Morgunblaðið - 18.05.1997, Side 33
V
SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1997 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
JOHANN MAGNUS
GUNNARSSON
+ Jóhann Magnús
Gunnarsson
fæddist í Melshús-
um, Seltjarnarnesi
28. apríl 1949. Hann
lézt á Landspítalan-
um 9. maí síðastlið-
inn. Foreldrar hans
eru Magnús Gunnar
Magnússon lög-
regluvarðstjóri í
Reykjavík, f. 11.
janúar 1920, d. 1.
ágúst 1986, og
Kristín Guðlaug
Bárðardóttir, f. 21.
desember 1921.
Systkini Jóhanns eru Símon, f.
9. febrúar 1944, í sambúð með
Eygló Andrésdóttur, Jóna, f. 21.
ágúst 1946, gift Jóni Friðriks-
syni, Matthías, f. 8. júlí 1950, í
sambúð með Katrínu Eiríksdótt-
ur, Dagný, f. 27. október 1962,
í sambúð með Halldóri Guð-
bergssyni.
Jóhann lauk gagnfræðaprófi
L
Elskulegur bróðir okkar er látinn
langt um aldur fram eftir erfiða en
stutta baráttu við illvígan sjúkdóm.
Jóhann ólst upp ásamt okkur systk-
inunum við sjávarsíðuna á Seltjarn-
arnesi. Á þeim árum var nesið ekki
eins þéttbyggt og í dag. Margs er
að minnast þegar litið er til baka,
t.d. þegar kýrnar í Nesi voru rekn-
ar í túnið heima á hveijum morgni
og hvað okkur þótti gaman að ærsl-
ast í þeim eða fara niður í fjöru eða
út á bryggju að veiða, ufsa eða
kola. Þá má ekki gleyma Gróttu
og öllum ævintýrunum sem við
upplifðum þar. Það var mikið líf í
okkur krökkunum á þessum árum.
Við vorum ekki há í loftinu þegar
við tókum þát í að breiða fisk á
fiskreiti og unnum ýmsa aðra vinnu
sem til féll. Alltaf höfðum við nóg
fyrir stafni á þessu yndislega Nesi,
með þessa ósnortnu náttúrufegurð.
Jóhann hafði mikinn áhuga á
íþróttum, einkum knattspyrnu, og
lék með KR í mörg ár og þótti
hann mjög efnilegur. Þótt Jóhann
hefði hætt að leika knattspyrnu
fylgdist hann mjög vel með hvað
var að geast í íþróttaheiminum
hveiju sinni.
Jóhann bróðir var dulur að eðlis-
fari og bar ekki tilfinningar sínar
á torg en tryggur sínum nánustu.
Elsku bróðir, við kveðjum þig með
söknuð í hjarta og vitum að þjáning-
um þínum er lokið.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð þinn náðarkraftur
mín veri vðrn i nótt.
Æ, virzt mig að þér taka
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson).
Hafðu þökk fyrir allt.
Systkinin.
Elsku Jóhann frændi, það var
sárt að missa þig. Þú komst fram
við mig eins og faðir. Þú lést eins
og þú ættir tvö börn, mig og Evu
Rún. Þér fannst alltaf gaman að
knattspyrnu og þú hélst með KR
eins og ég. En þú varst allt í einu
veikur og þá vissi ég ekki að þetta
væri krabbamein. Svo sagði
mamma mér það. Þegar ég kom á
spítalann til þín sagði ég að ég
ætlaði að koma aftur, en mamma
og pabbi bönnuðu mér það. Mamma
sagði daginn eftir að ég gæti kom-
ið og heimsótt þig og fært þér blóm
en það varð aldrei neitt úr því.
Mamma sagði mér um kvöldið, þeg-
ar hún var komin heim af spítalan-
um að þú værir dáinn. Ég grét í
fanginu á mömmu minni en vissi
alla vega að þú værir kominn til
Guðs. Ef þú værir hjá okkur ennþá,
mundum við tefla skák eða spila
olsen olsen, sem okkur fannst svo
skemmtilegt. Þú áttir afmæli rétt
áður en þú lést og ég náði ekki að
frá Mýrarhúsa-
skóla á Seltjarn-
arnesi, en hóf síðar
nám í glerslípun og
speglagerð við Iðn-
skólann í Reykja-
vík. Öðlaðist hann
meistararéttindi
20. ágúst 1990. Jó-
hann starfaði
lengst af hjá
Glerslípun og
spegiagerð Lud-
vigs Storr við
Klapparstíg. Síð-
ustu árin starfaði
hann við Glerslípun
og speglagerð hf. Skeifunni 5.
Jóhann kvæntist ekki og var
barnlaus. Hann bjó í foreidra-
húsum og eftir að faðir hans
lézt, hélt hann heimili ásamt
móður sinni.
Útför Jóhanns fer fram frá
Fossvogskirkju þriðjudaginn
20. maí og hefst athöfnin klukk-
an 13.30.
gefa þér neitt, en þess í stað set
ég blóm á kistuna þína. Á spítalan-
um leið þér illa og þú varst alltaf
að missa meðvitund. Maður hélt að
þú værir dáinn, þegar þú andaðir
ekki í langan tíma. Þú varst svo
góður við mig og alla. Oft sagðir
þú mér sögur og fleira. Ég hélt að
þú kæmist í 11 ára afmælið mitt í
júlí en ég veit að þú fylgist með
mér áfram. Nú veit ég að þér er
batnað og pabbi þinn, ömmur og
afar taka örugglega vel á móti þér.
Andi trúar, andi vonar
andi Jesú Krists, Guðs sonar,
andi dýrrar elsku hans,
lát þú sannleiks Ijósið bjarta
lýsa skært í mínu hjarta
fyll það krafti kærleikans.
(V. Briem).
Vertu sæll, besti frændi í heimi.
Þinn frændi
Gunnar Magnús.
Elsku frændi minn. Nú langar
mig að kveðja þig með nokkrum
orðum. Ég ólst meira og minna upp
á þínu heimili fram yfir unglingsár-
in. Þú varst svo barngóður og góð-
ur við mig. Mér eru minnisstæðast-
ar samræður okkar en þá var ég
komin á unglingsárin og þú varst
að leiðbeina mér þegar ég var að
fara út að skemmta mér. Þá vildir
þú vita hvert ég væri að fara og
með hveijum og hvernig ég kæmist
heim að loknu balli. Mér þykir vænt
um þessar minningar, því við gátum
talað um allt á milli himins og jarð-
ar. Seinna er ég eignaðist mitt
fyrsta barn, sem er stúlka, varstu
svo góður við hana enda var hún
mjög hænd að þér.
Þú barðist hetjulega við þinn
sjúkdóm og varst duglegur í alla
staði, jákvæður og fínnst mér þú
hafa tekið á þessum veikindum með
æðruleysi og kjarki, elsku Jói, og
finnst mér æðruleysisbænin eiga
vel við þig.
Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við
það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta
því sem ég get breytt og vit til að greina
þar á milli.
(Æðruleysisbænin)
Nú kveð ég þig, elsku frændi
minn, með vissu í hjarta mínu að
það verði tekið vel á móti þér.
Elsku amma, mamma, Dagný,
Mansi, Simmi og Gunnar Magnús,
Guð gefi ykkur stygk í þessari miklu
sorg.
Kristín Gunný Jónsdóttir og
Eva Rún Sigurðardóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust
er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin
Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins
í bréfasíma 5691115, eða á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar
þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Lokað
Vegna jarðarfarar JÓHANNS M. GUNNARSSONAR verður lokað
þriðjudaginn 20. maí eftir kl. 12.
Glerslípun og speglagerð
Skeifunni 5.
t
Ástkær sonur okkar og bróðir,
ÁRNI PÉTUR LUND,
Urriðakvísl 21,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 21. maí kl. 15.00.
Maríus Lund,
Bergþór Lund,
Ásdís Karlsdóttir,
Karl Lund.
t
Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og
frændi,
JÓHANN MAGNÚS GUNNARSSON
glerslípari
og speglagerðarmaður,
Stífiuseli 8,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 20. maí kl. 13.30.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þem, sem vilja minnast hans, er bent á
Krabbameinsfélag (slands.
Kristín Bárðardóttir,
Símon Gunnarsson, Eygló Andrésdóttir,
Jóna Gunnarsdóttir, Jón Friðriksson,
Matthías Gunnarsson, Katrín Eiríksdóttir,
Dagný Gunnarsdóttir, Halldór Guðbergsson,
Kristín Gunný Jónsdóttir,
Gunnar Magnús Halldórsson.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, dóttir, amma og systir,
ELÍN EDDA GUÐMUNDSDÓTTIR
læknafulltrúi,
Akraseli 4,
Reykjavík,
sem lést 10. maí, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni miðvikudaginn 21. maí kl. 13.30.
?■
Þorsteinn Þorsteinsson,
Guðmundur Þorsteinsson, Anný Hermansen,
Bergijót Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Bergmann,
Þorsteinn Þorsteinsson,
Guðbjörg Þorsteinsdóttir,
Guðmundur Guðmundsson, Elín Guðmundsdóttir,
barnabörn og systkini.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÞÓRÐUR EINARSSON
fyrrverandi sendiherra,
verður jarðsunginn frá Neskirkju miðviku-
daginn 21. maí kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeir, sem vildu minnast hans, láti líknar-
stofnanir njóta þess.
Karólína Hlíðdal,
Sigríður Þórðardóttir, Francis Worthington,
Þorvaldur Hlíðdal Þórðarson, Sigurlaug Anna Auðunsdóttir,
Jóhannes Þórðarson, Arndís Inga Sverrisdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SIGURÐUR HALLDÓR GÍSLASON
frá Hóli,
Ólafsfirði,
Reynihvammi 43,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju miðviku-
daginn 21. maí kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hans, er bent á heimahlynningu Krabbameins-
félags íslands.
Fjóla Valdís Bjarnadóttir,
Ragnhildur Freyja Sverrisdóttir, Helgi Eiríksson,
Kristín Valdís Sigurðardóttir, Bjarni Þór Guðmundsson,
Bjarni Sigurðsson, Kristín Bessa Harðardóttir,
ingibjörg Erna Sigurðardóttir, Sveinbjörn Halldórsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Bróðir okkar,
JÓNASEGGERTTÓMASSON
bóndi,
Sólheimatungu,
er lést 12. maí sl. verður jarðsunginn frá Staf-
holtskirkju miðvikudaginn 21. maí kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega
bent á björgunarsveitina Fleiðar, Varmalandi,
Stafholtstungum.
Guðrún M. Tómasdóttir,
Sigurður Tómasson,
Guðríður Tómasdóttir
og fjölskyldur.
Arnór Hannibalsson, Ólafur Hannibalsson,
Elín Hannibalsdóttir, Guðríður Hannibalsdóttir,
Jón Baldvin Hannibalsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og tengdabörn.