Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.05.1997, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 18. MAÍ1997 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 11/5 -17/5 Þ- ÁRSREIKNINGAR Reykjavíkur fyrir 1996 voru lagðir fram til fyrri umræðu í borgarstjóm á fimmtudag. Samkvæmt þeim hafa skuldir borg- arinnar lækkað lítillega á milli ára. í frétt frá skrif- stofu borgarstjóra kemur fram að peningaleg staða borgarsjóðs, þ.e. veltuQár- munir og langtímakröfur að frádregnum skuldum, er neikvæð um tæpa 10,3 milljarða, og hefur staðan versnað að raungildi um 181 milljón á árinu. Þ- SKELPLÓGUR kúfisk- skipsins Æsu náðist af hafsbotni í vikunni en áður hafði lík skipstjórans sem fórst með Æsu fundist og náðst um borð í varðskipið Óðin. Plógurinn er einn hlekkur í rannsókninni á því af hveiju Æsa sökk. Rannsóknarnefnd sjóslysa fer með forræði rannsókn- ar á slysinu, en óvíst er hvenær rannsókninni verð- ur að fullu lokið. ► MIKLAR annir vom á þingi í vikunni og gengu þingstörfin hratt fyrir sig á föstudag þegar sextán frumvörp vom orðin að lög- um fyrir miðnætti, en fund- að var til klukkan fimm um nóttina. Meðal þeirra var frumvarp um Lánasjóð ís- Ienskra námsmanna, ál- bræðslu á Grundartanga, jámblendiverksmiðju í Hvalfirði og Qárreiður rík- isins. Áætlað var að þingi yrði frestað síðdegis í gær. Verkfallið á Vest- Qörðum enn óleyst DJÚPSTÆÐUR ágreiningur er milli atvinnurekenda og verkalýðsforyst- unnar á Vestfjörðum og er ekki út- lit fyrir að verkfaliið þar leysist í bráð. Viðræðum var slitið undir mið- nætti í fyrrakvöld og verður deiluað- ilum ekki stefnt saman á ný í bráð nema einhver merki berist frá þeim um tilslökun. Bætur almanna- trygginga hækka RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að bætur almannatiygginga hækki um 4% frá 1. mars síðastliðnum að telja, en bætumar voru hækkaðar um 2% um síðustu áramót. Nemur hækkunin á þessu ári því 6% og er hún í takt við þær launahækkanir sem almennt hefur verið samið um í kjarasamning- um. Ríkisstjómin hefur jafnframt ákveðið að bætumar hækki um 4% 1. janúar á næsta ári og 3,65% 1. janúar 1999. Þá hefur ríkisstjómin ákveðið aðgerðir til að draga úr jaðar- áhrifum innan almannatrygginga- kerfisins og ná þær jafnt til ellilífeyr- isþega og örorkulífeyrisþega. Drap hund nágrannakonu LÖGREGLAN í Reykjavík handtók í fyrradag sjötugan mann eftir að hann hafði drepið hund í eigu konu sem býr í sama fjölbýlishúsi og hann. Maðurinn hafði ráðist á fertuga dótt- ur konunnar þar sem hún var að koma með hundinn inn í húsið, læst sig með dýrið inni í íbúð sinni og drap það þar. í rúm tvö ár hafa stað- ið deilur í húsinu um hundinn, sem var 7 ára gömul terrier-tík og var maðurinn, sem talinn er hafa drepið dýrið í gær, fremstur í flokki þeirra sem vildu hundinn út. Rússar og NATO ná samkomulagi JAVIER Solana, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), og Jevgení Prímakov, utanríkisráð- herra Rússlands, komust á miðviku- dag að samkomulagi um nýjan sam- starfssamning sem miðar að því að tryggja friðsamleg samskipti and- stæðinganna fyrrverandi úr kalda stríðinu. Samningur þeirra verður undirritaður í París 27. maí nk. en honum er ætlað að sefa Rússa vegna væntanlegrar stækkunar NATO í sumar. Bill Clinton fagnaði samkomulaginu sem „sögulegu skrefi í átt að friðsamlegri Evrópu" og Prímakov sagði það „stóran sig- ur fyrir skynsemina". Samkvæmt samkomulaginu fá Rússar ekki neitunarrétt á ákvarðanir NATO, bandalagið skuldbindur sig ekki til að koma ekki fyrir herliði eða kjam- orkuvopnum í nýjum aðildarlöndum og samningurinn er ekki lagalega bindandi, en þessar þijár voru að- alkröfur Rússa í samningunum. Mobutu fer frá völdum MOBUTU Sese Seko, forseti Za- ire, afsalaði sér völdum á föstu- dag í hendur for- sætisráðherrans, Likulia Bolongos, og þingsins en kvaðst hins vegar myndu titla sig áfram forseta landsins. Mobutu yfirgaf höfuðborg- ina, Kinshasa, en vestrænir stjómar- erindrekar sögðu hann á leið úr landi, ýmist til Evrópu eða Ma- rokkó. Samtök uppreisnarmanna sögðust í gær líta á valdaskiptin sem markleysu og hvöttu stjómarher- menn til að leggja niður vopn. ► TONY Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, bauð Sinn Fein, stjórnmálaarmi írska lýðveldishersins, IRA, til viðræðna um fram- tíð Norður-írlands, án þess að krefjast þess að IRA lýsi áður yfir vopnahléi í hryðjuverkahernaði sínum gegn bresku sljórninni. ÞÚSUNDIR tyrkneskra hermanna réðust á mið- vikudag tinn í norðurhluta íraks og var skriðdrekum, stórskotavopnum og flug- vélum beitt í árásum á kúrdiska skæruliða sem beijast fyrir sjálfstæðu ríki Kúrda. Fullyrða Tyrk- ir að mikið mannfall haf! orðið í röðum Kúrda, en um 10.000 hermenn tóku þátt í árásinni. ► DÖNSK móðir fékk á miðvikudag bam sitt í hendur en lögreglan í New York hafði tekið það af henni fjórum dögum fyrr, þar sem hún skildi það eft- ir í vagni fyrir utan veit- ingastað sem hún sat á í borginni. Á föstudag var hins vegar fallið firá kærum á hendur móðurinni fyrir vítaverða vanrækslu og óspektir á almannafæri, er hún reyndi að koma í veg fyrir að lögregla tæki bam- ið í sínar hendur. ► UM 1.600 manns fómst í öflugum jarðskjálfta, sem var í Norður-íran um síðustu helgi. Skjálftinn var 7,1 stig á Richter og lagði fjölmörg fjallaþorp í rúst. Úrskurður yfírfasteignamatsnefndar Telur bænda- gistingu ekki vera landbúnað YFIRFASTEIGNAMATSNEFND hefur fellt þann úrskurð að bænda- gisting geti ekki talist landbúnaður og þess vegna beri að hækka fast- eignaskatta af húsnæði sem nýtt er fyrir bændagistingu. Þetta þýðir að fasteignaskattar af þessu hús- næði meira en tvöfaldast. Samkvæmt lögum um tekju- stofna sveitarfélaga frá árinu 1995 eru fasteignaskattar lagðir á með tvennum hætti. í svokölluðum A- flokki er greiddur 0,5% skattur af álagningarstofni, en í þeim flokki eru „íbúðir, íbúðarhús ásamt lóðar- réttindum, erfðafestulönd og jarð- eignir, sem ekki eru nytjaðar til annars en landbúnaðar, útihús og mannvirki á bújörðum, sem tengd eru landbúnaði, og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.“ Undir B- flokk heyra allar aðrar fasteignir og af þeim er greitt 1,32% gjald af álagningarstofni. Fasteignagjaldi skipt í tvennt Málsatvik eru þau að ný sveitar- stjóm í sameinuðum Hornafjarð- arbæ tók þá ákvörðun 1995 að skipta álagningu fasteignagjalda á íbúðarhús Hjalta Egilssonar, bónda á Seljavöllum, í tvennt. 40% gjalds- ins vom lögð á samkvæmt B-flokki og 60% samkvæmt A-flokki. Þetta var gert með þeim rökum að efri hæð hússins væri nýtt undir bænda- gistingu. Samkvæmt lögunum falli útleiga á gistirými ekki undir A- flokk. Hjalti sætti sig ekki við þessa niðurstöðu og kærði málið til yfir- fasteignamatsnefndar. Nefndin ósk- aði eftir umsögn um málið frá land- búnaðarráðuneytinu og taldi það í umsögn sinni að rekstur ferðaþjón- ustu bænda á lögbýlum félli undir landbúnað. 28% hússins gistirými í úrskurði yfirfasteignamats- nefndar segir: „Yfirfasteignamats- nefnd telur að bændagisting í þeim mæli sem um ræðir í þessu máli, þar sem ákveðinn hluti húss hefur verið innréttaður gagngert í því augnamiði að leigja til gistingar, falli utan ramma venjulegs landbún- aðar. Geti sá hluti hússins, sem inn- réttaður hefur verið og nýttur í þessu augnamiði því ekki fallið und- ir undatekningarákvæði a-liðar of- angreindrar 3. mgr. 3. gr. laga nr. 4/1995.“ Það er mat nefndarinnar að 28% hússins séu nýtttil gistingar en 72% til „hefðbundinnar íbúðamotkunar“. í samræmi við þessa niðurstöðu tel- ur hún að 28% af húsinu á Seljavöll- um falli undir B-flokk laganna um tekjustofna sveitarfélaga og 72% undir A-flokk laganna. Kristnihá- tíðarmerki valið úr 181 tillögu ÚRSLIT í samkeppni um merki kristnihátíðar árið 2000 voru tilkynnt sl. föstudag, en alls barst 181 tillaga undir 137 dulnefn- um. Fyrstu verðlaun hlaut tillaga Guðjóns Dav- íðs Jónssonar, sem er graf- ískur hönnuður og Antons Helga Jónssonar, sem fæst við textagerð og hugmyndasmíð. í dómnefnd samkeppninnar voru biskup íslands, herra Ól- afur Skúlason, Þóra Kristjáns- dóttir listfræðingur og frá FÍT þau Guðmundur Oddur Magn- ússon, Jón Ágúst Pálmason og Ólöf Birna Garðarsdóttir. Fyrstu verðlaun nema 400 þúsund krónum og segir í umsögn dómnefndar um til- lögu þeirra Guðjóns Davíðs og Antons Helga að það höfði strax til áhorfandans með því að skírskota til staðarins þar sem kristnitakan fór fram um leið og það vísi til sögunnar. Önnur og þriðju verðlaun, 200 þúsund kr., hlutu Kristín Þóra Guðbjartsdóttir og Þórar- inn F. Gylfason. Verðlaunin voru afhent við athöfn í Ráð- húsi Reykjavíkur á föstudag. Allar tillögurnar verða til sýn- is þar fram til klukkan 19 á miðvikudag. Stjóm Bláa lónsins hyggst kanna skaðabótarétt Morgunblaðið/RAX GRÍMUR Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins hf., Eðvarð Júlíusson stjórnarformaður og Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, en hann á einnig sæti í stjórn Bláa lónsins hf. STJÓRNENDUR og lögfræðingar Bláa lónsins hf. telja heilbrigðisnefnd Suðumesja ekki vera lögmætt stjóm- vald til þess að taka ákvarðanir um öryggi baðgesta við Bláa lónið og hyggjast kanna rétt sinn til skaða- bóta vegna framkomu nefndarinnar, sem þeir telja hafa komið af stað skaðlegri umíjöllun um starfsemi og ímynd félagsins. Vegna dauðaslyss sem varð í lóninu snemma sl. sunnu- dagsmorgun hefur heilbrigðisnefndin gefið Bláa lóninu hf. frest til 1. júní nk. til að gera ákveðnar úrbætur í öryggismálum. Verði framkvæmdun- um ekki lokið fyrir þann tíma hyggst heilbrigðisnefndin loka lóninu fyrir baðgestum án frekari viðvömnar. í samtali við Grím Sæmundsen, framkvæmdastjóra Bláa lónsins hf., og Eðvarð Júlíusson stjómarfor- mann kom fram að þeim væri fylli- lega ljós sú ábyrgð sem á þeim hvíl- ir hvað varðar öryggi baðgesta og að félagið væri og hefði alltaf verið reiðubúið til samstarfs við alla þá sem að liði gætu orðið í því efni. Þannig væru ábendingar frá heil- brigðisnefndinni jafnt sem öðrum vel þegnar og í kröfugerð nefndarinnar hefðu vissulega verið gagnlegar og jákvæðar ábendingar. Hertar öryggisreglur í kjölfar banaslyss Á fundi sem stjómendur Bláa lóns- ins hf. áttu með heilbrigðisnefnd Suðumesja sl. fímmtudag fóm þeir m.a. fram á skýringar á því hvaða lagaheimild nefndin teldi sig hafa til að setja þeim þá úrslitakosti sem sett- ir hafa verið. Þeir segja nefndina ekki hafa getað rökstutt það á fundinum. í kjölfar banaslyss sem varð í lón- inu árið 1994, skömmu eftir að Bláa lónið hf. tók við rekstri þar, var far- ið yfir öryggisreglur baðgesta í sam- vinnu við heilbrigðiseftirlit og þær hertar til muna, að sögn Gríms. Þá var það skoskur ferðamaður, sykur- sjúkur og ósyndur, sem drukknaði í lóninu. Grímur segir að þá hafi ver- ið ákveðið að styrkja mjög fræðslu til erlendra ferðamanna. Varúðar- merkingar vom styrktar og sett út öryggistaug sem afmarkar gmnnan enda lónsins við baðhúsið og þær merkingar virða erlendu gestirnir nær undantekningarlaust, að sögn þeirra Gríms og Eðvarðs. Munur á baðgestum og þeim sem fara í lónið í leyfisleysi Þeir leggja áherslu á að þetta til- felli sé eina banaslysið sem orðið hafi á baðgesti þar frá því að Bláa lónið hf. tók við rekstrinum. Gera verði skýran greinarmun á baðgest- um, sem komi til þess að njóta þjón- ustu sund- eða baðstaðar og greiði fyrir það og þeim sem komi á stað- inn utan hefðbundins opnunartíma og fari í lónið í leyfisleysi, eins og raunin var þegar ung stúlka lést af slysförum í lóninu sl. sunnudags- morgun. „Það er ekki hægt að lesa annað út úr samþykkt heilbrigðis- nefndar en að þarna hafi verið um baðgest að ræða og það er reginmis- skilningur. Við getum ekki gseM öryggis fólks sem fer um svæðið að næturlagi. Ekki er hægt að líta al- gerlega fram hjá eigin ábyrgð við- komandi," segir Grímur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.