Morgunblaðið - 11.05.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 11.05.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ HUSIÐ & GARÐURINN SUNNUDAGUR 11. MAÍ 1997 F 23 . MATTHÍAS Pétursson að vinna við að setja upp sólpalla, skjólgarða og heitan pott við hús í Grafarvogi. Skjól- veggir úr klaustrum, eins og á myndinni til hægri, koma oft vel út móti sunnanátt. Á höfuðborgarsvæðinu fara fáir út í vatnsveðrið sem fylgir sunnanátt. Þess vegna þarf ekki að leggja mikla áherslu á skjól gegn þeirri átt. Blómstrandi timbur ÁR frá ári eru sólpallar að leggja undir sig stærri hluta af grasblett- um heimilanna. Matthías Péturs- son trésmiður á drjúgan þátt í þessari þróun því í undanfarin 11 ár hefur hann unnið við að byggja upp garða eftir teikningum arki- tekta. „Algengasta vitleysan sem fólk gerir er í sambandi við steypuna og jarðvinnuna. Það er númer eitt að vanda undirvinnuna," segir Matthías, þegar hann er beðinn um ábendingar varðandi skjól- veggi og grindverk. Hann ráðleggur mönnum að steypa beint í jörðu og segir að það sé ósiður að steypa stöpla of- an í rör. Best sé að grafa a.m.k. eins metra djúpa holu sem er breiðari neðst en efst. Það verji gegn frostlyftingu. Steypa síðan stöpulinn beint niður í jarðveginn ( staðinn fyrir að vera að pjakka lausan jarðveg upp að röri. Gott er að hafa lag af grús neðst ef steypt er í mold. Matthías vill nota 95X95 mm stólpa undir grindverk og skjól- veggi og gegnvæta í karbólíni þann hluta stólpans sem fer í jörðu. Hafa að jafnaði 2-2,3 metra bil milli stólpa. Undirstöður við sólpalla geta hins vegar verið með allt að 2,5 m millibili. Undanfarin ár hafa komið fram metpost-stólpar sem undirstöður og Matthías segist gjaman nota galvaniseraða 90 sm metpost- stólpa sem undirstöður fyrir sól- palla en ofangreinda aðferð notar hann við skjólveggi og grindverk. Hektarar Matthías hefur ekki tölu á þeim hektörum af sólpöllum sem hann hefur lagt undanfarin 11 ár en á þeim tíma segir hann að lítið hafi breyst. Þetta er ekki bransi þar sem tískusveiflur eru áberandi í vali á efni, litum og mynstrum. Efniskostnaður við fermetra af sólpalli er um 3.000-3.500 kr. og Matthías segist ekki mæla með því við leikmenn að þeir sjálfir séu að hanna pallana. Hann hvetur alla til þess að leita ráðgjafar fag- manna a.m.k. varðandi staðarval, hönnun og verkáætlun. Varðandi munstur og efnisval sé gott að sækja upplýsingar og hugmyndir í vandaða bæklinga söluaðila á borð við Húsasmiðj- una og BYKO. Hann segir líka að við fjölmargar götur standi skakkir veggir og pallar eins og minnis- varðar um það að kapp er best með forsjá við framkvæmdir af þessu tagi. Pallaefnið er yfirleitt hið sama; Á undirstöðurnar sem eru 95X95 mm stöplar eru boltaðir 2X6 tom- mu bitar og 2X5 tommu þversum á milli bita en klæðningin er yfir- leitt 28X95 mm. Samkvæmt byggingarreglu- gerðum þarf samþykki byggingar- nefndar þegar reistur er veggur hærri en 1 m á lóðamörkum en Matthías segir að svo virðist sem því ákvæði sé framfylgt af miklu umburðarlyndi. Ageng hæð á veggjum er 1,5-1,18 m. Gerð undirstaða fyrir skjólveggi var lýst að ofan en þegar 95X95 mm stólpar hafa verið steyptir niður eru negldir á þá langbönd úr 45X95 mm efni. Langböndin eru tvö en þrjú þegar hæð veggjarins nær 2 metrum. Böndin eru fest á stólpana, sem eru með 2-2,3 me- tra millibili, með BMF-vinklum og kambsaum. Munstrið á skjólveggnum ræður svo vali á efni í klæðninguna en fjölmargar útfærslur eru að sjálf- sögðu mögulegar og skiptir þá veðrátta, umhverfi og nágrenni mestu máli eins og jafnan þegar hugað er að hönnun í garðinum. í skjólvegg sem er 1,8 m á hæð er efniskostnaður á lengdarmetra um 8.500 kr. að meðtöldum nögl- um, vinklum, steypu og málningu. Vindur og hávaði Eins og kunnugt er eru skjól- veggir yfirleitt hafðir með tvöfaldri klæðningu til þess að dempa vindinn sem lyftir sér yfir lokaða veggi en skellur svo aftur niður í miðjan garðinn. Með því að leyfa vindinum að leika í gegnum hálf- opna klæðningu næst betra skjól í garðinum. En hvað er til ráða þegar menn reyna að skerma af garða sína fyr- ir umferðarhávaða? Stefán Guðjohnsen hljóðtækniráðgjafi segir að heilir veggir skermi hljóð- ið best en með tvöfaldri hálfopinni klæðningu nái menn betra skjóli gegn vindi. Hægt er að sameina ýmsa kosti beggja gerðanna með því að hafa þann hluta klæðningarinnar sem snýr inn í garðinn heilan en hafa ytra byrðið gisnara. Með þessu ná menn hringrás vindsins og draga úr vindstreng yfir vegginn en hins vegar skerma þeir vel af hljóð frá umferð. Því þykkari sem veggir eða manir eru, því betri hljóðeinangr- un veita þeir. Hávaði frá bílum verður til í um 50 sentimetra hæð og því þarf ekki hátt mannvirki til þess að ná dempun á hávaða í garðinum. sr öðru vtsi. Þú málar alltal tvær umferðir og þá seinni innan briqaia tíma þriggja tíma Langvarandi vörn gegn ryc InnbyggSur grunnur ^ ■>ru- og vnulmncjuvö' 26 LITIR s ett eða hömru 5 áferð 'WWVV'BUIA Tjaldvagnar - ókeypis upplýsingar ------------------ 562-6262 Classica glerskálinn fyrir íslenska verðráttu. Heildverslunin Smiðshús, Álftanesi E. Sigurjónsdóttir, sími 565 0800. Blákornið er áhrifaríkt við plöntun á litlum trjám og gott fyrir sumarblóm og skrautrunna. Fáðu upplýsingabœkling á nœsta sölustað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.