblaðið - 11.05.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 11.05.1997, Blaðsíða 22
22 F SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ HÚSIÐ & GARÐURINN Skjól fýrir garðverkfæri Efnislisti Efni í grindur hliðanna: Húsþurr, alhefluð fura, 2 fótstykki 45x95 mm, lengd 230 sm, endarnir séu blaðaðir hálf þykkt, 95 mm 2 yfirstykki 45x95 mm, lengd 230 sm, ekki með blaði á endum. Átta stoð- ir 45x95 mm, lengd 175,5 sm, 4 þverstykki 45x95 mm, iengd 66 sm, 2 þverstykki undir glugga 45x95 mm, lengd 80 sm, átta skástíf ur 45x95 mm, lengd 105 sm. í gaflana: 2 fótstykki 45x95 mm, lengd 160 sm, endarnir séu blaðaðir hálf þykkt, 95 mm, 2 yfirstykki 45x95 mm, lengd 160 sm, end- ar sagist með 45 gráðu halla. T4 stoðir 45 x 95 mm, lengd 180 sm, 4 þverstykki 45x95 mm, lengd 40,5 sm, í annan enda þessara þverstykkja skal saga hak fyrir hornstoð. Átta sperrur 45x95 mm, lengd 135 sm. Efri endar skulu vera blað- aðir saman hálft í hálft. Ef ni á þak og veggi: 8-10 mm vatnsþolinn krossviður: Hliðar: 4 stk. 75 x180 sm og undir gluggana 2 stk. br. 82xhæð 95 sm. Á dyragaflinn 2 stk. breidd 47,5 x hæð 182 sm og þríhyrnd, 2 stk. yfir dyr, 77 sm upp í mæni og breidd yfir dyrum 162 sm. Á bak gaflinn kemur 1 stk. heil plata á breidd 162x182 sm á hæð. 2 stk. þakplötur, lengd 240 sm x breidd 133 sm, 2 þakbrúnaborð á langhliðar 20x120 mm, lengd 241 sm. 1 kjölborð 20x95 mm, lengd 241 sm 1 kjölborð 20x120 mm, lengd 241 sm, 4 vindskeiðar 20x145 mm, lengd 140 sm, geirsagaðar 45 gráður í efri enda. Efni í hurðir: 4 okar 20x70 mm, iengd 66 sm. 18 panel- borð V nót, 12x95 mm, lengd 89,5 sm. Listar til þess að mynda fals í dyraop og glugga- op: 2 stk. 16x20 mm, lengd 180 sm, og 1 stk. 16x 20 mm yfirstk. lengd 70 sm. Falslistar í glugga 8 stk. 16x20 mm, lengd 80 sm. Karmlistar, fald- ur utanum dyr 15x42 mm 2 stk. 185 sm og 1 stk. 82 sm langt. og faldur á gluggana 8 stk. 15x42 mm lengd 90 sm 2 gluggarammar 79x 79 sm, 2 pör lamir,(4 stk.) á hurðirnar, ásamt hæfilegum skrúfum og 2 lokur. 2 pör lamir á gluggana á báðum hliðum. ÞEIR eru margir sem hafa mikið yndi af að vinna í garðinum sínum á vorin þegar sólin er farin að ylja mold og gróður; fyrstu grænu stráin sækja upp í birtuna og litlu blómhnapparnir teygja sig mót sólu og opnast með hreinum skærum litum. Þetta er undur vorsins. Þá fara margir að taka til garðverkfæri sín. Það þarf að klippa greinar, raka yfir beðin og blettinn, fjarlægja rusl og dauð blöð, hlúa að fjölæru plöntunum, skipta þeim og hagræða o.s.frv. Eftir að vinnudeginum er lokið og bakið orðið stirt, þarf að ganga frá verkfærunum svo að þau séu á vísum stað næst þegar stund gefst til garðvinnu. Nú er það svo að sumir garðeigendur ráða ekki yfir geymslu þar sem hægt er að koma áhöldunum sæmilega skipulega fyrir, á milli þess að þau eru notuð. Þá vaknar sú spurning hvort ekki væri skemmtilegt að smíða lítið garðhús þar sem geyma mætti verkfærin. Garðhús smíðað Ég teiknaði upp einfalt lítið hús, sem nota mætti til þess að geyma verkfæri í. Smíðin er hugs- uð einföld svo að flestir ættu að geta smíðað svona hús. Raunar mætti einfalda húsið enn frekar, t.d. með því að þakið væri ein heil plata með hæfilegum vatns- halla. Á þessu húsi verða sperrur með 45 gráðum halla og þakplöt- ur tvær. Uppi við mæninn mynda þær vinkil, þ.e.a.s. 90 gráðu horn hvor við aðra. Þetta er lítið hús og má vart minna vera svo að hægt sé að geyma í því hjólbörur, sláttuvél og önnur garðáhöld. Við höfum misstóra garða og lóðir. Freist- andi er að setja upp dálítið vinnu- borð inni í garðhúsinu, sem hægt er að festa skrúfstykki á og vinna við. Það er að vísu hægt að setja upp 30 til 40 sm breitt vinnuborð við annan langvegginn. Hæð þess má ekki vera nema 85 sm frá gólfi. Sé það haft hærra þá gengur það upp fyrir gluggabrún. Því má bæta inn síðar. Samsetning Æskilegt er að húsið sé skrúf- að saman með hæfilega löngum skrúfum. Byrja skal á að skrúfa saman grindur beggja langhlið- anna og skrúfa með skrúfum 5x75 mm löngum. Nota skal 2 skrúfur í enda hverrar stoðar, bæði að ofan og neðan. Síðan skal skrúfa þverstykkin með 5x65 mm löngum skrúfum. Þegar því er lokið þarf að festa skástífurnar á sama hátt, en þá er áríðandi að grindurnar séu hornréttar. Gott er að láta þær liggja flatar á sléttu landi, eða gólfi og mæla svo á milli horna þannig að mál- takan myndi X yfir grindina og ---------------------------------------- i verða báðir leggirnir á exinu að t vera jafn langir. Nú er komið að í því að skrúfa plöturnar á hliðarn- ar. Næst skal merkja fyrir stoðun- um á fótstykki og yfirstykki gaf- lanna og skrúfa þær fastar á sinn stað. Næst skal skrúfa yfirstykki og fótstykki saman á hornunum og litlu þverstykKin við stoðirnar í miðju og hornstoðirnar. Skrúfa sperrur saman og festa plötu , þríhyrninganna yfir á gaflgrindun- um. Endasperrurnar skulu koma utanyfir krossviðinn. Gott er að ( nota 4x20 mm skrúfur til þess að festa krossviðsplöturnar. Til þess að miðsperrurnartvær geti staðið á sínum stað, er þörf á að taka skarð í yfirstykkin þar sem þær eiga að standa, einnig þarf að spora úr sperrunum á móti. Kantur miðsperranna verð- ur að vera jafnhár kantinum á endasperrunum. Þegar búið er að reisa allar sperrurnar er hægt að festa þakplöturnar yfir og síð- I an aðrar sem eftir kunna að vera. Listihús eða ? Ef fallega er gengið frá þessu húsi, að utan sem innan, það málað og settar í það hillur o.fl. sem við á, má sem best nota það sem listihús í garðinn. Einnig má setja inn í það margskonar fest- ingar og upphengi fyrir verkfæri og jafnframt getur það verið verk- ( færageymsla. Vera má að það geti þjónað báðum þessum hlut- verkum, garðhúsgögnin verði einnig geymd þar og sitthvað fleira. Bjarni Ólafsson VÖRUBÍLASTÖÐIN Þrótturhefur yfir að ráða flota krabbabíla sem geta verið garðeigendum innan handar við framkvæmdir. Þróttur selur garðefni VÖRUBÍLASTÖÐIN Þróttur hyggst bjóða garðeigendum og öðrum áhugasömum til sölu alls kyns efni f garðinn þegar fyrir- tækið flytur í nýtt húsnæði við Sævarhöfða 12 hinn 1. júní næst- komandi. Jón Pálsson framkvæmdastjóri segir að fólk geti komið með kerr- ur eða poka og keypt beðasand, vikur, gjall, holtagrjót og hraun- hellur, eða hvaðeina sem hentar í lóðaframkvæmdum, eftir máli eða vigt, þegar fyrirtækið verður flutt. Vörubílastöðin Þróttur hefur starfað í 65 ár og hefur yfir að ráða 130 bílum að Jóns sögn. Þeirra á meðal erfloti krabbabfla, sem ætlaður er í þágu garðeig- enda og garðyrkjumanna. Kranar bflanna geta teygt sig 14 metra inn f garð eða lóð með krabba og skóflu, sótt rusl, flutt efni eða haft jarðvegsskipti. Einnig gerir Þróttur tilboð, vilji fólk láta sækja til sín garðaúrgang og þá keyra þeir unna og óunna mold gegn föstu verði heim til þeirra sem þess óska. Þróttur er eina vörubflastöðin á Stór-Reykja- víkursvæðinu sem starfar með þessum hætti að Jóns sögn og var mikið að gera í fyrravor. Trjáklippingar - ókeypis upplýsingar 562-6262 ciitnQT J1 ° n °rt'm' ■ I k J.rÉ.TThm 8i<> I I 1 * 1 { M ^^Unnu^c,cja ' ’° 'o II f 11 u 1 ^ ^ Vortilboð ó HYGÆA viðarvörn, HYGÆA útimólningu og verkfærum. Fagmenn ráðleggja og gera þér tilboð. Sendum hvert á land sem er. Málarameistari veitir faglega ráðgjöf i Litalandi alla daga vikunnar BÆJARHRAUNI 26 (HÍÁ &LÓMÁB.ÚÐINN! BÖG©! Sími 5,0,5 5<54-5 LITALAND Það er stefna RARIK að veita sem besta þjónustu með þarfir og óskir viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Forsenda þess að unnt sé að þjóna eigendum sumarbústaða sem skyldi er að auövelt sé aö finna tiltekinn bústaö og komast aö honum. Erindið getur verið að leggja heimtaug, lesa af mæli eða koma til aðstoðar ef eitthvað fer úrskeiðis. Greiður aðgangur er ekki síst aðkallandi þegar þörf er á skjótri viðgerðarþjónustu. Því mælumst við til jjess að eigendur sumarbústaöa mcrki greinilega bústaöi s(na sem og gotuheiti og númer. Þannig tryggja þeir að okkar menn komist rakleiðis á staðinn. Umsókn um heimtaug Umsókn um heimtaug þarf að berast með góðum fyrirvara, en að jafnaði eru heimtaugar aðeins afgreiddar að sumarlagi. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu okkar í Reykjavík, á umdæmisskrifstofum okkar og útibúum. Hafðu vinsamlega samband við þá skrifstofu okkar sem þér hentar best. Starfsfólk okkar veitir þér fúslega allar nánari upplýsingar. Éð RARIK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.