Morgunblaðið - 18.05.1997, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Háskólabíó og Sambíóin sýna bandarísku ævintýramyndina Dante’s
Peak með Pierce Brosnan og Lindu Hamilton í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um eldgos
o g afleiðingar þess fyrir íbúa í bandarískum smábæ
Eldur og
eimyrja
ÍSINDAMAÐURINN
Harry Dalton (Pierce
Brosnan) á fótum sín-
um §'ör að launa þegar
hann er við rannsóknir á eldspú-
andi fjalli í Kólumbíu, en í hamför-
unum ferst unnusta hans þegar
glóandi hraunstykki lendir á bíl
þeirra. Dalton dregur sig í hlé
eftir þetta áfall og endurmetur
stöðu sína í lífinu, en hann lætur
þó til leiðast þegar fyrrverandi
starfsfélagar hans fara þess á leit
að hann rannsaki smávægilegar
jarðhræringar í nágrenni bæjarins
Dante’s Peak undir hlíðum sam-
nefnds eldfjalls á Kyrrahafsströnd
Bandaríkjanna. Bæjarstjóri þar
er Rachel Wando (Linda Hamil-
ton) sem er viðskiptasinnuð ein-
stæð móðir. Hún er um það bil
að fara að undirrita samning við
milljarðamæring sem valið hefur
Dante’s Peak sem ákjósanlegan
stað fyrir uppbyggingu sem bæði
á að færa honum aukinn auð og
bæjarbúunum aukin viðfangsefni
og tekjumöguleika. Dalton á ekki
von á öðru en að verða var við
minniháttar jarðhræringar eins
og algengar eru á þessu svæði,
en fyllist skelfingu þegar hann
gerir sér grein fyrir að annað og
meira er á seyði og ýmsir fyrirboð-
ar um að eldgos sé í vændum.
Dalton gerir Rachel grein fyrir
stöðu mála og eftir nokkra um-
hugsun ákveður hún að allur sé
varinn góður og boðar til bæjar-
stjómarfundar þar sem gerð er
grein fyrir hugmyndum Daltons
um yfirvofandi hættu á meirihátt-
ar náttúruhamförum. Yfírmaður
Daltons kemur á fundinn og fær
hann bæjarstjómina ofan af því
að lýsa yfir hættuástandi, en hann
efast um sannleiksgildi kenninga
Daltons. En vísbendingar um að
hann hafi haft rétt fyrir sér hrann-
ast brátt upp og loks verða kolleg-
ar hans að viðurkenna að hann
hafði haft rétt fyrir sér. Boðað
er til borgarafundar en meðan á
honum stendur tekur jörðin að
nötra og skjálfa vegna öflugra
jarðskjálfta og skelfingu lostnir
íbúarnir leita útgöngu úr ráðhúsi
bæjarins. Öngþveiti verður svo
þegar þeir sjá öskuský yfir fjallinu
og umferðarhnútur myndast á
einu akbrautinni úr bænum þegar
íbúarnir leggja á flótta. Dalton fer
með Rachel að leita barna hennar
tveggja en þau höfðu farið að leita
ömmu sinnar sem býr í fjallshlíð-
inni og neitar að yfirgefa heimili
sitt. Hefst þá mikið kapphlaup við
tímann þegar þau Dalton og
Rachel reyna að bjarga fjölskyldu
hennar áður en eldfjallið byijar
að gjósa.
Linda Hamilton er fædd 26
september 1956 í Salisbury í
Marylandfylki í Bandaríkjunum.
Eftir menntaskólanám var hún í
háskóla í tvö ár, en hélt svo til
New York árið 1976 til að leggja
stund á leiklistarnám. Hún var
um skeið í læri hjá Lee Strasberg
sem skólað hefur margan leikar-
ann, en að loknu þriggja ára leik-
listarnámi hélt Linda til Los Ang-
eles þar sem hún fékk vinnu við
sjónvarp eftir aðeins fáa mánuði.
Hún hefur leikið leikið í ijölda
sjónvarpsmynda og m.a. hlotið
tilnefningu til Emmy verðlauna
fyrir hlutverk sitt í The Beauty
and the Beast.
Árið 1982 lék Hamilton svo í
fyrstu kvikmynd sinni en það var
myndin Tag, sem reyndar fékk
heldur misjafna dóma. Árið 1984
lék hún í The Stone Boy og Chil-
dren of the Corn, sem gerð var
eftir sögu Stephen King, en sama
ár lék hún á móti Amold Schwarz-
enegger í The Terminator, sem
markaði þáttaskil fyrir báða leik-
arana. Leikstjóri myndarinnar var
James Cameron sem Linda býr
nú með og hefur alið eitt barn,
og hefur hún lýst því yfir að þau
hyggist ganga í það heilaga á
ÖNGÞVEITI myndast þegar íbúar Dante’s Peak sjá að öskuský hefur myndast
yfir fjallinu sem bærinn dregnr nafn sitt af.
ROGER Donaldson leik- MIKIÐ kapphlaup hefst þegar þau Dalton og Rachel reyna
sljóri Dante’s Peak. að bjarga fjölskyldu hennar áður en eldfjallið byijar að gjósa.
næstunni. Eftir að hafa leikið í
The Terminator lék Linda á móti
James Belushi og Michael Caine
í Mr. Destiny (1990) og ári seinna
lék hún á ný á móti
Schwarzenegger í Terminator 2:
Judgement Day, sem sló rækilega
í gegn líkt og fyrri myndin. Aðrar
myndir sem Linda hefur leikið í
eru Silent Fall þar sem hún lék á
móti Richard Dreyfuss og The
Shadow Conspiracy, en í henni
leikur hún á móti Charlie Sheen.
Leikstjóri Dante’s Peak er Rog-
er Donaldson, sem m.a. á að baki
myndirnar The Getaway (1994),
Species (1995) og No Way Out
(1987). Hann leikstýrði einnig
The Bounty (1984), Coctail
(1988), Cadillac Man (1990) og
White Sands (1992). Donaldson
fæddist í Ástralíu en fluttist 19
ára gamall til Nýja Sjálands. í
fyrstu starfaði hann þar sem ljós-
myndari áður en hann hóf að
gera sjónvarpsauglýsingar, heim-
ildarmyndir og sjónvarpskvik-
myndir.. Meðal fyrstu verkefna
hans fyrir sjónvarp var sjö þátta
röð sem kallaðist Winners and
Losers. Fyrstu kvikmyndinni leik-
stýrði Donaldson árið 1977, en
það var myndin Sleeping Dogs,
sem var fyrsta kvikmyndin sem
gerð hafði verið á Nýja Sjálandi
eftir 15 ára hlé. Næsta mynd
hans var Smash Palace (1981) og
færði hún honum alþjóðlega við-
urkenningu sem kvikmyndaleik-
stjóri. í kjölfarið bauðst honum
að gera The Bounty sem var
fyrsta verkefnið sem hann vann
að í Bandaríkjunum, en með aðal-
hlutverk í henni fóru þeir Mel
Gibson og Anthony Hopkins.
ÍRSKI leikarinn Pierce Brosnan er í dag sennilega
þekktastur fyrir að vera hinn nýi James Bond, en
hann hefur eins og flestir vita tekið að sér að leiða
þá þekktu kvikmyndapersónu inn í 21. öldina. Fyrsta
mynd hans í hlutverkinu var Goldeneye sem frumsýnd
var fyrir tveimur árum og hefur myndin þegar skilað
rúmlega 350 milljónum dollara í tekjur. í lok þessa
árs verður næsta Bond mynd hans frumsýnd en hún
heitir Tomorrow Never Dies. Brosnan hefur gert samn-
ing um að leika í þriðju Bond myndinni og honum
hefur verið boðið að leika í þeirri fjórðu.
Pierce Brosnan er fæddur 16. maí árið 1951 í Co-
unty Meath á írlandi, en 11 ára gamall flutti hann
með fjölskyldu sinni til London. Eftir skólagöngu starf-
aði hann um skeið sem leigubílstjóri og gluggaskreyt-
ingamaður, en gekk siðan til liðs við tilraunaleikhús
og Iærði leiklist hjá Drama Center. Hann starfaði sem
aðstoðarsviðsstjóri hjá York Theatre Royal um skeið,
en fékk sitt fyrsta hlutverk á leiksviði í London þegar
Tennessee Williams valdi hann til að fara með hlut-
verk McCabe í frumsýningu Red Devil Battery Sign.
Fyrstu kvikmyndirnar sem Brosnan lék í voru The
Mirror Crack’d og Long Good Friday, sem gerðar
voru árið 1980. Sama ár var hann valinn til að fara
með hlutverk í bandarísku sjónvarpsþáttaröðinni The
Manions of America, og flutti hann þá til Bandaríkj-
anna án þess að ætla sér að ílendast þar. En það fór
á annan veg þar sem honum var boðið aðalhlutverkið
í sjónvarpsþáttunum Remington Steel sem síðan voru
sýndir við miklar vinsældir frá 1982 tíl 1987.
I Remington Steel vakti fáguð framkoma hans og
hnyttni verðskuldaða athygli og hann þóttí tilvalinn
Fágaður um-
hverfissinni
til að taka að sér hlutverk James Bond. Þetta var árið
1986 og sýningum á Remington Steel átti þá að Ijúka
en skömmu eftir að tilkynnt var að Brosnan yrði næsti
Bond var ákveðið að sýna þættina áfram. Brosnan var
samningsbundinn við gerð þeirra og því varð ekkert
úr því að hann tæki að sér hlutverk Bonds í það skipt-
ið. Hann segist vera feginn að hafa fengið tækifærið
aftur þegar ákveðið var að ráðast í gerð Goldeneye
og hann hefði helst ekki viljað fara í gröfina sem
maðurinn sem gat orðið, gæti hafa verið eða ættí að
hafa verið James Bond.
Frá því Pierce Brosnan lauk við að leika í Reming-
ton Steel og þar til hann loks fékk að takast á við
Bond lék hann í fjölda kvikmynda og sjónvarpsmynda.
Meðal þeirra eru The Fourth Protocol (1987), The
Decievers (1988), Mister Johnson (1991), The
Lawnmower Man (1992) og Mrs. Doubtfire (1993). Þá
lék hann með Warren Beatty og Annette Bening í
Love Affair (1994) og næst á undan Goldeneye lék
hann í Robinson Crusoe. Eftir að Brosnan tók að sér
hlutverk James Bond hefur honum boðist hvert kvik-
myndahlutverkið á fætur öðru og hefur hann síðan
leikið í mynd Barböru Streisand, The Mirror Has Two
Faces, og myndunum Mars Attacks! og The Nephew.
Brosnan er liðtækur frístundamálari og hefur hann
látið umhverfismál mjög til sín taka. Yar hann t.d. í
hópi þekkts fólks sem á dögunum krafðist þess að
Paul Watson forsprakki Sea Shepherd-samtakanna
yrði ekki framseldur frá Hollandi til Noregs. Brosnan
var í fjórtán ár kvæntur áströlsku leikkonunni Cas-
sandra Harris sem lést 1991 og áttu þau þrjú börn
saman. Harris var ein af hinum svokölluðu Bond-stúlk-
um, en hún lék á sínum tíma í myndinni For Your
Eyes Only. I janúar síðastliðnum eignaðist svo Brosnan
fjórða barn sitt, en móðir þess er sjónvarpsfréttakonan
Keely Shaye Smith.