Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 10

Morgunblaðið - 18.05.1997, Page 10
10 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ VÍTISENGLAR eru villidýr sem taka það sem þeim sýnist, þegar þeim sýn- ist,“ fullyrti rithöfundur- inn Yves Lavigne í bókinni Hell’s Angels, Vítisenglar, fyrir nokkrum árum. Aðrar staðhæfingar hans um þessi mótorhjólasamtök og meðlimi þeirra eru af sama meiði og vandar hann þeim ekki kveðjurnar. Aðrar heimildir hníga að sömu niðurstöðu, þ.e. að ekki sé allt með felldu hjá englunum og samtökum þeim tengd- um. í tengslum við englana í mars síðastliðnum lagði list- dansmær, fyrrum starfsmaður nektardansstaðar í Reykjavík, fram kæru á hendur eigendum staðarins fyrir vændisstarfsemi og fíkniefna- sölu. Sá aðili sem kærði fullyrti jafnframt að svokallaðar einkasýn- ingar hafí verið notaðar til að fé- fletta gesti. Um svipað leyti gerðu óeinkennisklæddir lögreglumenn sér ferð á þessa staði hérlendis og var þeim m.a. boðin „áþreifanlegri þjónusta" þar en nektardans. Aðrir fyrrum starfsmenn nektar- staða hér á landi hafa opinberlega borið fram fullyrðingar um að þar hafi verið stundað vændi og eiturlyf seld. Eigendur þeirra staða sem bornir hafa verið slíkum sökum hafa hins vegar neitað þeim harð- lega. Lögreglan hér á landi hefur og fengið upplýsingar um að fata- fellur sem hingað hafa komið séu margar á sakaskrá og eru sumar þeirra grunaðar um vændi, eins og fram kemur í gögnum Kanada- manna í liðnum mánuði. í þeim upplýsingum sem kana- díska lögreglan sendi hingað til lands, sem svar við fyrirspurn ís- lenskra yfirvaida um einstaklinga og fyrirtæki þar í landi sem hafa verið í sambandi við nektardans- staði hérlendis, koma m.a. fram nöfn þriggja manna sem hafa verið í tengslum við íslenska nektardans- staði. Þar á meðal er Alan nokkur unum Bandidos, Pagans og Outlaws. í rannsókn sem banda- ríska alríkislögreglan stóð fyrir 1983 kom fram að tiltölulega smár hluti þeirra sem tilheyra vélhjóla- klúbbum tengist ólögmætri starf- semi, en þeir sem það gera hins vegar hafi stöðugt orðið skipulagð- ari og harðskeyttari. Helsti vett- vangur þeirra sé meðal annars framleiðsla, sala og dreifing efna á borð við krakk og amfetamín, kóka- ín, englaryk og kannabisefni. Þeir veigri sér heldur ekki við að deyða fólk og fremji á víxl leigu- morð fyrir utanaðkomandi aðila og drepi félaga í óvinasamtökum, auk drápa innbyrðis til að viðhalda aga. Fjárkúgun er einnig ofarlega á lista, bæði í því skyni að tengjast lögmæt- um fyrirtækjarekstri og ná tangar- haldi á honum. Þar á eftir þylur FBI upp mannrán, vændi, íkveikjur, rán, mútur, sprengjutilræði, inn- brot, nauðganir, svindl, verslun með þýfi, flutning á slíkum varningi á milli ríkja, bílastuldur o.s.frv. Meðlimir eru sagðir lúta ströng- um þagnareið, þeir beri almennt litla virðingu fyrir laganna vörðum eða lögum og ógni fólki hiksta- laust, bæði þeim sem hyggist vitna gegn þeim, sækja þá til saka eða rannsaka framferði þeirra. Menn fái oft á tíðum ekki inngöngu í samtökin nema með því að fremja glæp. Meðlimirnir eigi það sam- merkt að sækjast eftir spennu og þeim „helgisiðum" sem klúbbarnir hafa komið sér upp í áranna rás. Þá segir alríkislögreglan að Vítis- englar beiti óspart fyrir sig tækninýj- ungum á sviði ijarskipta, svo sem farsímum, talstöðvum, hljóðnemum og tækjum til að rugla og finna bún- að lögreglu. Þeir víggirði klúbbhús sín og aðra aðsetursstaði og notfæri sér fullkomin öryggiskerfí í því skyni, svo sem myndavélar, þjófavamar- kerfí, varðhunda og vopnabúnað. Auk þess sé ýmsum brögðum beitt cp PHOTO/Paui Chíasson til að torvelda lögreglu inngöngu og LÖGREGLA fylgist með líkfylgd Vítisengla við útför forseta þeirra í Sorel í Quebeck í Kanada. rannsókn, þegar svo ber undir. Voma Vítisenglar ylir íslandi? Blanchard sem sagður er hafa verið eigandi skemmtistaðarins Studio Sex í Granby fyrir nokkrum misser- um, en Vítisenglar keyptu hann og reka. Þar er nú mótsstaður fyrir meðlimi Vítisengla. Blanchard er sjálfur ekki talinn vera Vítisengill, en lögreglan ytra benti á að heimil- isfang sem hann hafi gefið upp um skeið sé eitt helsta aðsetur Vítis- engla í Kanada. Þá var nefndur maður að nafni Patric Lambert, kunnur af venslum sínum við Vítisengla og hann sagð- ur einn helsti tengiliður umboðs- skrifstofunnar L’Agence de Dans- euses Aventure við ísland. Nefnt fyrirtæki er sagt í eigu Vítisengla og gengur aðaleigandi þess, Vítis- engill að nafni David Caroll, undir nafninu Wolf og hefur verið bendl- aður við glæpsamlegt athæfí. Lög- reglan ytra nefnir einnig, varðandi það fyrirtæki, mann að nafni Alain Jalbert, sem sé kunnur samstarfs- maður Vítisengla. Um- boðsskrifstofa Ævin- týradansaranna hefur stúlkur á sínum snærum í Quebec, Ontario og Nýfundnalandi, auk ís- lands og frönsku ný- lendunnar Guadeloupe í Karíbahafí. Vísbendingar um áhuga Þeir löggæslumenn sem Morgun- blaðið ræddi við sögðu raunar að þeir teldu ekki sýnileg merki þess að Vítisenglar væru farnir að hreiðra um sig hérlendis, en hins vegar hefðu komið fram vísbend- ingar á undanförnum árum sem sýndu áhuga þeirra á Islandi. Slíkar vísbendingar væru nægjanlegar til að vera vel á verði þótt talið sé ósennilegt að samtökin gætu byggt upp starfsemi sína hér landi fyrir * Ymsir vöknuðu upp við vondan draum þegar kanadíska lögreglan upplýsti starfsbræður sína hér í síðasta mánuði um að fyrirtæki, sem íslenskir nektardansstaðir hafa átt viðskipti við, væru í eigu eða í tengslum við Vítisengla. Fatafellur sem hingað koma séu margar á sakaskrá, í tygjum við Vítisengla og njóti vemdar þeirra. Sindri Freysson ásamt Sigrúnu Davíðsdóttur og Kristjáni Amgrímssyni kynntu sér málið. Markmið að stofna deild hérlendis tilstuðlan vélhjólaklúbba. Aðrar leiðir væru hins vegar hugsanlegar. Dæmi um áhuga á íslandi er að danska lögreglan fann seinasta haust gögn, við húsleit hjá Vítis- englum í Hróarskeldu, sern^ sýna að danskir Vítisenglar líta á Island sem umráðasvæði sitt. I gögnunum kom fram að framtíðarmarkmið samtakanna væri að skipta Evrópu í þtjú svæði og stofna deildir sem víðast, þar á meðal hérlendis. Af þessum upplýsingum mátti _______ ennfremur ráða að Vítis- englar í Danmörku telji sig best til þess fallna að vera forystu- sauðir í norð-vestur hluta álfunnar, þ.e. á öllum Norðurlöndunum auk Eistlands, Lettlands, Litháens, Rússlands og Úkraínu, en ennfrem- ur voru Tékkland, Pólland og Ung- veijaland nefnd til sögunnar. Viðmælendur Morgunblaðsins segja líkur á að ísland geti verið áhugaverður griðastaður afbrota- manna og áningarstaður á ferðum milli heimsálfa. Talað er um að greiðfært væri fyrir öflug glæpa- samtök að skjóta rótum hérlendis, ekki síst þar sem yfirvöld eru van- megna að bregðast við skipulögðum glæpum. Vítisenglar heimsækja ísland Talið er að ellefu mótorhjóla- klúbbar séu starfandi hérlendis. Enn sem komið er virðast tengsl íslendinga við erlend mótorhjóla- samtök á borð við Vítisengla þó vera hverfandi lítil eins og áður sagði. Þó hafa lögreglu borist upp- lýsingar um fíkniefnanotkun ein- stakra meðlima í nokkrum af þeim bifhjólasamtökum sem kunn eru, og grunur leikur á tengslum ákveð- inna einstaklinga við Vítisengla ytra, þar á meðal í Amsterdam og hugsanlega sölu og innflutning fíkniefna þaðan. Grunur leikur einnig á að forseti Vítisengla í Amsterdam hafí komið hingað til lands í heimsókn til sömu manna. Þá hafði lögreglan spurnir, í október í fyrra, af dvöl fimm félaga í samtökum Vítisengla í Þýska- landi, hérlendis, skömmu áður en þeir héldu af landi brott. Þetta telja menn áhyggjuefni, enda sé óvíst að meðlimir þessara samtaka telji ástæðu til að veija tíma hérlendis nema þeir hafi áhuga á Islandi. Að sá áhugi sé eingöngu bundinn feg- urð íslenskrar náttúru og fersku fjallalofti, telja menn ekki útilokað en þó ólíklegra. Af þeim sökum álítur lögreglan að hérlendis sé jarð- vegur fyrir klúbba af þessu tagi, þótt þeirra hafi ekki enn orðið vart. „Full ástæða virðist vera fyrir íslensk löggæsluyfirvöld að vera mjög á varðbergi gagn- vart þróun mála á hinum Norðurlöndunum, tengsl Vítisengla við starfsemi hér á landi og þeim möguleikum sem skipu- lögð glæpasamtök frá Þeir beiti einnig „gagnnjósnum", þ.e. fylgist grannt með ferðum lög- reglu og vélhjólasamtaka sem þeir telja sér stafa ógn af. Þá segir lög- reglan uggvænlegt að meðlimir gengjanna hafí í auknum mæli vopn- ast allt frá hnífum og öðrum stungu- vopnum til skammbyssa. Annan maí 1985 handtók FBI112 meðlimi Vítisengla víðs vegar um Bandaríkin í samræmdu átaki yfir- valda, að undangenginni umfangs- mikilli rannsókn á samtökunum. 250 vopn voru gerð upptæk á 50 stöðum, þar á meðal sjálfvirk skot- vopn, sprengiefni, sprengjur og sveðjur, auk tölvukosts og gagna sem innihéldu miklar upplýsingar, þar á meðal um löggæslumenn sem sýnt höfðu Vítisenglum áhuga og tengsl við systrafélög erlendis. Telja Evrópu tilheyra sér í Kanada eru deildir Vítisengla fimm talsins, þar á meðal í Quebec, Bresku Kólombíu, Mon- -------- treal og Vancouver svo Evrópu og öðrum heimsálfum telja vera hér á landi,“ sagði lögreglu- maður sem við var rætt. Morð, íjárkúgun og vændi Fullgildir klúbbar eða félög Vítis- engla í Evrópu eru talin vera 35 talsins í níu löndum álfunnar, en um 90 klúbbar í heiminum öllum með á annað þúsund fullgildra fé- laga. Bandaríkin eru föðurland mótorhjólasamtaka og er nálægt hálf öld síðan samtök Vítisengla voru stofnuð. Auk Vítisengla eru þekkt bifhjólasamtök í Bandaríkj- og Vaxandi áhugi eitthvað sé nefnt, en stór Vítisengla á hluti samtakanna þar í l\l-Evrópu. Iandi eru afsprengi bif- hjólasamtaka sem nefnd- ust áður Englar Satans. Klúbbarnir voru stofnaðir frá 1977 til 1983 og er elsti klúbburinn í Montreal. Vítisenglar eru ráðandi á sínu sviði í Kanada og lítur klúbbur- inn þar á Evrópu sem yfirráða- svæði sitt og þar á meðal Norður- löndin. Áhugi klúbbsins á norðut- hluta Evrópu er talinn hafa vaxið umtalsvert á seinustu árum, bæði vegna tekjumöguleika þar og þeirra pólitísku umskipta sem orðið hafa í Austur-Evrópu. Frá Norðurlönd- um væri hægðarleikur að stíga skrefið austur á bóginn. Samkvæmt nýlegum upplýsing-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.